Þjóðviljinn - 24.08.1985, Page 3
FRÉTTIR
Sigríður J. Hannesdóttir stærðfræðikennari og Pálína Jónsdóttir endur-
menntunarstjóri KHf virða fyrir $ér sýningargripina. Ljósm. Sig.
KHÍ
Sýning á
kennslugögnum
Félag raungreinakennara í
framhaldsskólum sýna
kennslugögn í stærðfræði, eðlis-
fræði og efnafræði fyrir fram-
haldsskóla í húsakynnum Kenn-
araskóla Islands.
Á sýningunni eru kennslubæk-
ur gámlar og nýjar, handbækur
og tímarit, myndbönd, skyggnur
og glærur auk kennsluforrita fyrir
tölvur. Til sýnis eru flestar þær
bækur sem kenndar hafa verið í
framhaldskólum síðastliðin 5 ár
og til samanburðar er stillt upp
kennslubókum Hins lærða skóla í
Reykjavík frá síðari hluta 19.
aldar. Þá hafa félaginu borist
gjafir frá nágrannalöndum þar
sem er að finna nýtt kennsluefni
frá þessum löndum. Innlend út-
gáfufyrirtæki hafa gefið eintök af
kennslubókum sem þau hafa gef-
ið út og nokkrir bóksalar sýna úr-
val bóka sem snerta kennslu í
þessum greinum.
Sýningin er opin á laugardag
kl. 10 til 14 og munu bækumar
síðan liggja frammi í bókasafni
KHÍ á opnunartíma þess kl. 8-16
fram til 6. september.
Heilbrigðismál
Læknar hættir að
símsenda lyfseðla
Landlœknir: Ekki símsenda. Þvífylgir óöryggi og
misnotkun. Guðmundur Elíasson lœknir: Um er að rœða
kjarabaráttu lækna. Munu lœknar taka tillittil aldraðra og
fatlaðra? Apótekin taka 22 kr. í skriftargjald á hvert lyf.
Heimilislæknar eru hættir að
símsenda resept. Hvað verður
um fatlað fólk og aldraða? sagði
reykvísk kona sem hafði samband
við Þjóðviljann.
„Ég hringdi í heimilislækninn
minn og hann neitaði að sím-
senda lyfseðil fyrir mig. Þetta er
mjög erfitt fyrir fatlaða og aldr-
aða. Þeir þurfa að standa undir
háum leigubflakostanði ef þeir
þurfa að fara að eltast við lyfseðla
út um allan bæ,“ sagði viðmæl-
andi Þjóðviljans að lokum.
Guðmundur Sigurðsson að-
stoðarlandlæknir hefði ítrekað
beint þeim tilmælum til lækna að
símsenda ekki lyfseðla. Ástæðan
er sú að útgáfa lyfseðlanna er
óöruggari.
Aðspurður hvort gamalt fólk
yrði að líða fyrir þetta sagði Guð-
mundur að möguleikar væru á að
koma til móts við fólk sem á erf-
itt. Úti á landi er algengt að apó-
tekin sæki lyfseðlana til lækn-
anna. Það er örugg leið og kemur
eins út fyrir sjúklinginn. Þetta er
náttúrlega illframkvæmanlegt í
Reykjavík. Því verður hver lækn-
ir að meta það út af fyrir sig
hversu erfitt er fyrir sjúklinginn
að sækja lyfseðilinn.
Guðmundur Elíasson læknir í
Domus Medica hafði dálítið ann-
að um málið að segja. „Ástæðan
fyrir því að heimilislæknar neita
að símsenda lyfseðla er sú að við
stöndum í samningaviðræðum
um kaup okkar við Trygginga-
stofnunina. Það var á döfinni að
við innheimtum greiðslur af fólki
sem fengi ráðleggingar frá okkur
í síma. Við mótmæltum því þetta
er fjarstæða. Tryggingastofnun
féll frá þessu en í staðinn lítur hún
þannig á að við höfum afsalað
okkur rétti til þess að taka
greiðslur fyrir að símsenda lyf-
seðla. Við teljum þetta vera allt
annað og óskylt mál. Þetta er
ástæðan fyrir því að við hættum
að símsenda lyfseðla. Við viljum
að sjálfsögðu einnig tryggja ör-
yggi með þessu. Ég og læknarnir í
kringum mig taka tillit til fatlaðra
og gamals fólks. Þetta fólk verður
áfram að fá sína lyfseðla sím-
senda í apótek. Hinir verða að
sækja lyfseðlana til læknisins.
Þeir sem ekki þurfa að koma í
skoðun til heimilislæknisins geta
sótt lyfseðilinn í afgreiðsluna.
Ég vil að lokum koma því á
framfæri,“ sagði Guðmundur
Elíasson „að þegar lyfseðill er
símsendur bætist við aukakostn-
aður. Apótekarinn tekur nefni-
lega 22 kr. auka á hvert lyf fyrir
það að hlusta á lækninn og skrifa
niður lyfseðil frá honum. Fyrir
fólk sem þarf að fá 6-7 lyf í einu er
þetta verulegur kostnaður.
SA
Matreiðslumaður
Kjötiðnaðarstöð Sambandsins óskar eftir að ráða
matreiðslumann. Starfssvið hans er að hafa umsjón
með framleiðslueldhúsi Kjötiðnaðarstöðvarinnar.
Nánari upplýsingar hjá deildarstjóra.
Umsóknarfrestur til 1. sept. n.k.
$ Kjötiðnaðarstöð
Sambandsins
KIRKJUSANDI REYKJAVÍK SÍMI686366
Sérkennaraverkefni
Skólanefnd Akureyrar óskar að ráða starfsmann að
tilraunaverkefni, ólíku hefðbundnu skólastarfi.
Sérkennaramenntun eða kennaramenntun æskileg-
ust.
Nánari upplýsingar veitir Fræðsluskrifstofa Norður-
landsumdæmis éystra, Furuvöllum 13, Akureyri. Sími
96-24655.
Frá grunnskólum
V Garðabæjar
Innritun:
Innritun nýrra nemenda fer fram í skólunum daglega
kl. 10-12 og 13-15.
Sími Flataskóla er 42756, Hofsstaðaskóla 41103 og
Garðaskóla 44466.
Til þess að unnt sé að tryggja nemendum skóla-
vist verður að tilkynna þá nú þegar.
Sömuleiðis verður að tilkyr.na brottflutning þeirra
nemenda sem ekki verða í grunnskólum bæjarins
næsta skólaár.
Dagvistarmál
Fóstrur funda
ArnaJónsdóttir: Þýðir ekki að rœða aðeins skammtímalausnir
Iallri þessari umræðu um dag-
vistarmál hafa verið ræddar
einfaldar lausnir á vandanum.
Okkur finnst að það þurfi að
ræða miklu nánar hvað liggi til
grundvallar þessum vanda. Það
þýðir ekki að ræða aðeins ein-
hverjar skammtímalausnir til að
forðast upplausnarástand 1. sept-
ember, sagði Arna Jónsdóttir for-
stöðumaður á Laufásborg.
Stjórn Fóstrufélagsins og trún-
aðarmenn fóstra héldu með sér
fund á fimmtudaginn þar sem
rædd voru vandamál dagvistar-
heimilanna. Arna sagði að fóstr-
ur túlkuðu lögin þannig að öll
störf sem snertu uppeldi barna á
bamaheimilum væru í raun
fóstrustöður. „Því teljum við að
orð Davíðs borgarstjóra um að
skapa nýja stétt sem væri e.k.
milliliður milli fóstra og ófag-
lærðs starfsfólks, rekist á okkar
réttindi. En það má ekki mis-
skilja orð mín á þann veg að að-
stoðarfólk sé einhver ógnun við
fóstrur. Því fer fjarri. Á meðan
ekki fást nægilegar margar fóstr-
ur til starfa, verður aðstoðarfólk
ætíð við hlið fóstra á dagheimil-
um. Aðalatriðið er, að það eru
fóstrur sem þarf að ræða við um
þessi mál. Fóstmr eiga auðvitað
að vera leiðandi f umræðunni um
þessi fagmál. Við teljum að borg-
aryfirvöld hafi gengið fram hjá
okkur í umræðunni um þessi mál.
Á næstunni munum við kynna
sjónarmiða okkar frekar. Við
ræddum um að halda fund með
starfsfólki dagvistarheimilanna í
næstu viku. Og við viljum
gjaman hafa náið samstarf við
Sókn og þau stéttarfélög sem
máUð varðar,“ sagði Arna Jóns-
dóttir að lokum.
IH
Laugardagur 24. ágúst 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Upphaf skólastarfs 1985.
Hofsstaðaskóii:'
Nemendur komi í skólann mánudaginn 9. september
sem hér segir:
kl. 9.00 - 3. bekkur
kl. 9.30 - 2. bekkur
kl. 10.00 - 1. bekkur
kl. 11.00 - 6 ára
Flataskóli:
Nemendur komi í skólann mánudaginn 9. september
sem hér segir:
kl. 9.00 - 5. bekkur
kl. 10.00 - 4. bekkur
kl. 11.00 - 3. bekkur
kl. 13.00-2. bekkur
kl. 14.00 - 1. bekkur
Forskólabörn (6 ára) veröa boöuö bréflega.
Garðaskóli:
Nemendur komi í skólann sem hér segir:
9. bekkur kl. 12.00 miðvikudaginn 4. sept.
8. bekkur kl. 12.00 fimmtudaginn 5. sept.
7. bekkur kl. 12.00 fimmtudaginn 5. sept.
6. bekkur kl. 13.30 fimmtudaginn 5. sept.