Þjóðviljinn - 17.12.1985, Side 4

Þjóðviljinn - 17.12.1985, Side 4
ISLENSKAR SKALDSOGUR // \«h(/utí.V<t / SKILNINGSTRÉÐ Sigurður A. Magnusson Heimsstyrjöld er að Ijúka, Reykjavík orðin höfuðstaður lýð- veldis, fjármagn hefur streymt til þessa þorps „sem hafði ekki enn uppburði til að kalla sig borg.“ Hvert skal halda? er spurningin sem brennur á allra vörum. Þessi vandi snertir Jakob einnig per- sónulega: Hvaða leið á hann að velja í þessu lífi? Að baki er heimur saggafullra bragga og harðneskju, upp eru runnin menntaskólaárin með margvíslegum hugðarefnum og freistingum. Skilningstréð er fjórða bindið í uppvaxtarsögu Jakobs; hin fyrri eru Undir Kalstjörnu, Möskvar morgundagsins og Jakobsglím- an. Bækur þessar hafa notið ein- stakra vinsælda fyrir minnis- stæðar mannlýsingar og næman skilning á upplifun æskunnar. Útg.: Mál og menning Verð: 1290 kr. m. sölusk. ELDUR OG REGN Vigdís Grímsdóttir Með nýju smásagnasafni leiöir Vigdís Grímsdóttir þig um furður veraldar þinnar, sækir óspart til ævintýra þjóðsagna, biblíu og goðsagna, kallar þig á fund huldufólks, trölla, drauga og djöfla, gefur þér kost á að glíma við gátur og þrautir sem hvar- vetna blasa við þér og sýnir þér að dálítið liggur við hver svör þín verða. Vigdís kvaddi sér hljóðs sem sagnaskáld með smásagnasafn- inu Tíu myndir úr lífi þínu er út kom 1983. Það hlaut einróma lof bókmenntagagnrýnenda og vakti hrifningu fjölda lesenda: Nýja bókin hennar mun vekja at- hygli og umtal. BUND VAKA-HHLGAFELl LEITIN AÐ LANDINU FAGRA Guðbergur Bergsson í þessari bók Guðbergs Bergs- sonar segir sögumaður, Hug- borg vini sínum frá leit íslendinga að landinu fagra, sem þeir halda að sé eyja þar sem kartöflurnar vaxaísnjó. Þettaerviðburðaríkur leiðangur og fullur af óvæntum uppákomum, og áður en yfir lýk- ur hefur frásögnin tekið á sig blæ nútímaævintýris, þar sem segir af ástum Kallamalla og Krísurófu, því „ástin, er sú kartafla sem vex í snjó og ekkert fagurt land er tij nema líkami þess sem elskar." í Leitinni að landinu fagra hefur Guðbergur af mikilli kunnáttu fléttað saman sögu um leitina að sæluríkinu, með ótal skemmti- legum tilvísunum til viðburða og hugmyndaátaka samtímans. Útg.: Mál og menning Verð: 1190 kr. m. sölusk. GULLEYJAN Einar Kárason Sögusvið Gulleyjunnar er Thule- kampur á sjöunda áratugnum. í miðju sögunnar er þessi ein- kennilega fjölskylda í Gamla hús- inu: Karólína spákona og kaup- maðurinn Tommi, Grettir, þessi lágmælti og húmorslausi stritari í vinnuskúrum höfuðstaðarins, konan hans Dollí og börn hennar þrjú, töffarinn Baddi og sá ofvax- ni flugkappi Daníel, sem lúrir á einhverju sem enginn skilur fyrr en um seinan. Hér segir frá mesta glæpamanni landsins, Grjóna heyrnarlausa, frá för Grettis og Dollíar á þjóðhátíð austur á land og afrekum Badda í byggingarvinnu. Hér segir frá ár- unum gullnu í lífi fjölskyldunnar og áfallinu mikla. Gulleyjan er þriðja skáldsaga Einars Kárasonar. Útg.: Mál og menning Verð: 1190 kr. m. sölusk. BLINDÁLFAR Páll H. Jónsson. Blindálfar er fyrsta skáldsaga Páls H. Jónssonar sem ætluð er fullorðnum. Þetta er áhrifamikil saga um örvæntingarfulla leit að lífsfyllingu - skáldsaga um drauma og leit að draumum. Páll hefur tvívegis hlotið verðlaun fyrir barnabækur sínar. Blindálfar á eflaust eftir að vekja athygli fyrir (Dað hve mannleg sagan er og viðurkennd stílsnilld höfundar nýtur sín þar til fulls. 176 blaðsíður. Útg. Vaka - Helgafell. Verð: 998 kr. m. sölusk. OKTAVÍA | VÉSTEINN \ LÚÐVÍKSSON OKTAVÍA Vésteinn Luðvíksson í þessu nýja verki Vésteins Lúð- víkssonar segir frá því að félag nokkurt hyggist ráða sér fram- kvæmdastjóra, en meðal um- sækjenda reynist vera umdeildur félagsmaður, Oktavía að nafni. Formaður félagsins gerir það að tillögu sinni að stjórnin fjalli um umsókn Oktavíu með þeim hætti að hver hinna tólf stjórnarmanna segi af henni átta stuttar sögur, og rökstyðji þannig atkvæði sitt. í bókinni eru því 96 stuttar sögur af sömu konunni, og bregða þær skemmtilegu og einatt óvæntu Ijósi á tilveru okkar og samlíf. I fyrra sendi Vésteinn frá sér bók- ina Maður og haf, sem er önnur þeirra bóka sem tilnefndar eru til bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs af íslands hálfu í ár. Oktavía mun ekki síður vekja at- hygli bókmenntaunnenda. Útg.: Mál og menning Verð: 875 kr. m. sölusk. Ásta Sigurðardóttir SÖGUR OG LJÓÐ Ásta Sigurðardóttir varð fræg á einni nóttu fyrir fyrstu smásögu sína, Sunnudagskvöld til mánu- dagsmorguns, sem birtist í tíma- ritinu Líf og list 1951. Það var í henni nýrtónn ögrandi hreinskilni sem kom á óvart í smáborgar- legri lognmollu höfuðstaðarins. Á næstu árum birtust sögur eftir Ástu í helstu tímaritum landsins og tóku margir undir með Sverri Kristjánssyni sem þótti að „nú væri risin upp meðal vor penna- færasta kona á íslandi." Þegar hún lést skildi hún eftir sig safn frágenginna smásagna, auk nokkurra Ijóða, sem komið var til varðveislu á Landsbókasafni. Nú koma þessar sögur í fyrsta skipti út í bók ásamt áður birtum smá- sögum hennar, óvægnar lýsing- ar á hlutskipti lítilmagna á óvenju- lega auðugu máli. Einstakur bók- menntaviðburður fyrir aðdáend- ur Ástu Sigurðardóttur og nýja lesendur hennar. útg.: Mál og menning Verð kr. 1190 m. sölusk. FROSKMAÐURINN Hermann Másson. Hvað getur froskmaður gert þeg- ar hann hittir hafmeyju sem heimtar að hann yfirgefi konu og börn og taki saman við sig? Verð- ur hann ekki að hlýða þegar hún hótar að leggja atvinnuvegi ís- lendinga í rúst með því að flækja net fiskiskipanna í skrúfuna. - Er hafin neðansjávarbylting hér á landi? Uppreisn hafsins gegn rányrkju framsóknarblesanna? Hermann Másson er ungur frosk- maður sem kafar djúpt í djúp samtímans og á eftir að synda með heiður íslands víða um heim. 158 blaðsíður. Útg. Forlagið. Verð: 850 kr. m. sölusk. NÓTT í LÍFI KLÖRU SIG. Stefanía Þorgrímsdóttir. Klara Sig. - glæsileg kona, gift öndvegismanni í góðri stöðu, býður karlmanni með sér heim af balli. En speglarnir, sem Klara skoðar sig í, brotna og hún stend- ur varnarlaus frammi fyrir nótt- inni. í tíu ár hefur hún verið Klara, sterk, sjálfbjarga, frambærileg. Hún hefur bælt ótta sinn, agað vilja sinn, unnið sigra. Gætt þess að vega fremur en að vera vegin. Af næmi hins þroskaða lista- manns lýsir Stefanía ótta og ein- semd þess sem reist hefur hús sitt á sandi í einni eftirminnileg- ustu kvenlýsingu íslenskra bók- mennta á seinni árum. 125 blaðsíður. Útg. Forlagið. Verð: 850 kr. m. sölusk. ~’"f UGLÁ_____________...... SÓLA, SÓLA Guðlaugur Arason Skáldsögur Guðlaugs Arasonar hafa notið mikilla vinsælda, og má minna á bækur eins og Eld- húsmejlur og Pelastikk í því sam- bandi. í þessari nýju bók segirfrá Hjálmari Hjálmarssyni: hann á sér draum um að verða rithöf- undur og skrifa stórvirki, en um leið er hann maður sem helst vill sleppa sem þægilegast frá hlut- unum. Tveir atburðir verða til aö gerbreyta lífi hans. Á elliheimili hittir hann fyrir tilviljun Sólu, dul- arfulla kerlingu sem rekur ættir sínartil galdrafólks á 17. öld. Um svipað leyti verður Ijóst, að kona Hjálmars á von á barni. Hjálmar ákveður að skrifa ætt- arsögu Sólu fyrir barn sitt ófætt. Mögnuð saga Sólu og forfeðra hennar hefur djúpstæð áhrif á hann. Útg.: Máf og menning Verð: (innb.) 981 kr. m. sölusk. Ugluverð: 495 kr. UNDIR MERKI STEINGEITAR Snjólaug Bragadóttir frá Skáldalæk Spennandi bók um unga stúlku sem fer til Los Angeles í Banda- ríkjunum og verður þar heimilis- vinur heimsfrægra poppstjarna. Þar kynnist hún ótrúlegum fjöl- skylduflækjum, eiturlyfjaneyslu og miskunnarleysi samkeppn- innar í háborg músíklífsins. Unga stúlkan fékk tækifæri lífs síns, hún sneri heim reynslunni ríkari en eðli steingeitarinnar býður henni að læra svo lengi sem hún lifir. 180 bls. Útg.: Örn og Örlygur. Verð: 995 kr. m. sölusk. ELDVÍGSLAN Jónas Kristjánsson Söguleg skáldsaga. Eldvígslan er saga mikilla átaka og hrika- legra örlaga, rituð á fögru og kjarnmiklu máli sem ber hæfi- legan svip af stíl fornsagnanna. Spennandi saga sem menn leggja ekki frá sér fyrr en þeir hafa lesið sfðustu setninguna. 324 bls. Útg.: Örn og Örlygur. Verð: 785 kr. m. sölusk. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.