Þjóðviljinn - 24.08.1985, Síða 14
t«pni mii*-
McNNINv
Norðurland
Listavika í skólum
Aðalfundur Menningarsamtaka Norðlendinga
Aðalfundur Menningarsam-
taka Norðlendinga verður
haldinn í Hafralækjarskóla í
Aðaldal dagana 29. og 30. ág-
úst n.k. Erfundarstaðurinn að
nokkru valinn með hliðsjón af
fjórðungsþinginu, sem haldið
verðurað Laugum sömu
daga.
Megin efni fundarins að þessu
sinni verður það að ræða um sam-
starf Menningarsamtakanna við
grunnskólana á Norðurlandi, en
eins og kunnugt er kom fram til-
laga á aðalfundinum á Akureyri
haustið 1983 um að efnt skyldi til
listaviku í skólum á Norðurlandi.
Vel fer á því að nú á ári æskunnar
virðist þessi hugmynd ætla að
verða að veruleika, með góðri
samvinnu við fræðslustjórana á
Norðurlandi og skólastjóra
grunnskólanna. Verða þeir gestir
aðalfundarins og skiptast á skoð-
unum við félaga MENOR um
möguleika á útfærslu þessarar
listviku, sem stefnt verður að í
sem flestum grunnskólum á
Norðurlandi á komandi hausti.
Er þetta þannig hugsað, að
MENOR útvegi skólunum, úr
sínum röðum, leiðbeinendur,
sem verða á launum í vikutíma
við ákveðið verkefni, allt eftir
óskum hvers skóla. Svipað form
hefur áður verið reynt í nokkrum
skólum á Norðurlandi og gefist
vel. Verður nánar skýrt frá því á
aðalfundinum og eru félagar
MENOR eindregið hvattir til að
fjölmenna á fundinn og leggja sitt
af mörkum til að gera þetta að
sjálfsögðum þætti í skólastarfinu.
Dagskrá fundarins verður í
meginþáttum þannig, að fyrri
daginn verður rætt um „listir í
skólurn" en framsögumenn þeir
Sturla Kristjánsson fræðslustjóri,
Guðmundur Norðdahl tónlist-
arkennari og Pétur Þorsteinsson
skólastjóri. Þá fara og fram við-
ræður milli skólastjóra og félaga í
MENOR um væntanlegt sam-
starf. Loks verður fundar-
mönnum skipt niður í umræðu-
hópa eftir listgreinum. Síðan vel-
ur hver hópur sinn fulltrúa í upp-
stillingarnefnd, sem þarf að ljúka
störfum fyrir hádegi á föstudag.
Síðari daginn kemur uppstill-
ingarnefnd saman til Émdar.
Eftir hádegið verður aðalfundur
MENOR og rædd „önnur mál“.
Fundinum lýkur svo með kvöld-
vöku, sem verður í þremur meg-
inþáttum: A) Kynning á ljóð-
skáldum á Norðurlandi. B) Tón-
listardagskrá úr Suður-Pingeyj-
arsýslu. C) Sýning á verkum
nemenda úr Hafralækjarskóla.
-mhg
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. ágúst 1985
Breskir hermenn marsera niður Bankastræti.
margt sem hægt er að segja án
orða.“
„Ég leikstýri Landi míns föður
og hef leikstýrt flestum mínum
verkum nema þeim sem hafa ver-
ið sett upp í Þjóðleikhúsinu. Mér
finnst gott að leikstýra verkunum
sjálfur því ég er fyrst og fremst að
í íslandssögunni? Ég byrjaði
svona nálægt mér í tíð og tíma
meðal annars vegna þess að það
var auðveldast frá sjónarmiði
málfarsins. Ég hef reyndar skrif-
að eitt leikrit áður sem fjallaði
um ákveðið tímabii. Það var
Peysufatadagurinn sem ég skrif-
aði fyrirNemendaleikhúsið 1980.
Það gerðist allt á einu kvöldi og
því var einfaldara að vinna að
heimildasöfnun fyrir það en Land
míns föður. Krakkarnir í Nem-
endaleikhúsinu unnu líka með
mér í því, bæði að heimildasöfn-
un og öðru. Leikritið segir frá
Peysufatadegi í Versló árið 1937
þegar menn hér í bæ voru annað
hvort kommúnistar eða nasistar.
Það má kalla það upphitun að
Landi míns föðurs því það var
fyrsta sögulega, ja sögulega, segj-
um heldur leikrit sem gerðist á
öðrum tíma en okkar eigin.
Það er kannski eitthvað sem
kemur með aldrinum að maður
verður meira og meira spenntur
fyrir sögunni. Ég gæti vel hugsað
mér að semja leikrit um annað
tímabil f íslandssögunni ef það
hefði einhvern boðskap, hefði
eitthvað að segja.“ -aró
leikur yngri systur hennar. Þær
systur eru 20 og 12 ára þegar
leikurinn hefst og 25 og 17 í lokin.
Aðrir leikarar í aðalhlutverkum
eru Jón Sigurbjörnsson, Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Aðalsteinn
Bergdal og Ragnheiður Arnar-
dóttir.
Við æfðum mjög stíft í vor og
vorum viku lengur en við erum
vön til að fá heildarmynd á sýn-
inguna og byrjum aftur að æfa 2.
september.
Söngleikurinn hefur breyst
mjög lítið í meðförum. Ég bætti
inní tveimur eða þremur lögum
og svo er alltaf einhverju hnikað
til í textanum. Maður hefur
ákveðið frelsi þegar maður leik-
stýrir texta sem maður hefur
skrifað sjálfur og losnar alveg við
þá ofurvirðingu sem er borin fyrir
texta höfundar í leikhúsunum en
hins vegar má breyta öllum öðr-
um hugmyndum höfundar en
orðalaginu. Þegar ég leikstýri
eftir sjálfan mig fer ég öfugt að.
Ég breyti kannski orðalaginu en
ekki því sem höfundur er raun-
verulega að segja.
Sýning aldrei
merkilegri
en handritið
Þegar ég var að byrja að skrifa
leikrit hafði ég þá áráttu að vera
stöðugt að bæta inní. Nú tek ég
frekar burt vona ég. Það er svo
semja atriði til að vinna með
leikurunum. Ég lít á þetta sem
vinnuhandrit án þess þó ég vilji
tala með fyrirlitningu um handrit
því í handritinu gerist allt. Það er
aldrei hægt að gera sýningu
merkilegri en handritið þó miklu
sé hægt að bjarga eða eyðileggja í
leikhúsi.
Vinnan í leikhúsinu er það
skemmtilegasta. Það að skrifa
leikrit er aukaatriði og mér líður
ekki þannig núna að ég gæti hugs-
að mér að sitja bara við skriftir og
láta aðra um uppfærslu. Þetta
hangir allt saman, er ein heild.
Mér finnst ég ekki vera búinn að
skrifa leikritið fyrr en vinnan í
leikhúsinu hefst. Þetta er eins og
maður hafi saumað stórt tjald og
það liggi í bendu fyrir framan
mann. Þótt maður viti hvernig
það muni líta út er það ekki full-
nægjandi fýrr en maður hefur séð
það reist fyrir framan þig og helst
að söfnuðurinn sé kominn inn og
tjaldsamkoman geti hafist.“
Tímabil með
boðskap
Nýtt leikrit á döfinni? „Nei, ég
er ekkert alvarlega byrjaður að
hugsa um nýtt leikrit, ekki búinn
að marka stefnuna ef svo má að
orði komast, enda ærið í bili.
Maður er þó alltaf að horfa í
kringum sig og leita að nýjum
leiðum til að vinna eftir.
Af hverju ég valdi þetta tímabil
Frá æfingu á Landi míns föður. Fr. v. Karl Guðmundsson, Karl Ágúst Úlfsson og Helgi Björnsson.
Kópavogur
Sumarferð
a
Reykjanes
Frístundahópurinn Hana-nú í
Kópavogi fer í síðustu stóru
ferð sumarsins á morgun,
laugardaginn 24. ágúst.
Fyrsti áningarstaður verður
kapellan við Straumsvík og síðan
ekið eftir Vatnsleysuströnd,
gegnum Voga, komið í Blá lónið í
Svartsengi og ekið um Reykjanes
og endað í Höfnum þar sem
Hafnahreppur býður Hana-nú
félögum upp á veitingar.
Lagt af stað kl. 13.00 frá Digra-
nesvegi 12. Allir Hana-nú félagar
eru hvattir til að taka þátt í þess-
ari síðustu stórferð sumarsins.