Þjóðviljinn - 24.07.1985, Síða 15
ÍÞRÓTTIR
2. deild
1. deild
Þvílíkt mark!
Breiöablik-UMFN 2-0 (2-0) **
Það er þess virði að horfa á jafn
tilþrifalítinn og lélegan leik og þennan
þegar maður verður vitni að öðru eins
marki og hinn ungi Jón Þórir Jónsson
skoraði fyrir Blikana á 37. minútu.
Heiðar Heiðarsson átti háa sendingu
fyrir mark Njarðvíkinga og á víta-
teigslínunni stóð Jón Þórir. Hann tók
boltann viðstöðulaust á lofti - vinkill-
inn inn, takk fyrir! Öruglega eitt al-
besta mark sumarsins og þó lengra
væri leitað.
Breiðablik var sterkari aðilinn í
fyrri hálfleik og gerði þá útum leikinn
- reyndar á lokamínútunum. Jón Þór-
ir var aftur á ferðinni er hann skoraði
úr vítaspyrnu mínútu fyrir hlé - Hák-
on Gunnarsson hafði þá verið felldur
í kjölfar hroðalegra varnarmistaka
gestanna. Fyrr í hálfleiknum hafði
Breiðablik fengið þrjú dauðafæri eftir
hornspyrnur á sömu mínútunni - en
það, mörkin og gott færi Þórðar
Karlssonar á 15. mín, þegar Sveinn
Skúlason markvörður Breiðabliks
bjargaði frá honum á síðustu stundu,
var það eina umtalsverða í leiknum.
Tvö þokkaleg færi gáfust í seinni hálf-
leik, Njarðvík átti bæði en Sveinn
varði frá Hauki Jóhannessyni, besta
manni UMFN, og Jóni Halldórssyni.
Guðmundur Baldursson bar af á vell-
inum, eins og landsliðsmaður í firma-
keppni.
Maður leiksins: Guðmundur Bald-
ursson, Breiðabliki.
-VS
Bjöm stal senunni
KA-Skallagrímur 3-0 (0-0) ★ ★★
Þrenna Tryggva Gunnarssonar
færði KA sigur í annars fremur
jöfnum leik. Það var þó ekki Tryggvi
sem var hctja kvöldsins á Akureyrar-
velli - það var Björn Jónsson fyrirliði
Skallagríms sem fór í markið á 16.
minútu þegar Kristinn Arnarson
markvörður Borgnesinga meiddist á
úlnlið og varð að yfirgefa völlinn.
Björn stóð sig frábærlega og verður
ekki sakaður um mörkin.
Fyrri hálfleikur var jafn, KA ívið
sterkara ef eitthvað var. Tvö færi á
lið, Björn varði vel frá Steingrími
Birgissyni tvívegis og hinum megin
áttu Gunnar Jónsson skalla og Vald-
imar Halldórsson skot rétt framhjá.
Tryggvi fékk stungusendingu frá
Þorvaldi Þorvaldssyni, náði að snúa á
Björn og skora, 1-0, á 57. mínútu.
Friðfinnur Hermannsson bjargaði á
marklínu KA sjö mínútum síðar en
síðan varði Björn tvisvar mjög vel í
viðbót. Þegar fimm mínútur voru
eftir gaf Njáll Eiðsson fyrir mark
Skallagríms, Tryggvi var óvaldaður á
markteigshorni fjær og skoraði, 2-0.
Hann fullkomnaði þrennuna mínútu
fyrir leikslok, komst innfyrir vörn
Borgnesinga og skoraði af miklu
harðfylgi.
Maður leiksins: Björn Jónsson,
Skallagrími.
-K&H/Akureyri
Oskabyrjun
ÍBV-KS 5-1 (2-0) ***
Eyjamenn fengu óskabyrjun gegn
Siglfirðingum og norðaustan rokinu á
breiðum Helgafellsvellinum í gær-
kvöldi. Strax á 2. mínútu sendi
varnarmaður KS boltann beint á
tærnar á Tómasi Pálssyni sem þakk-
aði fyrir sig með góðu skoti af vítateig,
1-0.
Eyjamenn áttu alveg fyrsta hálf-
tímann og á 10. mínútu tók Ómar
Jóhannsson aukaspyrnu úti á kanti.
Fast skot með jörðu sigldi í gegn,
Gísli markvörður varði en Hlynur
Stefánsson fylgdi vel og skoraði, 2-0.
Tómas átti stangarskot á 17. mín. og
komst í gegn uppúr því en skaut fram-
hjá og Viðar Elíasson skallaði rétt
framhjá á 31. mín.
KS byrjaði seinni hálfleik af krafti
og tvisvar datt boltinn ofaná Eyja-
slána. En ÍBV náði skyndisókn á 55.
mín, Tómas gaf á Jóhann Georgsson
sem skaut tvisvar, og í seinna skiptið
fylgdi Ómar og skaut í slána og niður,
inn, 3-0. Héðinn Svavarsson skaut í
stöng á 63. mín. og Ómar fylgdi
óvaldaður og skoraði aftur, 4-0, en á
68. mín. komst Friðfinnur Hauksson
inní sendingu til markvarðar ÍBV og
kvittaði, 4-1. Hlynur stakk Siglu-
fjarðarvörnina af þremur mínútum
síðar og setti punktinn yfir i-ið, 5-1.
Maður leiksins: Ómar Jóhannsson,
ÍBV. -SE/Eyjum
Leiftur lyftir sér
Leiftur-Völsungur 1-0 (1-0) **
Já, Ólafsfirðingar eru komnir af
botni 2. deildarinnar í fyrsta skipti.
Það er kannski ekki hægt að segja að
þessi annar sigur í röð hafi verið sá
sanngjarnasti - en mörkin te|ja og
Leiftur á orðið góða möguleika á að
halda sér ■ deildinni - Völsungur eru
hins vegar að heltast úr lestinni á
toppnum vegna slaks gengis á úti-
völlum.
Harka, barátta og taugaspenna
settu mark sitt á leikinn. Sigurmarkið
kom strax á 12. mínútu. Róbert
Gunnarsson átti háa sendingu fyrir
mark Völsungs, Stefán Jakobsson
skallaði þó ýtt væri á bak hans og
Helgi Jóhannsson (Ólafsfirðingur)
skoraði úrslitamarkið öðru sinni - nú
með skalla yfir varnarmann og Gunn-
ar markvörð. Tvisvar í byrjunarliði -
tvisvar sigurmark!
Lítið var af færum annars í fyrri
hálfieik, Leiftur sótti heldur meir
undan vindinum. Völsungar sóttu
síðan grimmt í seinni hálfleik og Helgi
Jóhannsson (Akureyringur) sem nú
er bakvörður, bjargaði tvisvar á
marklínu Leifturs. Mikill darraðar-
dans var í vítateig Leifturs í lokin, Jón
Leó Ríkharðsson slapp síðan einn í
gegn á 87. mín. en skaut framhjá -
Leiftur slapp með skrekk og 3 stig.
Maður leiksins: Guðmundur Garð-
arsson, Leiftri.
-bj/Ólafsfirði
Fylkir neðstur
ÍBÍ-Fylkir 2-1 (1-1) ***
ísfirðingar eru komnir af mesta
hættusvæði 2. deildarinnar en Fylkis-
menn sitja eftir í neðsta sætinu. Sann-
gjörn úrslit þegar á heildina er litið,
IBÍ var með undirtökin nema síðari
hluta fyrri hálfleiks þegar Fylkir
pressaði stíft.
Fylkir náði forystu á 24. mínútu
þegar Óskar Theodórsson fékk
stungusendingu og afgreiddi boltann í
Isafjarðarmarkið. Lykt af rangstöðu.
Örnólfur Oddsson jafnaði átta mínút-
um síðar, potaði af markteig eftir
aukaspyrnu Guðjóns Reynissonar.
ÍBÍ var sigurstranglegra allan tím-
ann en sigurmarkið iét standa á sér.
Það kom loks 12 mínútum fyrir leiks-
lok, og þá enn meira rangstöðumark
en Fylkismarkið. Jóhann Torfason
var einn fyrir innan Fylkisvörnina og
nýtti sér gott færi og skoraði, 2-1.
Atli Geir Jóhannesson og Örnólfur
voru bestir í liði ÍBf. Hjá Fylki var
Anton Jakobsson driffjöðrin.
Maður leiksins: Atli Geir Jóhann-
esson, IBÍ.
-gk/ísafirði
Framfæri forgörðum
Mannifærri mest allan seinni hálfleik en Víkingar sluppu vel
með 2-0 tap
Það er langt síðan maður hefur séð
jafnmörg dauðafæri fara forgörðum
og í Laugardalnum í gærkvöldi þegar
Framarar sigruðu Víking 2-0. Hinir
marksæknu framlínumenn Fram só-
uðu þá á annan tug góðra mark-
tækifæra, skutu ýmist framhjá eða
Ögmundur Kristinsson í Víkings-
markinu varði vel. Víkingar fengu
hins vegar varla gott tækifæri til þess
að skora og tíunda tapið í röð varð
ekki umfiúið.
Það var mikill gæðamunur á liðun-
um í fyrri hálfleik. Framarar léku vel
og sóttu stíft en framherjarnir voru
svo sannarlega ekki á markaskot-
skónum eins og fyrr sagði. Þeir Torfa-
synir fengu t.d. báðir færi þar sem
þeir voru komnir framhjá markverði
en skutu í hliðarnetið. Guðmundur
Steinsson lék laglega í gegn og
skoraði af öryggi og níu mínútum
seinna skoraði Kristinn Jónsson fal-
lega eftir að hann og Guðmundur
Torfason höfðu samspilað í gegnum
Víkingsvörnina sem var oft illa á
verði í leiknum.
Víkingar mættu hressari til síðari
hálfleiks en það voru samt Framarar
Skagastúlkur
I urslit
á einum
leik!
Skagastúlkurnar eru komnar í úr-
slitin í bikarkeppni kvenna í knatt-
spyrnu - og hafa samt aðeins spilað
einn leik! Hann fór fram í Keflavík í
fyrrakvöld og þar sigruðu þær ÍBK
5-2. Laufey Sigurðardóttir skoraði 3
marka IA og þær Ragnheiður Jónas-
dóttir og Vanda Sigurgeirsdóttir eitt
hvor. Katrín Eiríksdóttir og Svandís
Gylfadóttir skoruðu fyrir ÍBK.
f A komst í 4—liða úrslitin án þess að
leika, mótherjarnir í 1. og 2. umferð,
Víðir og Haukar, gáfu leikina gegn
íslandsmeisturunum.
Valur vann óvæntan sigur á
Breiðabliki, 1-0, í 8-liða úrslitunum í
fyrrakvöld og mætir KR í undanúr-
slitum. Það stefnir því allt í annan
úrslitaleik f A og Vals en Valur er bik-
armeistari. Það var Kristín Amþórs-
dóttir sem skoraði sigurmarkið gegn
Breiðabliki í framlengingu.
- VS
Mark Duffield, þrisvar „Maður
leiksins".
Staóan
I 2. deildinni í knattspyrnu
KA..............10 6 2 2 20-8 20
Breiðablik......10 6 2 2 21-12 20
ÍBV.............10 5 4 1 22-9 19
Völsungur.......10 4 3 3 17-14 15
IBI.............10 3 4 3 12-12 13
Skallagrímur....10 3 4 3 13-18 13
KS..............10 3 3 4 13-16 12
UMFN............10 2 3 5 5-16 9
Leiftur.........10 2 2 6 8-20 8
Fylkir......... 10 1 3 6 6-12 6
Markahæstir:
Tryggvi Gunnarsson, KA...........10
Tómas Pálsson, (BV................8
Jón Þórir Jónsson, Breiðabliki....6
Jóhann Grétarsson, Breiðabliki....5
Jónas Hallgrímsson, Völsungi......5
sem fengu færin, ein fjögur á fyrstu 10
mínútunum. En það var eins og ein-
hver misskilningur væri á milli hinna
þriggja áður markheppnu framherja.
Á 52. mín. gerðist atvik er hleypti
spennu í leikinn. Viðar Þorkelsson,
Fram, var rekinn af leikvelli eftir
óþarfa brot. Einum fleiri voru Vík-
ingar meira með boltann það sem lifði
leiks en án þess að skapa sér nokkurt
marktækifæri. Framarar fengu hins-
vegar fjölda færa en tókst oft á ótrú-
legan hátt að klúðra þeim. Vörn
þeirra stóð sig á hinn bóginn vel og
var Sverrir Einarsson þar fremstur í
flokki. Ögmundurmarkvörðurbjarg-
aði Víkingum frá stærra tapi með
Fram-Víkingur 2-0 (2-0) **
Mörk Fram:
Guðmundur Steinsson 31. mín.
Kristinn Jónsson 39. mín.
Stjörnur Fram:
Kristinn Jónsson **
Sverrir Einarsson **
Ormarr Örlygsson *
Ásgeir Eliasson *
Stjörnur Víkings:
Ögmundur Kristinsson **
Andri Marteinsson *
Ámundi Sigmundsson *
Dómari Guðmundur Haraldsson *
Áhorfendur um 1000.
góðri markvörslu í síðari hálfleik en í
Víkingsliðið virðist vanta alla sam-
vinnu og hugsað samspil. Guðmund-
ur Haraldsson dómari átti slæman
dag að þessu sinni og lítillar sam-
kvæmni gætti í dómum hans.
pv
Sverrir Einarsson lék á ný í Fram-
vörninni og stóð sig mjög vel.
Frjálsar
Mótmælin bitai
ekkiáZolu
Zola Budd, suður-afríska stúlkan
sem keppir fyrir Bretland, hristi af sér
tapið fyrir Mary Decker-Slaney í 3000
m hlaupinu um síðustu helgi með því
að vinna öruggan sigur í mfluhlaupi á
Edinborgarleikunum í gærkvöldi.
f byrjun annars hrings kastaði mað-
ur sér útá brautina fyrir stúlkurnar, til
að mótmæla kynþáttastefnu Suður-
Afríku. Zola og hinar smeygðu sér
framhjá honum og héldu áfram
hlaupinu eins og í ekkert hefði
skorist. „Ég var ekki með linsurnar
mínar svo ég sá ekki greinilega hvað
gerðist. Þetta hafði engin áhrif á mig.
Fólk lítur á mig sem tákn fyrir Suður-
Afríku - ég er fædd þar og get ekki
gert neitt við því svo það besta fyrir
mig er að halda ótrauð áfram, sagði
Zola eftir hlaupið. Hún sigraði á
4:23,14 mín, en Irina Nikitina frá So-
vétríkjunum varð önnur á 4:27,97
mín.
Bretarnir frægu, Steve Ovett og
Steve Cram, voru í fínu formi í gær-
kvöldi. Ovett er greinilega að ná sér á
strik á ný - hann vann mfluhlaup
karla á 3:55,01 mín, rétt á undan
Bandaríkjamanninum Sydney Maree
sem hljóp á 3:55,27 mín. Cram vann
1000 metrana á 2:15,09 mín, en David
Mack frá Bandaríkjunum varð annar
á 2:15,09 mín.
Helstu úrslit önnur voru að Fatima
Whitbread, Bretlandi, vann spjótkast
kvenna með 70,14 metra, Tamara
Bykova, Sovétríkjunum, hástökk
kvenna með 1,90 metra, Bert Camer-
on, Jamaica, 400 m hlaup karla á
46,09 sek, Yuri Sedyk, Sovétríkjun-
um, sleggjukast karla með 81,64
metra og Willie Banks, Bandaríkjun-
um, þrístökk með 16,87 metra.
-VS/Reuter
2. deild
Mark og Om efslir
Þjóðviljinn velur lið fyrri umferðar
Mark Duffield, miðju- og varnar-
maðurinn eitilharði úr KS, og Öm
Bjarnason, hinn snjalli markvörður
Njarðvikinga, hafa oftast hlotið út-
nefninguna „Maður leiksins“ þjá
fréttariturum Þjóðviljans í 2.
deildarkeppninni i knattspyrnu í
sumar. Þeir höfðu fyrir leikina í gær-
kvöldi verið valdir þrisvar hvor.
Alls hlutu 34 leikmenn þessa út-
nefningu í fyrri umferð 2. deildarinn-
ar, 45 leikjum. Það'er nóg í þrjú lið,
en úr þessum hópi höfum við valið
„Lið fyrri umferðarinnar" í 2. deild.
Það er þannig skipað, í svigum er
tekið fram hve oft viðkomandi hefur
verið valinn „Maður leiksins".
Markvörður:
örn Bjarnason, UMFN (3)
Varnarmenn:
Viöar Elíasson, IBV (1)
Mark Duffield, KS (3)
Erlingur Kristjánsson, KA (1)
Ólafur Björnsson, Breiðabliki (2)
Tengiliðir:
Guömundur Baldursson, Breiöabl. (2)
Björn Olgeirsson, Völsungi (2)
Ragnar Rögnvaldsson, iBl (2)
Framherjar:
Tryggvi Gunnarsson, KA (1)
Tómas Pálsson, (BV (1)
Kristján Olgeirsson, Völsungi (2)
Aðrir sem hlutu útnefningu í fyrri
umferð eru: Tvisvar: Kristinn Arnar-
son, Skallagrími, og Þorvaldur Ör-
Iygsson, KA. Einu sinni: Jóhann
Grétarsson, Breiðabliki, Stefán Ól-
afsson og Njáll Eiðsson, KA, Jakob
Kárason, KS, Ömólfur Óddsson, Jón
Oddsson og Haukur Magnússon,
ÍBÍ, Ómar Jóhannsson og Jóhann
Georgsson, ÍBV, Ómar Sigurðsson,
Valdimar Halldórsson og Gunnar
Orrason, Skallagrími, Vilhelm Fred-
riksen og Sigurður Halldórsson,
Völsungi, Þórður Karlsson, UMFN,
Orri Hlöðversson og Anton Jakobs-
son, Fylki, Guðmundur Garðarsson,
Stefán Jakobsson og Róbert Gunn-
arsson, Leiftri.
f haust, að lokinni 2. deildarkeppn-
inni, munum við á sama hátt stilla upp
„Liði ársins" í 2. deild.
- VS.
Miðvikudagur 24. júlí 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15