Þjóðviljinn - 25.06.1985, Síða 8
MANNUF
Margt var um manninn á Jónsmessuhátíðinni við Norræna húsið. Þar fór allt fram með norrænum hætti.
með þungum áherslum, og raulað með. Mynd sp.
Margt á sveimi á
Jónsmessunótt
Jónsmessan sem er með
réttu nefnd eftir Jóhannesi
skírara var haldin með
pompiogpragt ásunnu-
dagskvöldið síðasta við
norræna húsið og stóðu
Samtök vináttufélaga
Norðurlanda á íslandi fyrir
hátíðinni, undirforystu Nitu
Pálsson sem einnig er for-
maðurfélagsins.
Nita sagði það mesta þarfaþing
að koma þessum sið á hér á landi,
eins og hann tíðkast á hinum
Norðurlöndunum. Það bar að
múg og margmenni sem aldrei
ætlaði að hætta að syngja og
skemmta sér, sem sýnir að það er
geypilegur áhugi fyrir uppákom-
um sem þessum.
í Svíþjóð tíðkast það að ólof-
aðar stúlkur tína saman sjö teg-
undir af blómum sem þær síðan
flétta saman í blómsveig og
skrýða höfuð sitt á Jónsmessu.
Þegar líða tekur á kvöld og þær
leggjast til hvílu leggja þær þenn-
an blómsveig inn undir koddann
sir.n. Sagnir segja síðan að sá
maður sem meyjuna dreymir á
Jónsmessunótt með blómsveig-
inn undir koddanum, muni vera
tilvonandi mannsefni hennar.
Einnig þykir mjög hollt að
velta sér allsber upp úr dögg á
Jónsmessumorgni og segir að það
muni lækna hina ýmsu kvilla svo
sem kláðasótt og 18 önnur
óhreinindi í holdi. Það er ekki
bara dansað í kringum
Jónsmessustöng, heldur er líka
kveikt bál, sem átti í gamla daga
að halda illum öndum, tröllum og
galdrafólki frá mönnum, það var
trú manna að þessir óvættir léku
lausum hala þessa nótt.
Við Norræna húsið ríkti mikil
stemmnirig, þar blöktu pilsfaldar
hinna ýmsu þjóðbúninga og
ómuðu raddir úr skandinaviskum
hálsum. „Alle kunne forstá hin-
anden.” -sp
Eitthvað skemmtilegt hefur borið fyrir augu þessarar ungu stúlku. Mynd sp.
Þykkur faldurinn sveiflaðist í þunga dansins. Litli Færeyingurinn fylgist með í
andakt hvernig á að bera sig við dansinn. Mynd sp.
Þrátt fyrir langt kast dugði það ekki, enginn fiskur í þetta sinn.
Þessir ungu veiðimenn sögðu að þetta væri í fyrsta sinn sem þeir reyndu að
veiða í Elliðaárvatni, venjulega færu þeir niður á höfn enda kostaði það ekkert.
Fjölskyldan sameinast um stöngina.
Útilíf
Kasta grimmt
Veiðidagur fjölskyldunnar mæltist vel fyrir
- Nú ætla ég sko að fá’ann,
sjáið þið bara, sagði Sigurður
um leið og hann sýndi við-
stöddum hve langt hann gat
kastað. Sigurður var einn af
mörgum ungum og öldnum
veiðimönnum sem nýttu sér
tækifærið á sunnudaginn að
veiða ókeypis í Elliðavatni í
boði Landssambands stanga-
veiðimanna. Ekki hafði Sigurð-
ur heppnina með sér á meðan
blm. staldraði við, ekki gat
blm. heldur séð að neinir aðrir
sem þarna voru við veiðar
hefðu fengið þann stóra. Ein-
hverjar sögur voru í gangi um
þann allra stærsta sem rétt
slapp.
Veiðidagur fjölskyldunnar var
vel sóttur. Víða á Suðurlandi var
margt um manninn við veiðar.
Ekki fara sögur af aflabrögðum,
en eitt er víst, að menn voru al-
mennt ánægðir með þennan
fyrsta Veiðidag fjölskyldunnar,
sem Landsamband stangaveiði-
manna stóð fyrir til að vekja at-
hygli ráðamanna og almennings á
gildi þessarar hollu útivistar.
-SG
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 25. júní 1985