Þjóðviljinn - 26.06.1985, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR
1. deild
Víkingshmn!
3-0yfir27 mínútumfyrir leikslok en
töpuðu 4-3! Sjötta tapið íröð
Sorglegt hjá Víkingum - en vel
að verki staðið hjá FH-ingum, í
ótrúlegum sveifluleik í Kapla-
krikanum í gærkvöldi. Þegar Vík-
ingar voru komnir í 0-3 í byrjun
seinni hálfleiks voru hörðustu
Hafnflrðingar búnir að sætta sig
við tap en 4 mörk á síðustu 27
mínútunum sneru stórskelli uppí
frækilegan sigur. FH komið af
mesta hættusvæðinu - Víkingar
sitja áfram í neðsta sæti með 6 töp
í röð.
Víkingar komu mjög ákveðnir
til leiks og áttu mun meira í fyrri
hálfleik. Jóhann Holton kom
þeim yfir, fylgdi vel þegar Hall-
dór Halldórsson FH-markvörður
hélt ekki aukaspyrnu Aðalsteins
FH-Víkingur 4-3 (0-2) ★ ★★★
Mörk FH:
Henning Henningsson 63. mín.
Jón E. Ragnarsson 71. min.
Ingi B. Albertsson 80. mín.
Höröur Magnússon 88. mín.
Mörk Víkings:
Jóhann Holton 19. mín.
Aðalsteinn Aöalsteinsson 29. mín.
Atli Einarsson 49. mín.
Stjörnur FH:
Jón E. Ragnarsson **
Henning Henningsson *
Ingi B. Albertsson *
Viöar Halldórsson *
Stjörnur Víkings:
Andri Marteinsson *
Atli Einarsson *
Jóhann Hoiton *
Jóhannes Bárðarson *
Dómari: Kjartan Tómasson **
Áhorfendur 487
Aðalsteinssonar, og Aðalsteinn
var síðan á ferð með óvænt en
fallegt mark - skot utan vítateigs
efst í þaknetið, 0-2.
FH byrjaði seinni hálfleik með
látum og Jón Erling Ragnarsson
átti strax sláarskot en Víkingar
svöruðu með þriðja markinu.
Atli Einarsson var þar á ferð eftir
slæm mistök varnarmanns FH.
FH sótti stíft, fékk hvert færið á
fætur öðru - en heimamenn voru
búnir að sætta sig við tap, vonuð-
ust bara eftir einu marki eða svo.
En orrustuhríðin hófst 27 mín-
útum fyrir leikslok. Henning
Henningsson, nýkominn inná
sem varamaður, skallaði frá víta-
teig og boltinn fór í boga og hafn-
aði neðst í markhorninu, 1-3. Þá
kom Jón Erling með snyrtilegt
skallamark eftir aukaspyrnu
Viðars Halldórssonar. Staðan
skyndilega 2-3 og nú heimtuðu
Hafnfirðingar jöfnunarmark.
Það lá í loftinu í 9 mínútur og það
kom loks þegar Ingi Björn Al-
bertsson tók af skarið eftir þvögu
og þrumaði í bláhornið. Reglu-
lega fallegt, 3-3.
Allt var á suðupunkti. Víking-
ar virtust búnir með allt úthald og
reyndu að tefja en þeir misstu
líka þetta eina stig sem eftir var
útúr höndunum á sér. Tvær mín-
útur eftir, Hörður Magnússon
nær skoti af stuttu færi. 4-3 -
frækilegur sigur í höfn hjá FH-
ingum, góð uppskera fyrir að gef-
ast ekki upp og berjast til síðustu
mínútu.
-lg
1. deild
Loks heima-
sigur Víðis
Jafntefli gegn Völsurum, bæði mörkin
um miðjan seinni hálfleik
Þar kom að því að Víðismenn reka tána í boltann til að skora.
fengu stig á heimavelli sínum -
gamla mishæðótta Garðskaga-
vellinum sem var vonandi notað-
ur í síðasta sinn í 1. deild í gær-
kvöldi. Valsmenn voru I heim-
sókn og máttu sjá á bak tveimur
dýrmætum stigum í viðbót.
Valsmenn sóttu öllu meira í
fyrri hálfleiknum og á 7. mínútu
þrumaði Hilmar Sighvatsson yfir
Víðismarkið úr góðu færi. Víðis-
menn komust í sína fyrstu eigin-
legu sókn á 13. mínútu - Vilberg
Þorvaldsson einlék upp völlinn
og eftir samvinnu við Einar Ás-
björn gaf hann á Grétar Einars-
son sem hefði aðeins þurft að
Víöir-Valur 1-1 (O-O) ***
Mark Víðis:
Guðjón Guðmundsson 68. min (víti).
Mark Vals:
Þorgrímur Þráinsson 64. mín.
Stjörnur Víðis:
Gísli Heiðarsson *.
Vilberg Þorvaldsson **
Gísli Eyjólfsson *
Guðjón Guðmundsson *
Stjörnur Vals:
Þorgrímur Þráinsson ★ *
Guðmundur Þorbjörnsson *
Dómari: Friðgeir Hallgrímsson *.
Áhorfendur 455
Hann skaut of fast - og yfir.
Magni Pétursson skaut rétt fram-
hjá marki heimamanna á 16. mín-
útu og síðan varði Gísli Heiðars-
son markvörður Víðis glæsilega
frá Ingvari Guðmundssyni sem
var frír á markteig. Gísli varði
líka glæsilega frá Guðmundi
Þorbjörnssyni fyrir hlé.
í byrjun seinni hálfleiks var
Gísli enn á réttum stað, nú varði
hann frá Sævari Jónssyni. En
hann réð ekki við rosafast skot
landsliðsbakvarðarins Þorgríms
Þráinssonar af stuttu færi um
miðjan hálfleikinn. Staðan 0-1,
en við það tvíefldust Víðismenn.
Guðjón Guðmundsson var felld-
ur í vítateig Vals fjórum mínútum
síðar og úr vítaspyrnunni skoraði
hann sjálfur, 1-1.
Eftir þetta var hart barist, en
báðir aðilar virtust einum of
upptrekktir til að ná að einbeita
sér þegar mest lá við. Reyndar
skoraði Svanur Þorsteinsson fyrir
Víði með þrumuskoti en þá var
dæmd gömul rangstaða á Grétar.
Önnur eiginleg færi var ekki um
að ræða það sem eftir var, dálítill
æsingur í sumum og Guðni
Bergsson Valsmaður fékk gula
spjaldið - en jafnteflið stóð.
-SOM/Suðurnesjum
1. deild
Fram-maskínan malar
Fœri affœribandi íseinni hálfleik. Framarar sannfærandi-
víti ogfleira ísúginn hjá Þrótti í lokin
Með þessu áframhaidi verður lítil
spenna í íslandsmótinnu, 1. deild,
síðari hluta sumars. Fram-maskínan
malar allt og alla - í gærkvöldi var lið
númer tvö í deildinni, Þróttur, sigrað
á sannfærandi hátt á Laugardalsvell-
inum, 2-0.
Þróttarar gáfu eftir miðjuna í fyrri
hálfleik og vörðust við vítateiginn og
það gekk upp. Fram sótti nánast allan
hálfleikinn en fékk fá umtalsverð færi
- tveir hættulegir skallar frá Ómari
Torfasyni og einn frá Guðmundi
Torfasyni framhjá og hörkuskot frá
Kristni Jónssyni af 25 m færi sem
Guðmundur Erlingsson varði.
Strax í byrjun seinni hálfleiks færðu
Þróttarar sig uppá skaftið, og um leið
komu færi Framara af færibandi.
Eftir þriggja mínútna Þróttarsókn
sendi G. Torfason fyrir Þróttarmark-
ið og Ómar skallaði fallega í netið,
1-0. Það sem eftir var bauðst opin og
fjörug knattspvrna og um miðjan
hálfleikinn óð Ómar upp völlinn, var
stöðvaður á vítateig en boltinn barst
til Kristins sem skoraði af mikilli yfir-
vegun, 2-0. Á 71. mín. skaut Ómar
afturfyrir sig í stöng og út, náði bolt-
anum aftur en þrumaði í G. Torfason
og framhjá. Á 74. mín. kom fyrsta
færi Þróttar, Sigurjón Kristinsson
Þróttur-Fram 0-2 (O-O) ★ ★★
Mörk Fram:
Ómar Torfason 49. mín. •
Kristinn Jónsson 67. mín.
Stjörnur Þróttar:
Loftur Ólafsson *
Kristján Jónsson *
Pétur Arnþórsson *
Theodór Jóhannsson*
Stjörnur Fram:
Ómar Torfason ***
Ásgeir Elíasson *
Ormarr Örlygsson *
Kristinn Jónsson *
Pétur Ormslev *
Viðar Þorkelsson *
Dómari: Magnús Theodórsson ***
Áhorfendur 940
skallaði hættulega en Friðrik Frið-
riksson varði. Á 79. mín. skallaði
Ómar í samskeyti Þróttarmarksins -
fékk boltann aftur og skallaði en þá
varði Guðmundur.
Loks í lokin komu bestu færi Þrótt-
ar. Á 80. mínútu fékk liðið víta-
spyrnu, hendi á varnarmann Fram-
ara, en Ársæll Kristjánsson skaut
framjá! Tveimur mínútum síðar þru-
maði Pétur Arnþórsson í þverslá
Frammarksins af 25 m færi - Ársæll
skallaði frákastið rétt yfir. Þá var
Arnar Friðriksson einn á vítapunkti
en skaut yfir mark Fram. Loks á lok-
amínútunni var Pétur Ormslev í
samskonar færi hinum megin en skaut
líka yfir. Þar með var það búið, virki-
lega sanngjarnt og sannfærandi hjá
Fram og miðað við færi seinni hálf-
leiks hefðu 5-2 gefið betri mynd af
leiknum. Ómar frábær, yfirburða-
maður á vellinum, en hjá Þrótti var
það vörnin og Pétur sem stóð sig best,
athygli vakti góð gæsla Theodórs Jó-
hannssonar á Guðmundi Steinssyni
sem sást varla í leiknum.
-VS
Ómar Torfason skorar fyrra mark Fram með skalla - Þróttararnir Ársæll Kristjánsson, Arnar Friðriksson, Sverrir
Pétursson og Guðmundur Erlingsson markvörður fá ekkert að gert. Mynd: E.ÓI.
1. deild
Tvö mörk Ragnars
IA sterkari aðilinn en tapaði heima gegn ÍBK
Það dugði Skagamönnum ekki
að sækja meira og spila betur þeg-
ar þeir fengu Keflvíkinga í heim-
sókn í gærkvöldi. Suðurnesja-
menn voru ákveðnir eftir tvö töp í
röð og héldu sínu eftir að Ragnar
Margeirsson hafði komið þeim
yfir, 2-1, á fyrstu mínútu seinni
hálfleiks úr vítaspyrnu sem hann
nældi í sjálfur.
Keflvíkingar byrjuðu með
látum, mikill kraftur í þeim, en
færi ekki teljandi. ÍA náði síðan
ÍA-ÍBK 1-2 (1-1) ***
Mark lA:
Karl Þórðarson 33. mín.
Mörk IBK:
Ragnar Margeirsson 34. og 46. mín
(vfti).
Stjörnur IA:
Karl Þórðarson **
Árni Sveinsson *
Guðjón Þórðarson *
Sigurður Lárusson *
Stjörnur ÍBK:
Ragnar Margeirsson **
Björgvin Björgvinsson *
Helgi Bentsson *
Dómari Guðmundur Haraldsson ***
Áhorfendur 851
betri tökum á leiknum og
Sveinbjörn Hákonarson var tví-
vegis nærri því að skora áður en
Karl Þórðarson kom heimaliðinu
yfir. Góð samvinna Sveinbjörns
og Árna Sveinssonar, Árni sendi
fyrir frá vinstri og Karl var einn
og óvaldaður og skallaði í netið,
1-0.
En Ragnar Margeirsson var
ekki lengi að jafna. Mínutu síðar
renndi hann sér í gegnum vörn í A
með aðstoð Björgvins Björgvins-
sonar og jafnaði, 1-1, með ágætu
skoti.
Og í byrjun seinni hálfleiks
kom vítið hans sem gerði útum
leikinn. ÍA sótti stíft eftir það -
Árni Sveinsson skaut tvívegis yfir
úr ágætum færum á 55. og 63.
mín. og Hörður Jóhannesson
skallaði en Þorsteinn Bjarnason
varði á 65. mín. Síðan varði Þor-
steinn vel aukaspyrnu frá Árna
og á 71. mín. hitti Sigurður Lár-
usson ekki boltann í góðu færi á
markteig ÍB K. Síðan dró úr sókn-
arþunga Skagamanna, liðin sóttu
til skiptis til leiksloka án veru-
legra færa, nema hvað Ragnar
átti gott skot rétt framhjá á 86.
mínútu. Alltaf hætta þegar hann
var á ferð.
Enn dregur því ur meistara-
vonum meistaranna, það verður
erfitt fyrir þá að vinna upp þau
átta stig sem Framarar hafa fram-
yfir þá.
-sh/Akranesi
Staðan
í 1. deildarkeppninni i knattspyrnu eftir
leikina í gærkvöldi:
Fram 7 6 1 0 20-8 19
Þróttur 7 4 0 3 9-6 12
IA 7 3 2 2 13-5 11
ÞórA 6 3 1 2 9-8 10
IBK 7 3 1 3 10-11 10
FH 7 3 1 3 9-12 10
Valur 7 2 3 2 10-8 9
KR 6 1 3 2 6-11 6
Víðir 7 1 2 4 7-16 5
Vikingur 7 1 0 6 8-16 3
Markahæstir:
ÓmarTorfason, Fram.................7
GuömundurTorfason, Fram............6
Ragnar Margeirsson, ÍBK............6
GuðmundurSteinsson, Fram...........5
í kvöld leika KR og Þór á KR-vellinum
kl. 19.
Miftvikudagur 26. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15