Þjóðviljinn - 17.11.1985, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 17.11.1985, Qupperneq 9
Stjórnandi, einsöngvari og hljómsveit. íslenska hljómsveitin AMADEUS og konurnar Tónleikar ó Akranesi, Selfossi, í Keflavík og Reykjavík Önnur efnisskrá íslensku hljómsveitarinnar á fjórða starfsárinu verðurfrumflutt í safnaðarheimilinu á Akranesi sunnudaginn 17. nóv. kl. 15.30. Hún verður endurflutt í Selfosskirkju mánudaginn 18. nóv. kl. 20.30, í Félagsbíóinu í Keflavík miðvikudaginn 20. nóv. kl. 20.30 og loks í Lang- holtskirkju í Fteykjavík fimmtudaginn 21. nóv. kl. 20.30. Aðgöngumiðar verða seldirviðinnganginn. Tónleikarnir bera yfirskriftina: „Konur í íslensku tónlistarlífí” og eru haldnir til heiðurs íslenskum tónlistarkonum í lok áratugs kvenna. Jean-Pierre Jacquillat, aðalstjórnandi Sinfóníuhljóm- sveitar íslands, stjórnar hljóm- sveitinni. Á fyrri hluta tón- leikanna eru verk eftir Jórunni Viðar, Karólínu Eiríksdóttur og Misti Þorkelsdóttur. Á síðari hlutanum píanókonsert eftir Wolfgang Amadeus Mozart. A. Josephsson, barytonsöngv- ari, syngur þrjú sönglög eftir Jór- unni Viðar við undirleik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Hljómsveitin leikur fimm lög fyrir kammerhljómsveit eftir Karólínu Eiríksdóttur og Davíð 116 eftir Misti Þorkelsdóttur. Verkin voru samin að tilhlutan íslensku hljómsveitarinnar og frumflutt af henni. Anders Jos- ephsson syngur einsöng í síðara verkinu. Karólína og Mist munu kynna verk sín í upphafi tón- leikanna. Á síðari hluta tónleikanna leikur Anna Guðný Guðmunds- dóttir Píanókonsert í C-dúr (K 415), eftir Mozart en konsert þessi er einn þeirra, sem hann til- einkaði konu. Anders Josephsson er fæddur og uppalinn í Svíþjóð en fluttist til íslands 1980. Hann stundar nám við kennaradeild Tónlistar- skólans í Reykjavík samhliða guðfræðinámi við Háskólann. Jórunn Viðar, Anna Guðný Guðmundsdóttir og Mist Þork- elsdóttir eru allar þekktir lista- menn, sem ekki er þörf að kynna. -mhg JI2 Á A Á A A A U UUQQj : iLiiJogjri vfe lUliniHUIUIiUtill « Jón Loftsson hf. ________________ Hringbraut 121 Sími 10600 Sunnudagur 17. nóvember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 REYR - HÚSGÖGN FRÁ SPÁNI ★★★ Munið okkar hagstæðu greiðsluskilmála Lífeyrissjóðurinn Hlíf heldur aöalfund sunnudaginn 17. nóv. og hefst hann kl. 14 aö Borgartúni 18. Dagskrá: reglugerðarbreytingar og venjuleg aðal- fundarstörf. Stjórnin. Forstöðumaður Starf forstööumanns Fjórðungssjúkrahússins Nes- kaupstaö er laust til umsóknar. Launakjör samkvæmt kjarasamningum Starfsmannafélags Neskaupstaöar og bæjarstjórnar. Umsóknarfrestur er til 8. desember 1985. Umsóknir sendist til bæjarstjórans Neskaup- staö sem einnig veitir allar nánari upplýsingar. Bæjarstjórinn Rauði kross íslands óskar eftir starfsfólki til starfa við Hjálparstöð RKÍ- fyrir börn og unglinga. Um er aö ræða bæöi fullt starf og hlutastarf við mót- töku gesta og umönnun og hlutastarf viö heimilishald. Reynsla og/eöa menntun á sviöi uppeldismála æskileg. Umsóknarfrestur er til 20. nóvember. Nánari upplýsingar veitir forstööumaöur í síma 622266 frá kl. 9-17 virka daga. Þroskaþjálfi óskar eftir vel launuðu starfi á Suöurlandi. Hef reynslu í stjórnun, kennslu, verkþjálfun. Margt kemur til greina. Upplýsingar í síma 99-2403 eða 99-1759. JÓLAFARGJÖLD StoK^° Tii London helgarferðir - vikuferðir brottför mánudaga eða föstudaga Verð frá 18.234.- (vikuferð) frá 13.922.- (helgarferð) Ifarandi Vesturgatu 5, tel. 174.4.5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.