Þjóðviljinn - 20.07.1985, Síða 7

Þjóðviljinn - 20.07.1985, Síða 7
HEIMURINN Flugleið indversku þotunnar þann örlagaríka dag 23. júní. Nú eru á lofti kenningar um að það hafi ekki verið sþrengja heldur leifar af sovéskri geimeldflaug sem grönduðu henni. „Svarti kassinn" borinn frá borði eftir að honum var bjargað af hafsbotni. Nú er verið að rannsaka hann á Ind- landi. Flugslys Var það sovésk geimeldflaug? Bombay - Bandarískur flug- málasérfræðingur sem tekur þátt í rannsókn flugslyssins við strendur írlands fyrir tæp- um mánuði þegar indversk far- þegaþota fórst og með henni 329 manns sagði í dag að ekki væri útilokað að leifar sov- éskrar eldflaugar á leið inn í gufuhvolfið hefðu grandað flugvélinni. Fram til þessa hefur verið talið að sprengju hafi verið komið fyrir í farangursrými vélarinnar og eru indverskir sikkar grunaðir um verknaðinn. í síðustu viku tókst að ná „svarta kassanum“ svo- nefnda úr flakinu en í honum er hljóðriti sem tekur upp öll sam- skipti flugmannanna. Rannsókn hans hefur ekki leitt neitt það í ljós sem skorið getur úr um á- stæðuna fyrir slysinu en þeirri rannsókn er ekki lokið. Breska blaðið Daily Mail varp- ar fram þeirri skýringu að eld- flaug sem bar sovéskum geimförum í Soyuz geimfari elds- neyti hafi verið send til baka og átt að brenna upp í gufuhvolfinu en lent á indversku vélinni. Hefur blaðið eftir bandarískum sér- fræðingi að hann vilji alls ekki útiloka þennan möguleika. Yfirmaður flugöryggismála á Indlandi er hins vegar ekki sér- lega trúaður á þessa skýringu og finnst hún „heldur langsótt“. Fyrrum flugmaður hjá indverska hernum bendir á að hafi eldflaug hitt flugvélina hljóti hún að hafa sést á ratsjá en ekkert hafi komið fram um að vart hafi orðið við slíkan hlut á ratsjám. Hvalveiðar Hrefnan friðuð Bournemouth - Á fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins var sam- þykkt í gær að friða hrefnuna. Atkvæði féllu á þann veg að 25 ríki voru tillögunni samþykk, eitt á móti - ísland - og 10 sátu hjá. Norðmenn sem mestra hagsmuna eiga að gæta í hrefnuveiðum neituðu að taka þátt í atkvæðagreiðslunni. Ástæðan sem Norðmenn gáfu upp fyrir neitun sinni var sú að vísindamenn þeirra þyrftu meiri tíma til að safna gögnum um stofnstærð hrefnunnar. Alþjóða hvalveiðiráðið hefur ekki vald til að framfylgja veiði- banni en talsmaður dýraverndar- samtaka sem sat fundinn taldi ól- íklegt að Norðmenn hundsi ákvörðun ráðsins. „Við teljum að Norðmönnum muni reynast afar erfitt að halda áfram hvalveiðum, þessi ákvörðun er síðasti naglinn í líkkistuna fyrir hvalveiðar þeirra“, sagði Charles Secrett úr samtökunum Vinir jarðarinnar. Nicaragua Bandaríkin „vara við“ Ítalía Stífla brast Stava, Ítalíu - Óttast er að yfir 260 manns hafi farist þegar stífla brast í Dólómíta fjöllun- um nyrst á Ítalíu. Flóðið sem varð, sópaði með sér þremur hótelum og 10-20 íbúðarhús- um. Slysið varð í gærmorgun og þegar stíflan brast streymdu 250.000 teningsmetrar af vatni og leðju úr uppistöðulóninu á 20 sekúndum. Botn dalsins neðan stíflunnar er þakin leðju á fjög- urra km kafla. í hótelunum þremur dvöldu um 250 gestir. Ekki er vitað hve margir voru heimavið þegar flóð- ið skall á hótelunum en í gærdag höfðu um 50 lík fundist. Managua, Washington - Bandaríkin sendu stjórnvöld- um í Nicaragua aðvörunarbréf í gær þar sem fram kom að bandarísk stjórnvöld telja stjórnina í Nicaragua samseka um hryðjuverk gegn banda- rískum þegnum í nágranna- ríkjum sínum. I bréfinu er vísað til sprengju- árásar sem gerð var 19. júní sl. á kaffihús í San Salvador, höfuð- borg E1 Salvador, en þar létust 13 manns, þar af sex bandaríkja- menn. „Við vitum að stjórnvöld í Nicaragua styðja þá sem stóðu að þessari árás og höfum ástæðu til að trúa því að hún hafi verið við- riðin undirbúning árásarinnar", segir í bréfinu sem bandaríski sendiherrann afhenti í Managua í gær. I Managua gaf utanríkisráðu- neytið út yfirlýsingu þar sem á- söicununum bandaríkjastjórnar var harðlega mótmælt og sagt að þær sé einungis hægt að túlka sem ógnun. Þá ógnun sé svo ætlunin að nota sem réttlætingu á hernað- aríhlutun í Nicaragua. Verið var að leggja síðustu hönd á undirbúning fyrir hátíðar- höldin í tilefni af sex ára afmæli byltingarinnar í Nicaragua og var búist við miklu fjölmenni á úti- fund í Managua. „Við eigum von á fleiri fundarmönnum en nokkru sinni fyrr“, sagði embættismaður stjórnarinnar við blaðamenn í gær. „Við viljum sýna um- heiminum, og einkum Banda- ríkjunum, að alþýða landsins fylkir sé einhuga um byltinguna“. Nýju Dehli - í gær voru undirrit- aðir samningar sem binda eiga endi á fjögurra mánaða róstur í ríkinu Guajarat í vesturhluta Indlands. Ekki héldu þeir samningar þó lengi því eftir undirritun þeirra blossuðu óeirðir upp að nýju og þrír lét- ust en 22 slösuðust. Á fundi ráðsins í gær var einnig samþykkt að friða búrhvelið frá og með árinu 1988. Hvalavernd- unarmenn fögnuðu þessari ákvörðun ráðsins en óttuðust að þau tvö ár sem líða þangað til friðunin tekur gildi muni nægja Japönum til að útrýma tegund- inni. Ekki kom til atkvæða- greiðslu um friðun búrhvelisins því hún var samþykkt einróma. Iægri stétta úr 31% í 49%. Við það brutust út miklar óeirðir og stúdentasamtök ríkis- ins hvöttu félaga sína til að mæta ekki í skóla. Rúmlega 7 miljómr urðu við þeirri hvatningu og síð- an hefur verið mjög róstusamt í Guajarat. Á fjórum mánuðum hafa 212 manns fallið í óeirðun- um. Indland Samið í stéttastríði Kína Klambylgjan ríður yfir Deilurnar eru sprottnar upp úr hinni ströngu stéttaskiptingu sem ríkir á Indlandi. Hún birtist m.a. í því að vfirvöld ákveða kvóta eftir stéttum sem segir til um það hve margir af hverri stétt fá aðgang að æðri skólum og atvinnu hjá hinu opinbera. í vor ákvað forsætis- ráðherra ríkisins að hækka kvóta Átökin hafa kostað forsætis- ráðherrann embættið og var það eftirmaður hans sem féllst á að verða við kröfum stúdentanna og draga kvótabreytinguna til baka. Allir sem teknir hafa verið hönd- um í óeirðunum verða látnir lausir og gerð verður opinber rannsókn á róstunum. Þetta gerðist h'ka... Beijing - Ef marka má kín- versk blöð berjast yfirvöld þar í landi harðri baráttu gegn flóð- bylgju kláms sem flæðir yfir landið og leiðir til fjölgunar glæpa, úrkynjunar og andfé- lagslegrar hegðunar. Á fyrri hluta þessa árs gerði lögreglan í Sjanghai upptæk 3.600 eintök af klámfengnu les- efni og myndböndum. Samt sem áður eykst áhugi fólks á þessum Brussel - Áfrýjunardómstóll í Antwerpen í Belgíu hefur hót- að hvalaverndunarsamtökun- um Grænfriðungum dagsekt- um að upphæð tæplega 700.000 krónum ef skip sam- takanna gerir frekari tilraunir til að hindra belgísk skip í að losa iðnaðarúrgang í hafið. Skip samtakanna, Siríus, var kyrrsett í Antwerpen í síðasta forboðnu ávöxtum og mun ekki óalgengt að efnt sé til klám- myndasýninga víðsvegar um landið. I Beijing var maður hand- tekinn fyrir að hafa leigt sal og selt aðgang að klámfengnum myndbandasýningum. Fréttir herma að vandinn hafi breiðst út um allt land og nái til alls konar fólks. Til dæmis var háttsettur embættismaður í úti- búi landbúnaðarráðuneytisins í Yunnan héraði í Suðvestur-Kína mánuði en laumaðist úr höfn í skjóli náttmyrkurs aðfararnótt 30. júní sl. Skipinu var haldið vegna þess að eigendur tveggja skipa sem Siríus hafði truflað við losun iðnaðarúrgangs höfðu kært samtökin. Siríus liggur nú við festar úti fyrir hafnarborginni Bournemo- uth á suðurströnd Englands þar sem fundur Alþjóða hvalveiði- ráðsins er haldinn. rekinn úr starfi og úr flokknum fyrir að horfa á klámvídeó. Vestrænir sendimenn í Kína segja að klámið sem er í umferð myndi teljast saklaust á Vestur- löndum. „Kvikmyndirnar koma flestar frá Hong Kong og eru ósköp saklausar“, sagði einn þeirra. En kínversk yfirvöld líta þetta nýja áhugamál landsmanna hin- um alvarlegustu augum og segja að í kjölfar klámsins aukist tíðni alls kyns glæpa. Því til sönnunar er sögð sú saga í einu blaðanna að menntaskólakennari einn hafi orðið svo uppnuminn af lestri klámblaða að hann hafi nauðgað fimm konum. í öðru tilviki kom- ust 18 menntaskólanemar í tæri við klám og af þeim leiddust 11 út á glæpabrautina, að sögn sama blaðs. Umrætt blað, Dagblað frelsis- ins, segir að yfirvöld hafi miklar áhyggjur af siðferði æskulýðsins vegna klámbylgjunnar. „Sumt ungt fólk lætur glepjast af svo- kölluðu „kynferðislegu frelsi“ vegna áhrifa af kláminu. Með því stofnar það öllum aga á almanna- færi í mikla hættu“, segir blaðið. ... Þriðja stærsta tölvufyrirtæki heims, Burroughs í Bandaríkjun- um, hefur sagt upp 300 manns vegna endurskipulagningar í kjölf- ar minnkandi ágóða af tölvusölu. Á mánudaginn skýrði IBM frá því að ágóði fyrirtækisins væri minni en reiknað hafði verlð með og er dræmri sölu á tölvum kennt um. ... Sovéskt dagblað birti í gær grein þar sem sovéskir borgarar eru hvattir til að eyða peningunum sín- um í staö þess að safna þeim. „Af hverju óttumst við að eyða pening- um?“ spyr blaðið og hvetur fólk tii að láta ekkert tækifæri ónotað til að kaupa sér ný föt, nýtt sjón- varpstæki eða hvað sem hugurinn girnist, bara ekki lúra á rúblunum. ... Sovéskt geimfar með vísi að dýragarði innanborðs sneri aftur til jarðar í gær eftir vikudvöl í geimnum. Um borð voru apar, rott- ur, eðlur, fiskar og skordýr og var verið að kanna áhrif þyngdarleysis á dýrin. ... Stjórnvöld á Taiwan hafa ákveð- ið að banna á nýjan ieik innflutning á hundakjöti en hann var leyfður fyrir tveimur vikum. Dýraverndar- samtök höfðu mótmælt innflutn- ingnum en mörgum eyjarskeggj- um þykir hundakjöt herramanns- matur auk þess sem það er sagt efla kynhvötina. ... 275 manns hafa farist í flóðum og skriðuföilum í héruðunum Sic- huan og Guizhou í Kína í kjölfar mikilla rigninga. Flóðin hafa eyði- lagt fjölmörg hús og þusundir hektara akurlendis og eiga 1,5 miljónir manns um sárt að binda vegna þessara hamfara. REUTER Umsjón: ÞRÖSTUR HARALDSSON Grœnfriðungar Belgar hóta dagsektum Laugardagur 20. júlí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.