Þjóðviljinn - 17.12.1985, Blaðsíða 3
FRETT1R
Forval
Listi ABR til forvals
Engin hækkun
til fatlaðra
Adda Bára gefur ekki kost á sér íforval. Félagar íABR geta
tilnefntfleiri nöfn á listannfram á gamlársdag
Kjörnefnd Alþýðubandalagsins
í Reykjavík hefur skilað af sér
tillögu að framboðslista til forvals
vegna borgarstjórnarkosninga á
næsta ári. Hefur nefndin tilnefnt
16 einstaklinga og eru sumir
þeirra samkvæmt ábendingum og
tillögum félagsmanna. Einn nú-
verandi borgarfulltrúi, Adda
Bára Sigfúsdóttir gefur ekki kost
á sér í efstu sæti framboðslistans
að þessu sinni.
Margrét Pála Ólafsdóttir ritari
kjömefndar sagði í samtali við
Þjóðviljann í gær að þrátt fyrir að
þessar tillögur kjömefndar væm
komnar fram, gæfist félögum í
ABR enn kostur á að tilnefna á
forvalslistann. Fram á hádegi á
gamlársdag geta því fimm félagar
tekið sig saman um nöfn á listann
enda hafi viðkomandi einstkal-
ingur samþykkt tilnefninguna.
16-menningarnir á lista kjör-
nefndar em þessir: Anna Hildur
Hildibrandsdóttir skrifstofumað-
ur, Björk Vilhelmsdóttir nemi,
Erlingur Viggósson skipasmiður,
Gísli Sváfnisson kennari, Guð-
mundur Þ. Jónsson borgarfull-
trúi, Guðni Jóhannesson verk-
fræðingur, Guðrún Ágústsdóttir
borgarfulltrúi, Helga Sigurjóns-
dóttir kerfisfræðingur, Jóhannes
Gunnarsson formaður Neyt-
endasamtakanna, Margrét Ósk-
arsdóttir verkakona, Pálmar
Halldórsson framkvæmdastjóri
Iðnnemasambands íslands, Sig-
urjón Pétursson borgarfulltrúi,
Sigurður Einarsson verkamaður,
Sigurður G. Tómasson fulltrúi,
Tryggvi Þór Aðalsteinsson fram-
kvæmdastjóri MFA og Þorbjöm
Broddason lektor.
Fram á hádegi á gamlársdag
geta félagar í ABR sumsé enn til-
nefnt á forvalslistann og skal til-
nefningum komið til skrifstofu
AB að Hverfisgötu 105 eða til
kj ömefndarmanna.
-v.
Efri deild alþingis felldi í gær
með eins atkvæðis mun tillögu
Helga Seljan og fleiri um að
hækka framlag til Framkvæmda-
sjóðs fatlaðra á næsta ári úr 80
miljónum í 125. Stjómarliðamir
Albert Guðmundsson og Harald-
ur Ólafsson sátu hjá við atkvæð-
agreiðsluna en aðrir viðstaddir
stjórnarliðar greiddu atkvæði
gegn henni.
Helgi sagði í framsögu sinni að
framlag til sjóðsins væri allt of
lágt og eðlilegt væri að framlagið
væri hækkað um sömu hlutfalls-
tölu og framlagið til Fram-
kvæmdasjóðs aldraðra eða um
56%. Meðflutningsmenn Helga
vom Karl Steinar Guðnason,
Stefán Benediktsson og Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir.
-ÁI
íslenska
hljómsveitin
Alfadrottning
Purcells
Tónleikará
Akranesi, Selfossi,
Keflavík og
Reykjavík
Á næstu dögum mun íslenska
hljómsveitin, undir stjórn Guð-
mundar Emilssonar, flytja The
Fairy Queen, (Álfadrottninguna),
eftir breska tónskáldið Henry
Purcell, (1659-1695). Fyrsta verk-
ið var flutt í Safnaðarheimilinu á
Akranesi í gærkvöldi og síðan
þrjú næstu kvöld á sama tíma, í
kvöld í Selfosskirkju, miðviku-
daginn í Keflavíkurkirkju og
fimmtudaginn í Langholtskirkju.
Einsöngvarar syngja: Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Marta Halldórs-
dóttir, Hrönn Hafliðadóttir,
Katrín Sigurðardóttir, Gunnar
Guðbjörnsson og John Speigth.
Aðrir söngvarar eru: Sólveig
Björling, Elísabet Waage, Guð-
björn Guðbjörnsson, Kolbeinn
Ketilsson, Ánders Josephsson,
Sigurdríf Jónatansdóttir, Iris Erl-
ingsdóttir, Elín Sigmarsdóttir,
Hildigunnur Haraldsdóttir og
Halldór Vilhelmsson. Þá fara þær
Helga Ingólfsdóttir, semballeik-
ari og Ólöf Sesselja Óskarsdóttir
sellóleikari með stór einleikshlu-
tverk.
Tónleikunum lýkur með
fjöldasöng. Sungnir verða jóla-
sálmar og kirkjukórar viðkom-
andi safnaða leiða sönginn við
undirleik hljómsveitarinnar en í
Reykjavík Söngsveitin Fflharm-
onía.
Purcell samdi Álfadrottning-
una 32 ára gamall að tilhlutan
ensku hirðarinnar, þar sem hann
starfaði Iengst af. Hann hefur
jafnan verið talinn einn merkasti
enskra tónsmiða.
Um áramótin heldur íslenska
hljómsveitin svo fjölskyldutón-
leika með blásarasveit hljóm-
sveitarinnar. Flutt verða álfalög
og önnur létt tónverk. Tónleikar
þessir verða: í Selfosskirkju 27.
des. kl. 15.00, í safnaðarheimi-
linu á Akranesi þann 29. kl.
15.30, í Keflavíkurkirkju þann
30. kl. 16.00 ogíLangholtskirkju
2. jan. kl. 20.30.
-mhg
Ég var í snyrtingu strákar, sagði Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri VSf um leið og hann gekk til fyrsta fundar
ASÍ-VSÍ með bundið um fingur. Það eiga fleiri um sárt að binda. Ljósm. E.ÓI.
Viðrœður
Frestun
framyfir
áramót
í gær voru vinnuveitendum
kynntar meginkröfur verkalýðs-
hreyfingarinnar í komandi kjara-
samningum, en sem kunnugt er
eru samningar lausir um ára-
mótin. Það sem ASÍ lagði fram í
gær var það sama og kynnt var á
formannafundinum á dögunum,
en það eru sem fyrr segir megin-
kröfurnar.
Guðmundur Þ. Jónsson for-
maður Landssambands iðn-
verkafólks sagði eftir fundinn í
gær að vinnuveitendur hefðu
barmað sér að vanda er þeim
voru kynntar kröfur verkalýðs-
hreyfingarinnar. Guðmundur
sagði að vinnuveitendum hefði
verið skýrt frá því að landssam-
böndin innan ASÍ myndu leggja
fram sérkröfur. Var ákveðið að
fresta frekari fundahöldum fram
yfir áramót, en þó voru menn
sammála um að tæknivinna ýmis-
konar gæti hafist fyrr.
-S.dór
✓
Kl-úrsögnin
Sundrung eða sameining?
Kennararfara úr BSRB um áramótán samnings- eða verkfallsréttar.
Valgeir Gestssonformaður KÍ: Höfuðverkefni okkar aðfá samningsrétt.
Kristján Thorlacius formaður BSRB: Áfallfyrir kennara og verkalýðshreyfinguna íheild
egar Kennarasamband íslands
gengur úr BSRB um áramótin
hljóta að vakna upp spurningar um
hver framtíð þess verður og hvaða
áhrif úrsögn sjötta hluta félagsmanna
BSRB muni hafa á áhrifamátt þess í
kjarabaráttu.
Sameining kennara í eitt stéttarfé-
lag hefur lengi verið áhugamál
margra kennara, en það var ekki fyrr
en eftir verkfall BSRB í fyrrahaust að
úrsögn úr BSRB var íhuguð í alvöru.
Gengið var til atkvæða um úrsögn í
maí á þessu ári og töldu kennarar sig
þá hafa fengið nægilegan meirihluta
atkvæða fyrir úrsögn. Stjórn BSRB
var á öðru máli og lyktir urðu þær að
kennarar greiddu atkvæði enn á ný 9.
og 10. desember. Þar voru tekin af öll
tvímæli, mikill meirihluti félags-
manna KÍ vill yfirgefa heildarsam-
tökin og freista gæfunnar eftir nýjum
leiðum án samnings- eða verkfalls-
réttar. Stefnt er að sameiningu og
samvinnu við Hið íslenska kennarafé-
lag en ljóst er að af því verður ekki
fyrr en árið 1987, en benda má á að
félögin hafa þegar nokkra samvinnu
sín á milli innan Bandalags kenna-
rafélaga. Þó eru margir þeirrar skoð-
unar að aldrei verði af þeirri sam-
vinnu sem stefnt er að. En hvað segja
formenn KÍ og BSRB?
„Framtíðin er björt“
„Þessi úrslit eru ákaflega skýr. Það
verður höfuðverkefni okkar nú á
næstunni að fá samningsrétt og semja
við ríkisvaldið og ég á ekki von á öðru
en að það muni takast. Ég skal ekki
um það segja hvort það verði átaka-
laust, en þetta er spurning um hvort
starfsemi frjálsra verkalýðsfélaga er
leyfð í þessu landi eða ekki.
Úrsögn okkar er að sjálfsögðu
mikið áfall fyrir BSRB þar sem kenn-
arar voru stór hluti félagsmanna
bandalagsins.
Það er unnið að sameiningu KÍ og
HÍKogégá von á að endanlega verði
gengið frá því samkvæmt áætlun
1987. Starf okkar verður erfitt í fyrstu
en ég sé fram á bjarta framtíð kenn-
ara,“ sagði Valgeir Gestsson formað-
ur KÍ í samtali við Þjóðviljann í gær.
„Sigur
atvinnurekenda"
Kristján Thorlacius formaður
BSRB hefur sem vonlegt er verið
harðvítugur andstæðingur úrgöngu-
manna. „Þetta er fyrst og fremst áfall
fyrir kennara sjálfa. Úrsögnin veikir
stöðu launafólks og ekki síst stöðu KÍ
og BSRB í kjarabaráttunni. Ég iít
þannig á að atvinnurekendur séu hin-
ir raunverulegu sigurvegarar í þessu
máli,“ segir Kristján.
Þær raddir hafa heyrst að úrsögn
kennara og reyndar fleiri eigi sér or-
sök í skipulagi BSRB sem baráttu-
tækis og BSRB hafi lengi verið að
grafa sér sína eigin gröf hvað það
snetir. Kristján svaraði því til að
vissulega þyrfti að taka uppbyggingu
samtakanna til endurskoðunar en
það væri ekki hægt að benda á starf
BSRB sem orsakavald í þessu efni.
„Á þingi okkar í haust var samþykkt
að setja á laggir skipulagsnefnd og í
vor verður haldið aukaþing sem fjalla
mun um skipulagsmál, þar sem
ákveðið verður hvernig bregðast á við
þessum nýju viðhorfum. Það sem að
mínu mati þarf til að gera BSRB að
hæfara baráttutæki eru aukin rétt-
indi, t.d. verkfallsréttur um sérkjar-
asamninga.
Ákveðin viðhorf í þessu þjóðfélagi
eru veikleiki verkalýðshreyfingarinn-
ar sem stendur, en ég trúi á langlífi
BSRB og vona að breytingar muni
stuðla að því að BSRB nýtist enn bet-
ur sem tæki í kjarabaráttu," sagði
Kristján í gær. -gg
Þriöjudagur 17. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3