Þjóðviljinn - 25.06.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 25.06.1985, Blaðsíða 2
TORGHD ____________________________FRÉTTIR____________ ASÍ/VSÍ samningarnir Samningamir haimaðir Verklýðsfélagið Þór á Selfossi átelur að kröfum fiskvinnslufólks hafi verið fórnað. Samningarnir staðfesta kaupránið. Atalið að kauptrygg~ ingarkrafan hafi verið þurrkuð út. Tíminn fram til áramóta verði notaður til að rétta við hag verkafólks og virðingu verkalýðshreyfingarinnar Fundur í Verkalýðsfélaginu Þór á Selfossi, haldinn 21.6. 1985 harmar að gerður skuli hafa verið samningur um það, að stað- festa endanlega kauprán ríkis- stjórnarinnar frá 1983. Fundurinn átelur það að kröf- um fiskvinnslufólks var fórnað til að gera þennan samning. Fundurinn átelur að lægstu laun skuli aðeins hækka um 1.300,- kr. á mánuði, eftir að hafa verið kr. 14.075,- í átta mánuði. Fundurinn átelur að krafan um kauptryggingu var þurrkuð út há- vaðalaust. Fundurinn ályktar, að þar sem ekki er að búast við samstöðu verkalýðshreyfingarinnar um betri samninga á þessu ári sé ekki verjandi að svipta félagsmenn þeim litlu kjarabótum sem í samningunum felast. Því sam- þykkir fundurinn samningsdrög A.S.Í. og V.S.Í. frá 15. júní, í trausti þess að tíminn til áramóta verði notaður til að undirbúa þær aðgerðir sem þarf til að rétta við hag verkafólks og virðingu verka- lýðshreyfingarinnar. Skyldi ekki vera öruggt að Al- bert verði álitinn meiri en Jón Sig. og Hriflu-Jónas til sam- ans? BSRB Skammtímasamn- ingar íASÍ-dúr eða uppsögnfrál. sept. Albert Har up- tryggingu Gunnar Arnarsson og Hreggviður Eyvindsson tamningamenn, hjá þeim stendur gæðingurinn Fróði sem mun taka þátt í gæðingakeppninni um helgina. Mynd. Valdís. _ . _ Fjórðungsmotw Megas á hestamannamót Fjórðungsmót hestamanna á Suðurlandi hefstáfimmtudag. Gunnar Arnarsson: Venjulegþjóðhátíð bliknar ísamanburði viðþað fjörsem verður á laugardaginn Fjórðungsmót hestamanna á Suðurlandi hefst á fimmtu- daginn, 27. júní, og stendur fram til sunnudagsins 30. júní. Mótið verður haldið í hjarta höfuð- borgarsvæðisins á Víðivöllum, félagssvæði Fáks, við Elliðaár. tæki langan tíma að temja hross og gera úr honum gæðing, það getur tekið allt upp í tvö ár. Einn- ig eru gæðingarnir ræktaðir undan ákveðnum stofnum, en hann vildi ekki tjá sig um það hvaða stofnar væru bestir, það er meiri hiti í hrossapólitík en venjulegri pólitík, svo keppnin verður að leiða það í ljós. „Það verður geypilegt fjör hér á laugardaginn, venjuleg þjóð- hátíð bliknar í samanburði við þessa kvöldvöku sem hér verður haldin. Á skemmtuninni koma m.a. fram Stuðmenn og Megas,” sögðu félagarnir að lokum. -sp í gær kom tíu manna viðræðu- nefnd BSRB saman ásamt fulltrú- um frá aðildarfélögum til að ræða stöðuna í samningamálum. Fjár- málaráðherra hefur hafnað til- boði BSRB um 18 mánaða samn- ing með kaupmáttartryggingar- ákvæðum og býður samning til áramóta á svipuðum ^runni og samningur ASI og VSI. Ríkistilboðið kom fram á föstudag og var strax sent aðildarfélögunum til athugunar, meðal annars vegna þess að sér- kjarasamningar félaganna koma mjög við sögu aðalkjara- samningsins. Fulltrúar BSRB ætluðu að ganga á fund fjármála- ráðherra í morgun til að ræða frekar um vinnubrögð í viðræð- unum, en að sögn Haralds Stein- þórssonar hjá BSRB mun 60 manna samninganefndin kölluð saman í vikunni og verður þá ákveðið hvort samið verður til skamms tíma á ASÍ-nótum eða haldið við fyrri kröfur um langan kaupmáttarsamning. Launalið- um gildandi samnings þarf að segja upp fyrir mánaðamót ef ekki verður samið aftur strax, og væru launaliðir þá úr sambandi frá og með 1. september. _m Útvarpsstjóri Bitnar á innlendri dagskrárgerð Markús Örn Antonsson: Ekkert nýtt að sjónvarpið standi frammifyrir samkeppni við fyrirtœki úti í bæ um tæknimenn Að mótinu standa búnaðar- sambönd og 15 hestamannafélög á Suður- og Suðvesturlandi, sem gerir helming félagsbundinna hestamanna í landinu. Tala þeirra starfsmanna sem tekið hafa þátt í undirbúningi mótsins er um 700, og er starfið nær allt unnið í sjálfboðavinnu. Þjóðviljinn átti leið um Víði- velli í gær og hitti þar tvo bráð- hressa hestamenn, þá Gunnar Arnarsson og Hreggvið Eyvinds- son sem starfa báðir við tamning- ar og eru með reiðnámskeið. Þeir ætla að bera saman hepta sína á mótinu, á sviði kynbóta og taka þátt í gæðingakeppninni. Gunnar sagði að aðalmark- miðið með svona mótum væri að gefa hestamönnum tækifæri á að taka út stöðuna í t.d. kynbótum hrossa, hvað væri að gerast á þeim vettvangi, nú svo líka að sýna sig og sjá aðra. Gunnar sagði ennfremur að það væri mjög misjafnt hvað það etta er erfið staða sem sjón- varpið er í, það gefur auga leið að það hefur slæm áhrif á innlenda dagskrárgerð ef fleiri tæknimenn yfirgefa sjónvarpið vegna lélegra launa. Við erum búnir að vekja athygli ráða- manna á þessari hættu, sagði Markús Örn Antonsson útvarps- stjóri í samtali við blaðið. Þjóðviljinn vakti athygli í síð- ustu viku á því ófremdarástandi sem ríkir hjá sjónvarpinu vegna flótta tæknimanna frá stofnun- inni sem bjóðast mun hærri laun hjá einkafyrirtækjum. Markús sagði að þetta væri ekkert nýtt að sjónvarpið stæði frammi fyrir þessum vanda. - Nú er það bara stóra spurn- ingin hvað gerist þegar fleiri hefja sjónvarpsrekstur, með tilkomu nýju útvarpslaganna. íslenska sjónvarpið hefur verið eins konar uppeldisstöð fyrir tæknimenn á þessu sviði, og það er ljóst að við erum ekki í neinni aðstöðu til að keppa við einkastöðvar um mannskap meðan launakjörin eru eins og þau eru nú hjá því opinbera, sagði Markús. Hann sagði ennfremur að sjón- varpið hefði að undanförnu keypt sjónvarpsþætti frá fyrir- tækjum úti í bæ. Hann gerði ráð fyrir að það myndi aukast á næst- unni. - Ég er í raun hissa á að okkur ' skuli ekki hafa borist fleiri tilboð en raun ber vitni, um þætti, það\ eru að minnsta kosti þrjú fyrir- tæki sem geta framleitt þátt sem standast okkar gæðakröfur, ég átti satt best að segja von á fleiri tilboðum frá þessum fyrir- tækjum, sagði Markús, og hann bætti við að í raun væri ekkert óeðlilegt við það að sjónvarpið keypti efni frá fyrirtækjum úti í bæ. - Það þarf að finna jafnvægi þar á milli, stofnunin verður að hafa á að skipa hæfum mönnum sem verða að fá að spreyta sig á sem flestum sviðum, sagði Mark- ús Örn Antonsson útvarpsstjóri. Hann sagði einnig að sér hefði skilist á ráðamönnum sem fara með launamál rfkisins að við gerð næstu samninga yrði reynt að taka tillit til 'þess ófremdar- ástands sem skapast hefur víða hjá ríkinu vegna flótta raf- iðnaðarmanna frá því opinbera vegna iélegra launa. -SG 2 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.