Þjóðviljinn - 24.08.1985, Síða 12
DÆGURMÁL
Nýgilt
og sígilt
Belgur og Biða göslast í gegnum þrjár
íslenskar hljómplötur
Með nöktum á stjái.Emotionat swingbara hálfgerð snilld,” segja Belgur og Biða. Kannski yrði snilldin algjör ef sveitin
stæði undir nafni líka að neðan?
Stúdíó Mjöt hefur nú fært út
kvíarnar og jafnframt gerst út-
gáfufyrirtæki. Hljómsveitirnar
Fásinna og Með nöktum eru
fyrstu skjólstæðingar Mjatar í
útgáfumálunum hvormeð
sinni sex laga breiðskífunni. Á
dagskrá hjá Mjöt er að gefa út
plötu með píanóleikaranum
Martin Berkofskí og yrði
ágóða af henni varið til bygg-
ingarsjóðs tónleikahúss sem
svo tilfinnanlega vantar hér í
borg.
Heilmikill metnaður liggur 'á
bak við báðar þessar Mjatar-
skífur, en látum stafrófið ráða og
lítum á Fásinnu á undan. Músik
hennar er nokkurskonar sam-
bland af þungarokki og hljóð-
gerflapoppi, taktföst og melódísk
nokk. Besta lag plötunnar finnst
mér Hvað er hinumegin (sem
reyndar er Hitt lagið) eftir Karl
Erlingsson sem hefur samið fyrir
Dúkkulísur og snúist í kringum
þær (sem sagt góður í Dúkkulísu-
leik... ha ha ha... voða smellið!)
og leikur á þessari Fásinnu-skífu
á gítar og hljómborð. t*á hef ég
lúmskt gaman af fyrsta lagi skíf-
unnar sem ber hið merkingar-
Barnabuxur
Barnapeysur
Barnabolir
Dömujakkar
Dömukápur
Dömubuxur
Dömupils
Kjólar
Herrapeysur
Herrabuxur
Herraskyrtur
Herrajakkar
Barnaskór
Dömuskór
Herraskór
þrungna nafn Ruddudu og minnir
mig á Grýlurnar og gömlu
(þunga)rokksveitina Uriah Heap
(þegar maður er kominn á vissan
aldur miðast allt við fortíðina).
Hitt lagið hefur brotið sér leið
inn á vinsældalista Rásar 2 - í 7.
sæti takk fyrir - og gengur hér á
bæ undir nafninu kínverska lagið,
þannig að ekki þurfa Fásinnu-
menn að kvarta undan við-
brögðum. Hins vegar ætla ég að
leyfa mér að kvarta smávegis.
Þeir Fásinnungar komast ágæt-
lega frá hljóðfæraleiknum,
trommur og bassi stöðug og gítar
og hljómborð í ágætu bróðerni.
Viðar er ágætissöngvari, en t.d. í
laginu Spurningar og svör fer
hann yfir eigið strik, en er þó góð-
ur nokk í rólegum milliköflum
lagsins. Þetta fellur líklega undir
útsetningu og kemur þá upp sú
spurning hvort ekki þyrfti að vera
viðstaddur upptöku hljómplatna
yfirleitt einhver sem gerði at-
hugasemdir við framreiðslu
hljómlistarmanna, án þess þó að
yfirsetumenn þyrftu að hafa ein-
hver völd, frekar að slíkt væri til
að viðra andann og fjöiga hug-
myndum.
Annars er um Fásinnu að
segja, að þetta er hin ágætasta
frumraun á skífu og ættu þeir pilt-
frá kr. 390.-
350.-
150.-
690.-
1.990.-
690.-
590.-
990.-
590.-
490.-
280.-
990.-
100.-
ar að láta ógert að ljúka samstarf-
inu eins og heyrst hefur að til
standi - músik þeirra er skemmti-
leg blanda af gömlum og nýjum
straumum í poppinu.
Með nöktum
Þessir ágætu herrar spila ekki
ólíka músik og Fásinna, eru að
vísu pönkaðri og gæfumunurinn
er hvað þeir eru meira pró-
fessjónal. Hins vegar eru þeir svo
sem ekkert betri lagasmiðir. Að
vísu vingsa þeir til á þessari plötu
sinni Skemmtun allt frá því að
standa undir því nafni og niður í
að vera leiðinlegir, en að vísu all-
an tímann harla góðir.
Lagið Emotional Swing hefur
sést og heyrst hér í sjónvarpi.
Mér finnst það hiklaust besta lag
Skemmtunar og þó víðar væri
leitað. Bara hálfgerð snilld með
anda Ragga Bjama yfir vötnum.
Næsta lag skífunnar er Fears of
fear og er skolli gott. Næstum
eins gott er Swimmers og þar næst
Holes. Hins vegar leiðast mér
heldur síðustu lög beggja vegna
skífunnar, Breath og Lust. Þau
em einhvern veginn allt of lík
dökkum og tilbreytingarlausum
töktum sem Þeysarar áttu til og
gerðu mér lífið heldur leitt.
En hvað sem lagasmekk líður,
verður ekki af þeim Með nöktum
skafið að þeir hafa spilamennsk-
una í hendi sér og Magnús rödd-
ina á betri stað á þessari
Skemmtun. Og af einhverjum
ástæðum er hljómburðurinn betri
en á plötu Fásinnu, og flestum
öðmm íslenskum skífum
reyndar. Hinsvegar hefur Fá-
sinna það framyfir Með nöktum
að syngja á íslensku nokkuð
frumlega samsetningu í Grýlustíl.
Með nötkum em textar á
ensku... og hvar er textablaðið
mitt Magnús?
Mannakornið
Magnús
Magnús Eiríksson hefur farið í
gegnum tíðina í dægurlagagerð
okkar íslendinga ekki þegjandi
en stórhljóðalaust, enda maður
lítillátur. Hins vegar er hann
músikant af Guðs náð og hefur
haldið sínu persónulega striki allt
frá hann fór að fást við að músis-
era á sjöunda áratugnum. Hann
hefur rennt sér í gegnum Pónik,
Blúskompaní, Bmnaliðið og
Mannakorn og allsstaðar skilið
eftir sig viðfelldin lög og stundum
algera smelli: Sígild, íslensk dæg-
urlög. Af handahófi nefnum við í
gegnum tíðina, Braggablús, Ga-
rúnu, Ég er á leiðinni og
Draumaprinsinn og eigum þó
mörg ótalin. Nú er Magnús enn á
ferð með Mannakornunum, í
ljúfum leik. Lögin eru eins og
áður blúsað rokk á la Magnús
Eiríksson með textunum hans um
partý, illa rekna þjóðarskútu, ást
og einmanaleik og vangaveltur
um lífið og tilveruna. Magnús
sannar hið löngu vitaða, að dæg-
urlög koma best út þegar sama
manninum er gefið að gera bæði
lag og texta; og ekki er síðra að
hann syngi þau líka. Magnús
sýnir enn hér að hann er yndisleg-
ur raulari í Eldi Steins Steinarrs.
Annars hefur Magnús kosið að
láta Pálma Gunnarsson um söng
laga sinna að mestu og hefur
Pálmi enda skilað því verki með
sóma. Hins vegar finnst mér hann
stundum vera ýkjukenndur
þama I ijúfum leik, tilgerðarlega
töff.
Það er enginn viðvaningsbrag-
ur á spilamennskunni á í ljúfum
leik. Mest áberandi er glæsilegur
trommuleikurinn þar sem eiga
hlut að máli Ragnar Sigurjónsson
(Dúmbó, Mánar, Brimkló) og
Sigfús Örn Óttarsson (Bara-
flokkur), bassaleikur Pálma og
gítarleikur Magnúsar, sem
reýndar mætti standa betur út úr
á stundum (Hversvegna). Hljóm-
borðsleikurinn er mjög hæfilegur
og smekklegur í höndum þeirra
Guðmundar Benediktssonar og
Magnúsar Kjartanssonar.
Hljómurinn á plötunni mætti
vera betri, en Mannakornsdreng-
irnir bæta það upp með hrá-
leikanum og spilagleðinni.
Þetta er að vísu hljómsveitar-
plata, Mannakornsplata, en hún
sannar engu að síður að einstakl-
ingurinn Magnús Eiríksson er
einn fastmótaðasti rokklagahöf-
undur og -flytjandi hérlendur og
glimrandi notalegur í ofanálag,
þrátt fyrir hráleikann sem ein-
kennir I ljúfum leik.
Svona í restina langar mig að
kvarta yfir því að ekki er tíundað
hvaða hljóðfæraleikari gerir hvað
íhverju lagi... t.d. langaði migað
vita nánari skil á trommu-
leiknum. Enda þótt ég þykist
þekkja bæði fasta og húmoríska
takta Ragnars vinar míns, hér í
eina a.m.k., þá væri gaman að
vera viss í sinni sök.
Bestu lög? Þegar svona laga-
smiður á í hlut er ekki hægt að
svara slíkri spurningu. Kannski
ekkert þama sem kemur á óvart,
en með stimpli Magnúsar í bak og
fyrir. Það er meira en margur
heldur til streitu í fjöldafram-
leiðslu nútímans.
295.-
590.-
Auk þess margt fleira ódýrt og fallegt
DOMUS
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur
B og B
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í endurbætur á
Reykjanesbraut í Ytri-Njarðvík.
(Malbik 2.200 m2, kantsteinn 1000 m, umferðareyjar
470 m2).
Verki skal lokið 1. nóvember 1985.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í
Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 26. ágúst n.k.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir ki. 14.00 þann 2.
september 1985.
Vegamáiastjóri
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Innritun nýnema í öldungadeild verður mánudaginn
26. ágúst kl. 16-19.
Stöðupróf verða sem hér segir (kl. 17 alla dagana):
í ensku, þriðjudag 27. ágúst,
í þýsku, miðvikudag 28. ágúst,
í frönsku og spænsku, föstud. 30. ágúst.
Stöðupróf í dönsku fellur niður.
Deildarstjórafundur verður miðvikudaginn 28. ágúst
kl. 10.
Nýnemar í dagskóla komi fimmtudaginn 29. ágúst kl.
17.
Kennarafundur verður föstudaginn 30. ágúst kl. 10.
Skólinn verður settur mánudaginn 2. september kl. 10
og stundatöflur afhentar nemendum í dagskóla gegn
greiðslu 1000 kr. innritunargjalds.
Kennsla í dagskóla hefst skv. stundaskrá þriðjudaginn
3. september.
í öldungadeild hefst kennsla samkvæmt stundaskrá
mánud. 2. sept.
Rektor
Aðalfundur
Alþjóðleg ungmennaskipti (ICYC - lceland) halda ár-
legan aðalfund sinn laugardaginn 14. sept. 1985 kl.
14.00 að Snorrabraut 60 (skátahúsinu).
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Að loknum
fundi verður veitt kaffi.
Allir velkomnir.
Stjórn AUS.
ÚTSALA