Þjóðviljinn - 17.12.1985, Qupperneq 16
YMSAR BÆKUR
REYNIR PÉTUR OG
ÍSLANDSGANGAN
Eðvarð Ingólfsson
„Það var norðanstrekkingur og
óvenju kalt í veðri á Selfossi
laugardaginn 25. mai 1985. Þeir
fáu, sem voru fótgangandi og
voru á ferli fyrir hádegi, voru
kappklæddir, jafnvel með
hanska og húfu og gengu greitt —
bæði til að halda á sér hita og
eins til að flýja undan kuldabola."
Svo segir í upphafi hinnar ágætu
bókar um afrek Reynis Péturs
þegar hann gekk hina frægu ís-
landsgöngu. Þessa bók verða
allir að eignast sem láta sig
mannúðarmál varða.
Útg. Skálholt
ÁRBÓK ÍSLANDS
HVAÐ GERIST Á ÍSLAND11984
Steinar J. Lúðvíksson
Myndaritstjóri
Gunnar Andrésson
Áður eru komnar út bækur fyrir
árin 1979- 1983. Þessar bækur
eiga sér enga hliðstæðu. Þær
bjóða vandvirknislega afgreiðslu
mála. Efni þeirra er flokkað í efn-
isþætti og auðveldar það mjög
notkun þeirra. [ hverri bók eru
mörg hundruð Ijósmyndir. Meðal
efnis í þessu bindi má nefna
frækilegt sundafrek Guðlaugs
Friðþórssonar; vopnað rán við
Landsbanka Islands, frækilega
björgun breskra flugmanna af
Eiríksjökli og átakamikið verkfall
BSRB.
351 bls.
Útg.: Örn og Örlygur.
Verð: 1.898 kr. m. sölusk.
Grcinasafu cftir Iíjarna VilhjJlmsson
gcftð út i tilcfni sjöuigsafn»A*lis lians
ORÐ EINS OG FORÐUM
Bjarni Vilhjálmsson
cand.-mag.
Bókin er gefin út f tilefni sjötugs-
afmælis Bjarna Vilhjálmssonar
cand.mag., og hefur að geyma
mikið úrval greina hans, meðal
annars um nýyrði Jónasar Hallg-
rímssonar í Stjörnufræði Ursins,
orðasmíð Sigurðar skóla-
meistara, manntöl og málfræði,
íslenska málshætti og Þjóð-
skjalasafn íslands 100 ára. Itar-
leg ritaskrá fylgir.
320 blaðsíður.
Útg. Þjóðsaga.
Verð: 1.180 kr. m. sölusk.
ÁRIÐ 1984
Þetta frábæra bókmenntaverk er
samsett af 480 fréttagreinum, og
eru þær áréttaðar með
jafnmörgum atburðamyndum og
er helmingur þeirra prentaður í
litum í heilsíðustærðum á köflum.
Annáll ársins skiptist í 12 aðal-
kafla. Auk þess fjallar verkið um
einstök sérsvið, svo sem alþjóð-.
amál - efnahagsmál - vísindi og
tækni - læknisfræði - myndlist -
kvikmyndir - tísku.
Þessi bókaflokkur er orðinn
ómissandi öllum þeim er láta sig
samtíðina einhverju skipta og
vilja eiga möguleika á þv.í að geta
flett upp í óyggjandi heimildum
um atburði hér á landi og um
heim allan.
344 blaðsíður í stóru broti.
Útg. Þjóðsaga.
Verð: 2.125 kr. m. sölusk.
ÁRIÐ1984
STÖRVIÐBURÐIR í MYNDUM OG MÁLI
MEÐ ISLENZKUM SÉRKAFLA
Jóhannes O
Geir
JÓHANNES GEIR
eftir Sigurjón Björnsson og
Aðalstein Ingólfsson
Bókin um Jóhannes Geir
listmálara er fimmta bókin í hin-
um glæsilega bókaflokki, íslensk
myndlist, sem Listasafn ASÍ og
Lögberg gefa út. Eins og í fyrri
bókum í flokknum fer fagurt
handbragð bókargerðarmanna
hér saman með vönduðum og
skemmtilegum texta höfunda, en
hvort tveggja opnar lesanda sýn
inn í myndheim og þroskaferil
þessa sérkennilega og forvitni-
lega listamanns. Jóhannes Geir
er tvímælalaust einn þeirra
myndlistarmanna íslenskra sem
vakið hafa hvað mesta athygli á
síðari árum og á nú tryggan sess
meðal þeirra málara sem listunn-
endur fylgjast með af eindregn-
ustum áhuga.
Útg.: Listasafn ASÍ
og Lögberg.
Verð: 1.875 kr. m. sölusk.
Gódca og vandadar bœkui
Árni Óla
Reykjavík
f yrri tíma II
Tvœr aí Reykjctvíkurbókum Áma Óla
Skuggsjá Reykjavötui og Horít á
Reykjavík endurútgeínar í einu bindi.
Saga og sögustaðir verða ríkir af lííi og
trá síðum bókanna geíur sýn til íortíðar
og íramtíðar - nútímamaðurinn öðlast
nýjan skilning á höíuðborg landsins og
forvemnum er hana byggðu. Efni bók-
anna er íróðlegt, íjölbreytt og skemmti-
legt. Fjöldi mynda írá Reykjavík íyrri
tíma og aí persónum, sem mótuðu og
settu svip á bœinn prýða þessa vönd-
uðu útgáíu.
Birtan aö handan
Saga Guörúnar
SigurÖardóttur
frá Torfuf elli
Sverrír Pálsson skrádi
Guðrún Sigurðardóttir var landsþekkt-
ur miðill og hér er saga hennar sögð
og lýst skoðunum hennar og líísvið-
horfum Hún helgaði sig þjónustu við
aðra til hjálpar og huggunar og not-
aði til þess þá hœíileika, sem henni
vom gefnir í svo ríkum mœli skyggni-
gáíuna og miðilshœfileikana. Þetta er
bók, sem á erindi til allra.
J
I
I
I I
V
I
Pétur Zophoníasson
Víkingslœkjarœtt II
Þetta er annað bindið í endunítgáfu á
hinu mikla œttírœðiriti Péturs, niðjatali
hjónanna Guðríðar Eyjólísdóttur og
Bjarna Halldórssonar hreppstjóra á
Víkingslœk. í þessu bindi em niðjar
Höskulds, Brands, Eiríks, Loíts og Jóns
eldra Bjamasona. Fyrsta bindið kom út
1983, en œtlunin er að bindin verði alls
fimm. í þessu bindi, eins og því fyrsta,
em íjölmargar myndir aí þeim sem í
bókinni em neíndir.
|J
PETUR
ZOPHONÍASSON
VDUNGS
iÆigARmn
NIÐJATAL GUÐRlDAR EYJÓLFSOÖTTUR
OG BJARNA HALLDORSSON AR
HREPPSTJÓRA A VlKINGSLÆK.
SKUGGSJÁ
Ásgeir Jakobsson
Einars saga
Guöfinnssonar
Þetta er endurútgáía á œvisögu
Einars Guðfinnssonar, sem verið heíur
ófáanleg í nokkur ár, en hlaut óspart
loí, er hún kom íyrst út 1978. Þetta er
baráttusaga Einars Guðíinnssonar frá
Bolungarvík og lýsir einstökum
dugnaðarmanni, sem barðist við
ýmsa eríiðleika og þuríti að yfirstíga
margar hindranir, en gaíst aldrei upp;
var gœddur ódrepandi þrautseigju,
kjarki og árœði. Einnig er í bókinni
mikill íróðleikur um Bolungarvík og
íslenzka sjávarútvegssögu.
SKUGGSJÁ - BÓKABÚD OLIVERS STEINS SF.
—