Þjóðviljinn - 15.10.1985, Síða 7

Þjóðviljinn - 15.10.1985, Síða 7
Bjarni Skarphéðinsson (t.v.) og Jón Agnar Eggertsson. Góð samvinna. Mynd. Sig. Borgarfjörður Verkalýðsfélög eru í eðli sínu neytendafélög Rætt við Jón Agnar Eggertsson, formann Verkalýðsfélags Borgarness og Bjarna Skarphéðinsson formann Neytendafélags Borgarfjarðar um samstarf þessara félaga. í Borgarnesi er, eins og víða annars staðar, starfrækt Neytendafélag í samstarfi við stéttarfélögin á staðnum. En það vita það e.t.v. ekki allir að Neytendafélag Borgarfjarðar og Verkalýðsfélags Borgar- ness voru þau félög sem riðu á vaðið með slíkt samstarf. Neytendafélag Borgarfjarðar er nú orðið 7 ára gamalt og hefur á þessum árum starfað af miklum krafti. Það gefur að sjálfsögðu út Neytendablaðið, auk þess er fé- lagið með viðtalstíma í hverri viku þar sem veittar eru upplýs- ingar um vöru og þjónustu. Síðan er félagið með neytendakönnun af og til. Þjóðviljamenn voru ný- lega á ferð í Borgarnesi og litu þá við á hinni sameiginlegu skrif- stofu stéttarfélaganna og Neytendafélags Borgarfjarðar sem nefnd er Snorrabúð. Þar urðu fyrir svörum þeir Bjarni Skarphéðinsson, rafveitustjóri og formaður Neytendafélags Borgarfjarðar og Jón Agnar Egg- ertsson formaður Verkalýðsfé- lags Borgarness. Þeir félagar voru fyrst spurðir að því í hverju þetta samstarf félaganna fælist. „Svona á yfirborðinu felst það í sameiginlgri húsnæðisaðstöðu. En það er auðvitað meira en það. Við höfum sameiginlega húsnæð- isaðstöðu og höfum samvinnu við gerð verðkannana." „Já, verkalýðsfélagið hér á staðnum er afskaplega virkt í þessu samstarfi og opið fyrir til- lögum og það er margur hlutur- inn sem hann Jón Agnar hefur komið af stað í þessu samstarfi,“ segir Bjarni. Augljós tengsl „Tengsl milli verkalýðsfélaga og neytendafélaga eru auðvitað svo augljós,“ segir Jón Agnar. „Kannski má segja að verka- lýðsfélög séu í eðli sínu neytend- afélög. Það þýðir auðvitað lítið að berjast fyrir fleiri krónum í vasann ef ekki er gott eftirlit með vörum og þjónustu." - Hversu lengi hafa félögin ver- ið í þessu samstarfi? „Það var í seinni hluta marsmánaðar 1983 sem sam- komulag var gert milli þessara fé- laga,“ segir Jón Agnar. „í þessu samkomulagi sagði að félögin stefndu að því að vinna saman að fræðslumálum fyrir neytendur í formi námskeiða og fræðslu- funda, einnig að þau mundu kanna grundvöllinn fyrir sam- eiginlegri blaðaútgáfu. Fundir Nú, þessi samvinna hefur haft ýmislegt gott í för með sér. Það hafa verið haldnir margir opnir fundir um ýmis mál sem snerta neytendur og þeir hafa yfirleitt verið fjölsóttir. í janúar 1982 var haldið hér í Snorrabúð námskeið um neytendavernd og verð- lagsmál, þar voru yfir 30 þátttak- endur. Þetta sama ár var haldið námskeið um húsnæðismál og þar voru einnig einir 30 þátttak- endur. Á árinu 1983 var haldið námskeið um opinbera þjónustu, það námskeið var haldið í sam- vinnu við MFA. Og það má kannski segja að þessi námskeið hafi orðið til þess að Verkalýðsfélag Borgarness og Neytendafélag Borgarfjarðar gerðu síðan með sér fyrrnefnt samkomulag. Síðan þá höfum við verið með opna fundi í Hótel Borgarnesi. Við höfum haldið 3 slíka fundi. Af þeim má nefna fund um verðlagsmál landbúnað- arafurða. Þar voru einir 4 eða 5 frummælendur frá aðilum sem tengjast þessu máli. Nú í fyrra- haust héldum við fund um húsnæðismálin, hann var vel sótt- ur. Þar voru frummælendur þeir Alexander Stefánsson, Svavar Gestsson, Sigurður E. Guð- mundsson og Guðni Jóhannes- son, það var líflegur fundur, miklar umræður. 1 mars síð- astliðnum héldum við enn fund. Þar var yfirskriftin, Hvernig má bæta lífskjörin í framtíðinni? Þar voru frummælendur Steingrímur Hermannsson, Ásmundur Stef- ánsson og Ásdís Rafnar sem er varaformaður Neytendasamtak- anna. Félögin tvö stefna að því að halda tvo slíka sameiginlega fundi á ári. Þessir fundir hafa ver- ið fjörlegir og vel sóttir og hafa vakið athygli fólks hér um slóðir og áhuga fólks á Neytendafélagi Borgarfjarðar. Verð- kannanir Svo eru það verðkannanir. Þær hafa auðvitað vakið athygli og fólk hér um slóðir bíður alltaf eftir þeim. Við gerð þessara verð- kannana höfum við notið aðstoð- ar frá Verðlagsráði í Reykjavík og einnig frá Neytendasamtök- unum þar. Sem dæmi um það hvernig verkalýðsfélög og Neytendafélög vinna saman má geta þess að Al- þýðusamband Vesturlands hefur stuðlað að því að það hafa verið stofnuð Neytendafélög hér á svæðinu, t.d. á Snæfellsnesi og í Dölum. Þannig að það hefur ver- ið hér þó nokkur áhugi fyrir sam- starfi sem þessu.“ - Og er þetta orðið fjölmennt félag hér í Borgarfirði? „Já, ég held að það megi segja það. Félagsmenn hjá okkur eru orðnir um 300. En slík félagatala segir auðvitað ekki allt um „út- breiðslu" félagsins, ef hægt er að taka svo til orða. Það sem f.f. gerir þetta félag sterkt er það góða samstarf sem er á milli verkalýðsfélagsins og Neytendaf- élagsins. Það er auðvitað ómetanlegt fyrir neytendafélög á litlum stöðum að geta verið í svona samstarfi. Það gefur þeim fótfestu og vekur á þeim athygli, þau ná til fólks fyrir tilstuðlan sameiginlegrar skrifstofuaðstöðu og blaðaútgáfu.“ 1H Þriðjudagur 15. október 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.