Þjóðviljinn - 25.06.1985, Side 6
FLÓAMARKAÐURINN AFMÆU
áttrœð
Til sölu
vegna flutninga:
Finlux myndbandstæki (VHS) í góöu
lagi á 22 þús., bókahillur (frístand-
andi) með 6 hillum, kr. 600.-, stofu-
skápur kr. 1500.-, Frigidaire þvotta-
vél (þarfnast lagfæringa) kr. 1000.-,
Pioneer hljómtæki (magnari, plötu-
spilari og 2 stórir hátalarar) kr. 2500.-.
Sími 39442 e. kl. 5 á daginn.
íbúð óskast
32 ára einstakling vantar 1-2 herb.
íbúð sem fyrst. Sími 75671 eftir kl. 19
á kvöldin.
íbúð
Við hjónin höfum enga íbúð til að
leigja og vantar þess vegna slíkt með
þremur herbergjum ef til vill. Peninga
vantar okkur ekki. Sími 78389.
Pottofn og panelofn
til sölu. Seljast á hálfvirði. Einnig til
sölu krullujárn og hárþurrka. Sími
685285.
Gráblá amerísk dragt,
Ijós sumarkápa, hvítur jakki nr. 20 og
þýsk buxnadragt nr. 22 til sölu. Sími
15501 eftir kl. 18.
Sófasett til sölu
3-2-1 og sófaborð getur fylgt. Sími
75476.
Ég er 11 ára
og mig langar til að passa barn í
kerru, 4 tíma á dag. Sími 36854.
Hjól tapaðist
frá Laugavegi 116 síðastl. sunnudag.
Hjólið er Raleigh kvenhjól 10 gíra,
Ijósbrúnt og sérstök einkenni eru að
Ijósið vantar aftaná, bandið vinstra
megin á stýri er laust og rifur eru á
hnakknum. Sá sem sér hjólið ein-
hversstaðar er vinsamlegast beðinn
að hafa samband við Auði í síma
38870 milli kl. 7.30 og 16.30.
Camp Tourist
tjaldvagn árg. '79 til sölu. Verð kr.
50.000. Sími 42065.
30 ára kona
óskar eftir starfi í júlí, allt kemur til
greina. Sími 38455.
Saab 96 - flísar
Saab 96 árg. '76 í toppstandi, margt
nýtt, s.s. demparar, gormar, kúpling,
rafgeymir og dekk, verð kr. 65 þús.
Góð kjör eða staðgr.afsláttur. Einnig
til sölu hvítar keramikflísar 15x20 cm
4 m2. Sími 78808 og 16198 (Sigur-
jón).
íbúð óskast
Ung reglusöm hjón óska eftir 3ja
herb. íbúð á leigu sem fyrst. Höfum
góð meðmæli. Erum róleg. Góðri um-
gengni heitið. Sími 616467.
Herbergi óskast
22 ára dönsk stúlka í listnámi óskar
eftir að taka herbergi á leigu með að-
gangi að eldhúsi og baði, frá og með
1. október n.k. Upplýsingar í síma
39307, eftir kl. 18.
Baðborð
óskast keypt. Uppl. í síma 54549 eftir
kl. 19.
Fuglabúr
Viljum gjarnan kaupa fuglabúr af
stærri gerðinni handa stara sem við
höfum í uppeldi, án þess að þurfa að
greiða jarðarverð fyrir. Sími 81384.
Barnapía
Óska að ráða barnapíu sem getur
sótt börn á barnaheimili kl. 5 og gætt
þeirra til kl. 8 eða 9 á kvöldin, ca.
2svar í viku. Einnig þyrfti hún að gæta
barnanna á daginn frá miðjum júlí og
fram í miðjan ágúst. Uppl. í vinnusíma
81333 og heimasíma 18795 (Svava).
Óska eftir
notaðri tvíburakerru. Vinnusími
81333 og heimasími 18795. Svava.
Tilvalinn
í sumarleyfið
Fiat Polones '81 keyrður 36.500 km.
skoðaður '85 til sölu. Fæst á góðu
staðgr.verði eða með afborgunum/
eða skipti á ódýrari bíl. Sími 37429.
Barnavagn
Fallegur, góður og rauður Emmalj-
unga barnavagn til sölu á kr. 8 þús.
Uppl. í síma 82249.
Herbergi til leigu
í kjallara í blokk í Neðra-Breiðholti.
Stærð 10 fermetrar. Einnig möguleiki
að leigja það sem geymslupláss.
Upplýsingar í síma 75209 eftir kl.
17.30 á daginn.
Innrömmun
Myndarammar og málverkaprentanir
á góðu verði. Myndabúðin Njálsgötu
44, opið frá kl. 16-18.
Hvítur sturtubotn óskast
gefins eða fyrir lítinn pening. Uppl. í
síma 27175, eftir kl. 17.
Múrara
vantar eitt herbergi og eldhús. Get
aðstoðað með létt múrverk. Sími
28003.
Arfi
Tökum að okkur slátt, hreinsun og
viðhald á lóðum. Sigga sími 31274.
23 ára stúlka
í góðri vinnu, óskar eftir að leigja íbúð
með annarri stúlku eða taka á leigu
rúmgott herbergi, helst forstofu-
herbergi. Öruggum og skilvísum
greiðslum heitið. Nánari upplýsingarí
síma 35694 eða 30759.
Leðurjakki
Glæsilegur mittisleðurjakki á 178 cm
háan herra til sölu. Verð 7.500.-. Sími
13894.
Barnareiöhjól
Til sölu reiðhjól fyrir barn 3-4 ára. Er
sem nýtt. Vil kaupa reiðhjól fyrir 4-5
ára (næstu stærð). Sími 13894.
Til sölu
vegna flutninga:
(sskápur, frystikista, sjónvarp, barn-
akojur, stórt skrifborð, sófasett,
drengjareiðhjól, 7-10 ára, uppþvotta-
vél (biluð). Sími 29596.
María Markan er áttræð í
dag. Það er ótrúlegt en satt, því
að margur á bezta aldri mætti
öfunda Maríu af þeim lífskrafti,
sem hún býr enn yfir, svo að
ekki sé minnst á lífsgleðina,
sem er og hefur alltaf verið að-
alsmerkl hennar,
Og þó er langt því frá, að lífs-
hlaup Maríu Markan hafi alltaf
verið auðvelt.
Pað er vandalítið að einblína á
framann og frægðina og víst er,
að María náði óvenjulega langt á
listabrautinni. Hún var óvefengj-
anlega söngkona á alheimsmæli- j
kvarða, jafnt sjálfri sér sem ætt-
jörð sinni til sóma.
En það gleymist oft, að vandi
fylgir vegsemd hverri. Það er oft
napurt og óveðrasamt á „toppn-
um“ og erfitt að halda þar
jafnvægi. Fótfestunni halda þeir
einir, sem hafa klifið brattann í
sveita síns andlitis þrep fyrir þrep
og byggja ekki einungis á frábær-
um náttúrugjöfum heldur einnig
á miskunnarlausum sjálfsaga.
Alheimssöngvaranum er eng-
inn miskunn sýnd. Hann verður
að sanna ágæti sitt með 100%
frammistöðu í hvert sinn, sem
hann kemur fram, hvernig sem
honum sjálfum líður og hvað sem
á dynur í einkalífinu. Og hversu
vel sem hann stendur sig kemur
fyrr eða síðar að því, að sjálft
hljóðfærið, mannsbarkinn, fer að
gefa sig - oft þegar listræn geta
stendur sem hæst - og þá er tíma-
bært að víkja fyrir þeim, sem
yngri eru og sækja á brattann.
Margur alheimssöngvarinn endar
því starfsferil sinn í biturleika og
ósátt við guð og menn.
En þetta-á ekki við um Maríu
Markan, því að ekkert er fjær
henni en gremja og biturleiki.
María Markan þjónaði sönggyðj-
unni en leitaðist ekki við að láta
sönggyðjuna þjóna sér. Takmark
hennar var að syngja sig inn í hug
og hjörtu áheyrenda og lyfta
þeim á vængjum söngsins upp á
æðra og betra tilverustig. Söng-
röddin og frægðin leyfðu henni
að ná til óvenju margra, en í raun
og veru hefur María aldrei hætt
að gefa af sjálfri sér. Hún hefur
einungis gert það á annan hátt
eftir að hún hætti að syngja opin-
berlega, með því að miðla um-
hverfinu af mannkærleika sínum,
velvilja, hjartahlýju, þekkingu
og kunnáttu. Þess vegna hefur
María Markan aldrei þurft að
verða bitur, því að innra með
henni ríkja eilífðarlögmálin. Það
er bara líkaminn, sem er orðinn
80 ára.
Ég var víst ekki nema tæpra sex
ára, þegar María Markan kom
inn í tilveru mína með blessunar-
ríkum áhrifum. Mér fannst þá og
finnst reyndar enn, að María
Markan hafi verið vinur minn
ávallt síðan, en þó var það ekki
fyrr en áratugum síðar, að við
María kynntumst í raun og urð-
um gagnkvæmir vinir.
Það var nefnilega rödd Maríu
Markan, sem varð vinur minn
strax í bernsku. Ég var oft rúm-
fastur á þeim árum og eflaust hef-
ur það ekki verið heiglum hent að
hemja mig, þegar veikindi
meinuðu mér að leika á þann
hátt, sem börnum er eðlilegt. Þá
datt fóstru minni það snjallræði í
hug að stytta mér stundir með því
að gefa mér hljómplötur, sem ég
gæti hlustað á að vild. Arangur-
inn varð undraverður og fyrsta
hljómplatan, sem ég eignaðist
færði mér söng Maríu Markan
heim að rúmstokknum. Fyrsta
lagið, sem ég heyrði Maríu syngja
var „Tonerna“ eftir Sjöberg.
Tanke vars strider blott natten ser,
Toner hos eder om vila den ber.
Hjcirta som lider, som lider af
dagens gry,
Toner til eder, til er vill det fly.
Ég skildi ekki orðin og vissi því
ekki, að ég var að hlýða fyrirmæl-
um Ijóðsins, þegar ég leitaði á
náðir tónanna mér til trausts og
halds. En ég vissi, að rödd Maríu
Markan var vinur minn, vinur
sem ég gat alltaf leitað til, vinur,
sem aldrei brást.
Hljómplatan færði smám sam-
an aðra söngvara inn að rúm-
stokknum til mín, en það var
María Markan, sem leiddi mig
sér við hlið inn í undraheima
sönglistarinnar fyrst allra og fyrir
það er ég henni eilíflega þakk-
látur.
Ef til vill er þetta ástæðan fyrir
því, að það er ákaflega erfitt fyrir
mig að meta söngu Maríu Mark-
an hlutlaust.
Það eru hefðir og tízkufyrir-
brigði í söng og tónlistartúlkun
engu síður en á öðrum sviðum og
margt breytist með tímans tönn.
En eitt breytist þó aldrei: undra-
máttur náttúrugjafanna og hæfi-
leikans til að hitta mannshjartað
beint í mark. Hvort tveggja eru
náðargjafir, sem hægt er að fægja
og fegra en enginn maður gefur
sér sjálfur.
En þótt það sér erfitt fyrir mig
að dæma söng Maríu Markan
hlutlaust, er enginn skortur á
stórlistamönnum, lífs og liðnum,
sem vandalaust er að vitna til í því
sambandi.
Allir, sem til þekkja, vita hve
vandfýsinn hljómsveitarstjóri
Fritz Busch var. Færustu og fræg-
ustu söngvarar kepptust um þann
heiður að syngja undir hans
stjórn, en fáir fundu náð fyrir
hans augum. En þó var þetta
maðurinn, sem valdi Maríu
Markan sérstaklega til að syngja
hlutverk greifafrúarinnar í Brúð-
kaupi Figaros eftir Mozart við
Glyndebourne óperuna í Bret-
landi.
Hin fræga bandaríska söng-
kona Rise Stevens tók þátt í þess-
um sömu sýningum þá kornung
að aldri. Éöngu, löngu seinna
spurði ég hana um Maríu Mark-
an. „Hvernig gæti ég gleymt Mar-
íu Markan,“ var svarið, „hún var
ekki einungis einhver allra bezta
greifafrú, sem ég hef nokkurn
tíma sungið með, heldur alveg
einstök manneskja." í sama
streng tóku Bidú Sayao og Jar-
mila Novotna, sem báðar voru
samstarfskonur Maríu Markan
við Metropolitan Óperuna í New
York að ógleymdri Lucrezíu Bori
og Lawrence Tibbet, sem einnig
voru meðal fremstu söngvara
Metropolitan Óperunnar á sínum
tíma, en eru nú látin.
Elly Ameling verður ekki oft
orðfall, en hana setti hljóða, þeg-
ar hún heyrði hljóðritun með
Maríu Markan í fyrsta sinn.
„Svona sungu gömlu ftalirnir,"
sagði hún, þegar hún loks fékk
málið, „þetta kann eiginlega eng-
inn lengur. Þessi tækni er að glat-
ast.
William Parker, sem var hér
fyrir nokkru að segja til ungum
söngvurum var á sama máli: „Það
er þetta, sem Rosa Ponselle var
að reyna að kenna mér og það er
þetta, sem mig mundi langa til að
geta kennt öðrum á sama hátt og
hún kenndi mér.“
Dalton Baldwin tók dálítið
annan pól í hæðina, ef til vill
vegna þess að hann er píanó-
leikari en ekki söngvari. Og þó
held ég, að hann hafi hitt betur í
mark en nokkur hinna. Þegar
hann var búinn að hlusta á hljóð-
ritanir með flestum Norður-
landasöngvurum, sem eitthvað
kveður að, og dást að mörgum
sagði hann: „En samt erþað Mar-
ía Markan, sem nær bezt, því að
hennar er sannasta sönggleðin".
Sj álfum finst mér í raun og veru
allur samanburður á lista-
mönnum út í hött, nema ef til vill
hvað varðar tæknilega getu. Sér-
hver sannur listamaður treður
sínar eigin slóðir og hefur
eitthvað það til að bera, sem er
algjörlega sérstætt og persónu-
legt og því með öllu ósambærilegt
við það, sem aðrir hafa fram að
færa. Og María Markan er sann-
arlega engin undantekning að
þessu leyti. Mér hefur þótt vænt
um listakonuna Maríu Markan
svo til alla ævi, en ennþá vænna
þykir mér um það, sem María
Markan er í sínu innsta eðli og
liggur að baki því, sem hún hefur
afrekað, sem listakona og sem
manneskja.
Ég vil þakka Maríu Markan
allt þetta og ekki síst fyrir, hve vel
hún hefur farið með náðargjafir
sínar á langri ævi.
Og síðast en ekki síst vil ég
senda Maríu, Pétri syni hennar
og fjölskyldum beggja hugheilar
árnaðaróskir á þessum merku
tímamótum í fullri vissu um, að
alþjóð tekur undir með mér.
Laus staða
Laus er til umsóknar staða lektors í smíðum við
Kennaraháskóla íslands. Umsækjendur skulu láta
fylgja umsókn sinni rækilega greinargerð um menntun
og fyrri störf, svo og ritstörf og rannsóknir. Uppeldis-
og kennslufræðimenntun áskilin.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknum ber að skila til menntamálaráðuneytisins,
Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, og skulu þær hafa borist
fyrir 15. júlí n.k.
Menntamálaráðuneytið, 18. júní 1985.
Blikkiðjan
lönbúð 3, Garðabæ
Önnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiöi.
Gerum föst verötilboö
SIMI 46711
Halldór Ilansen.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 25. júní 1985