Þjóðviljinn - 09.10.1985, Síða 5

Þjóðviljinn - 09.10.1985, Síða 5
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 Sími 25800 1. scptember n.k. voru um 17 þúsund manns án heimilislæknis eða heilsugæslu- stöðvar í Reykjavík. Þar eru nú rekin hlið við hlið tvö ólík kerfi heilsugæslu: gamla múrarakerfið hjá heimilislæknunum ann- ars vegar og nýja heilsugæslukerfið hins vegar. Hið þriðja virðist í burðarliðnum því Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hyggst bjóða út rekstur heilsugæslu- stöðvar í Drápuhlíð og knýja fram laga- breytingu til þess ef ekki vill betur. Fyrir síðustu kosningar lofaði Sjálf- stæðisflokkurinn cinni heilsugæslustöð á ári en efndirnar eru engar: Nú eru 5 heilsugæslustöðvar í Reykjavík og hefur engin bæst við frá 1982. Heilsugæslulögin eru bráöum 12 ára gömul en eru ekki enn komin til fram- kvæmda í Reykjavík. Gamla heimilis- læknakerfið sem samkvæmt þeim átti að leggjast af í síðasta lagi 1. janúar 1984 er þvert á móti að sækja í sig veðrið. Á með- an er allt stopp í uppbyggingu heilsu- gæslustöðva og blikur á lofti vegna frjáls- hyggjuhugmyndanna í borgarkerfinu. Skömmu áður en meirihlutinn í heilbrigðisráði samþykkti að bjóða út rekstur heilsugælsustöðvarinnar í Drápu- hlíð var lagt fyrir ráðherra nefndarálit um heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu. Þar er m.a. að finna lagafrumvarp sem gerir ráð fyrir því að útboð á rekstri heilsugæslu sé mögulegt en það stangast á við núgildandi lög. Borgarráð frestaði ákvörðun heil- brigðisráðs um útboð eftir að lagt var frarn álit um lögfræðinga borgarinnar um þessa staðreynd og vísaði hugmyndinni til um- sagnar í heilbrigðisráðuneytinu. Þjóðviljinn ræddi um heilsugæslu í Reykjavík við þrjá menn: Matthías Bjarnason, heilbrigðisráðherra, Skúla John- sen, borgarlækni og Þorvarð Brynjólfs- son, heilsugæslulækni í Árbæjarhverfi. Skúli Johnsen, borgar- læknir: „Ég get ekki séð að það þurfi að vera lakara starf þó það sé gert á þennan hátt. Hins vegar tel ég að það þurfi að vera fullkomin stoð fyrir því í lögum og það þurfi að liggja ljóst fyrir áður en farið er út í útboð. Það atriði er nú til umsagnar í heilbrigðisráðu- neytinu. Þorvarður Brynjólfsson hellsu- gæslu- læknir: „Ég tel að það sé út í hött að gera einkarekstur úr heilsugæslu- þjónustu. Það gæti aldrei gengið hér á íslandi. Heilsugæslan á ekki að borga sig, heldur á hið opin- bera að kosta hana. Menn geta ekki látið sjúklingana sjálfa borga lyfjakostnað eða sjúkra- húskostnað. Matthías Bjarnason, ráðherra: „Ekkert alltof ánægður“ Ráðherra telur vafasamt að hœgt verði að breyta lögum áður en Drápuhlíðin verður tilbúin ídesember - Ætlar þú að leggja fram frumvarp á alþingi í haust þannig að hægt verði að bjóða heilsu- gæslustöðina við Drápuhlíð út? „Það liggur ekkert fyrir um það. Ég hef lagt nefndarálitið fyrir ríkisstjórnina og stjórnar- flokkarnir hafa það nú til athug- unar. Það eru tvær hliðar á þessu máli og erfitt að samræma þær. Að mörgu leyti finnst mér æskilegt að það séu fleiri valkost- ir í heilsugæslu hér í Reykjavík en í þéttbýlinu, en ég hef enga int- ressu í að breyta heilsugæslunni eins og hún er rekin úti um land. En það eru aðrar forsendur hér þar sem fólkið er flest cg aðalá- hugamál mitt er að það verði ekki miklu dýrara hér þó þjónustan eigi auðvitað að vera sú sama.“ - Ertu búinn að gefa út starfs- leyfi fyrir heilsugæslustöðina í Drápuhlíð? „Nei, starfsfólk ráðuneytisins hefur skoðað húsnæðið og í sjálfu sér skiptir það ekki máli varðandi starfsleyfið hvort reksturinn yrði boðinn út eða ekki. Ráðuneytið gerir ákveðnar kröfur sem heilsu- gæsluhúsnæði þarf að uppfylla og þeirri athugun er ekki lokið“. - Þú talar um að æskilegt sé að hafa fleiri valkosti í heilsugæslu hér í Reykjavík. Heldurðu að það megi spara í heilsugæslunni með útboði? „Það veit maður aldrei fyrr en útboðið liggur fyrir. Það telja margir að það sé hægt að spara svo og svo mikið með útboðum og mér fannst sjálfsagt að reyna þetta með ákveðna þætti á ríkis- spítölunum. Það kom svo á dag- inn að það er ekki mikill sparnað- ur að því“. - Nú tala menn ekki aðeins um sparnað heldur hitt að cinka- reksturinn eigi að fá að spreyta sig á þessum rekstri? „Það er nú þetta með einka- reksturinn. -Læknar og hjúkrun- arfólk er að reka einkastofur víða en það er enginn sparnaður af því enda borgar sami aðilinn meiri- hlutann af kostnaðinum, þ.e. ríkiskassinn. Það er alltaf samfé- lagið sem borgar og það er auðvitað enginn einkarekstur ef alltaf eru sóttir peningar í þann sama kassa. Það þarf að mörgu að hyggja í þessu máli og snurfusa þetta frumvarp. Það var ekki auðvelt að koma því saman, held- ur var þetta nokkurs konar milli- leið sem menn völdu. Ég er ekk- ert alltof ánægður með nefndar- álitið og sumir nefndarmenn ekki heldur“. - Hvenær verður tekin afstaða til þess? „Ég á von á því að stjórnar- flokkarnir athugi þetta á næst- unni og síðan vildi ég líka kanna viðbrögð stjórnarandstöðunnar. Ég kæri mig ekki um að gera þetta mál að pólitísku bitbeini". - Nú á Drápuhlíðin að vera til- búin fyrir áramót. Heldurðu að lögunum verði breytt fyrir þann tíma svo hægt verði að bjóða hana út? „Ef það er álit lögfræðinga ráðuneytisins að ekki sé hægt að Matthías Bjarnason, heilbrigðfs- ráðherra: „Mér þótti sjáltsagt að reyna útboð með ákveðna þætti í ríkisspítölunum. Það kom svo á dag- inn að það var ekki mikill sparnaður að því. ...Það er auðvitað enginn einkarekstur ef alltaf eru sóttir pen- ingar í sama kassann, ríkiskassann." bjóða þetta út nema að breyttum lögum, þá tel ég ákaflega ólíklegt að það verði hægt fyrir þann tíma. Svona frumvarp þarf mik- inn tíma í vinnslu og það þarf að afla umsagna frá fjölmörgum að- ilum. Ég mun ekki ganga það hart að nefndum þingsins að þær fái ekki tíma til rækilegrar um- fjöllunar um svo stórt mál. Það má auðvitað alltaf breyta lögum ef menn telja það rétt, en það er nauðsynlegt að þingið fá til þess nægan tíma“. _ÁI Sjá næstu síðu. Miðvikudagur 9. október 1985 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.