Þjóðviljinn - 20.07.1985, Page 9

Þjóðviljinn - 20.07.1985, Page 9
Listasafn íslands Frumherjarnir fjórir Nú er langt liðið á sýningu þá sem staðið hefurfrá því snemma í sumar í Listasafni íslands. Hún ber heitið „Fjórir frumherjar” og var upphaflega á dagskrá síðast- liðið haust, en vegna verkfalla opinberra starfsmanna var hún fluttfram yfirhörpu. Þettaeraf- mælissýning ítilefni aldarlangrar sögu safnsins og er ætlað að gefa yfirlit yfir list þeirra manna sem ruddu íslensku nútíma- málverki braut um og eftir síðustu aldamót. Þeir voru Þórarinn B. Þorláksson, Ásgrímur Jónsson, Jón Stefánsson og Jóhannes S. Kjarval. Á sýningunni eru 111 verkeftirfrumherjanafjóraog eru þau öll í eigu Listasafns (slands. Sýningunni fylgir vegleg skrá, um 90 blaðsíður að stærð og geymir hún greinar um lista- mennina eftir fjóra listfræðinga og eru textar bæði á íslensku og ensku. Lífshlaup málaranna eru rakin í ártölum og loks er skrá yfir verkin á sýningunni, aldur þeirra, stærð og gerð. Formála að sýningarskránni ritar Selma Jóns- dóttir forstöðumaður LÍ. Að Iok- um má þess geta að sýningar- skráin er skreytt fjölda litmynda af listaverkum þeim sem prýða salina og eru þær óvenjuvel prentaðar. Danskœttað raunsœi Það er ekki auðvelt að koma saman sýningu eins og þessari svo HALLDÓR B. RUNÓLFSSOt Flugþrá, frá 1935-54, eftir J.S. Kjarval. eitthvað nýtt og markvert komi fram um list þessara ástsælu lista- manna. E.t.v. eru þeir of hjart- fólgnir þjóðinni til að nokkur fari að hrófla við stöðu þeirra eða sess. En oft er það svo að menn sem eru settir á stall sökum ágætis síns, dúsa upp frá því í eilífri logn- mollu og umlykur hún persónu þeirra eins og áfallinn geisla- baugur. Þeir eru hálfpartinn teknir í heilagramannatölu og um leið eru verk þeirra og störf hafin upp yfir alla gagnrýni og reyndar alla umfjöllun sem ekki er hlaðin hástemmdu lofi. Við íslendingar erum sérlega slæmir með svona lagað og kem- ur þar bæði til fámenni og frænd- semi. Við eigum erfitt með að skilja að menning sé háð stöðugu endurmati, einkum ef það er okkar eigin menning. Þess vegna bera þeir lítið úr bítum sem sjá sýningar á borð við Fjóra frum- herja, utan unga kynslóðin sem enn hefur ekki litið verk snilling- anna augum. Það er nefnilega ekki meira gert en hengja upp myndir eftir málarana fjóra þannig að þær fari vel á veggjum og myndi einhvers konar mynd- rænt harmóní við veggi safnsins. Þó er það svo að sýningin á enginn eftirbátur Þórarins á fyrstu tugum aldarinnar. Bjartar sumarnœtur Vissulega er ekki hægt að herma nein óþjóðleg einkenni upp á þennan ágæta málara, enda tekst honum afar vel að samhæfa það sem hann hefur lært og það sem hann uppgötvar síðar frammi fyrir íslenskri náttúru. Þarskilure.t.v. milli hans ogÞór- arins B. Þorlákssonar. Þórarni vannst aldrei tími til að vinna úr hinum akademíska lærdómi og þess vegna heldur hann áfram að beita honum á landslag sem ekki féll alls kostar að reglum klass- ískrar, evrópskrar myndgerðar. Impressionistarnir koma Ás- grími hins vegar til hjálpar og jafnvel þótt hann hafi aldrei not- að tækni þeirra ómengaða lærir hann af þeim vinnubrögð sem óneitanlega hentuðu betur ís- lenskum aðstæðum. En þrátt fyrir ólíkar aðferðir eru þeir Ás- grímur og Þórarinn á höttunum eftir því sama, nefnilega skrán- ingu íslenskra ljósbrigða björt- um sumarkvöldum. Að því leyti verkum frumherjanna býr yfir ýmsum óvæntum fróðleik. Ef- laust er það vegna þess að saman eru komin verk eftir fjóra ólíka listamenn sem þrátt fyrir allt eiga margt sameiginlegt, s.s. ást á ís- lensku landslagi. Margt merki- legt kemur á daginn einkum hvað stflbrögð varðar. T.d. er fróðlegt að sjá hve mjög danskt raunsæi ræður ríkjum í rammíslenskum málverkum Ásgríms. Þar er hann Þingvellir, árið 1900, eftir Þórarin B. Þorláksson. Laugardagur 20. júlí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.