Þjóðviljinn - 30.08.1985, Síða 3

Þjóðviljinn - 30.08.1985, Síða 3
FRETTIR Verndarhúsið Við eigum húsið Björn Einarsson, stjórnarmaður íVernd: „Húsið er langþráður draumur og verður ekki selt“. Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður Verndar: „Borgarstjóri hefur ekkert samband haft við okkur“. Mei, húsið er ekki til sölu, sagði Jóna Gróa Sigurðardóttir um Vemdarhúsið við Laugateig. „Stjórnarfundur ákveður svona hluti og ég sé enga ástæðu til að halda stjórnarfund á næstunni. Borgarstjóri hefur ekki haft neitt samband við okkur.“ Jóna Gróa sagöi enn fremur: „Það er alltaf verið að tala um fanga í sambandi við Verndar- húsið. Fólk verður að fara að skilja það að þetta eru frjálsir menn. 35-40% okkar manna hafa ekki komist í kast við lögin heldur hafa átt við áfengis- eða fíkni- efnavanda að stríða og hafa þegar farið í meðferð. Hinir hafa marg- ir hverjir fengið skilorðsbundinn dóm ungir en ekki setið í fangelsi. Þeir sem hafa verið í fangelsi eru búnir að afplána sinn dóm og því frjálsir menn nú. Það sem mér finnst að fólk ætti að huga að er að það vantar meira fjármagn til þess að hægt sé að byrja endur- hæfinguna inni í fangelsunum, þannig er hægt að minnka hóp síbrotamanna, það er okkar markmið," sagði Jóna Gróa for- maður Verndar. Björn Einarsson stjórnarmað- ur í Vernd sagði: „Við eigum þetta hús en ekki Davíð. Hann hefur ekkert leyfi til þess að lofa fólki að Vernd muni ekki vera með starfsemi sína í þessu húsi. Málið er komið í hnút vegna um- mæla Davíðs Oddssonar. Húsið hefur ekki verið auglýst til sölu. Þetta hús er langþráður draumur okkar. Mennirnir munu flytja í húsið í september. Að lokum; þetta eru ekki fangar. Á enda- laust að halda áfram að refsa mönnum sem búnir eru að af- plána sinn dóm? SA Teigahverfi Björn Einarsson stjórnarmaður í Vernd fyrir framan hið umtalaða hús Verndar við Laugateig 19. Ljósm. E.ÓI. Landbúnaður Fiskvinnslufyrirtæki hafa ekki látið mikið fyrir sér fara á vörusýningum en á Heimilissýningunni í Laugardalshöll sem opnuð var formlega í gær kynnir Síldarvinnslan í Neskaupstað sem og Síldarsöltunarstöðin Hafnarsíld á Höfn í Hornafirði ýmsa Ijúffenga síldarrétt. Það var ekki annað að sjá en að sýningargestum líkaði framtakið vel. Mynd: Sig. Hólaskóli hefur kennslu í skógrækt Bændaskólinn á Hólum í Hjaltadal hefur ráðið til sín sérfræðing í skógrækt að hálfu á móti Skógrækt ríkisins, og er ætl- unin að tengja skógræktina bún- aðarnáminu og landbúnaðinum í auknum mæli. Starfann hlaut Þorbergur Hjalti Jónsson, en hann hefur ný- lokið námi í skógrækt við Há- skólann í Aberdeen í Skotlandi. Fyrr á öldum var Hjaltadalur viði vaxinn en það fór með hann eins og svo marga aðra staði sem til forna voru viði vaxnir. Um 1910 hófst skipulögð trjáplöntun í landi Hóla og síðan hefur trám verið plantað þar reglubundið. Nú er þar kominn skógur í vexti á um 100 hektara svæði. Með ráðningu Þorbergs er þess vænst að skógrækt eflist enn í hér- aðinu, jafnframt því sem hafin verður skipulögð kennsla í skóg- rækt við Hólaskóla. gg Heimilið er of stórt Guðrún Björk Tómasdóttir íbúi á Teigunum: Myndum sœtta okkur við 8 manna Verndarheimili. Vernd brástfrœðsluhlutverki sínu. M ér finnst það ekki hafa kom- ið nógu vel fram í umljöllun um hús Verndar í Teigahverfinu að við íbúarnir höfum alltaf sagt að við getum ekki frekar en önnur hverfi neitað að taka við heimili fyrir 8 fyrrverandi fanga. En 23ja manna heimili er of stórt í hverf- ið, sagði Guðrún Björk Tómas- dóttir íbúi á Teigunum í samtali við blaðið. „Það getur enginn talið mér trú um það að það sé mannbætandi fyrir þessa fanga að hrúga þeim saman 23 í eitt hús. Ekki væri viturlegt að setja saman 23 stór- reykingamenn og segja þeim að hætta að reykja, það sér hver heilvita maður. Hvert sem við íbúarnir í hverfinu höfum leitað ber öllum saman um það að þetta sé of stór eining. Vernd hlýtur bara að vera að hugsa um pen- ingahliðina á þessu máli, því það er náttúrlega ódýrara fyrir Vernd að reka bara eitt stórt heimili. Ef í hverfinu ætti að vera 8 manna heimili, myndi enginn kvarta yfir því. Við myndum eflaust ekki taka eftir því,“ sagði Guðrún. „Mér finnst Vernd hafa brugð- ist fræðsluhlutverki sínu, því það þarf náttúrlega að fræða fólk um svona mál og róa það. Það þýðir ekki að segja bara gömlu fólki að vera ekki hrætt. Ég sá hvergi greinar í blöðunum frá Vernd um þessi mál. Jóna Gróa formaður Verndar vildi ekki einu sinni halda fund um þessi mál með okkur. Hún vildi frekar tala við einn og einn í einu. Það er greini- lega verið að fela eitthvað í þessu máli. Jóna Gróa vildi ráða þessu ein og neitaði að kalla saman stjórn Verndar. Hún segist taka ákvarðanir fyrir félagið." Guðrún Björk Tómasdóttir sagði enn fremur að í sambandi við húsið fyrir fjölfötluðu börnin sem íbúarnir í Teigunum mót- mæltu, vildi hún koma því á fram- færi að þegar loksins hefði átt að fara að byggja fyrir þessi börn hefði orðið fyrir valinu ómögu- legur staður. „Aðalskipulag Reykjavíkurborgar segir til um að þarna á þessari lóð eigi að vera grænt svæði. Við viljum halda grænu svæðunum í hverfinu. Ekki bætti það úr skák að undir þeirri lóð þar sem átti að fara að byggja hús fyrir þessi börn liggur holræsakerfi. Það hefði kostað mikla peninga að flytja þessi rör í burtu og allt hefði verið sundur grafið í langan tíma. Ekki má gleyma því að húsið átti að rísa beint fyrir ofan hraðbraut. Þessu mótmæltum við en bentum jafn- framt á aðra lóð á miklu kyrrlát- ari og hentugri stað, en þegar á reyndi tímdi borgin ekki að sjá af góðri lóð fyrir þessi fjölfötluðu börn,“ sagði Guðrún Björk að lokum. SA SVR Strætótímar breytast Aætlun strætisvagnanna nr. 14 og 19 breytist 1. sept. Leið 14, Lækjartorg-Sel, breytist þannig: Aætlun vagnanna á allri leiðinni verður flýtt um 2 mínútur, þann- ig að brottfarartími vagnanna frá Lækjartorgi verður 5 mín. yfir heilan og hálfan tíma, en frá tíma- jöfnunarstöð í Skógarseli 26 mín. yfir hálfan og heilan tíma. Brott- farartími annars staðar á leiðinni breytist í samræmi við það. En síðasta ferð frá Lækjartorgi verð- ur kl. 24 alla daga. Leið 19, Laugalækur-Álfa- bakki, breytist þannig: Brottfar- artíma vagnanna frá Laugalæk í síðdegisferðum verður flýtt um 2 mín. Brottfarartími frá Álfa- bakka breytist ekkert, ekki held- ur áætlun í morgunferðum. í fréttatilkynningu frá SVR segir að fyrstu dagana í september komi út ný leiðabók- Háskólinn Nýtt fyrirtæki stofnað Markmið að efla tengsl skólans og atvinnulífsins. Mun starfa aðþróun hugbúnaðar og skylds atvinnurekstrar. Hefurþegar fengið verkefni. gær var haldinn stofnfundur nýs fyrirtækis sem ber nafnið Tækniþróun hf. Hluthafar í því eru Háskóli íslands, Eimskipafé- lag íslands, Félag íslenskra iðn- rekenda, Iðnlánasjóður, B.M. Vallá hf., Smjörlíki h.f. og Plastprent hf. Hlutafé er 9.9 milj- ónir króna og skiptist í þrennt á milli Háskólans, Eimskipafélags- ins og hinna hluthafanna. Tilgangur og markmið fyrir- tækisins er að vinna að verkefn- um á sviði tölvutækni til gerðar húgbúnaðar, þróun rafeindaiðn- aðar og upplýsingakerfa, svo og annar skyldur atvinnurekstur. Á blaðamannafundi sem haldinn var til kynningar á fyrirtækinu kom fram að starfsemin er hugs- uð þannig í megin atriðum að hún tengi atvinnulífið fastari böndum við þá þekkingu og reynslu á sviði rannsókna, sem Háskóli íslands býr yfir. Ætlunin er að vinna ýmis verkefni á þessu sviði fyrir hin ýmsu fyrirtæki sem ekki hafa bol- magn eða kunnáttu til þess að gera það á eigin vegum. Fyrirtækið mun einnig vinna að markaðsrannsóknum og kostnaðaráætlunum varðandi sölu á hugbúnaði og skyldum vörum á sviði rafeindaiðnaðar. Nú þegar eru hafin verkefni í sambandi við hugbúnað fyrir fiskiskipaflotann og hagræðingu í rekstri fiskiðnaðarins, auk þess sem fyrir liggja beiðnir frá raf- eindafyrirtækjum um þróun á stórum stýribúnaði. -vd. Föstudagur 30. ógúst 1985 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.