Þjóðviljinn - 30.08.1985, Blaðsíða 4
LEIÐARI
Vinargreiði Sjálfstæðisflokksins
íbúum Reykjavíkur fer sífellt fjölgandi, og
engum hugsandi manni dylst aö á næstu árum
verður nauösynlegt aö skapa fjölmörg ný störf
handa nýjum Reykvíkingum sem senn munu
streyma út á vinnumarkaöinn. Stjórn Reykjavík-
ur þarf þess vegna aö beita sér fyrir aögeröum
sem fjölga störfum innan borgarmarkanna - en
stuðla ekki aö fækkun þeirra.
Undir stjórn Sjálfstæöisflokksins hefur skatt-
píning á borgarbúum verið meö eindæmum,
einsog fleiri aðilar en Þjóöviljinn einn hafa bent
á. Borgarbúar vilja því ógjarnan þurfa aö punga
út meö enn meira fé, til þess eins aö kasta í hít
óforsjállar ævintýramennsku lítt ábyrgra aðila í
borgarkerfinu. Fólkiö vill aö aðgerðir borgar-
stjórnar miöi aö skynsamlegri fjármálastjórn -
ekki aö sóun og óþarfa eyöslu.
í málefnum Bæjarútgeröar Reykjavíkur hefur
Davíð Oddsson, fyrir hönd Sjálfstæðisflokks-
ins, brotið bæöi þessi boöorö:
• Hann hefur meö baktjaldamakki nánast
komið því í kring aö vinir hans í ísbirninum fái aö
hiröa Bæjarútgerðina í nafni „hagræöingar".
Fyrirtækiö sem á aö veröa til eftir samruna ís-
bjarnarins og BÚR mun einungis hafa 460 til
500 manns í vinnu. Nú þegar vinna hins vegar
samtals hjá báöum fyrirtækjunum 734 manns.
Vinargreiðinn við hina bágstöddu vini Sjálf-
stæðisflokksins í ísbirninum mun því leiða
til þess að 250 störf munu tapast úr
reykvískum sjávarútvegi.
• Vinargreiöi Sjálfstæöisflokksins viö hún-
ana í ísbirninum mun ekki einungis kosta
Reykvíkinga dýrmæt störf, heldur verulegar
upphæöir aö auki. í skýrslunni sem var gerö um
sameiningu fyrirtækjanna er bent á, aö þaö
þurfi aö auka eigið fé fyrirtækjanna um 180 til
250 miljónir króna. Þetta þýðir, að borgin þarf
að leggja fram á annað hundrað miljónir úr
vösum borgarbúa, til að bjarga vinum meiri-
hlutans í borgarstjórn, sem eiga fyrirtæki í
kröggum. Davíö Oddsson er með öörum orð-
um búinn aö gera sameiginlega sjóöi Reykvík-
inga aö eins konar mæörastyrksnefnd fyrir fallítt
útgeröarmenn úr innsta kjarna Sjálfstæðis-
flokksins.
Það verður aö segjast hreinskilnislega, aö
starfshættir Davíös Oddssonar í þessu máli
vekja fleiri spurningar en svör. Hvernig stendur
á því, fyrst Davíð ákvaö á annað borö aö fórna
BÚR, aö hann valdi ísbjörninn hf. sem viðtak-
anda að eigum Bæjarútgerðarinnar? Hvers
vegna ekki eitthvert annað fiskvinnslufyrirtæki í
borginni? Og hvers vegna var öll þessi leynd
nauðsynleg í kringum aðdraganda málsins?
Hvaö er þaö sem veldur því, aö fulltrúar minni-
hlutaflokkanna í borgarstjórn fá ekki ráörúm til
aö gaumgæfa skýrsluna sem unnin var um
sameiningu fyrirtækjanna?
Sú dapurlega staöreynd blasir við, aö tjöl-
skyldan sem á ísbjörninn hf. hefur um langan
aldur veriö í innsta hring í veldi Sjálfstæöis-
flokksins í Reykjavík. Flokkurinn hefur væntan-
lega heldur ekki komiö aö tómum kofunum hjá
henni þegar safnað hefur verið í sjóöi fyrir kosn-
ingar. Þaö er líka staöreynd, aö Sjálfstæöis-
flokkurinn hefur um langt skeiö - gegnum Morg-
unblaðið, básúnaö ísbjörninn hf. sem dæmi um
fyrirmyndarfyrirtæki einkaframtaksins. Nú blas-
ir hins vegar viö aö fyrirtækið er rekið meö
helmingi meira tapi en samsvarandi fyrirtæki á
félagslegum grunni - þ.e. Bæjarútgerðin - og
allt bendir til þess að því sé alls ekki kleift aö
reisa sig við af sjálfsdáðum. Myndin af fyrir-
myndarfyrirtækinu er því máö og sprungin.
Þess vegna kom Davíð og Sjálfstæðisflokk-
urinn til skjalanna. Fé Reykvíkinga á aö verja til
að bjarga flokksvinum í nauö og endurlýsa
ímynd hinnar gömlu fyrirmyndar einkaframtaks-
ins. í leiöinni er hægt aö láta gamlan draum
frjálshyggjuliðsins, í Sjálfstæöisflokknum ræt-
ast: að hrinda BÚR fyrir ætternisstapa.
í rauninni segir leyndin kringum meöferö
málsins í borgarkerfinu, og viðleitni borgarstjóra
til að kæfa alla umræðu um málið, allt sem þarf.
íslensk túnga á ágæt orö yfir (Detta: pólitísk
spilling!
-ÖS
KUPPT
Skjálftarnir
segja til sín
Nokkrir skjálftar hafa magnast
í Sjálfstæðisflokknum í kjölfar
kjötstríðsins sem Albert Guð-
mundsson á öðrum fremur
heiður af að hafa byrjað að þessu
sinni, þó tilefnið liggi framar í Is-
landssögunni, hernámi íslands,
varnarsamningi 1951, tilurð fs-
lenskra aðalverktaka og fleiri
slíkum atburðum.
Albert hóf þennan slag á
grundvelli ósköp ómerkilegra
hagsmuna Hafskips sem ráðherr-
ann á hluti í. En þegar hann tók
að glugga í pappíra komst hann
að þeirri niðurstöðu að víða væri
pottur brotinn og kommarnir
hefðu máske ekki alltaf haft eins
rangt fyrir sér og Mogginn vildi
vera láta. Geir Hallgrímsson
utanríkisráðherra, stjórnarfor-
maður Árvakurs og höfuð gamla
fjölskylduveldisins í Sjálfstæðis-
flokknum, brást snarlega til varn-
ar, en fyrr en varði var Morgun-
blaðið orðið margsaga og flækt í
málinu, svo nú standa menn
frammi fyrir óþægilegum spurn-
ingum og athygli.
Vagg og velta
Moggans
Afstaða til vinstri manna hefur
auðvitað ævinlega verið sú, að
það beri að hafa sem allra minnst
fjárhagsleg samskipti við hina
óboðnu byssumenn á Miðnes-
heiði, af þeirri einföldu ástæðu,
að þá verður í fyllingu tímans
auðveldara að reka þá burt!
Innan Sjálfstæðisflokksins
hafa alltaf einhverjir verið sömu
skoðunar, en þeim hefur farið
fækkandi. í stríðinu við Albert
hafa svo furðulegustu drjólar
dregið upp þessi gömlu rök okkar
vinstri manna og notað sem vönd
til að berja á vel vöxnu baki fjár-
málaráðherrans. Geir Hallgríms-
son, utanríkisráðherra og aðal-
eigandi Morgunblaðsins, sem
enn hefur tekist að halda honum
lifandi í íslenskum stjórnmálum,
er þannig rammlega flæktur í
hermangið. Þess vegna er það
gaman að sjá, að Morgunblaðið
er nú allt í einu farið að þeysa úr
sér rökunum sem vinstri menn
hafa til þessa notað á Geir. Þann-
ig sagði í blaðinu í gær:
„Flestir Islendinga sem styðja
véstrœnt varnarsamstarf, vilja
hins vegar ekki að íslenskur þjóð-
arbúskapur, eða einstakar
atvinnugreinar hans, verði um of
efnahagslega háður dvöl varnar-
liðs í landinu. Ef aðstœður
breytast svo í veröldinni, að dvöl
varnarliðs verður óþörf, eiga ekki
- og mega ekki - fjármálaleg
bönd, tengd dvöl þess, hnýta
hendur okkar".
Þetta er auðvitað algerlega á
skjön við skoðanir aðaleiganda
Morgunblaðsins og raunar fjöl-
margra skríbenta Mogga á um-
liðnum árum. Kannski er ekki
heldur mikið að marka þessi
skrif, þau var nefnilega að finna í
Staksteinum sem fáir taka mikið
mark á (HP kallar þáttinn „póli-
tískt holræsi blaðsins" í gær).
Svipaðar skoðanir hafa líka séð
dagsins ljós í leiðurum blaðsins
að undanförnu. En þessi skrif eru
ef til vill fróðlegust fyrir þá sök að
þau upplýsa vel hvernig hug-
myndafræðingar blaðsins hring-
snúast hvenær sem það hentar
innbyrðis slagsmálum - og útvor-
tis raunar líka.
Kannski þeir Matthías smiður
ljóða og Styrmir séu orðnir rokk-
arar á gamals aldri, því þessi
skemmtilegi hringsnúningur á
ekkert skylt við gömlu dansana, -
miklu frekar vagg og veltu!
Herí
brennidepli
Lætin í Albert hafa, hvað sem
annars má um þau segja, ekki að-
eins komið honum persónulega í
OG SKORIÐ
brennidepil fjölmiðlanna, heldur
og líka hermálinu! Um þetta segir
Alþýðublaðið:
„Síðustu dagana virðist sem
umrœður um þessi mál séu hœttar
að einskorðast við þau einstöku
mál sem til umfjöllunar voru í
upphafi, þ.e.a.s. innflutning á
hráu kjöti og síðar gjaldeyrismál
hersins. Auk þessara einstöku
mála er nú allt í einu farið að tala
um hermálið í víðara samhengi og
íeinstaka tilvikum erfarið að vara
við ákveðinni hœttu sem í því sé
fólgin að tengja herinn og herset-
una of nánum böndum við ís-
lenskt þjóðlíf og þá kannski eink-
um íslenskt atvinnulíf. “
Aronskan
Alþýðublaðið ræðir þetta síð-
an nokkuð og segir meðal annars:
„Löngum hafa einnig heyrst
raddir annað slagið, sem boðað
hafa fullnýtingu bandaríska hers-
ins eins og hverrar annarrar auð-
lindar í þágu þjóðarinnar... í
þessu sambandi var gjarnan á það
bent, að nota mœtti herinn til að
kosta vegalagningu, flugvallagerð
ogýmislegtfleira, sem komiðgœti
að notum jafnt á friðar- og stríðs-
tímum... Andstœðingar Aronsk-
unnar hafa hins vegar haldið því
fram, að íslenskt atvinnulíf megi
aldrei verða svo háð dvöl hersins
að brottför hans yrði þjóðinni
efnahagslegt áfall. “
Þetta sýnir það, að þörf um-
ræða um herinn er aftur á dagskrá
og þökk sé Albert fyrir það. Það
er mjög í bága við þjóðarhag að
ætla að gera herinn að mjólkurkú
- einsog mörgum hefur þó tekist
því miður - vegna þess að þá mun
hann aldrei drattast í burtu. Það
skulu menn hafa í huga, áður en
þeir fara að dásama Albert ráð-
herra fyrir röggsemi gagnvart
boðflennunum í heiðinni.
Mjór ermikils...
Upphaflega var „kjötstríðið"
ekki annað en birtingarform á því
stríði sem staðið hefur löngum
innan Sjálfstæðisflokksins milli
gamla fjölskylduveldisins sem
einokað hefur hergróðann og ný-
ríku aflanna, sem Albert heyr
slaginn fyrir. En þetta stríð hefur
þróast útí annað miklu merki-
legra. Bæði Morgunblaðið og Al-
bert Guðmundsson, sem komin
eru útí prófskjörsslag fyrir næstu
kosningar, hafa borið gæfu til að
ræða grundvallaratriði erlendrar
hersetu í landinu. Það eru settar
fram spurningar um sjálfstæða ís-
lenska menningu og sjálfstætt ís-
lenskt efnahagslíf. Það eru þessar
spurningar sem alþingi Islend-
inga mun taka upp af nýjum
krafti í haust og almenningi hefur
gefist tækifæri til að velta þessum
málum fyrir sér í nýju samhengi.
Hagsmunir klíknanna í Sjálfstæð-
isflokknum mega sín lítils þegar
kemur að því að svara verður
slíkum grundvallarspurningum.
-ÖS
DJÚÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis
og verkalýöshreyfingar
Utgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón
Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, Páll Valsson, Sigríður Pétursdóttir, Sævar Guð-
björnsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson.
Ljósmyndir: Einar ólason, Valdís Óskarsdóttir.
Útlit og hönnun: Filip Franksson, Svava Sigursveinsdóttir.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Eiías Mar.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglysingastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson,
Clausen.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Símavarsia: Jenny Borgedóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, ólöf Húnfjörð.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Utkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, simi 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Olqa Ver® 1 lausasölu: 30 kr.
y Sunnudagsverð: 35 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 360 kr.
Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum
frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. ágúst 1985