Þjóðviljinn - 24.11.1985, Blaðsíða 3
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
Simi 27100
■f.
Ingólfur öm Amarson með bókverk.
Ljósm. E.ÓI.
Norrœna myndlistarbandalagið 40 ára
Bókverk og
listaverka-
bœkur í
Noirœna húsinu
ISLB4SKAR VÖRUR
Á ERLENDAN yfiARKAÐ
(slensk þjóö byggir lífsviðurværi sitt
á útflutningi. Ekki aðeins á afla
fiskiskipanna, heldur einnig á
útflutningi annars konar afla -
afrakstri verkmenningar alls
þjóðfélagsins - allt frá heimaprjón-
uðum lopapeysum til háþróaðs
stóriðjuvarnings.
Við hjá Eimskip vitum að ekkert svið
íslensks atvinnulífs er óháð
útflutningi. í áratugi höfum við lagt
okkurfram við að þjóna atvinnuveg-
unum sem best, með því að fylgjast
náið með framförum og tileinka
okkur jákvæðar nýjungar í
flutningum.
Nú flytur Eimskip íslenskan afla um
allan heim - niðursuðuvörur til
Sovétríkjanna, freðfisktil Bandaríkj-
anna, lopavörur til Evrópuhafna,
skreið til Afríku, stóriðjuafurðir til
Bretlands - ög svona mætti lengi
telja. Sérþekking og reynsla
Eimskips í flutningum nýtist öllum
greinum íslensks atvinnulífs.
Jónína Guðnadóttir, leirlistamaður, Knut Ödegaard forstjóri Norræna hússins, Guðrún Magnúsdóttir bókavörður og
Valgerður Bergsdóttir, myndlistarmaður og form. (slandsdeildar Norræna myndlistarbandalagsins. Þau eru að bera
saman bækur sínar, Knut með sýningarskrá að samísku sýningunni í kjallara hússins, Valgerður og Guðrún með skrár
um sýningarnar í anddyrinu og í bókasafninu. Ljósm. Sig.
landi mikilvæg og komið okk-
ur á blað í hinum alþjóðlega
heimi myndlistarinnarsagði
Valgerður Bergsdóttur, en
hún erformaður íslands-
deildar Norræna Myndlistar-
bandalagsins, sem nú á40
áraafmæli.
íslandsdeildin starfar undir
Samb. ísl. myndlistarmanna, en í
dag verður opnuð sýning í Nor-
ræna húsinu í tilefni af afmælinu.
Sýningin er tvíþætt, annars vegar
verða sýnd bókverk íslenskra
listamanna, en segja má að Diet-
er Roth hafi á sínum tíma innleitt
þessa „listgrein“ í íslenska mynd-
list. Aðrir sem sýna bókverk eru
m.a. Kristján Guðmundsson,
Daði Kristbjörnsson, Helgi
Friðjónsson, Guðrún Hrönn
Ragnarsdóttir og Ingólfur Örn
Árnason, sem hefur haft veg og
vanda af uppsetningunni.
Þá verða sýndar listaverka-
bækur og sýningaskrár frá
Norðurlöndunum á bókasafninu
en Guðrún Magnúsdóttir, bóka-
vörður valdi bækurnar. Á mánu-
dagskvöldið munu Aðalsteinn
Ingólfsson og Gunnar Harðarson
flytja fyrirlestra í tengslum við
sýninguna í anddyrinu.
Sýningarnar í Norræna húsinu
verða opnar til sunnudagsins 8.
desember.
Sett hefur verið upp samsýning
norrænna myndlistarmanna í
Stokkhólmi í tilefni af afmælinu
og eru verk tveggja íslenskra
myndlistarmanna á sýningunni.
Þeir eru Jóhannes Kjarval og Jón
Gunnar Árnason. Þessi sýning
hefur fengið mjög góðar við-
tökur. Hún er sett upp í Nation-
almuseum í Stokkhólmi, þar sem
Norræna myndlistarbandalagið
var stofnað fyrir 40 árum. Meðal
annarra sýninga sem íslendingar
taka þátt í um þessar mundir er
sýningin „Byggingarlist-mynd-
list“ og eru Magnús Skúlason
arkitekt og Magnús Tómasson,
myndlistarmaður þar fulltrúar ís-
lands. Sýningin kemur væntan-
lega til fslands árið 1986.
-þs
„Þátttaka íslendinga í Nor-
ræna myndlistarbandalaginu
hefur skipt miklu máli fyrir ís-
lenska myndlistarmenn, en
þessi samvinna hófst 8. nóv-
ember 1945. Fyrstu þrjá ára-
tugina var höfuðáherslan lögð
á að koma upp stórum sam-
sýningum norrænna mynd-
listarmanna og sýna þær í
höfuðborgum Norðurland-
anna. Eftir að Sveaborg var
reist hefur starfsemin aðal-
lega verið fólgin í ráðstefnum
og ýmiss konarsérsýningum.
Öll þessi samvinna hefur ver-
ið myndlistarmönnum á ís-