Þjóðviljinn - 30.08.1985, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 30.08.1985, Qupperneq 8
GLÆTAN Sting á Barbados, þar sem Skjaldbaknadraumurinn var tekinn upp í stúdíói Eddys Grant, sem til forna söng með The Equals „Viva Bobby Joe” o.fl.. í hóp Hann gegnir nafninu Sting, heitir fullu nafni Gordon Sumner og er stundum kall- aður Matt af vinum sínum. Hann hefur verið andlit stórtrí- ósins Police í þau 8 ár sem það hefur starfað með heiðri og sóma, og gerir enn. Félag- arnir eru bara í fríi hver frá öðrum í 18 mánuði og blanda anda, geði og músik með öðr- um og ýmsum tónlistar- mönnum. Nú hefur umræddur Sting sent frá sér hljómplötu undir eigin nafni og án Löggu- félaga sinna. The Dream of the Blue Turtles heitir hún, Draumurinn um bláu skjaldbökurnar. „Það er út í Hróa að kalla þetta sólóplötu”, segir Sting og skrifar á umslagið sem inniheldur Drauminn um bláu skjaldbök- urnar, sem er þar að auki í mynd- skreyttum nærbuxum og fylgir með bleia áletruð textum Stings og skreytt enn fleiri myndum. Heiðurinn af þessum Ijómandi svarthvítu Ijósmyndum á Max nokkur Vadukul ásamt Danny og Chicken sem aðstoðaði... Smart var eina orðið sem Jimmy Smart átti yfir árangur þeirra... en hvað var nú Sting að segja?... ekki sólóplata, heldur „hópvinna”. Og víst er um það að meðspilarar hans eru valdir úr stórum hópi. Sting gamli gerði sér lítið (?) fyrir og hélt úti þriggja vikna tónlistar- verkstæði í New York þangað sem hann bauð öllum bestu djass- leikurum staðarins: „Mér hlýnaði um hjartaræturnar yfir hversu margir stórkostlegir djassistar birtust. Þeir voru ekki allir svartir - það bara vildi þannig til að þeir sem ég valdi eru svartir. Ég valdi þá af því að mér fannst þeir bestu spilararnir og þeir virtust ná sam- an sín á milli og líka við mig”. Og hverjir eru svo þessir ágætu djasslistamenn sem hafa ruglað reitum saman við Sting undanfar- ið í hljóðveri og á hljómleikum?: bassaleikarinn Darryl Jones (Mi- les Davis), trommarinn Omar Hakim (Weather Report), hljómborðsleikarinn Kenny Kirkland og saxófónleikarinn Branford Marsalis (báðir í hljóm- sveit bróður Branfords, Wyntons Marsalis). Bakraddirsyngjamilj- ón manns á plötunni, en á hljóm- leikum hafa þær Dolette McDon- ald og Janice Pendarvis verið konurnar á bak við raddbönd Stings, sem handfjatlar gítarinn kurteislega í návist áðurtaldra músikanta, sem eru snillar hver á sínu sviði. Og hvernig hljómar nú þetta allt saman? Bara skolli vel, góðar glyrnur; ansi Police-lega sem eru jú engin undur þar eð Sting semur öll lögin hér og flest fyrir Police, en Draumurinn um bláu skjaldbökurnar líður áfram í djasskenndari sveiflu þótt rokk og regg á la Police séu engan veg- inn víðs fjarri. Þar að auki er djass engin ný stefna fyrir Sting, hann var djassisti í Newcastle áður en Stewart Copeland fékk hann til liðs við sig í Police sem var í fyrsta skipti sem hann spilaði í rokkhljómsveit. Hvað textum við víkur er Sting meðvitaður og pólitískur eins og í Police-lögum mörgum hverjum. Hann skammar Möggu Thatcher og hennar nóta fyrir ómannúð- lega (efnahags) pólitík í laginu We work the black seam, sem hann samdi í tilefni af kolanámu- mannaverkfallinu; í Children’s Crusade (Barnakrossferð) yrkir hann um svívirðilega meðferð á börnum og unglingum í gegnum tíðina: á 11. öld gengust munkar tveir fyrir því að safna saman börnum af götum Lundúnaborg- ar undir því yfirskini að senda þau í krossferð til landsins helga að berja á heiðingjum og frelsa borgina helgu, en í raun og veru seldu þeir þau í ánauð til Norður- Afríku; í fyrri heimsstyrjöldinni dóu ungir menn í hrönnum en höfðu ekki hugmynd um hvaða málstað þeir voru látnir berjast fyrir - „talandi dæmi um fánýti þess að fylgja blint fyrirmælum foringjanna”, segir Sting; þriðji þátturinn í umræddu lagi er heró- ínneysla ungs fólks í London (og víðar) - „ég held að þessir stóru karlar, sem standa fyrir innflutn- ingi á heróíni og gefa börnum fyrstu skammtana til að ánetja þau, séu sömu karakterarnir og þeir sem seldu börn í ánauð á 11. öld - með laginu er ég ekki að ráðast á neytendur eða smádíl- era, heldur bissneskarlana sem stjórna þessu - ég hata þá, og það er ekki einu sinni nógu stórt orð yfir tilfinningar mínar gagnvart þeim”, segir Sting. í laginu Russians (Rússar) má eiginlega segja að Sting sé að slá á Rússagrýluhræðsluna með því að segja að hann óttist ekki, hvað sem Reagan segi eða Krússjeff hafi sagt, að meiri stríðshætta stafi af Rússum en öðrum, „ef þeir elski börnin sín”, og af text- anum heyrist manni að Sting sé viss um það, þótt mörgum finnist eflaust hann mætti vera afdráttar- lausari í orðavali. Sér til liðsinnis í þessu lagi hafði Sting hugsað sér að fá Ríkishljómsveitina í Lenin- grad og hljóðrita það þar en vegna óyfirstíganlegrar skrif- finnsku reyndist það ekki hægt, a.m.k. ekki í tæka tíð, en Sting hefur mikinn áhuga á að spila í Rússlandi og hitta þarlenda mús- ikanta og segir að lausnin á gagn- kvæmum stríðsótta landanna sitt hvorumegin „svokallaðs járn- tjalds” sé að venjulegt fólk reyni að hafa samband yfirum við venjulegt fólk - pólitíkusar hafi margsannað að þeir séu ekki fær- ir um að slaka á spennunni. Önnur viðfangsefni Stings eru mannlegur breyskleiki eins og egóismi, yfirráðasemi og fyrir- litning gagnvart tilfinningum annarra, en þrátt fyrir þessi al- varlegheit er enginn þunglyndis- bragur á plötunni í heild og lagið Love is the seventh Wave segir okkur líka að eitthvað æðra sé til sem geti hafið okkur upp úr þess- um skítafarvegi sem stríðsmórall- inn í heiminum dregur hugsanir okkar og gerðir niður í. Og hvað sem öllu því líður í nútíð eður framtíð, þá er þetta þrusugóð skífa. A Vinsældalistar Þjóðviljans FeUahellir (3) 1. Peeping Tom - Rockwell (5) 2. All fall down - Five Star (-) 3. Secret - OND (-) 4.1 got you baby - UB40 (-) 5. Im a lover - Andrea (10) 6. Head over heals - Tears for fears (9) 7. You are my heart you are my soul - Modern Talking (1) 8. Tarzan Boy - Baltimore (-) 9. Give it up - Marilyn (2) 10. Into the groove - Madonna Grammið (1) 1. Low life - New Order (2) 2. Kona - Bubbi Morthens (4) 3. Skemmtun - Með nöktum (7) 4. Nic Cave and the bad seeds - The firstborn is dead (3) 5. Talking Heads - Little creatures (-) 6. And a time to dance - Los Lobos (-) 7. Psychic TV - Theams 2 (5) 8. Screaming, Jay Hawkins - I put a spell on you (10) 9. Pat Metheny Group - First circle (-) 10. Don’t forget that beat - Fats Comet Rás 2 1. (1) Into the Groove - Madonna 2. (2) We Don’t Need Another Hero -Tina Turner 3. (5) Tarzan Boy - Balti Mora 4. (-) Dancing in the Street - David Bowie/Mick Jagger 5. (4) Money for Nothing - Dire Straits 6. (6) Á rauðu ijósi - Mannakorn 7. (3) Life is Life - Opus 8. (13) Peeping Tom - Rockwell 9. (9) Endiess Road - Time Bandits 10. (7) Hitt lagið - Fásinna 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. ágúst 1985

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.