Þjóðviljinn - 19.01.1986, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 19.01.1986, Blaðsíða 3
Þetta bréf birtist í Vesturlandsblaðinu sem kom út í s.l. viku Bréf frá Steinólfi í Fagradal Bréf það sem hér fer á eftir sendi Steinólfur Lárusson í Fagradal Pétri Þorsteinssyni sýslumanni Dalasýslu til að vekja athygli á möguleikum til trjónu- krabbaveiða. Og hvort sem það er vegna þessa bréfs eða einhvers annars, þá er Steinólfur nú að hefja undirbúning veiða trjónu- krabba og hyggst selja til Akra- ness. Vesturlandsblaðið hefur fengið leyfi Steinólfs til að birta þetta einstaka bréf og er stafsetn- ing hans og annað látið halda sér: „Afskrifað tveim dögum firir Mikjálsntessu 1984. Herra Pétur Þorsteinsson sýslumaður. Alúðar heilsan óskir bestu. Þar sem ég hef sannspurt að þú sért áhugamaður um sjávargagn og aðra aðskiljanlega náttúru, á, og hér framundan þessum veraldar- innar útnára sem Dalasýsla teljast má vil ég vekja athygli þína á eftirfarandi. Hér framundan láðinu bír ein sérkennileg sjókind bæði djúpt og grunnt, og virðist vera af stjarn- fræðilegri stofnstærð en meðal stærð þessa kvikindis sem einstaklings er svipuð og eitt handsápustikki, sava de París, en þó fram mjókkandi og endar í trjónu búkurinn. augu á stilkum svo sem Marsbúar hafa og getur dírið horft aftur firir sig og fram, og haft ifirsín fyrir báða sína enda jafntímis leikur frammsóknar- mönnum mjög öfund til þessa hæfileika dírsins tvær tennur hefur dírið sína í hvoru munnviki og bítur saman tönnum frá hlið, tennur þessar eru ekki umluktar vörum heldur nokkurskonar fálmurum og bros- Steinólfur Lárusson í Fagradal. ir dírið þar af leiðandi sífelldlega, og þó heldur kalt til að bcra sig um, hefur skepnan 10 fætur og ber kné mjög hærra en kviðinn, það er mjög krikagleitt líkt og hestamenn sem lengi hafa riðið feitu Æfinlega gengur dírið útá hlið ímist til hægri eða vinstri og virð- ist vera mjög pólitískt, einnig má það teljast mjög siðferðislega þróað skapnaðarlega þar sem spjald vex fírir bligðun þess mjög sléttfellilega einna líkast skírlifs- beltum ekki verður dírið kingreint af þessum sökum nema með ofbeldi, ef menn vilja hafa einhverjar nitjar af díri þessu er afskaplefga örðugt að aflífa það snirtilega, þar sem það sökum síns skapnað- arlags fæst hvorki heingt né skorið skotið eða rotað, því bringa hörð umlikur skepnuna gjörsamlega og er lífseigla þessa dírs með ólíkindum, sé það geimt í haldi á þurru landi mun sultur einn ganga frá því dauðu að því er virðist. bíður það þá örlaga sinna mjög stillilega en þegar því fer að eimast biðin, gefur það frá sér sladdandi hljóð samskonar sladd- andi hljóð mátti heira í baðstof- um hér áður fírr einkum fírripart nætur, þegar griðkonur feitar voru gnúðar sem ákafast til frigð- ar Bfldrikkur sá er bensín kallast hefur mér reinst einna bestur til- að aflífa þessa skepnu óskemmda í þeim tilgangi að þurka hana innvirðulega og gefa konum í Reykjavík ágætum og æruprídd- um, sem ég hef kunningsskap við utanklæða, þær stilla þessari skepnu upp við hliðina á Hallgrími Péturssyni ellegar mind af forsetanum og svo innanum plattana tæplega mun vera vænlegt að veiða skepnu þessa í þeim til- gangi. en ef takast mætti að veiða hana í stórum stíl og upphugsa þokkalega aðferð tilað aflífa hana, vaknar sú spurning hvort ekki mætti verka þessa skepnu í dægilega krás tilað selja þjóðum er mér fortalið að Job danskir kaupi og eti ólíklegustu kvikindi og borgi þeim mun meira firir sem skepnan er svipljótari, sam- kvæmt okkar smekk. í þessu skini mætti eftil vill biðja dírðarmenn fírir sunnan um rannsókn á þessu díri og fá plögg, með línuritum og prósentum, svo sem í eina stress- tösku til að birja með Vertu blessaður Steinólfur Lárusson eða þannig Fjarstýrð heimilistæki ryðja sér mjög til rúms í Bandaríkjunum. Nú er hægt að stjórna Ijósum, rennandi vatni, og meira að segja kaffivélinni meðfjarstýringu. Með litlum kassa í svefnherberginu getur þú sett kaffivélina í gang og látið renna í baðið, um leið og þú kveikir á Ijósunum í forstofunni, án þess að standa upp úr rúminu. Og að sjálfsögðu kveikir þú á morgunútvarpinu um leið. Og það er skammt í að fjarstýr- ingin taki við beinum boðum, án þess að snerta þurfi takka. Þú hvíslar aðeins vingjarnlega „Slökktu á Ijósinu" og apparatið svarar til baka „með ánægju". „Butler in a box“ (þjónn í kassa) er líka spennandi nýjung. Hann var upphaflega búinn til fyrir fatlaöa, en þjónar öllum jafnt, sem vilja borga fyrir gripinn, en ennþá er hann rándýr. Hann get- ur séð um ýmis minniháttar viðvik og stjórnað vélum og tökkum heimilisins. Gert er ráð fyrir að meö tímanum verði hægt að fá slíka heimilisaðstoð fyrir nokkra dollara. Þá hafa smásjónvörp eða - smávörp - rutt sér mjög til rúms undanfarið og nú hægt að fá ör- lítið sjónvarp sem rúmast í meðallófa (5 sm). T alið er að árið 1990 verði t.d. hægt að fá leikföng með sjónvarpi fyrir sama verð og leikföngin ein í dag... ■ Sígaunar hafa með sér samtök, sem að mestu leyti eru þó pappírslaus og fremur illa skipulögð. Nýlega hafa sígaunar í Finnlandi hafið mikla baráttu fyrir auknum mannréttindum og einkum krefjast þeir aukinnar menntunar í greiðari inngöngu í ýmsar menntastofnanir. Listahá- skólinn í Helsinki hélt nýlega sérstakt námskeið í listhönnun fyrir sígauna. Mikið pappírsflóð var í kringum námskeið, fólk þurfti að sækja um á sérstökum eyðublöðum og sígaunarnir kunnu illa við allt skrifræðið. Nú hafa þeir krafist framhalds á þessum námskeiðum, enda segja þeir að kunnátta þeirra í ýmsu handverki, taki fram ýmsu því sem kennt er í handmennt á Listaháskólanum. Þeir vilja fá að stjórna sjálfir því sem kennt er á þessum námskeiðum, en ennþá hafa yfirvöld ekki tekið afstöðu... ■ Hin fræga ópera Rossinis „Moses“ hefur ekki verið sungin á sviði í meira en öld, þar til í s.l. viku að breska óperan frumsýndi verkið í nýrri gerð. Gagnrýnendur eru lítið upprifnir yfir breytingun- um. Nú er hin fornegypska um- gerð verksins orðin nútímalegt lögregluríki og Faraó búinn að fá sér grá silkiföt og sólgleraugu. Yfirleitt eru gagnrýnendur mjög harðorðir, segja að ekkert heyrist í söngvurunum fyrir skrauti og glimmeri. Og áhorfendur baul- uðu hátt þegar gífurlegt Ijósa- show upphófst í miðri sýning- unni. Eða eins og einn gagnrýn- andinn sagði: „Eyðilegging á annars merku verki, sem verðskuldar allt aðra meðferð." ... Hæð ofaná Framsókn? Framsókn á í miklum fjár- hagserfiðleikum eftir NT- ævintýrið. Ýmsir kraftaverka- menn gamlir og nýir hafa ver- ið til kallaðir, meðal annars þeir Alfreð Þorsteinsson og Kristinn Finnbogason. Þrautaráðið mun eiga að verða það, að byggja hæð of- aná Hótel Hof og selja síðan Hof allt. Þegar hefur borist fyr- irspurn frá flokknum til bygg- inganefndar Reykjavíkur um möguleika á leyfi til slíks ...■ Og báruárnshús við Bergþórugötu Athygli manna hefur á undan- förnum dögum beinst mjög að síðasta bárujárnshúsinu við Bergþórugötu. Borgarstjóri rómaði það mjög í Ijóði sínu sem sungið var á plötu fyrir jólin en hefur nú óskað eftir að það verði rifið. Kunnáttumenn telja húsið í ágætis lagi og það merkilega er að engu hefur verið breytt í innréttingum frá því það var reist 1920. Margir vilja því fara sér hægt í niður- rifinu og skoða eintakið betur ekki síst vegna þess að húsið má telja e.k. forfööur verka- mannabústaðanna í Reykja- vík. Það, ásamt tveimur öðr- um nákvæmlega eins sem nú eru horfin, var nefnilega fyrsta félagslega byggingin sem verkalýðshreyfingin reisti í Reykjavík. ■ Sunnudagur 19. janúar 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 járniðnaðarmanna Allsherjaratkvæðagreiðsla Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar- atkvæðagreiðslu við kjör stjórnar og trúnað- armannaráðs Félags járniðnaðarmanna fyrir næsta starfsár. Tillögum um skipan stjórnar og trúnaðar- mannaráðs skal skilatil kjörstjórnarfélagsins á skrifstofu þess að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð, ásamt meðmælum a.m.k. 81 fullgildra félagsmanna. Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn félagsins og auk þess um 14 menn til við- bótar í trúnaðarmannaráð og 7 varamenn þeirra. Frestur til að skila tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmannaráðs rennur út kl. 18.00 þriðjudaginn 28. janúar n.k. Stjórn Félags járniðnaðarmanna St. Jósefsspítali, Landakoti Aðstaða sérfræðings í geislagreiningu við Röntgendeild St. Jósefsspítala, Landakoti, er laustil umsóknar. Umsóknarfresturertil 28. febr- úar n.k. Viðkomandi þarf að hafa starfsreynslu við „Nuc- lear Medicine“. Umsóknir með upplýsingar um námsferil og fyrri störf skal senda til yfirlæknis spítalans. ðt. Jósefsspítali, Landakoti St. Jósefsspítali, Landakoti Ársstaða aðstoðarlæknis við barnadeild, St. Jósefsspítala, Landakoti, er laus til um- sóknar. Staðan veitist frá 1. júní 1986. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar n.k. Umsóknir með upplýsingum um námsferil og fyrri störf skal senda til yfirlæknis barna- deildar. St. Jósefsspítali, Landakoti A Ritari óskast Félagsmálastofnun Kópavogs óskar eftir að ráða ritara í fullt starf. Megin verksvið er fólg- ið í ritvinnslu og má búast við að starfsmaður hljóti þjálfun á tölvu í því skyni. Umsóknar- frestur er til 1. febrúar n.k. og liggja umsókn- areyðublöð frammi á Félagsmáiastofnun, Digranesvegi 12. Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma 41570. Félagsmálastjóri Blaðberar óskast Bólstaðahlíð Hagamel Hamraborg Álfhólsveg DJÓÐVILJINN Síðumúla b

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.