Þjóðviljinn - 25.06.1985, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 25.06.1985, Blaðsíða 15
Samvinnuhreyfingin FRETT1R Mannréttindi Forektrar styðja fóstrar Lokanir deilda dagheimila eru yfirvofandi. Vel heppnuð húsmæðra- vika Hin árlega húsmæðravika Sam- bandsins og kaupfélaganna var haldinn að Bifröst í Borgarfirði dagana 5. - 12. júní s.l. Þáttak- endur voru 64 frá 16 kaupfé- lögum víðs vegar um landið. Forstöðumaður vikunnar var Guðmundur Guðmundsson fræðslufulltrúi Sambandsins. Húsmæðravikan er fræðslu-, skemmti- og hvfldarvika og voru á dagskrá hennar að þessu sinni fræðsluerndi, vörukynningar, kynnisferðir, kvöldvökur o.m.fl. Þátttakendur lýstu mikilli ánægju með húsmæðravikuna og var for- stöðumanni hennar og starfsfólki hótelsins að Bifröst færðar sér- stakar þakkir í lok vikunnar. Sambandið og kaupfélögin hafa staðið fyrir slíkri húsmæðraviku allt frá árinu 1960 og var þessi vika því sú 26. í röðinni. Foreldrasamtök barna á dag- heimilum og leikskólum í Reykjavík sendu inn opið bréf sem segir m.a.: Ástand dagvistunarmála er vægast sagt mjög slæmt um þess- ar mundir. í yfirlýsingu forstöðu- manna dagvistarstofnanna kem- ur fram að þeir treysta sér ekki til að reka þær, eins og ástandið verður í haust og eru því lokanir yfirvofandi. Stöðug starfsmannaskipti á deildum dagvistarheimilanna eru mjög slæm fyrir börnin og geta þau verið beinlínis skaðleg. Við foreldrar lítum á dagvist barnanna sem lið í uppeldi þeirra, en ekki barnageymslu. Þegar mannabreytingar eru örar á deildunum, of fáir starfsmenn um börnin o.s.frv., gengur börn- unum illa að mynda tengsl við starfsfólk. Tengsl sem einmitt er undirstaða vellíðunar beggja að- ila, barnanna og starfsfólksins. Þar sem ástæðan fyrir örum mannabreytingum eru slæm kjör bæði faglærðs og ófaglærðs starfs- fólks styðjum við eindregið starfsfólk í kjarabaráttu þeirra. Við hvetjum yfirvöld til að bregðast skjótt við, þannig að ekki komi til lokana í haust. Við bendum á að lokanir dagvistar- stofnanna í haust hafi ekki ein- ungis ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér fyrir börnin, for- eldra og starfsfólk, heldur einnig á atvinnulífið í borginni í heild. “®P LÁTTU ÞAÐ EKKI HENDA ÞIG AÐ SJÁ EKKI SKÓGINN FYRIRTRJÁM Kosningaréttur Nokkur á undan Missagt var í Þjóðviljanum í fyrradag að aðeins í Wyoming í Bandaríkjunum hefðu konur unnið sér kosningarétt þegar al- þingi samþykkti stjórnarskrár- breytingu um kosningarétt kvenna árið 1911, þá sem gekk í gildi 1915. Árið 1911 höfðu konur kosn- ingarétt í sex af bandaríkjum Norður-Ameríku, í Nýja- Sjálandi, Ástralíu og Finnlandi. Skriðan fer svo af stað fyrir al- vöru eftir heimsstyrjöldina fyrri. Hins vegar munu íconur á íslandi fyrstar hafa haft rétt til að kjósa til sveitarstjórna, árið 1882, að vísu aðeins ógiftar og ekkjur með búsforráð. Vakna fyrr í stjórnar- ráðinu Ákveðið hefur verið að færa starfsdag í Stjórnarráðinu fram um klukkutíma yfir sumarmán- uðina. Verða því skrifstofur Stjórnarráðs íslands opnar kl. 8. 00 til kl. 16.00 mánudaga til föstudaga frá 23. júní - 30. sept- ember 1985. Hestar Evropumot í sumar Hestmannafélagið Fákúr efnir í samvinnu við Ferðaskrifstofuna Útsýn til hópferðar á Evrópu- meistaramót íslenskra hesta í Sví- þjóð í sumar. Boðið er uppá tvær ferðir og verður flogið beint til Gautaborgar í upphafi beggja ferðanna þann 15. ágúst. Þar verður gist í fjórar nætur á glæsi- hótelinu Hotel Rubinen meðan á mótinu stendur. Verða daglegar ferðir frá hótelinu á mótsstað og til baka um kvöldið eins og óskað er, auk þess sem morgunverður á hótelinu er innifalinn í verðinu. Eftir mótið skiptast leiðir. Þeir sem fara í styttri ferðina fá far til Kaupmannahafnar og geta þeir dvalið þar eða hvar sem er í Evr- ópu í allt að mánuð og flogið síð- an heim. Fararstjóri í þessa ferð á Evr- ópumeistaramót íslenskra hesta í Svíþjóð verður hinn kunni hesta- maður Guðlaugur Tryggvi Karls- son og veitir hann ásamt Ferða- skrifstofunni Útsýn allar nánari upplýsingar um ferðina. - AÐALATRIÐIÐ ER, AÐ FLUGLEIÐIR BJÓÐA SÉRSTÖK FARGJÖLD Á VILDARKJÖRUM FYRIR FJÖLSKYLDUR, UNGA, ALDNA OG ÖRYRKJA. ÞÚ SKALT KANNA VEL HVAÐ FLUGLEIÐIR GETA BOÐIÐ ÞÉR. Fjölskyldufargjald Forsvarsmaður greiðir fullt fargjald. Maki og böm á aldrinum 12-20 ára greiða 50%, en 2-11 ára böm ein- ungis 25%. - Gildir til allra áfangastaða Flugleiða innanlands, í allt að 30 daga. APEX Veittur er 40% afsláttur af fullu fargjaldi. Börn innan 12 ára aldurs greiða helmingi minna. Bóka þarf með 7 daga fyrirvara. Gildir til allra áfangastaða Flugleiða innanlands. Gildistími 21 dagur. Unglingar á aldrinum 12-18 ára fá 30% afslátt af fullu fargjaldi. - Gildir til allra áfangastaða Flugleiða 1. maí til 10. júní og 20. ágúst til 30. september. Hringflug er ætíað þeim sem kjósa frekar að fljúga umhverfis landið en aka hringveginn. Viðkomustaðir em Reykjavík, ísafjörður, Akureyri, Egilsstaðir, Homafjörður, Reykjavík. Verðið er ákveðið á hverju vori. - Gildir á tímabilinu 1. maí til 30. september, í 30 daga lengst. Aldraðir Aldraðir fá 50% afslátt af fullu fargjaldi þriðjudaga, miðvikudaga og laugardaga. - Gildir til allra áfanga- staða innanlands, í alit að 60 daga. Öiyrkjar ; Þeir sem eru 75% örýríjar' eða meira fá 25% afslátt af fullu fargjaldi. Framvísa þarf öryrkjaskírteini. - Gildir til allra áfangastaða innanlands alla daga vikunn- ar, nema föstudaga og sunnudaga. | HOPP 1 Óbókaðir farþegar eiga kost á 50% fargjaldi á leiðinni Reykjavík - Ákureyri - Reykjavík, þegar sæti eru laus. Taka þarf afgreiðslunúmer á flugvelli klukkustund fyrir brottför. - Gildir til Akureyrar á þriðjudags-, fimmtu- dags- og laugardagskvöldum. Frá Akureyri á mánu- dags-, miðvikudags- og föstudagsmorgnum. Tengifargjöld Sérstök fargjöld em í boði fyrir farþega á leið í eða úr millilandaflugi. Fargjöldin em mismunandi, eftir eðli farseðilsins í millilandaflugi, allt að því að vera ókeypis. Einnig em í boði sérstök fargjöld fyrir þá sem vilja fljúga um Reykjavík milli staða innanlands. - Giídir til allra áfangastaða Flugleiða innanlands árið um kring. Gildistími mismunandi eftir tegund fargjalds. Námsmenn Námsmenn á aldrinum 12-26 ára fá 25% afslátt gegn framvísun skólaskírteinis. Gildir á milli lögheimilis og skóla á tímabilinu 1. september til 31. maí,ogáöllum leiðum innanlands frá 1. júní til 31. ágúst. ÞETTA ER EKKI FRUMSKÓGUR, HELDUR YFIRLIT UM VÍÐTÆKA ÞJÓNUSTU FLUGLEIÐA INNANLANDS FLUGLEIDIR ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.