Þjóðviljinn - 09.10.1985, Qupperneq 6
Þýska bókasafnið
sýnir
Götter der Pest
eftir Rainer Werner Fassbinder, fimmtudaginn 10. okt.
1985, kl. 20.30.
Margarethe von Trotta, sem leikur í myndinni, verður
viðstödd sýninguna.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Goethe-lnstitut Þýska bókasafnið
Tryggagötu 26
f
getrmíha
VINNINGAR!
7 leikvika - leikir 5. október 1985
Vinningsröð: 12X-21 1-1X2-112
1. vinningur: 12 réttir, kr. 155.940.-
43975(4/11) 104919(6/11) 104933(6/11) 104951(6/11)
2. vinningur: 11 réttir, kr. 5.569.-
2176 36228+ 50377 101993 104932 104955 úr 6. v.
3473 36766+ 54909+ 102765 104935 48891(2/11) 88400+
15806 39146+ 88869 104920104949 104923(2/11)
15852 50123 100084 104921 104950
Kærufrestur er til 28. október 1985 kl. 12.00 á hádegl.
Framhaldsaðalfundur
Útgáfufélags Þjóðviljans
verður haldinn 10. október kl. 20.30 að Hverfisqötu
105.
Dagskrá fundarins verður:
1. Kosning stjórnar félagsins.
2. Undirbúningur vegna 50 ára afmælis Þjóðviljans
1985.
3. Lög að skipulagsskrá félaqsins.
4. Önnur mál.
Útgáfufélag Þjóðviljans
Árshátíð
félagsins Ísland-DDR verður haldin fimmtudaginn 10.
október að Hótel Esju og hefst kl. 20.30.
Ásadans.
Músikprógram:
Flytjendur eru listamenn sem verið hafa á sumar-
námskeiðum í músíkháskóla Franz List í Weimar.
Spurningakeppni.
Hljómsveitin Nátthrafnar leikur fyrir dansi til kl. 01.00.
Og ekki má gleyma tombólunni okkar landsfrægu.
Allir velkomnir.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Björgúlfur Sigurðsson
Stóragerði 7
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 11 októ-
ber kl. 13.30.
Ingibjörg Þorleifsdóttir
Sigurður Björgúlfsson
Elísabet Pétursdóttir
Telma Sigurðardóttir
Ásta Thorstensen
söngkennari
Sigtúni 37
verður jarðsungin frá Laugarneskirkju fimmtudaginn 10.
október kl. 13.30.
Gunnar Reynir Sveinsson
Sigríður Helga Gunnarsdóttir
Ingunn Ásta Gunnarsdóttir
Halldór Laxness Auður Laxness
Helga Laxness
Ásta Thorstensen
MANNLÍF
Þorvarður Brynjólfsson, heilsugœslulœknir
„Heilsugæslan á
ekki að borga sig“
Heilsugœslustöðin íÁrhœ ersú lang stœrsta en heimild
fœstekki til að ráðafleiri lœkna
„Skref afturábak að festa gamla kerfið í sessi og svelta heilsugæsluna á sama
tíma“, sagði Þorvarður Brynjólfsson læknir í Árbæ. Ljósm.: E.ÓI.
„Ég tel það sé út í hött að gera
einkarekstur úr heilsugæsluþjón-
ustu. Það gæti aldrei gengið hér á
íslandi“, sagði Þorvarður Brynj-
ólfsson, heilsugæslulæknir i Ár-
bæjarhverfi. „Heilsugæslan á
ekki að borga sig heldur á hið
opinbera að kosta hana. Menn
geta ekki látið sjúklingana sjálfa
borga lyfjakostnað og sjúkra-
húskostnað. Ef ætlunin er hins
vegar að fara sömu leið og með
einkaskólann og leggja þúsund
krónu nefskatt á alla og setja svo
forskeytið einka- fyrir framan, þá
er það auðvitað enginn einka-
rekstur! Ég tala nú ekki um ef hið
opinbera á að borga allt eftir sem
áður“.
„Fyrir mér eru engin form hei-
lög, ef þjónustan yrði betri og
ódýrari fyrir vikið“, sagði Þor-
varður. „Hins vegar eins og bar-
átta okkar fyrir nauðsynlegustu
úrbótum hefur gengið, þá fæ ég
ekki séð hvernig einkareksturinn
yrði ódýrari nema þjónustan
versni".
Starfssvæði Árbæjarstöðvar-
innar hefur þanist út undanfarin
ár með nýrri byggð í Ártúnsholti
og Selási og stöðin þjónar einnig
Grafarvogi þar tii heilsugæslu-
stöð rís þar. „Það eru ekki allir á
þessu svæði sem vita af því að þeir
eiga rétt á þjónustu hér“, sagði
Þorvarður. „Hér eru skráðir
3.500 manns 17 ára og eldri og
aðeins 2 læknar. Þetta er fjöl-
mennasta stöðin en þrátt fyrir ítr-
ekaðar beiðnir í 3 ár hefur ekki
enn fengist heimild fyrir þriðju
stöðunni. M.a. þess vegna hætt-
um við um tíma að taka nýtt fólk
en féllum svo frá því af því okkur
fannst það ekki rétt. Það er ekki
aðeins fólk úr hverfinu sem leitar
hingað, heldur einnig gamlir Ár-
bæingar sem hafa flutt niður í bæ.
Þeir slíta ekki tengslin þó þeir
flytji úr hverfinu“.
„Ég hef alltaf talið heilsugæslu-
kerfið skárra en gamla númera-
kerfið", sagði Þorvarður, „og ég
er mjög óhress yfir því að um leið
og því er frestað að leggja gamla
kerfið niður þá fást ekki nýjar
stöður á heilsugæslustöðvarnar
sem fyrir eru. Á sama tíma eru
menn að setja sig niður sem
heimilislæknar samkvæmt gamla
kerfinu og það tel ég skref afturá-
bak því það þótti ekki reynast
vel.“
- Eru Reykvíkingar verr settir
varðandi heilsugæslu en fólk úti á
landsbyggðinni?
„Þeir eru betur settir en t.d.
Vopnfirðingar. En almennt eru
þeir að mörgu leyti verr settir.
Það er alltof mikill fjöldi á hvern
lækni, jafnvel allt að 4 þúsund
manns og það hlýtur að vera
mjög erfitt að komast til manns
með þann fjölda og fá viðtal eða
vitjun.
Hins vegar er mikið af sérfræð-
ingum hér í Reykjavík og auðvelt
að komast til þeirra marga. Nú
þarf ekki lengur tilvísun frá heim-
ilislækni og það finnst okkur
mörgum reyndar verra, þannig
að ef á heildina er litið, eru
Reykvíkingar ekki svo illa settir í
heilsugæslu". -ÁI
Skúli Johnsen, borgarlœknir
„Gamla kerfiö blómsbar“
5 nýir heimilislœknar á þessu ári en engin ný staða fyrir
heilsugœslulœkna. 17.000 Reykvíkingar án heimilislœknis
„Eftir að gerður var nýr samn-
ingur við heimilislækna sl. vor
virðast menn fúsari en áður til að
vinna fyrir sjúkrasamlagið“,
sagði Skúli Johnsen, borgar-
læknir. „Það hafa bæst við einir 5
nýir heimilislæknar á þessu ári,
en áður var nær engin endurnýj-
un í þeim hópi. Á sama tíma fást
en gin ný stöðugildi í heilsugæsl-
ustöðvarnar þrátt fyrir ítrekaðar
beiðnir til ráðuneytisins. Stöðv-
arnar eru byggðar fyrir flciri
lækna en þar starfa. Þar stendur
allt tilhúið en tómt og á meðan
blómstrar gamla kerfið sem átti
að leggjast af 1984“.
Skúli sagði að samkvæmt nýrri
skiptingu borgarinnar í heilsu-
gæsluhverfi ættu að vera 14
heilsugæslustöðvar í Reykjavík.
Þær eru nú aðeins 5. Sú fyrsta var
opnuð í Árbæ 1977, önnur í Asp-
arfelli 1978, sú þriðja í Fossvogi
1980, sú fjórða fyrir Vesturbæ-
inga á Seltjarnarnesi 1981 og sú
fimmta í Heilsuverndarstöðinni
1982.
„Það er búið að sækja um
starfsleyfi fyrir heilsugæslustöð-
inni í Drápuhlíð og hún á að vera
tilbúin fyrir árslok“, sagði Skúli.
„Næsta stöð verur fyrir Breiðholt
III við Hraunberg, og við von-
umst til að hægt verði að grafa
fyrir henni í haust. Þá standa von-
ir til að nýbygging borgarinnar á
horni Vesturgötu og Garðastræt-
is rísi fljótlega en þar er gert ráð
fyrir heilsugæslustöð fyrir gamla
Vesturbæinn og þjónustuíbúðum
fyrir aldraða".
Skúli sagði að 1. september sl.
hefðu 17 þúsund manns verið án
heimilislæknis í Reykjavík. Þar
eru nú starfandi 27 heimilislækn-
ar. Þeir eru flestir með um og yfir
2000 manns hver sem er mun
meira en talið er æskilegt til að
tryggja góða þjónustu.
„Það sér hver maður að læknir
með 2500 einstaklinga á skrá
kemst ekki yfir að veita þá þjón-
ustu sem nauðsynleg er“, sagði
Skúli. „í nýja samningnum er
hvatt til þess að sjúklingarnir
verði ekki fleiri en 1750 á hvern
lækni en það er mín hugmynd og
reyndar flestra sem vinna að
þessum málum að þeir þyrftu að
vera 1500 og helst aldrei fleiri en
1700. Ef miðað er við 1700 manns
ættu heimilislæknar að vera um
50 talsins í Reykjavík, en þeir eru
27 og á heilsugæslustöðvunum
eru 11,5 stöðugildi. Það vantar
því mikið á að þetta sé full-
mannað".
Þá benti Skúli á að margir
læknar sem hafa stundað heimil-
islækningar í Reykjavík fara að
hætta störfum, en af þessum 27
eru 3 yfir sjötugt og 4 milli 65 ára
og sjötugs. „Þó nýir menn komi
til þá er það mikið til endurnýjun
en ekki viðbót".
- Ertu fylgjandi því að rekstur
heilsugæsiunnar í Drápuhlíð
verði boðinn út?
„Ég get ekki séð að það þurfi
að vera lakara starf þó það verði
gert. Hins vegar er nauðsynlegt
að fyrir því sé fullkomin stoð í
lögum og það þarf auðvitað að
liggja fyrir. Það atriði er nú til
umsagnar í heilbrigðisráðun-
eytinu“.
- En verður gamla heimilis-
læknakerfið lagt niður um ára-
mót eða verður því frestað eins og
undanfarin 2 ár?
„Ég hef ekki ástæðu til að ætla
annað en lögin taki gildi og gamla
kerfið verði afnumið. Það eru
komnar fram tillögur um tiltekn-
ar breytingar en ég veit ekki til
þess að það hafi verið ákveðið
neitt í því efni. Meðan svo er hlýt
ég þó að búast við að lögin taki
gildi um áramót og miða mína
vinnu við það“.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 9. október 1985