Þjóðviljinn - 30.08.1985, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Föstudagur 30. ágúst 1985 198. tölublað 50. árgangur
DJOÐVIUINN
Lagarfljót
Laxinn vill ekki í virkjunina
Laxastiginn er ónýtur segja veiðifélagsmenn. Stórar torfur strandfyrir neðan virkjunina.
Knattspyrna
Valur
sigraði
Valur varð í gærkvöldi bikar-
meistari kvenna í knattspyrnu
annað érið í röð. Valsstúlkurnar
sigruðu ÍA 1-0 í úrslitaleik í
Laugardalnum og skoraði Kristín
Arnþórsdóttir sigurmarkið cftir
18 mínútna leik. Nokkuð óvænt
úrslit þar sem ÍA er með yfir-
burðaforystu í 1. deildarkeppn-
inni.
Allt í hnút
Allt er í einum hnút á toppi 1.
deildar karla eftir að KR og Fram
gerðu jafntefli í gærkvöldi, 1-1.
Tvö stig skilja að efsta og fimmta
lið.
-VS
Sjá bls. 15.
Mikil laxagengd hefur verið í
Lagarfljót í sumar, en laxinn
hefur ekki viljað ganga upp í laxa-
stigann við Lagarfossvirkjun,
heldur safnast saman í stórar
torfur neðan við fossinn. Veiðifé-
lag Lagarfljóts fól Sigurði
Jónssyni bónda á Kirkjubæ að
leggja net í ána fyrir neðan foss
tvo sólarhringa í viku í sumar.
Veiðin hefur verið með eindæm-
um góð og eru um 400 laxar
komnir á land.
„Pað er ekki hægt að kalla
þetta annað en mokveiði. Hér
hefur ekki sést eins mikið af laxi í
mörg ár. Þegar best gekk þá feng-
ust 70 laxar í þrjú lítil lagnet,”
sagði Gunnar Jónsson á Egils-
stöðum, forsvarsmaður veiðifé-
lagsins.
Laxastiginn í Lagarfljóti liggur
í gegnum virkjunina og hafa að-
eins örfáir laxar gengið upp í
fljótið í sumar. Sagði Gunnar að
menn teldu stigann ónýtan, hann
virkaði alls ekki rétt og óskað
hefði verið eftir því, ma. við iðn-
aðarráðherra að gerðar yrðu lag-
færingar á stiganum. Sumir teldu
réttast að byggja nýjan stiga til
hliðar við virkjunina þar sem af-
fallið er leitt.
Viðifélagið hefur látið merkja
60 laxa í sumar sem teknir voru
fyrir neðan foss og fluttir upp í
fljótið því alls er óvíst hvort lax-
inn nær að hrygna fyrir neðan
fossinn.
„Þetta eru frekar smáir laxar
sem hafa komið í fljótið í sumar
en fiskifræðingar spá mikilli stór-
laxagöngu næsta sumar og því er
nauðsynlegt að koma þessum
málum í viðunandi horf,” sagði
Gunnar Jónsson. -Ig/IH
Landgrœðsla
Verðum að
gera betur
„Það sem leggja þarf áherslu á í
dag er að vernda þau svæði á há-
lendinu þar sem ofbeit hefur átt
sér stað, þau þarf að friða og sá í
þau melgresi.”
Þetta sagði Sveinn Runólfsson
þegar Þjóðviljinn spurði hann
álits á þeirri miklu eyðingu gróð-
urs sem átt hefur sér stað á und-
anförnum árum og glögglega
mátti sjá í sjónvarpsfréttum í
fyrrakvöld í dramatískri lýsingu
Omars Ragnarssonar. Sveinn
sagði að í þeirri frétt hefði gætt
dálítils misskilnings hvað varðaði
Þjóðargjöfina svokölluðu frá
1974. Sveinn sagði að peningar úr
þeirri gjöf færu að mestu leyti í að
græða upp land á láglendi og þá
aðallega í Þingeyjarsýslum og á
Suðvesturlandi.
„Það er hins vegar ljóst að það
þarf að veita miklu meiri pening-
um í að hefta uppblásturinn á há-
lendinu, það fjármagn hefur ekki
fengist. Það hefur þurft að vega
og meta það á undanförnum
árum hvar skuli sáð og það er
alveg Ijóst að sum svæði hafa
e.t.v. orðið útundan,” sagði
Sveinn.
„Það er skylda okkar kynslóð-
ar að skila landinu gróðursælu til
komandi kynslóða. í því efni
verðum við að gera betur.” IH
Ragnheiður Víkingsdóttir fyrirliði Vals lyftir bikarnum eftirsótta. Til hliðar sækir Helga Eiríksdóttir að Skagastúlkunni
Laufeyju Sigurðardóttur.
Áburðarverksmiðjan
Engir sammngar i sjonmali
Guðjón Jónsson: Iðnaðarmenn ekkert að gefast upp
Fundur var með sáttasemjara
síðasta þriðjudag, þar gerðist
ekkert nýtt. Enginn nýr sátta-
fundur hefur verið boðaður,
sagði Guðjón Jónsson formaður og ríkisins.
Félags járniðnaðarmanna um „Það eru 20 menn í verkfalli og
samningaviðræður milli iðnaðar- þeir eru ekkert að gefast upp. Ég
manna í Áburðarverksmiðjunni held að framleiðslan í Áburðar-
verksmiðjunni hafi dregist saman
um 40% í kjölfar verkfalls iðnað-
armannanna, sagði Guðjón.
y Suður-Afríka
Avextir fyrírtugi milljóna
íslendingarflytja inn töluvertmagn af ávöxtumfrá Suður-Afríku. Mörgþekkt
vörumerki eru þar á meðal. Fjöldi heildverslana sér um innflutninginn.
r
Islendingar flytja inn töluvert
magn af ávöxtum frá landi kyn-
þáttakúgunarinnar, Suður-
Afríku. Aðallega er um að ræða
appelsínur og alls kyns niður-
soðna ávexti en ýmis annar varn-
ingur berst hingað til lands frá
Suður-Afríku.
Fjölmargar heildverslanir sjá
um að koma þessum vörum á
markað hérlendis og mörg þekkt
vörumerki eru á meðal þess sem
hér býðst almenningi til sölu í
verslunum. Þar má nefna Out-
span appelsínur, Goldland appel-
sínur, niðursoðna ávexti; Del
Monte, Holiday, Western Pride,
Golden-Reef og fleiri. Þjóðviljinn
hringdi í fjóra stórmarkaði í
Reykjavík til að -athuga hvort
þessar vörur væru þar á boðstól-
um og reyndist svo vera í flestum
tilvikum. Sumar þessara tegunda
eru vinsæl vara og stundum býðst
ekki annað en t.d. appelsínur frá
Suður-Afríku.
Heildverslunin Björgvin
Schram flytur aðallega inn appel-
sínur og vínber frá Suður-Afríku,
þó ekki beint, yfirleitt berst þetta
hingað í gegnum Evrópu og þá í
gegnum Holland, Þýskaland,
Danmörku og Svíþjóð svo
eitthvað sé nefnt. Björgvin
Schram flytur t.d. inn Outspan
appelsínur.
Eyfjörð sf. á Akureyri flytur
inn Golden-Reef niðursoðna
ávexti, perur, ferskjur, blandaða
ávexti, mandarínur o.fl.
Nathan & Olsen í Reykjavík er
með Libby’s niðursoðna ávexti,
perur, blandaða ávexti, ferskjur
o.fl.
Bananar hf. í Reykjavík flytja
inn Goldland appelsínur frá
Suður-Afríku í gegnum Svíþjóð
og Holland. Bananar flytja einn-
ig inn vínber frá Suður-Áfríku.
Valdemar Baldvinsson á Akur
eyri dreifir Del Monte og Holi-
day niðursoðnum ávöxtum.
Sund hf. í Reykjavík eru sömu-
leiðis með Del Monte og Holiday
en auk þess Western Pride niður-
soðna ávexti. Sund flytur þetta
inn í gegnum fyrirtækið Spar í
Hollandi.
Eggert Kristjánsson í Reykja-
vík flytur inn Outspan appelsínur
og vínber, sem nefnast Cape
grapes. Éggert Kristjánsson
flytur einnig inn Golden-Reef og
Del Monte. Þess ber þó að geta
að niðursoðnir ávextir undir
merki Del Monte koma einnig frá
Kenya og Filippseyjum.
Fullvíst má telja að enn fleiri
fyrirtæki annist innflutning á
vörum frá Suður-Afríku. Vöru-
merkin eru örugglega fleiri.
Árið 1983 voru fluttir inn
ávextir frá þessu landi fyrir tæpar
23 milljónir en alls var flutt inn
frá Suður-Afríku fyrir um 26
milljónir það árið. Fyrstu fimm
mánuði þessa árs var'flutt inn frá
Suður-Afríku fyrir rúmar 11
milljónir króna. Á sama tíma í
fyrra var flutt inn fyrir 7 milljónir.
Ekki náðist í Geir Hallgríms-
son í gær til að leita álits hans á
viðskiptum íslands og kúgunar-
stjórnarinnar í Suður-Afríku.
-gg
Hákon Björnsson fram-
kvæmdastjóri Áburðarverk-
smiðjunnar staðfesti að fram-
leiðsía hefði dregist saman um
40% og sagði jafnframt að það
væri ómögulegt að segja til um
hvenær allt stoppaði. „Við stopp-
uðum hluta verksmiðjunnar á
mánudaginn var til þess að geta
safnað ammoníaki til að nota í
fullunnar vörur en við búumst við
því að setja allt í gang eftir helgi.”
-SA
ísbúr
250 störf
tapast
Samruni BÚR og ísbjarnarins
sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur
af pólitískum ástæðum afráðið
mun leiða til þess að upp undir
250 störf munu tapast úr flsk-
vinnslu í Reykjavík.
Samtals vinna nú hjá BÚR og
ísbirninum um 740 manns. Eftir
sameininguna munu hins vegar
ekki vinna nema 500 manns við
hið nýja fyrirtæki.
-ÖS