Þjóðviljinn - 17.12.1985, Blaðsíða 9
Samningur um kjamorkuvopnalaus
Norðurlönd strax á næsta ári?
Jákvœð niðurstaða eftir ráðstefnu norrœnna þingmanna í Kaupmannahöfn
umsíðustu mánaðamót. Framhald ákveðið
Sósíaldemókrata munu hafa frumkvæði að því að stofna norræna vinnunefnd sem mun kanna alla möguleika og leiðir til
þess að Norðurlöndin gæti orðið kjarnorkuvoþnalaus. Anker Jörgensen í ræðustól á ráðstefnu norrænna þingmanna i
Kauþmannahöfn um síðustu mánaðamót.
Það var heilbrigð skynsemi sem
réð úrslitum á ráðstefnu um
kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd.
Ráðstefnan var haldin í Kaup-
mannahöfndagana30. nóvem-
berog 1. desember sl. Þátttak-
endur voru frá öllum stjórnmála-
flokkum sem eiga fulltrúa á þing-
um Norðurlandanna, - auðvitað
líka Færeyja, Grænlands og Á-
landseyja. Ofstækismenn ysttil
hægri áttu ekki upp á pallborðið á
ráðstefnunni. Hún markarþví
tímamót í umræðum um utan-
ríkismál á Norðurlöndum. Með
henni er vakin á ný hugmyndin
um norrænt samstarf i öryggis-
og varnarmálum.
Svavar Gestsson
formaður
Alþýðubandalagsins,
skrifar
Ráðstefnan var undirbúin af 10
manna nefnd sem var skipuð
tveimur mönnum frá hverju
fimm ríkja Norðurlanda. Undir-
ritaður og Ólafur G. Einarsson
voru í undirbúningsnefndinni af
íslands hálfu. í nefndinni voru
auk okkar fjórir sósíaldemókrat-
ar frá öðrum Norðurlöndum, og
fjórir fulltrúar hægri flokka og
miðflokka. Formaður undirbún-
ingsnefndarinnar var Anker
Jörgensen formaður danska sósí-
aldemókrataflokksins. Hann á
fremur en aðrir stjórnmálamenn
heiðurinn af því að ráðstefnan
var haldin. „Heiðurinn“ vegna
þess að þetta er í fyrsta sinn sem
norrænir þingmenn frá öllum
stjórnmálaflokkum ræða um
öryggis- og varnarmál á sam-
eiginlegri ráðstefnu, en ályktanir
um þau efni hafa verið bannaðar í
Norðurlandaráði eins og kunnugt
er. Fyrir ráðstefnuna var ekki
gert ráð fyrir öðru en umræðum,
en í tengslum við ráðstefnuna
urðu síðan til niðurstöður sem
nánar verður fjallað um hér á
eftir - niðurstöður sem fóru fram
úr björtustu vonum okkar sem
helst bindum vonir við uin-
ræðuna um kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd.
Hlutur
íslendinga
íslendingar sendu átta alþing-
ismenn til ráðstefnunnar og tóku
þeir allir til máls. í ræðu minni
komst ég svo að orði meðal ann-
ars:
„í framhaldi af þessari ráð-
stefnu væri eðlilegt að setja niður
vinnuhóp stjórnmálamanna til
þess að fara nánar yfir þau vanda-
mál sem tengjast kjarnorku-
vopnalausu svæði á Norður-
löndum. Það væri eðlilegast að
þingmenn frá Norðurlöndunum
tækju þátt í starfi vinnuhópsins
frá hinum ýmsu stjórnmálaflokk-
um... Nú ber að fara yfir þau
dæmi sem liggja fyrir um kjarn-
orkuvopnalaus svæði, og síðan að
leggja fram uppkast að samningi
um kjarnorkuvopnalaus Norður-
lönd til umræðna á Norður-
löndum öllum. Eftir slíka um-
ræðu er unnt að knýja frarn af-
stöðu til málsins í endanlegu
formi". íræðuminnibentiégáað
þegar hafa um 40 ríki gerst aðilar
að samningum um kjarnorku-
vopnalaus svæði, þ.e. í Mið- og
Suður-Ameríku og í Suður-
Kyrrahafi. Rætt er auk þess um
kjarnorkuvopnalaust svæði á
Balkanskaga og í Mið-Evrópu.
Umræðan um kjarnorkuvopna-
laus Norðurlönd verður því að
skoðast í tengslum við alþjóðlega
umræðu um öryggismál. Um-
ræðan er því ekki einangruð við
Norðurlöndin eins og andstæð-
ingar hugmyndarinnar um kjarn-
orkuvopnalaus Norðurlönd vilja
stundum vera lát.
Kristín S. Kvaran frá Banda-
lagi jafnaðarmanna tók ákveðið
undir þá kröfu að athugunum á
hugmyndinni yrði haldið áfram.
Hið sama gerði Guðrún Agnars-
dóttir, Samtökum um kvenna-
lista, sem flutti í ræðu sinni
kveðju frá sex friðarsamtökum á
íslandi og sérstaka kveðju frá
Pétri Sigurgeirssyni, biskupi.
Ingvar Gíslason, Framsóknar-
flokki, dreifði á ráðstefnunni
upplýsingum um afstöðu síns
flokks til kjarnorkuvopnalausra
Norðurlanda. Hafði þannig kom-
ið fram eindreginn stuðningur
fjögurra stjórnmálaflokka á al-
þingi.
Fundinn sóttu einnig þrír þing-
menn Sjálfstæðisflokksins. Þeir
lögðu allir áherslu á að athugun
kjarnorkuvopnalausra Norður-
landa yrði að gerast í tengslum
við NATO, en aðalforsenda
Íæirra var engu að síður þátttaka
slands í þessum umræðum, eða
eins og Birgir ísleifur Gunnars-
son komst að orði:
„Ég er ákveðið þeirrar skoðun-
ar að við eigum að taka þátt í
skoðanaskiptum og umræðum
um þessi málefni, til þess að geta
gert okkur Ijóst hvernig við best
getum tryggt öryggishagsmuni ís-
lands og Norðurlandanna og
heimsfriðinn í heild. Það er til
dæmis afar mikiivægt fyrir ís-
land, að hvorki á Norðurlöndum
eða annars staðar verði teknar
ákvarðanir sem hefðu í för með
sér aukningu á kjarnorkuvopn-
um á íslenska hafsvæðinu“.
Óiafur G. Einarsson og Eyjólf-
ur Konráð Jónsson tóku í sama
streng. Ég hef leyft mér að túlka
ummæli þingmanna sem já-
kvæðar undirtektir við málið.
Einn þingmanna frá íslandi
Jón Baldvin Hannibalsson, sner-
ist öndverður og skipaði sér
þannig hægra megin við íhaldið
með flokkum sem eru lengst til
hægri í litrófi norrænna stjórn-
mála. Vakti hann athygli sem eini
fulltrúi sósíaldemókrata á Norð-
urlöndum sem þannig brást við.
Yfirlýsing
um áframhald
Seinni ráðstefnudaginn hélt
undirbúningsnefndin blaða-
mannafund. Þar lögðu fulltrúar
sósíaldemókrataflokkanna fram
yfirlýsingu af sinni hálfu, sem
hljóðaði á þessa leið:
„Yfirlýsing frá norrænum
sósíaldemókrötum.
Sósíaldemókratar á Norður-
löndum munu hafa frumkvæði að
því að stofna norræna vinnu-
nefnd, sem starfi áfram að því að
fara yfir vandamál og möguleika
við að Norðurlöndin verði kjarn-
orkuvopnalaus.
f vinnunefndinni verði þing-
menn, sem eru fulltrúar fyrir
flokkana í þjóðþingum Norður-
landanna.
Sósíaldemókratar á Norður-
löndum skora jafnframt á ríkis-
stjórnirnar að setja á stofn sam-
eiginlega norræna embættis-
mannanefnd, sem sömuleiðis -
jafnvel í samstarfi við þing-
mannahópinn - fari yfir vanda-
mál og möguleika við það að
Norðurlöndin verði lýst kjarn-
orkuvopnalaus svæði.
Sósíaldemókratar á Norður-
löndum munu í sínum þingum
hafa frumkvæði að því að fylgja
umræðunum eftir.
Sósíaldemókratar vilja einnig
að í náinni framtíð verði haldinn
annar fundur um Norðurlönd
sem kjarnorkuvopnalaust svæði".
Þegar þessi yfirlýsing kom
fram vakti hún mikla athygli og
kallaði þegar á stuðningsyfirlýs-
ingar frá hópum þingmanna.
Þannig sendu fulltrúar níu
stjórnmálaflokka tafarlaust
stuðningsyfirlýsingu. Það voru
fulltrúar Alþýðubandalagsins,
Bandalags jafnaðarmanna og
Kvennalistans, SF í Danmörku,
SV í Noregi, Umhverfisverndar-
flokksins í Finnlandi og Lýðræð-
isbandalagsins þar, fulltrúi Rót-
tæka vinstri flokícsins í Dan-
mörku og Þjóðveldisflokksins í
Færeyjum. Þá lá fyrir að mið-
flokkarnir studdu yfirlýsinguna,
ennfremur fulltrúar grænlensku
flokkanna og vafalaust fleiri. Þar
með er Ijós meirihluti í öllum
norrænu þingunum fyrir hug-
myndinni um kjarnorkuvopna-
laus Norðurlönd.
86% íslendinga styðja hug-
myndina um kjarnorkuvopna-
laus Norðurlönd. í Danmörku er
sambærileg tala 72%. Yfirgnæf-
andi meirihluti íbúa á Norður-
löndum er hlynntur þessari hug-
mynd og krefst nánari útfærslu
hennar.
Hvað svo?
Nú má gera ráð fyrir að eftir
áramótin hefjist á ný vinna að út-
færslu tillögunnar um kjarnorku-
vopnalaus Norðurlönd. Þegar
liggja fyrir tillögur að samningi
um kjarnorkuvopnalaus Norður-
lönd. Þá liggur fyrir samningur
tveggja ríkjahópa um kjarnorku-
vopnalaus svæði. Þessi samnings-
drög þarf nú að athuga ítarlega og
komast að niðurstöðu sem fyrst,
helst á árinu 1986. Með samningi
um kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum væru mörkuð
þáttaskil; þá ættu Norðurlöndin
öll á ný samleið í öryggismálum
eftir áratuga aðskilnað. Ég er
sannfærður um að alþingi íslend-
inga tekur jákvætt á málinu og er
hugmyndinni hlynnt að meiri-
hluta til - yfirgnæfandi meiri-
hluta. Það virðist því komið að
þáttaskilum, ef svo heldur fram
sem horfir.
íslendingar hafa um árabil ver-
ið ofurseldir vígbúnaði stórveld-
anna á Norður-Atlantshafi sem
við höfum dregist inn í vegna þess
að hér er bandarísk herstöð og
vegna þess að stjórnvöld hafa
alltaf verið höll undir hina amer-
ísku utanríkisstefnu. Ein leið til
að breyta því er aðild landsins að
kjarnorkuvopnalausum Norður-
löndum. Vissulega eru hér ekki
kjarnorkuvopn að sögn. Og
mikilvægur var áfanginn á síðasta
þingi er alþingi samþykkti að hér
skuli ekki vera kjarnorkuvop.
Aðild að kjarnorkuvopnalausu
svæði á Norðurlöndum er næsta
skref. Ég er bjartsýnn ef
heilbrigð skynsemi fær að ráða
úrslitum áfram, ef meirihluti al-
þingis tekur eindreginn vilja
þjóðarinnar fram yfir skipanir
Bandaríkjastjórnar.
Þriðjudagur 17. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13