Þjóðviljinn - 17.12.1985, Page 15
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
ÝMSAR B/EKUP
Togir skemmtíL-grj
vpilakjpLi!
I»,»ö l>arf cngum aft lciöast
viö aft lcggja tapal . .
KAPLABÓKIN
Ásgeir Ingólfsson þýddi.
Aögengileg handbók fyrir unga
sem aldna um það hvernig hægt
er að leggja ótrúlegan fjölda spil-
akapla sem sumir vilja nefna
einsmannsspil eða spilaþrautir.
Spilakaplar hafa lengi verið vin-
sælir hér á landi en heldur ein-
hæfir að sögn kunnugra. Með
þessari bók ættu margir aö geta
spreytt sig á nýjum afbrigðum
slíkra spila.
100 blaðsíður.
Útg. Vaka - Helgafell.
Verð: 695 kr. m. sölusk.
mmm
ÁSÖGUSLÓÐUM
BIBLÍUNNAR
Magnús Magnússon
Hinn kunni sjónvarpsmaður í
Bretlandi skyggnist að baki
frægra þátta í breska sjónvarpinu
og síðar því íslenska. „Magnús
fléttar á mjög skemmtilegan hátt
frásagnir úr Biblíunni og af rann-
sóknum og árangurinn verður
stórskemmtileg og fróðleg bók
um fornaldarþjóðir og sögustaði í
Austurlöndum nær.“ Jón Þ. Þór.
239 bls.
Útg.: Örn og Örlygur.
Verð: 1.290 kr. m. sölusk.
ÍSLENSKA LYFJABÓKIN
Helgi Kristbjarnarson, Magn-
ús Jóhannsson og Bessi
Gíslason.
Einkar handhæg og aðgengileg
handbók um öll lyf sem voru á
lyfjaskrá um síðustu áramót. í
bókinni er greint frá því hvernig
lyfin eru tekin, aukaverkanir
þeirra og áhrif á vanfærar konur
og fóstur í móðurkviði.
Þá eru í bókinni upplýsingar um
verkanir lyfjanna á líkamann,
hvort eitthvað þarf að varast
meðan átöku lyfjannastendurog
skrá yfir framleiðendur.
336 blaðsíður.
Útg. Vaka - Helgafell.
Verð: 985 kr. m. sölusk. _
Jóhannes
Sveinsson
Kjarval
Ævisaga
eftír Indriða G.
Þorsteinsson
„ . . . bók Indriða um Kjarval fylgir í
flestum tilvikum hinni næstum sígildu
ævisagnaritun eða íslenskum bókum um
merkismenn. Og sem slík er hún líklega sú
besta sem ég hef lesið, ef ekki sú albesta.
Stíll bókarinnar er tilgerðarlaus, sléttur og
felldur . . . með einföidum orðum og
skrúðlausum . . . Slíkt litleysi sem gætir í
fari Indriða við gerð bókarinnar er afar
sjaldgæft meðal rithöfur.da. f>ví það er nú
einu sinni sú skoðun þeirra að þeim beri að
hafavitfyriröðrum.líkasérfræðingum . . .
Margar prýðilegar ljósmyndir eru í bókinni
og ekki eru myndirnar af málverkunum
síðri. Umhyggja fyrir myndunum er
einstæð . . .“
(Guðbergur Bergsson í Helgarpóstinum
31. október 1985).
„ . . . ég (kann) naumast annað en hrósyrði
að segja um þessa sögu Indriða G. Þorsteins-
sonar. Hann hefur gefið okkur frábærlega
vel skrifaða og glögga mannlýsingu á
mikilhæfum einstaklingi, og barmafulla af
smellnum frásögnum í kaupbæti . . .“
(Dr. Eysteinn Sigurðsson í NT 15. okt. 1985)
„Það fer ekki milli mála að það er gífurlegur
fengur að lesa jafn vel ritaða ævisögu
Jóhannesar Sveinssönar Kjarvals . . .“
(Jóhann Hjálmarsson skáld í Morgunblaðinu
15. október 1985)
„Ég get . . . lýst því sem minni skoðun að
höfundurinn hafi unnið hér þrekvirki . . .“
(Kristján frá Djúpalæk skáld í Degi
15. okt. 1985)
AUÐVITAÐ
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ, AUSTURSTRÆTI 18, SÍMI 25544.
ÁRIÐ 1984
Stórvíðburðír í mYndum og máli með íslenskum sérkafla
Hefur nú komíð út í tuttugu ár
t
Þetta frábæra bókmenntaverk
er samsett af 480 fréttagrein-
um og eru þær áréttaðar með
jafnmörgum atburðamyndum
og er helmingur þeirra prentað-
ur í lítum í heilsíðustærðum á
köflum.
Annáll ársins skiptist í 12
aðalkafla. Auk þess fjallar
verkið um einstök sérsvið, svo
sem alþjóðamál - efnahags-
mál - vísindi og tæfcní
Frábært bókmenntaverk fyrir
alia fjölskyiduna.
AFIID 1984
.s.I?ny.'OOURO-«1 MVNOUM OG MAu
með Islenzkum sérkafla
Þessi bókaflokkur er orðinn
ómissandi öllum þeim er láta
sig samtíðina einhveiju skipta
og vilja eiga möguleika á því
að geta flett upp í óyggjandi
heimildum um atburði hér á
landi og um heim allan.
Eldri árgangar eru á þrotum.
■Mllj
Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík. Símar 13510—617059. Pósthólf 147.