Þjóðviljinn - 01.10.1985, Page 8

Þjóðviljinn - 01.10.1985, Page 8
MANNUF brýst fram með nokkurri heift: Ógeðslegt, sagði ein vinkona mín. Ég hefi aldrei verið hrifinn af myndum Errós, sagði tónskáld virðulega. En það er ekki leiðin- legt á sýningum hans, nei. Myndir sem eru ívitnanir í aðr- ar myndir, hvað er það eiginlega? spurði margfróð kona og ég gat náttúrlega ekki svarað því. Skemmtilegar konur Svona voru menn neikvæðir um Erró, en hvergi jafn jákvæðir og á Listasafni ASÍ þar sem tvær konur vel við aldur, Sigurlaug Jónasdóttir og Gríma, sýndu myndir „Úr hugarheimi“. Gríma fyllir veröldina af blómum og mannfólkið kemur sér fyrir á milli þeirra og Sigurlaug annast Kristnihald undir jökli, skoðar búskapinn í helvíti því sem Hekla geymir og horfir á sjómann á Breiðafirði augum himnaföður. Þetta er allt svo skemmtilegt og eðlilegt, sagði kempa úr verk- lýðsbaráttunni. Maður kemst í svo gott skap, sagði kennari á leið í frí. Þetta er heimslist, sagði hrifinn maður, og benti á mynd af tveim Maður kemst í svo gott skap við að sjá þessar myndir.... Blaðberar óskast Á Seltjarnarnesi Strax! DJÓÐVIUINN ALÞÝÐUBANDALAGIÐ AB Grundarfirði Árshátíð Hin árlega árshátíð Alþýðubandalagsins í Grundarfirði verður hald- in í Samkomuhúsinu Grundarfirði laugardaginn 12. október og hefst hún kl. 20.30. Nánar auglýst síðar. Stjórnin AB Reykjanesi Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í Reykjaneskjördæmi verður haldinn mánudaginn 21. október í Þinghóli Kópavogi kl. 20.00 stundvíslega. Dagskrá: 1) Lagabreytingar. 2) Önnur aðalfundarstörf. 3) Geir Gunnarsson alþingismaður flytur ávarp. 4) Afgreiddar tillögur um undirbúning kosninga- starfs. 5) Sveitastjórnarmál. 6) Utgáfumál. 7) Önnur mál. - Stjórnin. Almennur fundur Siglufirði Svavar Gestsson og Ragnar Arnalds mæta á almennum opnum stjórn- málafundi á Siglufirði næstkomandi fimmtudag, 3. október. Fundurinn verður á Hótel Höfn og hefst kl. 20.30. Allir velkomnir. - Alþýðubandalag- ið. Ab Garðabær Aðalfundur AB í Garðabæ verður haldinn mánudaginn 14. október kl. 20.30 í Flataskóla. Dagskrá: 1) Lagabreytingar. 2) önnur aðalfundarstörf. 3) Kosning fulltrúa í kjördæmisráð og á landsfund. Geir Gunnarsson alþingismaður og Ólafur R. Grímsson formaður fram- kvæmdastjórnar AB ræða flokksstarfið og stjórnmálaástandið. - Stjórnin. Eftir varð samt að heimsækja nýjasta leikhúsið þar sem sýndar eru sögur Astu Sigurðardóttur. mönnum að spýta skinn. Ekki kemur nokkur ung manneskja fram með svona sterkar myndir. Ekki myndi ég þora að sýna í sal með svona sterkum listamönnum ef ég væri í þessu sjálfur. Það var enn lagt til kvölds og fýrir utan það sem gerðist í sýn- ingasölum hélt náttúran litmikla sýningu í hverjum garði. Meðan þessi röltari hér hvfldi lúin bein fór kvenfólkið í húsinu að hlusta á Sinfóníuhljómsveit æskunnar í Hamrahlíðarskólanum og kom aftur með þær fréttir, að þeir hefðu verið ágætir og afrek út af fyrir sig og fullt af fólki. Eins og allsstaðar. Þau tíðindi bárust líka ofan úr Gerðubergi þar sem efnt var í fjórða sinn til ljóðadagskrár kvenna. Breytt afstaða til Laxness Svo var kominn tími til að sjá íslandsklukkuna í Þjóðleikhús- inu og standa sjálfan sig að því að bera sýninguna saman við þær þrjár sem maður hefur áður séð. Snæfríður, Jón Hreggviðsson og Arnas og reyndar persónusafnið allt er svo stór hluti af okkur, að leikhúsfólk má þola endalausan samanburð við þær hugmyndir sem við höfum um það fyrirfram hvernig eigi að túlka þennan eða hinn og við aðra leikara, önnur leiksvið. Æ ég veit það ekki, sagði vin- kona mín ein. Það er eins og bæði leikendur og áhorfendur hafi fjarlægst þetta verk, því miður. Og er þó ýmislegt vel gert. En við skulum gá að því, að það eru ekki allir sem koma á þá sígildu íslandsklukku með sam- anburðarhugarfari. Ung stúlka úr nágrenninu var þarna og ég^purði hvernig henni litist á: Vel sagði hún. Allavega breytir þessi sýning áliti mínu á Halldóri Laxness. Halldór hafði fram að þessu ekki verið hátt skrifaður hjá þess- ari sextán vetra stúlku. Það kom líka á daginn að hún hafði ekki lesið annað eftir hann en eina smásögu í skóla, söguna frá Nýja íslandi. Dagurinn var liðinn. En helgin var ekki nema hálfnuð og sá sem vildi gat haldið áfram á sunnu- degi og komið við á þrem stöðum eða sex eða níu. Á íslandi er svo mikið um alls- konar list. Og allir fá að gera hvað sem þeir vilja, segir Steinn Steinarr. Og eins og fram kemur að nokkru leyti: á menningarrölti er maður alltaf að hitta fólk. Sumt sér maður alltof sjaldan. Og það er líka menning. Skák Kaipov bjaraaði í hom Þeir þúsundir áhorfendur sem komu til að horfa á 10. skákina í heimsmeistaraeinvíginu í Moskvu urðu ekki fyrir vonbrigðum. Skákin var geypilega flókin og einkenndist af djörfum leikjum áskorandans sem lagði allt í söl- urnar til að vinna. Eftir tuttugu leiki var útlitíð hjá Kasparov ekki gott þar sem hann var í kröggum með drottninguna úti á væng. En eftir peðsfórn í 21. leik náði hann frumkvæðinu. Skákin varð nú mjög flókin og virtist Kasparov í essinu sínu. Enda var greinilegt á taflmennsku Karpovs að hann var hræddur við allar þessar flækjur. En í framhaldinu tókst honum að forðast allar gildrur áskorandans og Kasparov neyttist til að þráskáka í 35. leik. Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Garry Kasparov Schevingen afbrigðið í Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be2 e6 7. 0-0 Be7 8. f4 0-0 9. Khl Rc6 10. a4 Dc7 11. Be3 He8 12. Bgl Hb8 Upphafsmaðurinn að þessum leik mun vera Jón L. Arnason sem beitti honum gegn Kudrin í fyrra í glæsilega tefldri skák. 13. Dd2 e5 14. Rb3 Ra5 15. Rxa5 Dxa5 16. Ba7 Ha8 17. Be3 Db4 18. Dd3 Be6 19. f5 Bd7 20. Ha3 Hróksleiki eins og þennan má sjá í mörgum skákum Karpovs gegn Sikileyjarvörn. Nú hótar hvítur að fanga drottninguna með Ha3 og Bb6. 20. - Da5 21. Hb3 b5! Fórnar peði til að losa drottn- inguna úr þrengingunum. 22. axb5 axb5 23. Rxb5 Bc6 24. BO Vel kom til greina að hirða peðið á d6, 24. Rxd6 Hed8 25. Rc4 og eftir að svartur hefur slátrað með hrók ád3,e3oge2og hvítur á meðan með riddara á a5, c6 og e7 kemur upp staða þar sem svartur vinnur annað peðið til baka og fær allgóð sóknarfæri. En framhaldíð sem Karpov velur er meira í hans stfl. 24. - Hab8 25. c4 Da8 26. Bg5 Riddaragaffli á c7 er svarað með 26. - Hxb3 27. Dxb3 Db8. 26. - Bxe4 27. Bxe4 Rxe4 28. Bxe7 Hxe7 29. Ha3 Dc6 30. b4h5 31. Ra7 31. Rc3 er svarað með Rxc3 32. Dxc3 Hc7 og svartur vinnur peð- ið til baka. Nú fórnar Kasparov skiptamun en fær tvö peð í stað- inn. 31. - Hxa7 32. Hxa7 Hxb4 33. Df3 Hxc4 34. DxhS Rf2+ 35. Kgl Rh3+! Riddarinn er friðhelgur á báð- um stöðum. Á f2 vegna máts upp í borði og á h3 vegna Dc5 og hvít- ur vinnur hrókinn á a7. Þvf var samið um jafntefli. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Þrlöjudagur 1. október 1985

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.