Þjóðviljinn - 24.08.1985, Side 2
FRETTIR
Skúlagötuskipulagið
Uggur í íbúunum
Fjölmenni á kynningarfundi um skipulagið. Óánægja með fundarsköp.
Áœtlað að halda annanfund.
Afimmtudagskvöldið var hald-
inn kynningarfundur um
Skúlagötuskipulagið á Hverfis-
götu 105 og var það Borgarskipu-
lag Reykjavíkur sem stóð fyrir
þeim fundi. Fundinn sóttu rúm-
lega 200 manns og var greinilegur
uggur í íbúum svæðisins um hvert
endanlegt útiit svæðisins kæmi til
með að verða.
Fundurinn hófst meö því að
Þorvaldur S. Þorvaldsson og
Björn Hallson kynntu skipulagið.
Björn ræddi um svæðið eins og
það lítur út í dag. Mátti greina í
máli hans að hann taldi þörf á að
lagfæra heildarsvip hverfisins,
sérstaklega hvað varðar stærð
húsa. Einnig tók Birgir Sigurðs-
son, skipulagsfræðingur til máls
og rakti þróun byggðarinnar í
Reykjavík á undanförnum ára-
tugum. Baldvin Baldvinsson
verkfræðingur kynnti einnig um-
ferðarskipulag nýja hverfisins.
Fjölmargar
fyrirspurnir
Að loknum þessum erindum
var mælendaskrá opnuð og fólki
boðið að koma með fyrirspurnir
um þetta nýja skipulag. Fólk lét
ekki á sér standa með það og tóku
margir til máls. Gerður Pálma-
dóttir sem býr við Smiðjustíg
spurði um gamalt iðnaðarhús-
næði s.s. Völundarhúsið og
Kveldúlfshúsið, hvort ekki væri
möguleiki á að þau hús fengju að
standa áfram. Hún sagðist telja
að fjölmargir borgarbúar væru
þess fýsandi að þessi hús fengju
Ætli varnarþing Geirs Hall-
grímssonar sé í nýju flugstöð-
inni?
íbúar í Skuggahverfi fjölmenntu á fundinn þar sem skipulagstillögurnar voru kynntar. Mynd - E. Ól.
að vera inni í framtíðarskipu-
laginu.
Björn Hallsson svaraði þessari
fyrirspum og sagði m.a.: „Þessi
tillaga hefur það markmið, að
byggja íbúðarhús í stað þess iðn-
aðarhúsnæðis sem er við Skúla-
götu. Það er markmið tillögunnar
í sjálfu sér.
Ekki fjárhags-
lega hagkvæmt
Það hefur verið sýnt fram á það
í greinagerð, að ef breyta ætti
þessu iðnnaðarhúsnæði í íbúðar-
hús eða húsnæði undir aðra starf-
semi væri það engan veginn fjár-
hagslega hagkvæmt. Það getur
hins vegar vel verið að það væri
Lagervinna
Verslunardeild Sambandsins óskar eftir aö ráöa karl-
menn og konur til lagerstarfa. Nánari upplýsingar hjá
lagerstjóra á staönum.
VERSLUNARDEILD
HOLTAGÖRÐUM'SÍMI 8 12 66
Tilkynning frá
stofnlána-
deild landbúnaðarins
Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1986
skulu hafa borist Stofnlánadeild landbúnaðarins fyrir
15. september næstkomandi.
Umsókn skal fylgjateikning og nákvæm lýsing áfram-
kvæmdinni, þar sem meðal annars er tilgreind stærð
og byggingarefni.
Ennfremur skal fylgja umsögn héraðsráðunautar,
skýrsla um búrekstur og framkvæmdaþörf, svo og
veðbókarvottorð.
Þá þurfa að koma fram í umsókn væntanlegir fjár-
mögnunarmöguleikar umsækjanda.
Sérstaklega skal á það bent að þeir aðilar sem hyggja
á framkvæmdir í loðdýrarækt árið 1986, þurfa að
senda inn umsóknir fyrir 15. september n.k. svo þeir
geti talist lánshæfir.
Þá skal einriig á það bent að bændur, sem hyggjast
sækja um lán til dráttarvélakaupa, þurfa að senda inn
umsóknir fyrir 31. desember n.k.
Eldri umsóknir falla úr gildi 15. september
næstkomandi, hafi deildinni eigi borist skrifleg beiðni
um endurnýjun.
Reykjavík, 15. ágúst 1985
Búnaðarbanki ísiands
Stofniánadeild landbúnaðarins
æskilegt að ýmsu leyti. Slíkt fer
eftir því hvaða mat menn leggja á
svona byggingu, menningarsögu-
legt eða annað. En það er allt
annað mál. Fjárhagslega er það
engan veginn hagkvæmt. Þetta á
við Völundarhúsið jafnt sem
Kveldúlfshúsið,“ sagði Björn
Hallsson, einn höfunda skipu-
lagstillögunnar.
Vilja ýtarlegri
umræðu
Fleiri tóku til máls og báru
fram fyrirspurnir um einstök hús
jafnt sem skipulagið í heild. For-
svarsmenn fundarins báðu fólk
um að forðast að ræða einstök
hús, bera heldur fram fyrirspurn-
ir um skipulagið í heild. Margir
voru ósáttir við þessa tilhögun á
fundarsköpum. Geirharður Þor-
steinsson bar fram fyrirspurn um
hvort ekki væri mögulegt að
halda annan fund mjög bráðlega
þar sem fólki gæfist kostur á að
tjá sig frekar um þessi mál, þar
sem fólk væri ekki bundið af
þeirri kvöð að bera aðeins fram
fyrirspurnir. Þegar Geirharður
hafði ítrekað þessa fyrirspurn
sína og fengið jákvæðar undir-
tektir hjá Þorvaldi S. Þorvalds-
syni, forstöðumanni Borgar-
skipulags, fór fundurinn að
leysast upp. Fólki skildist að ann-
ar fundur yrði haldinn þar sem
fundarsköp yrðu frjálslegri og
fannst því lítill tilgangur í að sitja
lengur. Þorvaldur S. Þorvaldsson
minnti fólk á að Skipulagið yrði
fljólega til sýnis í Byggingarþjón-
ustunni við Hallveigarstígs og þar
gæti fólk komið með fyrirspurnir
til forsvarsmanna skipulags til-
lögunnar. Þeir verða þar við milli
16.00 og 18.00. Þetta verður
kynnt nánar síðar.
Skoðun íbúanna
fái að koma fram
Geirharður Þorsteinsson sagði
x samtali við Þjóðviljann í gær að
sér fyndist kynning skipulagsins
hingað til, hafa verið dálítið ein-
hliða. „Mér fínnst ástæða til að
brjóta upp þetta hefðbundna
form. Yfirleitt fer þetta fram á
þann hátt að það fer fram svo-
nefnd kynning, þá eru bomar
fram fyrirspurnir, síðan sendir
fólk inn ábendingar bréflega, til
yfírvalda. Ég held að borgaryfir-
völd ættu að grípa það fegins
hendi að fá umræðufund þar sem
menn gætu taiað meira um hvað
þeim finnst um hlutina þó við-
komandi séu ekki endilega í því
að skipuleggja svæðið. Að mínu
viti er þetta merkilegur þáttur í
sambýlinu milli þegna og yfir-
valda. Á slíkum fundi gætu kom-
ið fram viðbrögð íbúa borgarinn-
ar sem yfirvöldum gæti verið akk-
ur í að fá, þó ekki sé kannski um
að ræða skilgreindar tillögur.
Það er mitt sjónarmið og
margra annarra sem hugsa um
skipulagsmál að þó íbúar svæðis
sem yfirvöld eru að gera
breytingartillögur um, eigi ekki
að stjórna þeirri vinnu, eru íbúar
þessa svæðis engu að síður þo-
lendur breytinganna. Þeir geta
verið e.k. samnefnari fyrir hin
mannlegu viðbrögð, hvort sem
þessir íbúar eða einhverjir aðrir
eiga í hlut,“ sagði Geirharður
Þorsteinsson að lokum.
í Þjóðviljanum í fyrradag birt-
ust teikningar úr margnefndri
skipulagstillögu þar sem urðu
leiðinleg mistök. Birtar voru
teikningar af Vatnsstíg að vestan,
núverandi útlit og skipulagstil-
laga. Á þeirri síðarnefndu er
stærri mælikvarði þannig að hús-
in virðast hærri, því virðist nýja
tillagan umfangsmeiri en hún er í
raun og veru. Beðist er velvirð-
ingar á þessu.
-IH
Grœnfríðungar
íslendingar
hætta
Pete Wilkinsson talsmaður
Greenpeace-samtakanna telur að
íslendingar muni hætta öllum
hvalveiðum sínum nú í nóvember
þegar veiðibann Alþjóða hval-
veiðiráðsins tekur gildi, - einnig
veiðum í vísindaskyni.
Þetta kemur fram í fréttaskýr-
ingu frá Reuter-fréttasofunni um
hvalamál. Þar er haft eftir Wilk-
inson að áhöfn Síríusar, skips
grænfriðunga, hafi mætt almenn-
ri velvild og stuðningi í heimsókn
sinni til íslands, og segir Wilkins-
son það trú sína að þótt ekki liggi
fyrir opinberar yfirlýsingar muni
íslendingar hætta hvalveiðum í
nóvember. -m/reuter
Grímsnes
Eldur í
Vaðnesi
I gær kom upp eldur á bænum
Vaðnesi í Grímsnesi. Allt tiltækt
slökkvilið á Selfossi var kallað út.
Fljótlega tókst að ráða niður-
lögum eldsins.
Það var um þrjúleitið í gær sem
eldur kom upp í gömlu íbúðar-
húsi á bænum Vaðnesi í
Grímsnesi. Eldurinn reyndist
minni en talið var í fyrstu og gekk
greiðlega að slökkva hann. Þegar
síðast fréttist var ekki vitað um
eldsupptök. Engin slys urðu á
mönnum. IH
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í styrkingu
Djúpvegar í Álftafirði. (Lengd 5,1 km, magn 10.000
m3).
Verki skal lokið 20. október 1985.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á ísa-
firði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 26.
ágúst n.k.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann
9. september 1985.
Vegamálastjóri
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Starfsfólk óskast til Æskulýðsráðs Reykjavíkur við
almennt unglinga- og æskulýðsstarf félagsmið-
stöðvum æskulýðsráðs.
Menntun og reynsla á sviði uppeldismála æskileg.
Upplýsingar veita forstöðumenn félagsmiðstöðva.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00
mánudaginn 2. september 1985.