Þjóðviljinn - 14.01.1986, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 14.01.1986, Qupperneq 8
Skák Keppnisskap r a taflborðinu Litið við í keppni unglingaflokks Skákþings Reykjavíkur Það vantaði ekki keppnis- skapið í húsakynni Taflfélags Reykjavíkur þegar blaðamenn Þjóðviljans litu inn um helgina þegar tefldar voru fyrstu þrjár umferðirnar í unglingaflokki á Skákþingi Reykjavíkur. 95 manns skráðu sig til þátttöku og að sögn Ólafs H. Ólafssonar er það metaðsókn, en þeir sem tefla eru 14 ára og yngri. Teflt er eftir Monrad-kerfi, alls 9 umferðir og mun mótinu ljúka laugardaginn 25. janúar. Sigur- vegarinn hlýtur titilinn Ungling- ameistari Reykjavíkur 1986 en auk þess munu allir þátttakendur frá viðurkenningarskjal og þeir fimm efstu fá verðlaunagripi og bækur. Núverandi unglingaskák- meistari er Hannes Hiífar Stef- ánsson. HUGMYNDAr Framkvæmdamenn og hugmyndasmiðir hittast Iðnaðarráðuneytið heíur ákveðið að gangast fyrir hugmyndastefnu ef næg þátttaka fæst. Fyrirhugað er að sýna á hugmyndastefnunni upp- finningar og framleiðsluhæfar hugmyndir, sem til- búnar eru til markaðsfærslu af hálfu höfunda. Sýningunni er fyrst og fremst ætlað að miðla fram- leiðsluhugmyndum til þeirra sem hafa hug á að fram- leiða, fjármagna eða setja á markað nýjungar í iðn- aði en einnig er henni ætlað að veita upplýsingar um þjónustu og fyrirgreiðslu opinberra aðila við ný- sköpun í atvinnulífinu. Þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í hugmynda- stefnunni er bent á að snúa sér tii Iðnaðarráðuneytis- ins er veitir allar nánari upplýsingar. Þátttökutilkynn- ingum ber að skila til Iðnaðarráðuneytisins fyrir 10. febrúar nk. á þar til gerðum eyðublöðum sem fást í ráðuneytinu. Þátttökugjald verður auglýst síðar. Ólafur Vídalín Halldórsson teflir við Guðfríði Lilju Grétarsdóttur. Fjórir kátir sveinar við taflborðin. í fremri röð teflir Gunnar Örn Hannesson til vinstri við Kjartan Dagbjartsson en fyrir aftan leiðir Páll Hjálmarsson hvítu mennina gegn þeim svörtu Óskars Harðarsonar. Ljósm. Sig. 8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 14. janúar 1986

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.