Þjóðviljinn - 17.12.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 17.12.1985, Blaðsíða 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 81663. DJOÐVHJINN Priðjudagur 17. desember 1986 291. tölublað 50. örgangur. Grandi hf. 400 sagt upp um jólin Uppsagnir 400 starfsmanna Grandahf taka gildi á Þorláksmessu. Ragna Bergmannformaður Framsóknar: Höfum mótmælt þessum uppsögnum. Hörð jólagjöftilfiskvinnslufólks. Uppsagnir fiskvinnslufólks á Akranesi og víða um land Um 400 starfsmenn fiskvinnslu- fyrirtækisins Granda hf. hafa fengið uppsagnarbréf og munu uppsagnirnar taka gildi að viku liðinni, á Þorláksmessu. Búist er við að atvinnuleysi muni vara fram yfir áramót. „Þetta er fjórða árið í röð sem gripið er til jólauppsagna hér í Reykjavík og þætti mörgum hörð jólagjöf. Það skýtur skökku við Forgangsverkefni Brennivín eða böm? HluturÁTVRí Hagkaupshúsið er jafnhár öllum framkvœmdum við dagvistarstofnanir á nœsta ári Framlag ríkisstjórnarinnar til ÁTVR vegna byggingar í Nýja miðbænum í Reykjavík nam sem kunnugt er 40 miljónum króna en það er jafn mikið og á næsta ári verður varið úr ríkissjóði til framkvæmda við allar dagvistar- stofnanir í landinu. Geir Gunnarsson rifjaði upp í ræðu sinni á Alþingi s.l. föstudag að á sama tíma og félagslegar framkvæmdir eru skornar niður við trog, hafa stjórnvöld afsalað ríkinu tekjum með sérstökum ívilnunum til fyrirtækja og fjár- magnseigenda. Á sama tíma og niðurskurðurinn er afsakaður með því að draga verði úr fjár- festingum til að hamla gegn er- lendri skuldasöfnun, sé hins veg- ar ekkert lát á framkvæmdum í þjónustugreinum í einkarekstrin- um á þéttbýlissvæðinu. Síðan sagði Geir: „Og þegar ráðamenn í ríkisstjórninni taka að hafa áhyggjur af því að ekki sé nógu tryggur framgangur á upp- byggingu 28 þúsund fermetra verslunarmiðstöðvar í Nýja mið- bænum í Reykjavík - þá eru án þess að það þurfi að samþykkja á Alþingi lagðar í púkkið 40 miijón- ir úr ríkissjóði sem er hlutur Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Það er jafnhá upphæð og ríkið veitir á næsta ári til fram- kvæmda við allar dagvistarstofn- anir á landinu“. „Þessi afstaða stjórnvalda ann- ars vegar til samfélagslegra fram- kvæmda og hinsvegar einkabrasksi- ins sýnir hvaða hagsmunum stjórnarflokkarnir þjóna,“ sagði Geir. -ÁI að þetta komi upp á meðan Verkamannasambandið og VSÍ eru að vinna að samkomulagi um aukið atvinnuöryggi fiskverkun- arfólks. Mér er ekki kunnugt um að önnur fiskvinnslufyrirtæki hafi sagt sínu fólki upp fyrir jólin, en við höfum mótmælt þessum upp- sögnum," sagði Ragna Bergmann formaður verkakvennafélagsins Framsóknar í Reykjavík í samtali við Þjóðviljann í gær. Jón Rúnar Kristjánsson hjá Granda sagði í gær að uppsagn- irnar stafi af hráefnisskorti þar sem togarar fyrirtækisins stöðv- ast nú yfir hátíðirnar. Atvinnuástand í fiskvinnslu er mjög ótryggt víða um landið. í gær fengu um 100 starfsmenn Haraldar Böðvarssonar á Akra- nesi uppsagnarbréf sín og er það einnig að sögn vegna hráefnis- skorts. Nær öllu fiskverkunar- fólki á Akranesi hefur þá verið sagt upp störfum yfir jólin, og má ætla að það séu hátt á þriðja hundrað manns. Uppsagnarfrest- urinn er vika. Bent hefur verið á tvífyrstingu sem hugsanlega lausn á þessum vanda sem er landiægur hér og í skýrslu um iaun og launakostnað í Noregi, Danmörku og Englandi segir að þess séu dæmi í Noregi að frystihús hafi ekki stöðvast vegna hráefnisskorts í tíu ár. Þá segir um atvinnuöryggi fiskvinnslu- fólks í Danmörku að hægt sé að segja fiskvinnslufólki upp fyrir- varalaust, en það fari þá strax á atvinnuleysisbætur er nema um 90% af launum. -gg „Okkur sýnist vera einhver feluleikur í gangi hjá ráðamönnum varðandi LÍN", segja þeir Björn Rúnar Guðmundsson (t.v.) og Högni Eyjólfsson (t.h.). Lánasjóður íslenskra námsmanna Á að skera niður um þriðjung? Samkvœmtfjárlagafrumvarpi vantar 600-700 miljónir króna til að fjárþörf sjóðsins séfullnœgt. „Öbragð afþessu, “ segjafulltrúar námsmanna Af þeim upplýsingum sem nú eru handbærar virðist mega ráða að skera eigi niður framlög til Lánasjóðs íslenskra náms- manna fyrir næsta ár um 1/3 af áætlaðri fjárþörf, eða tæplega 40%, sögðu þeir Björn Rúnar Guðmundsson og Högni Eyjólfs- son hjá SÍNE (Samband íslenskra námsmanna erlendis) í samtali við Þjóðviljann í gær. Þeir Björn og Högni sögðu að samkvæmt nýjustu áætlun LÍN sé fjárþörf sjóðsins fyrir árið 1986 um 1.800 miljónir króna. í því fjárlagafrumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi eru honum hins veg- ar ætlaðar 1.100 miljónir króna. „Það vantar því 600 til 700 milj- ónir króna og ef þetta á að ganga í gegn verður að breyta lögum um lánasjóðinn, siíkar áætlanir hafa ekki komið fram í stjórn lána- sjóðsins," sagði Björn Rúnar. Högni sagði að í sumar hefði verið skipuð nefnd til að endur- skoða ýmislegt varðandi starf- semi lánasjóðsins en sú endur- skoðun snerti ekki fjárþörf sjóðs- ins og nefndarmenn hefðu neitað því að nokkuð slíkt væri rætt á fundum nefndarinnar. Ýmsir stjórnarþingmenn hafa hins vegar sagt að þeim fyndist það vera hlutverk þessarar nefndar að koma þessum málum í eðlilegt horf. „Nú spyr maður sig hvort það séu einhverjar aðrar hugmyndir í gangi um þetta mál, “ sagði Högni. „Það hefur komið fram í fréttum að menntamála- ráðherra hafi sagt að hugmyndir um lausn þessara mála verði lagðar fram eftir jólaleyfi þing- manna. Hverjar eru þessar hug- myndir? Þær hafa ekki komið fram í stjórn lánasjóðsins og okk- ur finnst eitthvert óbragð af þessu öllu,“ sagði Högni. Þeir Björn Rúnar og Högni sögðu að því hefði verið lýst yfir hátíðlega í haust að ekki ætti að skera niður framlög til mennta- mála og að nú ætti að lána 100% af áætlaðri framfærsluþörf. „Það verður fylgst vel með því hvort ráðamenn standa við þessi orð sín,“ sögðu þeir Björn Rúnar og Högni. IH íslandslax 125 lúður í fóðureldi Fyrsta tilraun sem gerð ermeð lúðueldi. Rannsóknaverkefni Islandslax, Hafrannsóknastofnunar og Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins Fiskeldisstöðin íslandslax við Grindavík hefur I samvinnu við Hafrannsóknastofnun og Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins sett af stað 6 mánaða rann- sóknaverkefni á lúðueldi. Á ann- að hundrað smálúður eru komn- ar í eldisker og una sér hið besta að sögn Jóns Þórðarsonar stöðv- arstjóra hjá íslandslaxi. Farnar voru tvær veiðiferðir með dragnótarbát frá Keflavík í lok síðustu viku og veiddust alls 132 smálúður. í gær voru 125 lúð- ur á lífi og mikill skvettugangur í eldisbúrinu. Innan um lúðurnar voru fimm aðrar fisktegundir, þorskur, ýsa, sólkoli, sandkoli og rauðspretta. „Það gengur vel að fóðra þorskinn og það er spurn- ing hvort hann getur ekki kennt lúðunni að taka tilbúið fóður,“ sagði Jón Þórðarson. Tilraun sem þessi, að ala upp smálúðu hefur aldrei verið gerð áður. „Við erum mjög spenntir fyrir þessu. Það er óvíst hvað við ölum lúðuna upp í stóra stærð. Það verður fyrst að koma í ljós hvernig hún tekur við fóðrinu en framtíðarhugmyndin er að kaupa smálúðu af dragnótarbátum helst sem allra smæsta og ala hana hér upp,“ sagði Jón. ->g- Forstjórar í skugganum Lítið hefur fjölmiðlum orðið ágengt við að fá skýringar for- stjóra og annarra forystumanna Hafskips á þeim kollhnís sem fyr- irtækið hefur tekið að undan- förnu. Björgúlfur Guðmundsson hafði lofað viðtaii í Sunnudags- blað Þjóðviljans fyrir skömmu en hætti við á síðustu stundu. í gær barst svo Helgarpóstinum bréf frá Ragnari Kjartanssyni þar sem hann dregur til baka loforð um viðtal í HP. Kvaðst hafa ráðfært sig við lögmenn og þeir talið að best væri að segja sem minnst. T Happdrætti Þjóðviljans - Dregið 13. janúar - Gerið skil!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.