Þjóðviljinn - 17.12.1985, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 17.12.1985, Blaðsíða 5
ÞJÓÐMÁL UN Námslánin skorín 200-250 miljónir vantar upp áfjárveitingu nœsta árs. Sverrir undirbýr breyttar lánaregl- ur til að lœkka lánin Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra og ríkisstjórnin hafa í bígerð að breyta iánaregl- um og iækka lán til námsmanna um 200-250 miljónir króna á næsta ári. Til verksins hefur Sverrir skipað ýmsa forkólfa Sjálfstæðisflokksins í mennta- málum og er ætlunin að sú nefnd ijúki ekki störfum fyrr en eftir lokaafgreiðslu fjárlagafrum- varpsins. Geir Gunnarsson vakti athygli á því á föstudag aö framlög til Lánasjóðs íslenskra námsmanna eru 200-250 miljónum króna lægri í fjárlagafrumvarpinu en óbreyttar lánareglur sjóðsins gefa til kynna. „Þegar spurt er hvaða breytingar sé fyrirhugað að gera á lánareglum sjóðsins, fást engin svör,“ sagði hann. Pálmi Jónsson, formaður fjár- veitinganefndar sagði að LÍN biði afgreiðslu nefndarinnar við 3. umræðu. Hann rifjaði upp orð sín frá í fyrra um að gott væri að geta búið vel að námsmönnum en nauðsynlegt væri að staldra við og hugleiða hversu langt ætti að ganga í því efni. „Nú er ég enn sannfærðari um að orð mín fyrir ári síðan um nauðsyn þess að endurskoða lög sjóðsins og reglur um lánveitingar voru tímabær," sagði Pálmi. Pálmi sagði að lánveitingar til sjóðsins hefðu á s.l. árum hækk- að um 450% á sama tíma og fram- færsluvísitalan hefði hækkað um 215%. Lánveitingarnar hefðu því hækkað um 75% að raungildi á undanförnum 4 árum og næmu í ár rúmlega einum miljarði króna. -ÁI Geir Gunnarsson: Engin svör fást þegar spurt er hvað eigi til bragðs að taka varðandi fjárvöntun Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Ríkisfjármálin Aukin erlend lantaka Ný lán 3,7 miljarðar, af- borganir afgömlum 2,9 miljarðar Ríkisstjórnin stefnir að því að erlendar lántökur á næsta ári verði hærri en nemur afborgun- um á eldri lánum. Geir Gunnarsson hrakti þær fullyrðingar sem raktar eru í greinargerð með fjárlagafrum- varpinu en þar segir að eitt af meginmarkmiðum frumvarpsins sé að „nýjar erlendar lántökur opinberra aðila verði ekki meir en nemur afborgunum eldri gengisbundinna lána.“ Hann benti á bréf Fjárlaga- og hagsýslustofnunar frá 2. desemb- er þar sem staðfest er að þessar fullyrðingar eru rangar. Þvert á þær munu erlendar lántökur op- inberra aðila á næsta ári nema 3,7 miljörðum króna en afborgir af eldri lánum íslendinga eru 2,9 miljarðar. -Á1 Vítahringur Erlend lán til að borga vexti Vextir affjárlagahalla þessa árs eru hœrri en öll framlög til skóla og sjukrah ússbygginga. Launakostnaður Hæpinn spamaður Heimildir fyrir 156 nýjum stöðum en skera á 230 skv. frumvarpinu Ríkisstjórnin Báknið blómstrar Aukning ríkisútgjalda nemur sjöfölduframlagi til félagslegrafram- kvæmda á nœsta ári Ríkisútgjöld á næsta ári verða að raungildi 2.500 miljónum króna hærri en þau voru á árinu 1984 og nemur þessi hækkun sjö- faldri þeirri upphæð sem á næsta ári verður varið samanlagt til dagvistarheimila, grunnskóla- bygginga, bygginga sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva og hafnar- framkvæmda sveitarfélaga og flugvallargerðar. Geir Gunnarsson minnti á að stjórnarflokkarnir hafa keppst við að reyna að festa það í hug manna að í stjórnartíð þeirra hafi síaukið aðhald verið viðhaft í rík- isrekstri og dregið úr heildarút- gjöldum með ári hverju. Þetta væri m.a. sú skýring sem þeir gæfu á stórfelldum niðurskurði nauðsynlegustu framkvæmda. „Þetta er alrangt,“ sagði Geir. „Ríkisútgjöld jukust stórlega að raungildi milli áranna 1984 og 1985 og enn gerist sama sagan við þá fjárlagaafgreiðslu sem nú fer fram.“ Hann sýndi fram á að samtímis því að heildarútgjöld ríkissjóðs hafa hækkað verulega að raun- gildi hafa framlög til verklegra framkvæmda verið markvisst skorin niður á stjórnartímanum. Það væri því alrangt að niður- skurður framkvæmdaframlaga væri þáttur í heildarniðurskurði ríkisútgjalda. „Þau hafa aukist og aukast enn að raungildi á næsta ári þegar samtímis er gengið lengra en nokkru sinni fyrr í nið- urskurði framlaga til nauðsynleg- ustu samfélagslegu fram- kvæmda," sagði hann. „Það er ástæða til að taka fyrir- ætlunum um sérstakan sparnað í launaútgjöldum ríkissjóðs með nokkurri varúð,“ sagði Geir Gunnarsson m.a. um fjárlaga- frumvarp næsta árs, þar sem gert er ráð fyrir að launaútgjöld verði lækkuð um 130 miljónir króna með því m.a. að endurráða ekki í störf sem losna og minnka yfir- vinnu. Geir benti á að ríkisstjórnin hefur nú haft ríflega 2 og hálft ár til að beita þessari aðferð við sparnað í ríkisrekstrinum og sagði að einkum hefði verið ástæða til að huga að framkvæmd hennar á þessu ári, þegar við blasir stórfelldur hallarekstur á ríkissjóði. Það hefði ekki verið gert, heldur hefði þvert á móti verið samþykkt 61 nýtt stöðugildi umfram fjárlög á árinu 1985. Fyrir þeim og 95 nýjum stöðum til viðbótar skv. frumvarpinu fyrir næsta ár þyrfi að áætla á fjár- lögum framvegis. Þessar 156 nýju stöður, sem Geir benti á eru 68% af fyrirhug- uðum sparnaði, en 130 miljónir á ári, sem spara á jafngilda 230 stöðugildum. Geir sagði einnig ástæðu til að efast um framkvæmd sparnaðar- tillagna sem byggðust á því að draga úr yfirvinnu á sama tíma og aðalvandi ríkisstofnana væri að halda starfsfólki vegna þess hve bág launakjörin væru. Hann sagði að sér væri ekki grunlaust um að launagreiðslur vegna unn- innar og óunninnar yfirvinnu hefðu aukist upp á síðkastið, þvert ofaní ítrekaðar sparnaðar- yfirlýsingar stjórnvalda á þvi sviði. „Er það vorkunnarmál miðað við launakjör ríkisstarfs- manna en þeim mun óraunhæf- ara að flytja breytingartillögu sem gengur í þveröfuga átt ein- ungis til að reyna að ná saman Fjárlagahallinn á þessu ári er talinn munu nema allt að 2500 miljónum króna eða ríflega þref- aldri þeirri upphæð sem fjárlög gerðu ráð fyrir. Þessi aukni halli hefur verið fjármagnaður með seðlaprentun eða eins og það heitir á máli Þorsteins Pálssonar, „með lánum fyrir milligöngu Seðlabankans.“ Geir Gunnarsson benti m.a. á það í ræðu sinni fyrir helgi að fjár- lagahallinn í ár er ríflega sex-falt gjaldþrot 'Hafskips eða 8000 krónur á hvert mannsbarn í landinu. í septemberlok voru skuldir ríkissjóðs hjá Seðlabank- anum orðnar yfir 4 miljarðar króna en voru í upphafi árs rúmur 1,2 miljarður. Geir rifjaði upp varnaðarorð endum á pappírnum við fjárlagaafgreiðsluna," sagði hann. -Á1 sín og annarra stjórnarandstæð- inga við fjárlagaumræðuna í fyrra en þá spáði hann að fjárlagahall- inn yrði ekki 750 miljónir eins og fullyrt var, heldur 2 miljarðar króna. Ekki hefði verið hlustað á þau varnaðarorð heldur tekin ný lán og prentaðir nýir seðlar og loks látið vaða á súðum í auka- fjárveitingum langt fram á haust a.m.k. Afleiðingin væri sú að nú væri gert ráð fyrir 10% aukningu á lántökum ríkissjóðs á næsta ári og erlendar lántökur munu aukast um 42% Fyrirsjáanlegt væri að þessar tölur myndu hækka, þar sem fjárlagahallinn á þessu ári og því næsta væri vaná- ætlaður í fjárlagafrumvarpi ríkis- stjórnarinnar. Vaxtagreiðslur af auknum fjárlagahalla þessa árs eru hærri en öll framlög ríkissjóðs í ár til grunnskólabygginga, sjúkrahús- bygginga og bygginga heilsugæsl- ustöðva í landinu. Þetta upplýsti Geir Gunnars- son m.a. í ræðu sinni um fjárlag- afrumvarp ríkisstjórnarinnar á föstudag. Hann sagði að einu við- brögð ríkisstjórnarinnar við tæpri þreföldun fjárlagahallans á þessu ári hefðu verið að taka ný lán í Seðlabankanum. Af þeim þyrfti á næsta ári að greiða 860 miljónir króna í afborgarnir en auk þess þarf líka að taka a.m.k. 200 milj- ónir króna í lán fyrir vöxtum af þessum sömu lánum! Hér er að- eins um að ræða lán til að brúa þann aukna halla, sem fjárlög ársins gerðu ekki ráð fyrir. I heild nemur lántaka á næsta ári 1500 miljónum króna vegna fjár- lagahallans í ár. „Lántakan vegna vaxta- greiðslu af hallanum veldur síðan nýjum vaxtaútgjöldum," sagði Geir. „Þannig er vítahringurinn sem verið er að stofna til. Aðeins vaxtagreiðslurnar vegna aukins halla á þessu ári er hærri fjárhæð en veitt er til bygginga grunn- skóla, sjúkrahúsa og heilsugæsl- ustöðva í landinu.“ -ÁI Sjónvarpið Þorsteinn á beininu Þorsteinn Pálsson fjármálaráð- herra mun sitja fyrir svörum í sjónvarpinu í kvöld. Páll Magnússon fréttamaður stýrir skothríðinni á ráðherrann en honum til aðstoðar verða þeir Óskar Guðmundsson og Elías Snæland Jónsson. Fjárlagafrum- varpið verður að sjálfsögðu til umræðu og fróðlegt að fylgjast með hvernig ráðherranum tekst að stoppa upp í gatið. Ríkisfjármál Lausn stjómvalda er seðlaprentun! Hallinn á ríkissjóði fjármagnaður með nýjumseðlum ognýjumlánum Þriðjudagur 17. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.