Þjóðviljinn - 24.07.1985, Page 9
VIÐHORF
Bætt hugarfar getur hindrað hnattmorð
eftir Halldór Pjetursson
/
„Eg sá ungur hrafnaþing og séþað enn
ef ég staulast á þingpalla. Þarsýnast
flestir stakir hrafnar, grillir í einstakan
auðnutittling. “
Kaupgjaldsmálin eru ofarlega
á baugi og skal það síst lastað, en
fleira þarf að skjóta rótum. Haldi
fólk þessa hnattar áfram að kjósa
yfir sig harðsvfraða hnattmorð-
ingja, getur að því komið að þörf-
in til brauðsins verði ekki jafn
brýn og áður.
Segja má að öll ránsmorðin í
hinum þriðja heimi fari stighækk-
andi allt frá ungbörnum til 30 eða
40 ára, þeirra sem komast úr
barndómi. Lengra nær nú ekki
start lífsins þar. Enginn efast um
að það er margt velhugsandi fólk
á þessum hnetti en það vantar
skilning á þeirri ábyrgð sem
hverjum manni er sköpuð og
skylt að halda vakandi. Flestum
er farið að skiljast að við erum á
ystu nöf, spyrja sjálfa sig og aðra
hvort þetta geti skeð og hver or-
sökin sé.Þeirri spurningu verður
hver að svara úr sínum barmi.
Stærstu sökina bera þeir sem hala
til sín allt sem höfðar til verð-
mæta. Síðan er stofnaður al-
heimsklúbbur um góssið. Þeir,
sem feta í slóðina með hendur á
baki og anda að sér kolsýru í stað
súrefnis, ættu að athuga sinn
gang. Svo framt að þeir styrki
hina gömlu forustu eru allar vonir
á bak brotnar. Stórklíkan á sér
allstaðar hjálparkokka. Nöfnin
skipta ekki máli. Menn þessir
hnykkja á einlægninni. Fólkið
lætur þá hugsa fyrir sig og fær
kjúkling í staðinn.
Tortímingin
Hnattmorð myndast við það
eitt að fólkið hefur svikið það
hlutverk sem það var skapað til
og trúað fyrir. Tortímingin er
okkar eigið verk. Það er gamalt
máltæki, sem hljóðar svo, „Sæt er
lykt úr sjálfs rassi“.
Það er öllum sýnilegt hvernig
við höfum leikið þennan hnött,
þetta góða heimkynni sem okkur
var gefið til að fegra, snyrta og
okkur sjálf um leið. Þetta bros er
nú horfið nema af börnunum,
þau fæðast með það en fljótt
þvegið af. Okkur verður að skilj-
ast að alvaran hefur enga stoð af
fólki sem á þá hugsun hæsta að
flá, örkumla og drepa hvað ann-
að.
Allir með okkar mennskuskyn
bera ábyrgð á verkum sínum,
annars væri lífið ein „Langavit-
leysa“, keimur af líkræðu. Lítum
bara í Ritninguna og það sem til
er af veraldarsögunni. Teljum
ekki allt til þjóðsagna um stóra
hópa jafnvel heilar þjóðir sem
urðu svo siðspilltar að þær þurrk-
uðust út svo sköpunin hefði sitt
ákveðna rými. Það er ekki
skortur á viti heldur hugsunar-
leysi, sem veldur því að við stönd-
um á brún bjargsins sem ekkert
getur veitt nema hrun. Virðumst
ekki mega eyða tíma í að hugsa
um velferð okkar né annarra,
bara gengið blindgötuna galopn-
um augum.
Það flýr enginn undan sínum
verkum né hugsunum. Fyrirgefn-
ingartuggan er banvæn hníf-
stunga. Hún er aðeins til í þeirri
mynd að maður geti sálfur veitt
sér hana. Annars væri réttlæti
sama eðlis og kjaftæði.
Stærsta spurningin verður þó
ef hugsjón „Klúbbsins“ rætist, á
hverju þessir gullinbrúnu glæp-
onar ætla að græða. Þeir geta
ekki einu sinni komið klámhöggi
á Rússana, hitt er þó enn verra að
þeir geta sjálfir ekki dáið, því
dauði er ekki til nema sem van-
vitska. Allt efnið sem við köllum
er bráðlifandi sé farið um það
líknarhöndum. Blessuð kjarn-
orkan getur aðeins sett líkamsh-
róið úr skorðum. Það sem við
köllum sál eða anda fer til sinnar
fyrri heima. Eftir að lýkur nösum
komum við á annað svið með það
sem vitund okkar hefur áskotn-
ast. Aurarnir verða eftir enda
engir bankar þar sem gefa rentu
af slíku. Öll saga mannkynsins
bendir á að til séu heimar með
hærri menningu en við og kann-
ski lægri. Móti þessu er barist
þótt það sýnist sjálfgefið.
Hrafnaþing
Hvaðan fengu spámenn þessa
hnattar sína speki og ótal mikil-
menni á mörgum sviðum? Var
eitthvert hjálparafl á ferðinni
með hugdettur og hugmyndir
sem var hvíslað að okkur á dular-
fullan hátt? Þar kemur fram hin
samfellda samtvinnun alls þess er
við köllum sköpun. Við erum á
jarðlífshnetti með líf að láni utan
úr geiminum sem skilar sér
áfram. Þetta er ekki trúargrufl frá
mér, enda talinn heiðinn.
Menntun er ekki öll í bók, heldur
í samfelldri hugsun og rými sem
því fylgir. Okkur hefur farið lítið
fram í seinni tíð. Ég sá ungur
hrafnaþing og sé það enn ef ég
staulast á þingpalla. Þar sýnast
flest stakir hrafnar, grillir í ein-
stakan auðnutittling. Ég kom
ekki á þingpalla fyrr en 1924, þar
sá ég marga skörunga, þótt ég
væri ekki öllum sammála. Það
sem skar úr var að þeir voru í
mannsmynd og sýnilega ekki
skapaðir í ógáti. Ég hefi heyrt í
sumum þessum mönnum síðan
þeir fóru héðan. Þeir voru
óhræddir við að láta í ljós að
stundum hefði þeim yfirsést en
jafnfúsir á að stíga hin réttu spor.
Þannig myndast fyrirgefning en
ekki með ópi né kveinum og eftir-
mælum.
Manngildið segir til sín þegar
vitneskjan um dauðann er afmáð
og skilningur á því að sköpunin á
sér engin endamörk, heldur leið
til hærri þroska. Vald er orða-
skvaldur, utan að það leiði til
framþróunar. Við erum öll tengd
hinni óbilandi keðju sem leiðir til
þess að maðurinn endar sem há-
þroskavera.
Halldór Pjetursson rithöfundur
í Kópavogi
FRÁ LESENDUM
Pennavinir óskast
Bréf f ra
Ghana
Ung stúlka frá Ghana ritaði
blaðinu nýlega bréf og óskaði
eftir pennavinum á íslandi. Hún
er nítján ára, stundar nám í Há-
skóla Cape Coast og helstu áhug-
amál hennar eru lestur tímarita,
bréfaskriftir, frímerkjasöfnun,
íþróttir og skoðanaskipti. Hún
kveðst hlakka til að heyra frá ís-
landi og utanáskriftin fyrir penn-
aglaða er: Maeclinda Andxie-
Quainoo, University Post Office,
Box 0100 Cape Coast, Ghana.
Hornaslag
en ekki
harmaslag
Arnþrúður hringdi og var
heldur óhress með tilvitnun í
kvæði Jóns Trausta, Herhvöt,
sem birtist í viðtali við Halldór frá
Kirkjubóli ekki alls fyrir löngu.
Þar var farið með tvær hendingar
og þær sagðar hljóða svona:
Heyrðu yfir höfin gjalla
harmaslag hins nýja dags.
„Þetta er ekki rétt,“ sagði Arn-
þrúður, „það var enginn harma-
slagur í aldamótamönnunum.
Þessar hendingar hljóma svona:
Heyrið yfir höfin gjalla
hornaslag hins nýja dags.
Mér finnst alltaf vont þegar ég
verð þess vör að blaðamenn hafa
ekki nennt að fletta upp og at-
huga hvort rétt er farið með,“
sagði Arnþrúður.
Ullarþrælahald og
íslensk list
Nú er Sigurður A. Magnússon
búinn að gefa út The good hous-
ekeeping á íslenska listamenn og
er það sannarlega skemmtilegt að
sjá hve marga veisluvini Sigurður
á og þekkir.
Þrátt fyrir að auglýsingar séu
snar þáttur í lífi manna, er hér um
að ræða einhverja skrítnustu
auglýsingar uppákomu, sem hér
á landi hefurbirst mönnum. Fyrir
þann auð sem erlendur maður
hefur rakað saman, meðal annars
á að þræla út íslenskum prjóna-
konum.bæði í verksmiðjum og
heimavinnandi, er hann nú að
notfæra sér hégómagirnd lista-
manna, takandi myndir af þeim,
þar sem þeir geislandi af sjálfsá-
nægju teygja fram álkur sínar og
láta þar með nota sig sem auglýs-
ingu fyrir ullarþrælahaldið í
landinu. í viðtali í útvarpi lét
þessi peningamaður þess getið,
að þegar selja á vöru, skipti það
rnáli að hún er sköpuð af fólki
sem á að baki sér mennt og menn-
ingu. Þetta hafa íslenskir
kaupsýslumenn aldrei skilið því
þeir eru bæði illa gefnir, illa sið-
aðir og gjörsneyddir allri tilfinn-
ingu fyrir list, svo mjög að þeir
telja allt listbrölt til óþurftar.
Það er því sem það rennur
manni til rifja að sjá íslenska
listamenn hlaupa til og gerast
auglýsingalýður fyrir verðmæta-
sköpun, sem byggir á arðsráni og
þrældómi íslenskra prjóna,-
kvenna.
Prjónakona.
Miðvikudagur 24. júlí 1985, ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
VIDHORF
Allt
annað er
vindhögg
eftir Ara Tryggvason
Frumskilyrði verkalýðsbaráttu
á íslandi er órofa samstaða með
kúgaðri alþýðu, hvar sem er í
heiminum. Herinn burt og úr-
sögnin úr Nató eru frumskilyrði
þess. Hvers vegna er þetta í raun
einn og sami hluturinn?
Svarið felst í tilgangi hervæð-
ingar Bandaríkjanna og Nató -
að verja hagsmuni sína í þriðja
heiminum. Sem þýðir „status
quo“, þ.e. óbreytt ástand. Léns-
veldi nútfmans, gósseigendur og
kúgaðir leiguliðar, lítil sem engin
uppskipting jarðnæðis. Þar af
leiðir, að ánauðugir bændur
flosna upp og streyma til borg-
anna sem áhrifalaus og kúgaður
verkalýður. Þriðji heimurinn í
dag - Evrópa fyrir tvö hundruð
árum.
Hvað hefur sundrað verkalýðs-
baráttunni á íslandi? Afstaðan til
hersetunnar og aðildarinnar að
Nató fyrst og fremst. Enda var
verkalýðsbaráttan öflugust og gaf
okkur helstu réttindin fyrir þann
tíma.
Því tel ég að þeir sem raunveru-
lega bera hag verkalýðsins fyrir
brjósti, séu einmitt þeir sem eru
félagar í Samtökum herstöðva-
andstæðinga og aðrir sem starfa á
svipuðum grunni.
Þess vegna fæ ég ekki betur séð
en að úrsögnin úr Nató og herinn
burt sé frumskilyrði verkalýðs-
baráttu. Allt annað er vindhögg.
Ari Tryggvason er
vagnstjóri í Reykjavík.