Þjóðviljinn - 24.11.1985, Blaðsíða 16
60
leikbrúður
í
Dynheimum
- Leikbrúðusýning opnuð ó Akureyri í dag
Helga meö „engilinn sem rataði ekki heim“ en hann er meðal brúðanna sem sýndar verða í Dynheimum. Svo
skemmtilega vill til að norska sjónvarpið er búið að kaupa sjónvarpsþáttinn sem sýndur var í jólabarnatímanum í fyrra um
þennan litla engil og verður hann á dagskrá í norska sjónvarpinu á aðfangadag. Hann ferðast því víða um þessi jól, en
ratar vonandi heim. Ljósm. E. Ól.
„Þegarvið vorum beðnarað
koma norður með atriði úr
Brúðubílnum.fannstmértil-
valið að halda sýningu á leik-
brúðum í leiðinni, þar sem ég
vissi að sýningarsalurinn í
Dynheimum hentaði ágæt-
lega. Ég er nú búin að senda
einar 60 brúður norður með
bíl og vona bara að þær komi
allar í heilu lagi ááfangastað
eftirferðalagið.
Ég hef aldrei fyrr haldið svona
sýningu og mér finnst ágætt að fá
í
SKIPSTJÓRNARMENN ATHUGIÐ!
Það getur valdið mörgum hugarangri og kvíða þegar skip heimilisföðurins er beðið að tilkynna sig strax
til næstu strandstöðvar Landssíma (slands.
REYNSLAN SÝNIR AÐ EKKERT KEMUR I VEG FYRIR SLYS Á SJÓ NEMA
ÁRVEKNI, DÓMGREIND OG KUNNÁTTA SJÓMANNA SJÁLFRA.
ÖRYGGISMÁLANEFND SJÓMANNA
tækifæri til að sýna brúðurnar úti
á landi“, sagði Helga Steffensen,
en í dag, 23. nóvember opnar hún
sýningu á leikbrúðum norður á
Akureyri. Sýningin í Dyn-
heimum verður opin daglega frá
14-19 og á sunnudögum til 22
fram til 2. desember.
Helga er nýkomin að utan þar
sem hún tók þátt í sýningu
Leikbrúðulands í Vín, en eins og
komið hefur fram í fréttum hefur
Leikbrúðuland vakið mikla at-
hygli á ferðum sínum erlendis og
hlotið margvíslegar viðurkenn-
ingar. Nú er búið að bjóða hópn-
um til Spánar í desember, en því
miður er ekki hægt að þiggja það
boð, en Helga bjóst við að fremur
yrði reynt að þiggja boð frá Pól-
landi, Frakklandi og Ítalíu með
vorinu.
í Dynheimum verða sýndir
leikþættirnir „Feluleikur" og
„Lilli gerist barnfóstra" en þeir
voru báðir sýndir í Brúðubílnum í
sumar sem leið.
Sýnt verður fýrir leikskólana á
Akureyri fimmtudag og föstudag
og fyrir almenning verða sýning-
ar sunnudaginn 24. nóvember
klukkan 14 og klukkan 16. Miða-
verð er kr. 150,00. Sala hefst
klukkan 12,30. Sýningin tekur 1
og Vz klukkustund. Það eru þær
Helga og Sigríður Hannesdóttir
sem sjá um sýningarnar. -þs
midas
Bœkur
Ljóð
Sunnan í móti
Ljóðabókin Sunnan í móti eftir
Helga Sæmundsson var fyrst
gefin út árið 1975 og hefur nú
verið prentuð á ný.
Bókin geymir úrval ljóða
Helga frá 1937 til 1975.
Skákprent gefur út 2. prentun
á Sunnan í móti.
Grund
Heimilispósturinn
Bókaútgáfan Grund hefurgef-
ið út annað bindi Heimilispósts-
ins, sem geymir efni eftir Gísla
Sigurbjörnsson fráárunum 1971
til 1978.
Heimilispósturinn er innan-
hússblað á Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund sem Gísli veitir
forstöðu. Viðfangsefni Gísla í
þessari bók eru málefni ellinnar.
Rúnir
Lófalestur
„ Fæstir vita að lófalestur er
vísindaleg aðferð sem getur veitt
margvíslegar upplýsingar um
skapgerðareinkenni manna og
hæfileika þeirra á ýmsum svið-
um,“ segir í forlagsfrétt um bók-
ina Lófalestur eftir Peter West.
Höfundurinn mun þaulreynd-
ur í faginu og leiðír lesandann hér
um völundarhús þessarar listar,
„lýsir því hvernig nota má línur
og mynstur lófans, lögun handar-
innar í heild og hluta hennar og
síðast en ekki síst handahreyfing-
ar“ til að vita gleggra um manns-
sjálfið.
Þýðandi er Óskar Ingimars-
son, útgefandi Setberg. Bókin er
145 síður og geymir margar skýr-
ingarmyndir.