Þjóðviljinn - 16.07.1985, Síða 8

Þjóðviljinn - 16.07.1985, Síða 8
MANNLÍF „Hæ, þú þama Ijósmyndari taktu mynd af mér,“ æptu þeir allir í kór, þegar okkur bar að garði. Mynd: Ari. Ég get flogið eins og fuglinn! Sjáðu, sagði sú stutta og stökk! mynd: Ari. Ljósmyndarinn vakti mikla athygli, og eins og sjá má á þessari mynd þá beittu þau öllum ráðum. Mynd: Ari. Dagheimili Kópasel sótt heim Gamalt skíöahótel upp viö Lækjarbotna rekið sem dagheimili af Kópavogsbæ. Börnunum ekið í rútu á hverjum morgni í sveitarsæl- una. Börnin una sér vel úti í náttúrunni, og leika sér upp um fjöll og firnindi. Kópasel, „barnaheimilið á milli harða og mjúka fjallsins, rétt við lautina okkar“, eins og sumir krakkarnir á Kópaseli lýsa barnaheimilinu sínu, var áður skíðahótel en er nú rekið af Kópavogsbæ sem dagheim- ili og er mjög óvenjulegt barnaheimili, á heillandi stað fyrir utan bæinn uppi við Lækjarbotna. Á Kópaseli eru daglega 42 börn á aldrinum 4-6 ára með 9 starfsmönnum. Krakkarnir fara í rútu á hverjum morgni og dvelja til klukkan 2 á Kópaseli en þá kemur rútan aftur og sækir þau. Viðveran er skert, því foreldrarn- ir verða að sækja þau um 3 leytið, þannig að aðeins 3 börn af þess- um 42 eru úr forgangshópnum eða börn einstæðra foreldra. Þetta barnaheimili er mjög sérstakt á margan hátt. Þegar komið er að því rekur maður fyrst augun í að ekki er girt í kringum barnaheimilið, og geta börnin því verið frjálsari. Þau hafa tækifæri til að sjá veröldina fyrir utan leikvöllinn án þess að horfa í gegnum grindur. Þau koma öll saman á Kópasel í rútunni, svo ekki er alltaf verið að rjúfa dag- skrána með því að fólk er að koma, en það hefur sýnt sig að það hefur truflandi áhrif á börn- in. Krakkarnir hafa tækifæri til margs, fara í fjallgöngur, vera á sveimi í kringum rollur og hross, leika sér í leiktækjum, eða vera inni. f byrjun hvers dags er hald- inn fundur, starfsfólk og börn koma saman og tjá sig um hvað þau ætla að gera yfir daginn. Hugmyndin er að láta krakkana gera sér grein fyrir öllum þeim möguleikum sem staðurinn býð- ur upp á og síðan bera ábyrgð á eigin vali. Fóstrurnar passa síðan upp á að krakkarnir festist ekki í einhverju einu hlutverkinu því þau verða að prófa allt. Að minnsta kosti tvisvar í viku er farið í gönguferðir með nesti, upp í fjöllin, hellisferðir í Heið- mörk eða tölt um nágrennið, og eru krakkarnir upprennandi „fjallageitur". Þau styrkjast mjög fljótt í klifrinu og blása ekki úr nös þótt lagt sé á brattann, enda eru fjöllin orðin þeirra helstu leiksvæði. En látum myndirnar tala sínu máli. -sp Lagt á brattann! Þarna eru krakkarnir allir samankomnir ásamt starfsfólki undir „harða fjallinu". Mynd: Ari. 8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 16. júlí 1985

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.