Þjóðviljinn - 16.07.1985, Blaðsíða 2
FRÉTHR
Þessarmyndireru afsamalaxinum, semfannstdauðurviðteljarakistunaíElliðaánum álaugardag. Einsog séstá myndunum erlaxinn með Ijótsárá hlið, entil
hægri sést að kviðurinn er hins vegar alheill. Skýring forráðamanna Stangveiðifélags Reykjavíkur stenst því ekki. Mynd ÖS.
Elliðaárnar
Yfir 30 laxar dauðir
Forráðamenn Stangveiðifélags Reykjavíkur telja
ástandið „alvanalegt“. Nýfundinn lax afsannar
kenninguþeirra um að laxinn deyi vegna göngusára.
Laxadauðinn við Elliðaárnar
helduráfram. Áföstudagskvöldið
voru að minnsta kosti þrír laxar
teknir dauðir við teljarakistuna
neðan við Rafstööina. Aðrir þrír
voru teknir á sunnudag. Alls hafa
þá vel yfir 30 laxar f undist dauðir
eða í andarslitrunum. Það vekur
athygli að allir laxarnir drepast
við teljarakistuna, þar sem affall-
ið úr Rafstöðinni fellur í ána.
Engar skýringar eru enn fengn-
Hljómplata
„Gefum
þeim líf“
Þessa dagana mun stór hópur
íslenskra popplistamanna, með
Björgvin Halldórsson í farar-
broddi, vera að vinna að upp-
tökum á nýrri hljómplötu. Á
plötunni er eitt lag, „Gefum þeim
líf“ og er áætlað að allur ágóði af
útgáfu hennar renni óskertur til
Hjálparstofnunnar kirkjunnar.
Höfundur lags er Axel Einarsson
og textinn er eftir Jóhann G. Jó-
hannsson.
-vd
ar á laxadauðanum og forráða-
menn Stangveiðifélags Reykja-
víkur virðast ekki taka honum
mjög alvarlega. Þannig lýsti Frið-
rik Stefánsson, framkvæmda-
stjóri félagsins því yfir við Þjóð-
viljann á föstudag: „Svona lagað
er alvanalegt". Að sögn hans er
það skoðun sérfræðinga á snær-
um félagsins að sökum þess hve
Elliðaárnar eru vatnslitlar um
þessar mundir, þá skrapi laxinn
sig á kviðnum við gönguna upp
ána og síðan hlaupi sveppir í sár-
in.
Um helgina fannst hins vegar
dauður lax, sem afsannar þessa
kenningu rækilega. Laxinn var
með ljót sár á hliðum, en alger-
lega heill á kvið. Kviðsár vegna
göngunnar upp ána geta því ekki
talist banameinið. Vert er að
minna á, að fisksjúkdómafræð-
ingur hefur lýst þeirri skoðun
sinni, að um blóðsýkingu sé að
ræða í fiskunum, og að hún dragi
þá til dauða og valdi jafnframt
hinum ljótu sárum. Sárin eru
þannig ekki talin frumorsök laxa-
dauðans.
Áhugamenn um Elliðaárnar
hafa haft samband við Þjóðvilj-
ann og þakkað áhuga blaðsins á
málinu. Margir þeirra hafa jafn-
framt lýst furðu sinni á því að for-
ráðamenn Stangveiðifélagsins
hyggist ekki beita sér fyrir rann-
sókn á laxadauðanum.
-ÖS
Krabbamein
Sjöhundruð tilfelli á ári
Þriðji hver íslendingur fœr einhvern tíma krabbamein
Undanfarin fimm ár voru
greind 3.548 krabbameinstilfelli
alls, eða 710 á ári og eru hlutföll á
milli kynjanokkuðjöfn. Aðjafnaði
greindust 85 brjóstkrabbamein á
ári, 72 lungnakrabbamein, 69
magakrabbamein og 52 ristil-
krabbamein á ári. Láta mun nærri
að þriðji hver íslendingur fái ein-
hvern tímann krabbamein.
Þessar upplýsingar koma fram
í Heilbrigðismálum, sem Krabb-
ameinsfélagið gefur út. Tíðni
sumra krabbameina hefur aukist,
en annarra minnkað. Þannig er
magakrabbi mun sjaldgæfari nú
en fyrir þrem áratugum en brjóst-
akrabbamein hjá konum og
blöðruhálskirtilskrabbamein hjá
körlum verða stöðugt algengari.
Sama máli gegnir um lungna- og
blöðrukrabbamein, en þau eru
bæði tengd reykingum. Þessi
mein eru nú tvöfalt til þrefalt al-
gengari en áður var. Lungna-
krabbamein var til dæmis mjög
sjaldgæft fyrir nokkrum ára-
tugum en er nú orðið næst al-
gengasta krabbameinið bæði hjá
körlum og konum. Önnur hver
kona og þriðji hver karl eru á lífi
fimm árum eftir greiningu sjúk-
dómsins. _ V#1
Helgarbannið
Halldór hefur nú alltaf verið
sjarmör!
Hella
Samdráttur í
byggingar-
iðnaði
Það er lítið framundan í bygg-
ingariðnaði á Hellu, og minna að
gera nú en venjulega á þessum
árstíma, segir Jón Þorgilsson
sveitarstjóri. Atvinnuástand á
Hellu er þessutan bærilegt, og
verður ekki vart atvinnuleysis.
Á vegum hreppsins eru ýmsar
framkvæmdir í gangi. Leikskóli
fyrir um 40 börn er í smíðum og er
stefnt að því að hann verði fok-
heldur í sumar. Leikskólinn er nú
í íbúðarhúsi og í honum um 30
börn. Þá er verið að byggja
hjúkrunardeild við elliheimilið
sem hreppurinn á ásamt fleiri
sveitarfélögum, - og í apríl var
fullbúin ný sundlaug á Hellu.
í kauptúninu á Rangárvöllum
búa um 600 manns og hefur fólki
fjölgað þar jafnt og þétt síðustu
ár þangað til í fyrra að þróunin
snýst við. Sveitarstjóri nefndi
meðal ástæðna samdrátt í virkj-
unarstússi á Þjórsársvæðinu, sem
hefur töluverð áhrif á íbúatölu og
atvinnulíf á Hellu.
-m
Eþíópíusöfnunin
Framlög
berast
ört inn
Vestfirskar sjómannakonur
senda Halldóri bréf
„Opið bréf tilsjávarútvegs-
málaráðherra.
Herra sjávarútvegsmálaráð-
herra, Halldór Ásgrímsson.
Við, nokkrar sjómannakonur,
vestfirskar, hverra bændur
stunda smábátaútveg að sumr-
inu, verðum að lýsa óánægju
okkar yfir helgarbanninu á
veiðum smábáta, því þó að það
sé indælt að hafa manninn ró-
legan hjá sér í rúminu, laugar-
dags og sunnudags morgna, þá
getur brugðist til beggja vona um
skapferli hans, ef garður hefur
verið alla vikuna, og svo koma
kjöryfir helgina, því náttúran virð-
ist ónæm á reglugerðir, og
jafnvel þorskurinn líka, það er alls
engin vissa fyrir því að hann bíði
rólegur á miðunum yfir helgina.
Af því getur svo aftur leitt það
að þrengist í búi, því sjaldan
stendur mikið útaf um tekjurnar
hjá okkur, sem erum að dútla við
gjaldeyris framleiðslu. Þennan
ómerkilega atvinnuveg, sem að
vísu fákænar sálir fást þó ennþá
við. En sjómaðurinn, eins og
bóndinn, sem „allt sitt á, undir
sól og regni“ hefur vanist á að
grípa gæs, þegar hún gefst,
jafnvel þó það kosti hann að missa
af sunnudagslúr hjá konunni.
Enginn á þó jafn mikið undir því
hvernig veður haga sér eins og
smábátasjómaðurinn, en enginn
framleiðir heldur jafn mikinn
gjaldeyri, miðað við eyddan
gjaldeyri, og hann. Það kann að
hafa verið úr vöndu að ráða, þeg-
ar fiskurinn á miðum
sunnlendinga og breiðfirðinga,
hafði verið jafn örlátur við sína
menn, og hann var í vor, en
hversvegna þá ekki að miða smá-
bátakvótann við breytilegan tíma,
eftir landshlutum, því menn vita
það nokkurnveginn um hvert leyti
árs að fiskur gengur á hin ýmsu
mið.
Við vonum að þú takir þessi
mál til umþenkingar, og ef svo
verður, sendum við þér ástar-
kveðjur, en ef ekki, þá verða
kveðjurnar auðvitað þar eftir".
Undir þetta opna mótmæla-
bréf skrifuðu allar sjómanna-
konur á Flateyri, 35 talsins, segir í
fréttatilkynningu sem Þjóðviljan-
um barst með bréfinu.
-g
Sumarsöfnun Hjálparstofn-
unnar kirkjunnar tók mikinn
fjörkipp nú um helgina, eftir
hljómleikana „Live Aid“, að sögn
Guðmundar Einarssonar fram-
kvæmdastjóra hennar og bættust
um 700.000 krónur við þær 2
milljónir sem fyrir voru.
Kvað Guðmundur vera von á
meiru, enda viðtökur fólks við
heimsendum gíróseðlum framúr-
skarandi góðar, og framlög
streymdu ört inn þessa dagana.
Þessir peningar munu síðan nýttir
í hinum ýmsu þróunarverkefn-
um, sem íslendingar taka þátt í
erlendis, bæði í Eritreu og Eþíóp-
íu, þ.á. m. fiskiræktarverkefni og
fiskveiðakennslu. Aðspurður
tjáði Guðmundur okkur einnig
að vel gengi að fá fólk til starfa á
hungursvæðunum, og að enn
væri verið að vinna úr þeim um-
sóknum sem borist hefðu eftir að
5 stöður hefðu verið auglýstar ný-
lega.
-vd
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 16. júlí 1985