Þjóðviljinn - 19.01.1986, Blaðsíða 13
Vinningshafar f
jólakrossgátunni
Þannig lítur hárrétt lausn jólakrossgátunnar út.
Fjölmargir tóku þátt í jólakrossgátu Þjóðviljans sem birtist í fyrra jólablaðinu.
Dregið hefur verið úr réttum lausnum og hlaut Úrsula Sonnenfeld, Eskihlíð 20
fyrstu verðlaun, 1500 krónur. Önnur verðlaun féllu í skaut Braga V. Bergmann
Hrísalundi 16, Akureyri og þriðju verðlaun hlaut Kolbrún Bergþórsdóttir Sól-
eyjargötu 11 Reykjavík. Verðlaunin verða póstlögð til vinningshafa.
Auglýsing um styrk
Hér með er auglýstur laus til umsóknar styrkur frá
Sögusjóði íslenskra stúdenta í Kaupmannahöfn.
Um er að ræða vexti af höfuðstól sjóðsins, ca
4000 DKR.
Markmið sjóðsins er að veita styrki til eftirtalinna
verkefna:
1. sem tengjast sögu íslenskra námsmanna í
Kaupmannahöfn.
2. sem tengjast að einhverju leyti sögu íslend-
inga í Kaupmannahöfn.
3. í sérstökum tilfellum eru styrkt verkefni er
tengjast dvöl íslendinga í Danmörku, og stjórn
sjóðsins sér ástæðu til að styrkja.
Umsóknir sendast til:
Sögusjóður stúdenta
c/o FÍNK
Ostervoldgade 12
1350 Kobenhavn K
Danmark
fyrir þann fyrsta febrúar n.k.
Frönskunámskeið
Alliance Franpaise
Fyrri námskeið vorannar hefjast mánudag
3. febrúar.
- 10 vikna námskeið
- Kennt verður á öllum stigum
- Bókmenntaklúbbur
- Leiklistarklúbbur (Minnst 6 nemendur,
mest 12 nemendur) fyrir þá sem lengra eru
komnir.
Innritun fer fram á Bókasafni Alliance Franc-
aise alla virka daga frá kl. 3-7 og hefst mánu-
dag 20. janúar.
Nánari upplýsingar í síma 23870
Veittur er 10% staðgreiðsluafsláttur og 15%
staðgreiðsluafsláttur fyrir námsmenn.
Greiðslur almennings
fyrir læknishjálp og lyf
(Geymið auglýsinguna)
(skv. reglugerð nr. 472/1985)
1. Greiðslur hjá heimilislækni og heilsugæslulækni
100 kr.- Fyrirviðtalástofu læknis. Innifalin er ritun lyfseðils.
180 kr. - Fyrirvitjun læknistil sjúklings.
Ofangreindargreiðslureru hámarksfjárhæðir, og má læknirekki krefja
sjúkling um viðbótargjald, nema vegna lyfja eða umbúða, sem sjúklingur
kynni að þurfa að fara með burt með sér.
2. Greiðslur fyrir sérfræðilæknishjálp,
rannsóknir og röntgengreiningu
325 kr. - Fyrir hverja komu til sérfræðings.
130 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar, fyrstu 12 skiptin hjá sérfræðingi
á hverju almanaksári, síðan ekkert. (Sjá nánar hér að neðan).
Aldrei má krefja sjúkling um nema eina greiðslu fyrir hverja komu ásamt
rannsókn/röntgengreiningu í framhaldi af henni. Til nánari skýringar er
eftirfarandi tafla:
Greiðslur almennings fyrir sérfræðilæknishjálp, nokkur dæmi.
TAFLA Heimilis- læknir Sérfræö- ingur Rannsókn/ Röntengr. Sérfræð- ingur Aðgerð hjá + Svæfing/deyfing sérfræðingi hjá sérfræðingi
Dæmi 1 100 325
Dæmi2 100 225
Dæmi 3 100 325 ■ 325
Dæmi4 100 325 0
Dæmi 5 100 325 0 325
Dæmi 6 100 325 0 325 0 325
Skýringar: Taflan lesist frá vinstri til hægri og sýnir samskipti við a.m.k. tvo
lækna. Dæmi 4: Sjúklingur leitar til heimilislæknis og greiðir þarlOO kr.
Heimilislæknir vísar síðan sjúklingi til sérfræðings, og þar greiðir sjúklingur
325 kr. Fessi sérfræðingur sendir sjúkling í röntgengreiningu, og þarf
sjúklingur ekki að greiða sérstaklega fyrir hana, þar sem hún er í beinu
framhaldi af komu til sérfræðings.
Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir, og má læknir ekki krefja
sjúkling um viðbótargjald, nema vegna lyfja eða umbúða, sem sjúklingur
kynni að þurfa að fara með burt með sér.
Allir eiga að fá kvittanir fyrir greiðslum sínum hjá sérfræðingum.
Elli- og örorkulífeyrisþegar, sem leggja fram hjá sjúkrasamlagi sínu kvittun
fyrir 12 greiðslum á sérfræðilæknishjálp á sama ári, fá skírteini, sem veitir
þeim rétt á þessari þjónustu ókeypis það sem eftir er ársins.
3. Greiðslur fyrir lyf
180 kr. - Fyrir lyf í lyfjaverðskrá I og innlent sérlyf.
310 kr. - Fyrir lyf í lyfjaverðskrá II.
70 kr.- Elli- og örorkulífeyrisþegar, fyrir lyf í lyfjaverðskrá I
og innlent sérlyf.
110 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar, fyrir lyf í lyfjaverðskrá II.
Eitt gjald greiðist fyrir hvern 120 daga lyfjaskammt, eða brot úr
honum.
Gegn framvísun sérstaks lyfjaskírteinis í lyfjabúð fást ákveðin lyf, við
tilteknum langvarandi sjúkdómum, ókeypis. Læknar gefa vottorð til
sjúkrasamlags í þeim tilvikum, sem réttur á skírteini kann að vera
fyrir hendi.
TRYGGINGASTOFNUN
ail RÍKISINS *