Þjóðviljinn - 28.12.1985, Side 5
Hryðjuverk
16 féllu og100 særðust
í árásum á tvo flugvelli
El Salvador
Stjórnarher-
inn virðir
ekki vopnahlé
San Salvador — Uppreisnar-
menn í El Salvador hafa sakað
stjórnarherinn um að brjóta
gegn vopnahléi sem ríkja átti í
landinu yfir jól og áramót.
Segja þeir að flugvélar og stór-
skotalið hafi gert árásir í fjór-
um héruðum yfir jólin og vald-
ið töluverðu mannfalli.
Vopnahléið sem á að standa
fram til 2. janúar var gert að til-
lögu kaþólsku kirkjunnar. Upp-
reisnarmenn féllust á tillöguna og
talsmaður stjórnarhersins sagði á
aðfangadag að sveitir hans
myndu virða vopnahléð. Yfir-
maður hersveita í Morazan hér-
aði kannaðist hins vegar ekki við
neitt vopnahlé þegar fréttamenn
ræddu við hann í gær.
Rómaborg — I það minnsta
sextán manns létust og 100
særðust í árásum hryðju-
verkamanna á skrifstofur ísra-
elska f lugfélagsins El Al á flug-
völlunum í Róm og Vínarborg í
gærmorgun.
Árásirnar voru greinilega sam-
hæfðar því þær hófust samtímis á
báðum flugvöllunum. Á Fiumic-
ino flugvellinum í Róm réðust að
því er virðist sex menn á af-
greiðslu E1 Al. Einn þeirra varp-
aði handsprengju inn í stóran hóp
farþega sem var á leið til Tel
Aviv. Síðan hófu mennirnir skot-
hríð og var henni svarað af
óeirðalögreglu. Þegar bardagan-
um lauk lágu 13 manns í valnum,
þar af þrír árásarmenn, og 68
voru særðir. Tveir árásarmann-
anna voru handteknir.
Á Schwechat flugvellinum í
Vínarborg réðust tveir byssu-
menn inn í flugafgreiðslu E1 A1
þar sem margir biðu afgreiðslu.
Mennirnir fleygðu handsprengj-
um og hófu skothríð, 3 féllu og
uþb. 30 slösuðust. Árásarmenn-
irnir komust undan og í bíl sem
þriðji maðurinn ók. Lögregla
veitti þeim eftirför og náði þeim.
Þá hófst skotbardagi sem lyktaði
með því að einn byssumannanna
var felldur en hinir tveir særðust
alvarlega og tók lögreglan þá í
sína vörslu.
Ekki er vitað hverjir stóðu að
þessum árásum en stjórnvöld í ís-
rael fordæmdu þær og hótuðu
hefndum. Talsmaður ísraelska
utanríkisráðuneytisins gaf í skyn
að þarna hefðu liðsmenn PLO
verið að verki en talsmaður PLO
í Vínarborg fordæmdi atburðina
og kvað þá til þess eins fallna að
skaða samskipti PLO og austur-
rísku stjórnarinnar. Stjórnvöld í
Egyptalandi, Bandaríkjunum og
Vestur-Evrópu brugðust einnig
hart við og fordæmdu árásirnar.
Talsmaður flugvallaryfirvalda
á Schiphol flugvelli í Amsterdam
greindi frá því í gær að yfirvöld
helstu flugvalla í Evrópu hefðu
fengið um það viðvaranir fyrir jól
að vænta mætti árása arabískra
hryðjuverkamanna yfir hátíðarn-
ar.
Sovéskir hermenn í Afganistan. Sagt er að þeim hafi vegnað betur að undanförnu en samt er ekki talið líklegt að endir
verði bundinn á stríðið í landinu.
Afganistan
Suður-Afríka
Tugir falla í
ættbálkastríði
Umbogentweni — Um jólin kom
til blóðugra átaka milli tveggja
ættbálka blökkumanna í ná-
grenni bæjarins Umbog-
entweni sem er ein af útborg-
um Durban. í það minnsta 58
féllu í óeirðunum sem 5 þús-
und blökkumenn af ættbálkun-
um zulu og pondo tóku þátt í.
Þessir ættbálkar hafa löngum
eldað grátt silfur saman en ástæð-
an fyrir því að upp úr sauð nú um
jólin mun hafa verið sú að pondó-
svæði ekki síðar en í dag, laugar-
dag.
Einnig kom til óeirða á stöku
stað í landinu milli blökkumanna
og lögreglu en jólin voru þó með
friðsamlegra móti rniðað við það
sem gengið hefur á undanfarna
mánuði. Rúmlega 6.500 manns
hafa verið handteknir í krafti her-
laga sem sett voru í nokkrum hér-
uðum 21. júlí í ár. Að sögn lög-
reglu er þó aðeins 452 þeirra enn
haldið í fangelsum.
6 ár frá innrás sovétmanna
Islamabad og víðar—ígærvoru
liðin sex ár frá því Sovétríkin
sendu hersveitir inn í Afganist-
an til að styðja við bakið á Ba-
brak Karmal forseta í baráttu
hans við uppreisnaröfl úr
röðum múslima. Nú er talið að
115 þúsund sovéskir hermenn
séu í landinu og engar horfur
eru á að friður komist á.
Stjórn Karmals hélt upp á dag-
inn með því að skipa nokkra
menn sem ekki eru félagar í
kommúnistaflokki landsins í
valdastöður í Kabul, höfuðborg-
inni. Þetta er í fyrsta sinn sem
óflokksbundnir menn eru skipað-
ir í valdastöður eftir að Karmal
komst til valda og er talið að til-
gangur hans sé að friðmælast við
ýmsa þjóðernisminnihluta lands-
ins. Einnig er talið næsta víst að
hann muni lítinn árangur hafa af
þeirri viðleitni.
Erlendir sendimenn og frétt-
askýrendur segja að sovéska
hernum hafi orðið heldur meira
ágengt í bardögum gegn upp-
reisnarmönnum að undanförnu.
Til marks um það er bent á að
lítið hafi verið um árásir á höfuð-
borgina síðan sovéski herinn
eyddi þorpum í nágrenni Kabul
en uppreisnarmenn gátu áður
leynst í þeim. Öryggisvarsla í Ka-
bul sjálfri hefur einnig verið hert
til muna og má víða sjá sovéska
hermenn á eftirlitsgöngu.
Ekki var minnst á afmæli
innrásarinnar í sovéskum fjöl-
miðlum í gær en lítillega greint frá
skipun embættismannanna. Á
laugardaginn var birtist leiðari í
Prövdu þar sem hvatt var til við-
ræðna milli stjórnar og stjórnar-
andstöðu í Afganistan. Þar var
einnig sagt að stjórnin í Kabul
væri reiðubúin að taka upp sam-
starf við atvinnurekendur og auð-
menn í Afganistan. Erlendir
sendimenn túlka þetta sem
Barist
Abidjan — Síðan á jóladag hef-
ur geisað stríð milli tveggja
iandluktra ríkja í suðurjaðri
Sahara-eyðimerkurinnar, Malí
og Burkina Faso sem áður hét
Efri-Volta. Vopnahléi var lýst
yfir í gærmorgun en það stóð
ekki lengi.
Ríkin tvö hafa lengi deilt um
160 km langa spildu á landamær-
unum en þar er talið að vinna
megi ýmis verðmæt jarðefni, svo
sem úran, mangan, títan og jarð-
gas. Árið 1974 háðu ríkin stríð
um svæðið.
Orsök átakanna nú var sú að
Burkina Faso sendi manntals-
menn studda herliði inn í fjögur
landamæraþorp sem tilheyra
Malí. Yfirvöld í Bamako, höfuð-
borg Malí, skipuðu mönnunum
að hafa sig á brott en þegar þeir
fóru hvergi sendu þau herlið á
vettvang og gerðu síðan loftárásir
á tvo bæi í Burkina Faso. Þeim
var svarað með loftárásum á
borgina Sikasso sem er í 500 km
fjarlægð frá hinu umdeilda svæði.
Ýmis afríkuríki hafa reynt að
miðla málum og í fyrrinótt skýrði
utanríkisráðherra Líbýu frá því
að honum hefði tekist að koma á
vopnahléi. Stjórnvöld í Malí féll-
áherslubreytingu í stefnu sovét-
manna í Afganistan en telja ólík-
legt að hún boði miklar breyting-
ust ekki á vopnahlésskilmálana
og sendu herlið inn í bæinn Ko-
loko sem er nærri Sikasso en
handan landamæranna. Emb-
ar höfðu sest að á svæði sem zulu-
mönnum hefur verið úthlutað til
búsetu. Eftir að öryggissveitir
höfðu stillt til friðar hófust samn-
ingaviðræður leiðtoga ættbálk-
anna en þær gengu stirðlega í
gær. Leiðtogi zulumanna setti
pondóum þá úrslitakosti að þeir
hefðu sig á brott af hinu umdeilda
ættismenn frá Alsír, Ghana, Ní-
ger, Togo og Nígeríu hafa verið í
höfuðborgum ríkjanna til skiptis
til að reyna að miðla málum.
ar.
Afríka
í eyðimörkinni
Og þetta
Uka...
...Tveir marokkóbúar voru myrtir
og 7 særðust i borginni Le Puy í
Frakkiandi í fyrrakvöid þegar ná-
grannar þeirra kvörtuðu undan há-
vaða úr íbúð marokkóbúanna og
hófu skothríð þegar þeim fannst
kvörtunum sínum ekki sinnt. Um
40 marokkóbúar voru í fjölskyldu-
boði í íbúðinni þegar sonurinn í
íbúðinni á næsta hæð kom vopn-
aður riffli og bað þá um að hafa
ekki hátt. Hann var afvopnaður en
þá birtist faðirinn einnjg með riffii
og hóf hann skothríð inn í íbúðina
með fyrrgreindum afleiðingum.
Atburður þessi hefur verið for -
dæmdur af andstæðingum kynþátt-
ahaturs í Frakklandi...
...235 pólverjar tóku þá ákvörðun
um jólin að snúa ekki aftur til skipa
sem þeir höfðu komið með til
Hamborgar í Vestur-Þýskalandi.
28 höfðu í gær beðist hælis sem
pólitískir flóttamenn. Fréttamenn
ræddu við hópa flóttamanna sem
kváðust flýja vegna yfirvofandi
verðhækkana, takmarkana á
ferðafrelsi og orkuskorts. Enginn
þeirra sagðist yfirgefa Pólland af
pólitískum ástæðum...
...Frönsku bílaverksmiðjurnar
Renault hafa innkallað 1,5 miljónir
bíla af gerðunum Renault 9 og 11
vegna galla sem komið hafa fram
og geta varðað öryggi bílanna. I
Ijós hefur komið að tæringar hefur
gætt í stýrisvélum bila af þessum
gerðum sem framleiddir voru fyrir
mitt árið í ár...
ERLENDAR
FRÉTTtR
haraldsson/R EUIER
Laugardagur 28. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5