Þjóðviljinn - 24.11.1985, Qupperneq 15
1. Togspenna magnast upp í jarðlagaskák t.d. vegna plötuskriðs (gliðnunar). Gamlar sprungur eru á skákinni úr fyrri
skjálftum.
2. Smám saman taka jarðlögin að bresta örlítið og mjög smáar sprungur verða til. Við það losnar um ósýnilegar
lofttegundir (hér sýndar sem „mökkur") í jarðlögum, þ. á m. radon og vetni. Reynt er að fylgjast með t.d. auknu
gasútstreymi eða víkkun á þorholum.
3. Þegar spennan er orðin meiri en samloðun bergsins/jarðlaga, brestur skákin í heild, oftast um gamlar sprungur, en
nýjar koma líka fram. Skjálftabyljurnar (P og S bylgjur) breiðast út í þrívíðu rúmi með nokkurra kílómetra hraða á sekúndu.
Einnig verða til yfirborðsbylgjur.
4. Spenna magnast á ný en nú er miðjan meira sprungin en áður og gasútstreymi lítið miðað við 2.
Spáð um
jarðskjálfta
Stórir jarðskjálftar og mann-
skæðir eins og í Mexíkó og Kól-
ombíu á dögunum vekja alltaf
upp spurninguna: Er unnt að spá
um svona atburði og ef til vill
forða fólki frá mestu hættunni?
Okkur íslendingum þykir slíkt
fýsilegt vegna þess að hér á landi
er hætta á skjálftum um og yfir 7
stig á Richter-kvarða. Þau land-
svæði eru á vestanverðu Suður-
landi og á hluta NA-lands.
Stórveldin
örlátust
í Bandaríkjunum er eytt um 17
milljónum dollara á þessu ári í
vinnu við jarðskjálftaspár og
rannsóknir þar að lútandi. í So-
vétríkjunum, Kína og Japan er
unnið að miljarða-áætlunum (í
ísl. krónum) í sama tilgangi.
Menn er starfa við Jarðfræði-
stofnun Bandaríkjanna hafa
áætlað að á hluta San-Andreas-
misgengisins, vestan við Los
Angeles, séu yfir 50% líkur á
skjálfta á bilinu 7,5 til 8 stig á
Richter-kvarða næstu 30 árin.
Ekki er að undra þótt verulegu fé
sér varið til rannsókna á skjálfta-
spám.
Aðaláhersla er lögð á að kom-
ast að því hvað kemur jarðskjál-
ftum endanlega af stað, ef svo má
segja. Frumorsakir sjálfta eru
þekktar. Meirihluti þeirra verður
vegna þess að piötuskrið
(landrek) magnar upp spennu í
jarðlögum uns þau bresta. Minna
er vitað um hvað stjórnar því
hvar, hvenær og hve stórir
skjálftar verða. Einnig verða
menn að komast að því hvaða
breytingar verða á mælanlegum
stærðum í náttúrunni rétt áður en
skjálftar ríða yfir. Þá er átt við
mánuði, daga eða klukkustundir.
Margs konar tœkni
olíkar mœlistœrðir
Meðal slíkra stærða má nefna
landris eða landsig, afmyndun
bergs í borholuveggjum eða
göngum, breytt mynstur smá-
skjálfta og myndun smásprung-
na. Hér koma margvísleg tæki að
notum: Gerfitungl, tölvur,
geislar og næmir skjálftamælar
svo eitthvað sé nefnt.
Samhliða athugunum sem
þessum er unnið að því að afla
gagna, úr rituðum heimildum og /
eða jarðlögum, um jarðskjálfta
fyrri tíma; tíðni, stærð og út-
breiðslu, einmitt til að reikna lík-
urnar á nýjum skjálftum eins og
gert var í Kaliforníu og minnst er
á hér að framan.
Ein aðferð við forathuganir á
skjálftum og þá með spár í huga
felst í því að mæla gasútstreymi
við yfirborði jarðar. Ein gasteg-
undin, radon, er auðmæld. Flest
bendir til þess að meira radon
streymi úr jarðlögum sem eru
komin að því .að bresta en úr
spennuminni lögum. Reyndar
hafa spár, byggðar á radonmæl-
ingum, gefist misvel og menn
m.a. þess vegna leitað að öðrum
vísbendingum. f nýlegri grein
eftir bandaríska jarðfræðinginn
McGee er greint frá mælingum á
vetnisstreymi úr jörðu á eldfjalla-
svæðum og jarðskjálftasvæðum.
Ekki er auðvelt að mæla vetnið
en það tekst þó sæmilega og má
t.d. nefna að 10 dögum fyrir jarð-
skjálfta upp á 5,7 stig í Long Vall-
ey í Bandaríkjunum í nóvember
1984 margfaldaðist mælt vetni og
hélst útstreymið hátt í marga
daga á eftir meðan smáskjálftar
gengu yfir. Erfiðast er áætla hve
langur tími líður frá því að nýjar
smásprungur auka gasstreymið
til yfirboðrins þar til jarlögin
bresta og skjálfti gengur yfir.
Langt í land enn
Þótt nefna megi mörg dæmi um
spár eða mælingar af svipuðu tagi
og hér að framan er enn langt í
land með nothæfar jarðskjálfta-
spár. Mörg atriði koma við sögu í
jarðskjálftakróníku einhvers um-
brotasvæðis. Aðstæður eru líka
frábrugðnar frá einu landssvæði
til annars.
Á íslandi eru til tvær stofnanir
sem einkum starfa að skyldum at-
hugunum og fara fram hjá stór-
veldunum: Raunvísindastofnun
Háskólans og Jarðeðlisfræðideild
Veðurstofu Islands. Til dæmis að
taka þá hefur verið fylgst af og til
með radonútstreymi úr borhol-
um á Suðurlandi, t.d. á árinu
1978. Þá eru einir 8 þenslumælar
hafði í borholum á sama svæði og
hafa þeir verið í notkun frá haust-
inu 1979. Yfirleitt sýna mælarnir
þrýstingsaukningu og er það í
samræmi við þá sköðun að jarð-
skjálftabeltið á Suðurlandi sé
víxlgengi. Jarðlög, a.m.k. á
nokkru dýpi, ganga á mis í lárétt-
um fleti rétt eins og plata sem
söguð er í sundur og bútarnir síð-
an færðir, annar fram en hinn aft-
ur á bak. Ennfremur eru gerðar
nákvæmar mælingar á breyting-
um landhæðar eða fjarlægða milli
fastra punkta og allar sýnilegar
sprungur og misgengi kortlögð.
Mjög litlu fjármagni hefur ver-
ið varið til vinnu sem þessarar
hérlendis og hluti peninga sem
fengist hafa er erlendur.
Sem stendur má telja spá um
jarðskjálfta á Suðurlandi
eitthvað á þessa leið: Það eru
meira en 50% líkur á því að
skjálfti um og yfir 7 stig á Richter-
kvarða verði á vestanverðu Suð-
urlandi innan 25 ára.
Það er ekki vond fjárfesting að
eyða fé í rannsóknir sem kynnu
að koma í veg fyrir eitthvað af því
tjóni sem er nú fyrirsjáanlegt ef
skjálfti af þessari gerð ríður yfir.
Ef til vill mætti ná bestum árangri
með samstarfi stofnana og sjóða
hér heima og erlendra aðila.
Sunnudagur 24. nóvember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
^RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laust til umsókn-
ar starf tæknifulltrúa á svæðisskrifstofu Raf-
magnsveitnanna á Stykkishólmi.
Menntun í rafmagnsverkfræði eða rafmagns-
tæknifræði áskilin.
Upplýsingar um starfið gefur rafveitustjóri Raf-
magnsveitnanna á Stykkishólmi.
Umsóknir er greini menntun, aldur og fyrri störf
sendist starfsmannahaldi fyrir 7. desember nk.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118
105 Reykjavík
\$il _
ísafjarðarkaupstaður
Isatjóröur
Óskum að ráða barnabókavörð við bæjarbókasafnið
og skólasafnvörð við grunnskólann, að hálfu við hvora
stofnun.
Menntun í bókasafnsfræðum og kennslufræði áskilin.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður bæjarbóka-
safnsins Jóhann Hinriksson sími 94-3296.
Aðalfundur
Samtaka kvenna á vinnumarkaði
verður haldinn laugardaginn 30. nóvember kl. 15 að
Hótel Vík.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning tengihóps.
3. Starfið framundan.
Tengihópur
»1 Frá Borgarskipulagi
'V Reykjavíkur
Teikningarog líkan af deiliskipulagstillögu Kvosarinn-
ar eru til sýnis og kynningar dagana 21 -28. nóvem-
ber, í Gallerí Borg.
Opið virka daga kl. 12.00. - 18.00 og helgidaga kl.
14.00-18.00.
Fulltrúar Borgarskipulags og höfunda verða á staðn-
um föstudaginn 22. og laugardaginn 23. nóv. milli kl.
16.00- 18.00 og svara fyrirspurnum.
Borgarskipulag Reykjavíkur
ra Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
óskar að ráða í eftirtaldar stöður á Geðdeild, sem
ætlað er að hefja störf í nýjum húsakynnum bann 1
febrúar 1986:
1. Sérfræðingur í geðlækningum.
2. Aðstoðarlæknir.
3. Iðjuþjálfi.
4. Hjúkrunarfræðingar.
5. Aðstoðarmenn við hjúkrun.
Umsóknum þarf að skila fyrir 1. janúar 1986 til yfir-
læknis Geðdeildar eða hjúkrunarforstjóra, sem veita
nánari upplýsingar.
Frá Fjölbrautaskólanum
við Ármúla
Innritun nýnema á vorönn 1986 lýkur 6. desember n.k.
Innritun fer fram á skrifstofu skólans alla virka daga frá
kl. 9-15.
Skólameistari
Auglýsið í Þjóðviljanum