Þjóðviljinn - 09.10.1985, Blaðsíða 3
FRÉTTIR
Síldin
Alltsvart í Bakkafirði
Sjómenrflsegjast aldrei hafa séð aðrar eins torfur. Standa of
djúpt. Búið að salta í1300 tunnur
Naer allur síldveiðiflotinn beið
átekta á Bakkafírði I gær-
kvöld, en sjómenn sögðu að sjór-
inn væri svartur af sfld. Síldin
stóð hins vegar djúpt, á 40-60
föðmum, og erfitt að ná til henn-
ar. Vonuðust menn til að sfldin
Atvinnuástandið
Dökkt
framundan
Agœtt í september en
blikur á lofti. Búið að
tilkynna 500 uppsagnir
Þrátt fyrir gott atvinnuástand í
sumar eru nú ýmsar blikur á lofti
og mikil óvissa um atvinnu-
ástandið á haustmánuðum og í
vctur.
í september voru skráðir 9000
atvinnuleysisdagar á landinu öllu
sem eru færri dagar en í nokkrum
mánuði ársins til þessa, sam-
kvæmt frétt frá vinnumálaskrif-
stofu félágsmálaráðuneytisins.
Undanfarnar vikur hafa
skrifstofunni borist tilkynningar
um uppsagnir hátt í 500 starfs-
manna ýmissa fyrirtækja aðallega
verktakafyrirtækja. Þá hefur ver-
ið sótt um atvinnuleyfi fyrir 100
útlendinga til starfa við fisk-
vinnslu. I mörgum sjávarplássum
vofir hins vegar yfir stórfellt at-
vinnuleysi þar sem fiskveiðikvót-
ar eru á þrotum. _ ig.
Kjarnorkustyrjöld sem stór-
veldin hæðu fjarri íslands-
ströndum hefði hér sambærileg
áhrif við móðuharðindin af
Skaftáreldum á ofanverðri átj-
ándu öld, segir Páll Bergþórsson í
gengi upp þegar liði á kvöldið.
Guðmundur Kristinn frá Fá-
skrúðsfirði náði þó góðu kasti á
Bakkafirði í gærdag og fékk full-
fermi. Einnig fengu Gjafar frá
Vestmannaeyjum og Hamar frá
Rifi 60 tonn hver. Gjafar iandaði
eftirmála rits sem Samtök eðlis-
fræðinga gegn kjarnorkuvá hafa
þýtt um „kjarnorkuvetur“, áhrif
kjarnorkustríðs á veðurfar og
lifrfki.
Vegna þess að ísland nýtur hita-
á Stöðvarfirði og á leiðinni út aft-
ur lóðaði báturinn á góða torfu
rétt utan við bryggjusporðinn.
Að sögn Kristjáns Jóhannes-
sonar hjá Síldarútvegsnefnd segj-
ast sjómenn sjaldan eða aldrei
bankans í hafinu yrðu afleiðingar
„meðal“-kjarnorkustyrjaldar
ekki eins skelfilegar hér og á
meginlöndum jarðar, þar sem
gera má ráð fyrir að meðalhiti
lækkaði næstu mánuði um 20 til
hafa séð eins stórar síldartorfur
og nú væru inni á Bakkafirði.
Síldarvertíðin hefur farið rólega
af stað fram til þessa og í gær var
aðeins búið að salta í um 1300
tunnur.
- lg-
30 stig, vegna ryks og reyks í há-
loftunum. Á íslandi mætti búast
við 5 til 15 stiga kælingu, gras-
bresti, langæjum hafís, jafnvel
umhverfis allt landið, og að lok-
um mannfelli vegna kulda og
matvælaskorts eftir um hálft ár.
Ritið Kjarnorkuvetur -
Straumhvörf í umræðum um víg-
búnað er þýtt úr ensku af þeim
Hans Kr. Guðmundssyni, Jakobi
Yngvasyni, Páli Einarssyni og
Tómasi Jóhannessyni. Þar er
skýrt frá helstu hugmyndum og
rannsóknum um kjarnorkuvetur.
Tilgáta um slíká óáran eftir styrj-
öld kom fyrst fram fyrir um
tveimur árum, og hefur nú verið
staðfest með viðamiklum rann-
sóknum á vegum Alþjóðaráðs
vísindamanna.
Örn og Örlygur er útgefandi
Kjarnorkuvetrar og kostar ritið
aðeins tæpar tvöhundruð krónur.
Á blaðamannafundi um bók-
ina kom fram að félagar úr Sam-
tökum eðlisfræðinga og lækna
hafa hafið fræðsluherferð um af-
leiðingar kjarnorkustríðs og eru
reiðubúnir að flytja erindi og
sýna fræðsluefni hvar og hvenær
sem er.
„Eina læknisaðgerð sem til er
gegn kjarnorkustríði er að fyrir-
byggja það“, sagði Sigurður
Árnason læknir meðal annars á
blaðamannafundinum og fram-
tak þessara starfsstétta í friðar-
málum. _ m.
Fangelsishótunin
Danskir
frétta-
menn
Á stjórnarfundi danska blaða-
mannasambandsins var fjallað
um kærur á hendur stjórnar-
mönnum starfsmannafélaga út-
varps og sjónvarps á íslandi.
Stjórnin samþykkti að beina
því til norræna blaðamanna-
sambandsins að kynna sér kær-
una og ganga úr skugga um hvort
þær séu árás á réttindi frjálsrar
verkalýðshreyfingar.
Weekend Ávisen fjallaði einn-
ig ítarlega um þetta mál um helg-
ina og danska útvarpið skýrði
einnig frá því. Þar var tekið fram
að hámarksrefsing sem krafist
væri, gæti varðað þriggja ára
fangelsi. - óg.
Sinfónían
VerdT
Requiem
á morgun
Klukkan 20.30 annað kvöld
verður Verdi Requiem flutt á tón-
leikum í Háskólabíói. Flytjendur
eru Kór íslensku Óperunnar,
Sinfóníuhljómsveit íslands og ein-
söngvararnir Sieglinde Kahmann
sópran, Jutta Bokor messosópr-
an, Dino Di Domenico tenór og
Jón Sigurbjörnsson bassi. Stjórn-
andi er Robin Stapleton. Hann er
breskur og kemur nú hingað í
annað sinn. Stjórnaði hátíðatón-
leikum íslensku óperunnar fyrir
nokkrum árum. Peter Locke hef-
ur æft kórinn undanfarnar 3 vik-
4
ur.
Sieglinde Kahmann og Jón Sig-
urbjörnsson þarf ekki að kynna
fyrir íslenskum tónlistarunnend-
um. Jutta Bokor er ungversk.
Vann önnur verðlaun í söngva-
keppninni í Cardiff í sumar.
Hún starfar nú hjá Óperunni í
Búdapest en syngur jafnframt
víða um Evrópu. Dino Di Dom-
enico, - kemur inn í veikindafor-
föllum Garðars Cortes, er ít-
alskur. Hann starfar við óperuna
í Parma og í Róm. Hefur nýlega
sungið í Carnegie Hall í New
York og með Berlínar Fílharm-
ónuhljómsveitinni. Peter Locke
er bæði píanóleikari og óperu-
„coach", starfaði um 10 ára skeið
við óperuna í Feneyjum en vinn-
ur nú sjálfstætt. Kór íslensku óp-
erunnar skipa um 75 söngvarar,
sem hafa sungið hjá íslensku óp-
erunni, annað hvort sem ein-
söngvarar eða í kórnum.
Tónleikarnir verða endurtekn-
irlaugardaginn 12. okt. kl. 14.00.
- mhg.
Umferðin
Banaslys
íKjós
Þrítugur maður beið bana þeg-
ar bifreið sem hann ók, fór út af
veginum við brúna við Bugðu í
Kjós á mánudag. Farþegi sem var
í bflnum hlaut minni háttar
meiðsli.
Mennirnir voru að korna frá
Meðalfellsvatni, en bflstjórinn
missti stjórn á bílnum skömmu
áður en komið var að brúnni og
steyptist bifreiðin niður í ána.
Einvígi
Happatalan
Eftir fímm daga frí settust
Kasparov og Karpov að tafli í
þrettánda sinn í þessu einvígi.
Kasparov kom mjög ákveðinn til
leiks og ætlaði sér greinilega að
vinna. Enda hefur hann lýst því
yfír að 13 sé happatala sín. Þetta
byggir hann á því að hann er
fæddur á 13. degi aprílmánðar og
ef hann vinnur í þessu einvígi,
sem hann ætlar sér, þá verður
hann 13. heimsmeistarinn í sög-
unni.
En ekki varð þrettán happatala
í þetta skipti því að Karpov varð-
ist af sinni alkunnu snilld og þrátt
fyrir góðar tilraunir áskorandans
þá lauk skákinni með jafntefli
eftir 24 leiki.
Hvítt: Garry Kasparov .
Svart: Anatoly Karpov.
Nimzoindversk vörn.
1. d4 Rf6
2. c4 e6
3. Rc3 Bb4
Karpov teflir nú þessa örlagaríku
vörn í fjórða skipti í einvíginu. Það
mætti halda að hann álíti þessa byrjun
fjöregg sitt og að hann þurfi að sanna
ágæti hennar áður en einvíginu lýkur.
4. Rf3 cS
5. g3 Rc6
6. Bg2 Re4
7. Bd2 Bxc3
8. bxc3 0-0
9. 0-0 f5
10. Be3
Þessi leikur, sem felur í sér peðs-
fórn, kom eftir hálftíma umhugsun.
Það er greinilegt að Kasparov ætlar
að gera harða hríð að heimsmeistar-
anum í þessari skák.
10. - Rxc3
11. Dd3 cxd4
12. Rxd4 Re4
Á a4 yrði þessari riddari út úr spil-
inu eftir 13. c5.
13. cS!
Þrettándi leikurinn er auðvitað
ekki neinn ládeyðuleikur. Ef peðið er
drepið með Rxc5 þá vinnur hvítur
13
mann með 14. Rxcó Rxd3 15. Rxd8.
Einnig er 13. - Re5 ekki fýsilegur
leikur. Framhaldið gæti orðið 14. Dc2
d5 15. cxd6 Rxd6 16. Hfdl og svartur
á erfitt um hreyfingar.
13. - Rxd4
14. Bxd4 1)6
15. Bxe4 fxe4
16. Dxe4 Ba6
17. cxb6 axb6
18. De5 Df6
19. De3 Dh6!
Mjög góður varnarleikur. Eftir
uppskiptin hverfur allur máttur úr
hvftu stöðunni og tvípeðið á h-línunni
er ekki svo alvarlegur veikleiki.
20. Dxh6 gxh6
21. Hfel Bc4
22. a3 b5
23. Hadl Hf5
24. Bb2 Hd5
Karpov hefur fyllilega jafnað taflið
og bauð jafntefli í þessari stöðu.
Kasparov þáði jafnteflið því svona
stöður með mislitum biskupum enda í
langflestum tilvikum með jafntefli.
Staðan er því jöfn 6V2 - 6V2.
Fyrsta hélan. Vetur konungur sækir óðum að og í gærmorgun þurftu höfuðborgarbúar að minnsta kosti að grípa
til sköfunnar áður en lagt var af staö út í umferðina. Ljósrrv. E.ÓI.
Kjarnorkuvopn
Horfellir skæðari en bomban
Kjarnorkuvetur á íslandi sambœrilegur móðuharðindunum. Samtök
eðlisfræðinga gefa út rit um afleiðingar kjarnorkustyrjaldar
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3