Þjóðviljinn - 17.12.1985, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 17.12.1985, Qupperneq 5
ÞYDDAR SKALDSOGUR STRÍÐSVINDAR 1. og 2. bindi Herman Wouk Snjólaug Bragadóttir þýddi Saga úr síðari heimsstyrjöldinni. Stríðssaga - ástarsaga - örlaga- saga. Senn hefjast í íslenska sjónvarpinu sýningar á þáttum sem gerðir voru eftir þessari sögu. Þeir taka 18 klukkustundir í sýningu og eru þeir dýrustu sinn- ar tegundar sem enn hafa verið framleiddir. Sá sem hefur lesið bækurnar áður en þættirnir hefj- ast munu njóta þeirra betur. 334 bls. Útg.: Örn og Örlygur. Verð: 706 kr. m. sölusk. hvort bindi. FAYWELDON ÆVI&ÁSTIR ÆVI OG ÁSTIR KVENDJÖFULS Fay Weldon. Hvað gerir heiðarleg húsmóðir þegar eiginmaðurinn kallar hana kvendjöful og hleypur á brott með annarri konu? Hvað getur hún gert - ófríðari en amma skrattans með undurfagra skáldkonu að keppinaut? „Köld eru eru kvennaráð". Söguhetjan leitar allra leiða til að ná fram hefndum og sigra andstæðinginn. En hvaða tilgangi þjónar barátta hennar og hverju fórnar hún? Það er ein hinna miskunnarlausu spurninga sem Fay Weldon spyr lesendur sína í þessari meinfynd- nu og miskunnarlausu satíru. Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi söguna. MINNINGAR EINNAR SEM EFTIR LIFÐI Doris Lessing Eitt þekktasta verk Doris Lessing - rithöfundar sem nýtur vinsælda og virðingar um allan heim. Hún verður gestur Listahátíðar 1986. Sagan lýsir sambandi konu og unglingsstúlku sem mæta breyttum þjóðfélagsaðstæðum á ólíkan hátt. Þýðandi: Hjörtur Pálsson. Úr erlendum blaða- dómum: „Hrein snilld. Bók sem grípur lesandann heljartökum” (New York Times). „Ein ógn- þrungnasta og mest sannfær- andi bók sem ég hef lesið” (Daily Mail). „Á okkar tímum er sagan holl lesning” (Sunday Times). 243 blaðsíður. Útg. Nótt, bókaútgáfa. Verð: Innbundin kr. 1175, kilja kr. 875 m. sölusk. ÁSTKONA FRANSKA LAUTINANTSINS John Fowles Ástkona franska lautinantsins er tvímælalaust þekktasta skáld- saga John Fowles, sem er ein- hver fremsti og umtalaðasti skáldsagnahöfundur Englend- inga um þessar mundir. Ástkona franska lautinantsins er öðrum þræði mögnuð ástar- saga um aðalsmanninn unga, Charles Smithson, og kennslu- konuna dularfullu, Söru Wood- ruff, sem þorpsbúar kalla ást- konu franska lautinantsins. Hér segir frá ástríðuþrungnu sam- bandi þeirra og því stríða og ólg- andi regindjúpi sem skilur þau að. Sögusviðið er England Vikto- ríutímans. Ástkona franska lautinantsins er þýdd af Magnúsi Rafnssyni. Eftir henni var nýlega gerð mjög vinsæl kvikmynd með Meryl Streep í aðalhlutverki. Útg.: Mál og menning Verð: 1.375 kr. m. sölusk. ÞEGAR ÖRLÖG RÁÐAST Georgette Heyer. Ólgandi ástríður, leiftrandi kímni og magnaður söguþráður eru einkenni þessarar sögu breska metsöluhöfundarins Georgette Heyer. Georgette Heyer hefur um árabil veriö einn alvinsælasti höfundur skemmtisagna erlendis og bækur hennar seljast í milljónaupplögum. Þegar örlög ráðast er önnur bókin sem kemur út eftir hana á íslensku, en fyrsta bókin seldist upp á nokkrum vik- um. Má því segja að hún hafi strax slegið í gegn hér á landi. 265 blaðsíður. Útg. Vaka - Helgafell. Verð: 896 kr. m. sölusk. flNN VIRTASTi £N UM l£® UMOtUMSTI RÍTHÓfUNOUR H£IMS ! fYRSTA SINN í ÍSlfNSKPI ÞV&NGU HÖRKUTÓL STÍGA EKKI DANS Norman Mailer Norman Mailer, einn virtasti en jafnframt umdeildasti rithöfundur samtímans, gefur lesendum sín- um engin grið í þessari vel skrif- uðu og hörkuspennandi bók um Tim Madden, sem vaknar minnislaus eftir 24 daga drykkju og kemst að því að iíklega hafi hann framið morð... Þýðandi er Árni Ibsen. Úr erlendum blaða- dómum: „Ein af 5 bestu skáld- sögum ársins 1984” (Time). „Stórbrotinn rithöfundur skrifar sér til skemmtunar og býður les- endum með” (People). „Tryll- ingslegt, yfirgengilegt og klæmiö meistaraverk” (Playboy). „Óút- reiknanlegasti höfundur Banda- ríkjanna og sífellt sá athygli- sverðasti” (Vogue). Spennan er eins fínstillt, ógnandi og ending- argóð og í bestu myndum Hitch- cocks” (Chicago Tribune). 328 bls. Útg.: Bókaútgáfan Nótt. Verð: Innbundin 1.250 kr. m. sölusk., kilja 875 kr. m. sölusk. ENDURFÆÐINGIN Max Ehrlich, þýðandi Þorsteinn Antonsson Höfum við lifað áður? Er líf eftir þetta líf? Hvað eru draumar? Er mark takandi á þeim? í skáld- sögunni Endurfæðingin er þetta sérstæða efni tekið til meðferðar í dulrænni spennusögu, stutt vís- indalegum rannsóknaraðferðum og gert aðgengilegt með góðri frásagnartækni. 279 bls. Útg.: ísafold Verð: 975 kr. m. sölusk. JÓLASAGAN Jan Peinoewsky Jólasaga er sagan af fæðingu frelsarans eins og hún kemur fyrir í guðspjöllunum. Hún er prýdd gullfallegum myndum. Bók sem allir ættu að eiga sem láta sig varða hinn sanna boðskap jólanna. m HROSSAKAUP Dick Francis Metsöluhöfundurinn Dick Franc- is hefur lengi verið álitinn meðal allra fremstu spennusagnahöf- unda á Vesturlöndum, bæði af gagnrýnendum og almenningi. Söguhetjan í Hrossakaupum er ungur bankastjóri sem lánar stór- fé til kaupa á veðhlaupahesti til undaneldis. Síðan dregur til ótíð- inda... Þýðandi er Þuríður Baxter. Úr erlendum blaðadómum: „Besti spennusagnahöfundur nútímans” (Atlantic Monthly). „Dick Francis fer á hlemmiskeiði um ritvöllinn enn einu sinni” (Da- ily Mail). „Besta bók hans í þó nokkurn tíma” (The Guardian). „Öllu hugvitsamlegri atburðarás og glæpafléttu hefur Dick Francis trauðla samið” (Daily Express). 310 bls. Útg.: Bókaútgáfan Nótt. Verð: Innbundin 975 kr. m. sö- lusk., kilja 775 kr. m. sölusk. MEMED MJÓI saga um uppreisn og ást Yashar Kemal Sagan um Memed mjóa, stiga- manninn unga, er hörkuspenn- andi ævintýri um alþýðu og út- laga í Tyrklandi á fyrri hluta þess- arar aldar eftir fremsta og fræg- asta núlifandi höfund Tyrkja. Yashar Kemal. Söguhetjan elst upp í þorpi ríkismannsins Abdi aga sem hefur sölsað undir sig landareign fólks í fimm þorpum á Tsjúkuróvasléttunni og drottnar með harðneskju. Strax á unga aldri gerir Memed misheppnaða tilraun til að rísa gegn Abdi aga, og þegar hann hefur fengið nasa- sjón af annars konar lífi ákveður hann að ræna unnustu sinni og flýja. En armur valdsins er langur og hefur lögin sín megin, þótt Memed öðlist hins vegar ást og aðdáun alþýðunnar. Þórhildur Ólafsdóttir þýddi bókina úr tyrknesku og skrifar eft- irmála. Útg.: Mál og menning Verð: 1487 kr. m. sölusk. Ugluverð: kr. 788. Réoinc Dclcrocs Stúlkan á bíáa hjólk^. STÚLKAN Á BLÁA HJÓLINU Régine Deforges Dalla Þórðardóttir íslenskaði Árið er 1939. Lea Delmas er sautján ára heimasæta á óðals- jörðinni Montillac í hjarta vínrækt- arhéraðs í nágrenni Bordeaux. Hún er falleg, lífsgjöð og áhyggjulaus og vefur karlmönn- um um fingur sér. Hún hefur þeg- ar ákveðið hvern hún vill. í undir- búningi er mikill dansleikur... Stríðið skellur á og fyrr en varnir kasta örlögin Leu út í hringiðu þess. Hún lendir í straumi flótta- manna undir stöðugu kúlnaregni og kemst f návígi við dauðann og hernám Þjóðverja. Brátt verður hún þekkt sem stúlk- an á bláa hjólinu, mikilvægur sendiboði á milli hins hernumda og hins frjálsa hluta Frakklands. Hættur, ábyrgð og sorgir þroska þessa villtu og lífsglöðu stúlku en temja hana ekki... 379 bls. Útg.: ísafold Verð: 1.375 kr. m. sölusk. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.