Þjóðviljinn - 25.06.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 25.06.1985, Blaðsíða 16
Aðalsfml: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. MðDlflUINN Þrlðjudagur 25. Júnf 1985 141. tölubiað 50. árgangur Dœmt í sérkennilegu höfundarréttarmáli í gœr Ígær var kveðinn upp dómur í bæjarþingi Reykjavíkur í máli sem Kristín G. Magnús leikkona höfðaði gegn Ríkisútvarpinu og Herdísi Þorvaldsdóttur leikkonu. Málið er nokkuð óvenjulegt og vekur upp ýmsar spurningar um höfundarrétt, svo og hvort menn séu bundnir af munniegum lof- orðum forvera sinna í starfi. Forsaga málsins er að Kristín G. Magnús bauð Ríkisútvarpinu árið 1977 til flutnings þýðingu sína á leikritinu „The Private Ear“ eftir Peter Shaffer. Hún mun um leið hafa óskað eftir að fá að leikstýra verkinu sjálf. Þá- verandi leiklistarstj óri útvarps mun hafa gefið henni til kynna að henni yrði falin leikstjórn verks- ins, þá og þegar það væri flutt. Næst gerist það að settur leik- listarstjóri útvarps ræður Herdísi Þorvaldsdóttur til að stjórna flutningi þessa verks í útvarpið og var það sent út í júlí 1982. Ýmsar breytingar höfðu þá verið gerðar á þýðingu Kristínar og verkið, sem er sviðsverk, lagað að útvarpsflutningi. Málið stóð meðal annars um það hvort leikstjóri hefði farið út fyrir hei- mild sína til breytinga á handriti án samþykkis höfundar. Svo virðst sem hvorki leik- stjóra né leiklistarstjóra útvarps hafi verið kunnugt um samkomu- lag Kristínar og fyrrverandi leik- listarstjóra. Steingrímur Gautur Kristjáns- son borgardómari, Helgi Hálf- danarson rithöfundur og Stefán Baldursson leikhússtjóri kváðu upp þann dóm að Herdís skyldi sýknuð af öllum kröfum, en Rikisútvarpið dæmt til greiðslu bóta í ljósi þess að samkomulag hafði verið gert við Kristínu, verki hennar breytt sumstaðar til hins verra og að brotið hafi verið á skýlausum rétti hennar til þess að vera með í ráðum um breytingar sem þýðanda verks- ins. -pv Pjóðleikhúsið Frumsýning á Blönduósi Leikför um Noröur- og Austurland með gamanleikinn Með vífið í lúkunum Þjóðleikhúsið hyggst leggja land undir fót í sumar með bresk- an gamanleik sem heitir Með vífíð í lúkunum og verður frumsýning 1. júlí nk. í Félagsheimilinu á Blönduósi. Verður síðan sýnt á hverju kvöldi í hálfan mánuð og haldið austur um. Síðasta sýning verður á Höfn í Hornafírði 14. júlí. Með vífið í lúkunum er nýlegur ærslaleikur eftir Ray Cooney og er Benedikt Árnason leikstjóri. Með hlutverkin í sýningunni fara Örn Árnason, Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Sigurður Sigur- jónsson, Pálmi Gestsson, Sigurð- ur Skúlason, Randver Þorláks- son og Þorgrímur Einarsson. -GFr Reyni Pétri var vel tekið við komuna til Reykjavíkur og telur lögreglan að um 12-14000 manns hafi verið á Lækjartorgi til að fagna kappanum. SBHBHBBBBBHHBBHHBBDi Afmœli Hlakka til að hitta vini mína María Markan áttrœð í dag. Fimm lög eftir hana flutt í afmœlishófinu í dag María Markan óperusöngkona er 80 ára gömul í dag og í afmælis- hófí hennar í Domus Medica í dag verða flutt fímm lög eftir hana við Uóð höfunda, sem allir verða við- staddir. Við áttum örstutt spjall við Maríu í gær í tilefni af afmæl- inu: „Ég hlakka mikið til að halda upp á afmælið og hitta vini mína. Það er fyrst og fremst nokkrum nemendum mínum og konum úr Kvenfélagi Laugarnesóknar að þakka að ég held upp á afmælið með þessum hætti. Þær hafa stað- ið í þessu og eiga allan heiðurinn. Ég var að draga fram stórriddar- akrossinn minn sem Kristján heitinn Eldjárn afhenti mér síð- asta árið hans í forsetaembætti. Ég hef aldrei borið krossinn, en ég vil heiðra minningu Kristjáns með því að bera krossinn í afmæl- inu.“ „Og það verða sungin lög eftir þig í afmælishófinu?“ „Já, ég hef oft samið lög við Ijóð sem mér hafa þótt falleg og Élín Sigurvinsdóttir ætlar að syngja fimm þeirra. Og höfund- arnir verða allir viðstaddir. Mér hefur þótt ákaflega gaman að semja tónlist, þótt söngurinn hafi alltaf verið aðalatriðið," sagði María ennfremur. í tilefni af afmælinu hefur hún beðið um að þeirri ósk yrði kom- ið á framfæri að þeir sem vilja senda henni gjafir eða blóm láti andvirðið renna til Blindrabóka- safns íslands. „Ég hef fengið ómælda ánægju af því að hlusta á upptökur safnsins og ég vil miklu frekar styðja safnið, en að fylla allt af blómum sem ég verð svo að fleygja. Þetta er svo gott félag og ég vil leggja mitt af mörkum til mannúðarmála af þessu tagi,“ sagði María. „Það er ómetanlegt að geta fylgst með og notið góðra bóka á þennan hátt. Það er svo mikið sem hægt er að gera fyrir fólk í dag sem er farið að förlast sýn og missa heyrn. Ég er t.d. með glæ- nýtt heyrnartæki. Nú get ég farið í leikhús og á tónleika og þá stilli ég bara á segulsviðið og heyri allt sem gerist á sviðinu. Þetta er stór- kostlegt," sagði María að lokum. Þeir sem vilja heiðra Maríu með því að styrkja Blindrabóka- safnið geta snúið sér beint til safnsins. Um leið óskum við af- mælisbarninu til hamingju með afmælið. þs Göngu-Reynir Lokar hringnum Göngu-Reynir að nálgastmarkið. Hress og kátur að vanda og lœtur engan bilbug á sérfinna. Hringurinn alltof stuttur. í dag þriðjudag mun kappinn Göngu-Reynir ganga frá Höfða- bakka til Selfoss og loka með því hringnum, með sínum alkunna eldmóð og iætur sig ekki dreyma um annað en íþróttaleikhús. Selfyssingar og félagar frá Sól- heimum í Grímsnesi munu taka á móti Reyni Pétri við Kögunarhól og fylgja honum eftir síðasta spölinn að Ölfusárbrú, þar sem hann hóf hið sögulega framtak. Þetta verður framlag bæjarbúa til göngudags ungmennafélaganna. Móttaka verður við kaupfé- lagshúsið, bæjarstjóri Selfoss mun þar afhenda Reyni Pétri fra- mlög sem safnast hafa, ávörp flutt og lúðrahljómsveit þeytir lúðra sína. Að síðustu munu Selfossbúar bjóða Reyni Pétri og fylgdarliði hans til kvöldverðar. _sp Sjá bls. 7 og leiðara bls. 4

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.