Þjóðviljinn - 19.01.1986, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 19.01.1986, Blaðsíða 19
Sjómennskan Framhald af bls. 17 - Ja, við sluppum a.m.k. ágæt- lega miðað við það, sem hefði getað orðið. En fyrir kom náttúr- lega að hurð skall nærri hælum. Það var t.d. í apríl 1942 að við vorum á heimleið frá Fleetwood og áttum eftir svona 100 mflur til Vestmannaeyja. Við sigldum í norð-norð-vestlæga stefnu. Það var skylda að tvö skip fylgdust alltaf að á siglingu og við vorum þarna með Júní frá Hafnarfirði, sem var nokkuð á eftir okkur. Þetta var að morgni til og ég var á vakt í brúnni. Sólin var komin upp og við sigldum undan sól. Allt í einu heyri ég gríðarlegan gný. í sömu andrá flýgur flugvél fram yfir skipið og sleppir tveimur sprengjum. Pær lenda rétt framan við stefnið, sitt hvoru megin við það og þegar skipið fór þar yfir sem sprengjurnar voru undir var eins og það hoppaði á timburbraki og sótið hristist fram úr kötlunum í vélinni. Flugvélin var með 6 sprengjur og hún sleppti þeim, sem ystar voru hvoru megin. Ef til vill hefur það gert gæfumuninn fyrir okkur. Við bjuggumst náttúrlega við því að vélin kæmi til baka og gerði aðra tilraun og skipstjórinn, Þorsteinn Einarsson, gerði strax ráðstafanir til þess að hafa vélbyssurnar til- búnar, en þær voru tvær um borð. Vélin flaug áfram um stund, sneri síðan í vinkil til vinstri og töldum við þá að hún væri að koma til baka. Svo var þó ekki, hún flaug áfram og hvarf. Hún hefur efa- laust verið að leita að skipalest og ekki talið ástæðu til að eyða meira púðri á ekki stærri bráð. Þetta atvik er mér nú einna efst í huga frá þessum siglingum. Árekstur Annars fannst mér það reyna einna mest á mann að sigla skip- unum ljóslaust yfir hafið. Af því leiddi auðvitað mjög mikla hættu á árekstrum eins og við máttum eitt sinn reyna. Það stóð þannig á að Surprice var í nokkuð tíma- frekri viðgerð. Ég var orðinn leiður á að hanga í landi og samdi við Ásgeir Stefánsson um að komast á annað skip. Kl. 2 að nóttu er svo hringt og ég látinn vita að búið sé að ráða mig á Haukanesið sem annan stýri- mann. Seinnipart dags erum við staddir í írska kanalnum. Rétt eftir að aldimmt er orðið verður árekstur. Tundurspillir kemur utan úr myrkrinu og það skiptir engum togum að hann lendir aft- ast á hvalbakshorninu bakborðs- megin. Myndast þarna mann- geng glufa niður að skammdekki. Þá voru siglingaljósin kveikt, við vildum ógjarnan fá aðra svona heimsókn. Þegar til Fleetwood kom fór skipið í slipp. Kom þá í ljós, að ganeringin fremst í lest- inni, úr tveggja tommu þykkri eik, var sprungin niður að botn- steypu. Viðgerðin tók rúma viku. Éftir að skipin voru svo aftur farin að sigla með ljósum á fjöl- förnum siglingaleiðum voru Ijós- in höfð það dauf, að þau sáust ekki í meira en mílufjarlægð og toppljósin í mesta lagi í 3ja mílna fjarlægð í góðu skyggni. Það Var því lítið svigrúm til þess að mæta kannski herskipi á 30 mflna hraða eða heilli skipalest. Ég ráðfærði mig við báða skipstjórana, siglingaskipstjórann og fiski- skipstjórann um hvað til bragðs skyldi taka ef árekstur sýndist skyndilega yfirvofandi. Þeir álitu að öruggast væri að hreyfa stýrið, sem var gufudrifið. Hringingar niður í vél væru of seinvirkar. Þessar ráðleggingar reyndust mér það vel að ég hreyfði aldrei vél- síma. Komst fyllilega að raun um að ef ekki yrði bjargað með stýr- inu þá yrði það heldur ekki gert með öðru móti. Eftir að stríðinu lauk tók það mig þrjú ár að átta mig á fjarlægð milli skipa með ljósum. Er ég kom heim var Surprice farinn út en enginn hafði verið tekinn í minn stað og ég komst aftur á mitt skip eftir 3 daga. Loftskeytastöðin var alltaf innsigluð af hernaðarástæðum þegar siglt var út og þar til komið var heim á ný. Því gat enginn um borð látið neitt um sig vita allan siglingatímann. Þetta sýnir hvaða óvissu og öryggisleysi sjómenn og þeirra fólk mátti búa við á þess- um árum. Ég fór alls 140 sinnum yfir hafið á stríðsárunum eða 70 ferðir fram og til baka. - Það hefur trúlega tekið á taugarnar að geta ekkert augna- blik verið óhultur fyrir árás eða árekstrum? - Maður skyldi ætla það, já. En hvað mig snerti þá var ég alltaf óttalaus. Til þess lágu atvik, sem ég ætla að eiga fyrir mig. Fjölskyldan á Bárugötu 16 - Við höfum ekkert vikið að fjölskyldu þinni, Valdimar, ekki gengur það. - Nei, og mér fyndist nú mikið vanta í þetta spjall okkar ef ekk- ert væri minnst á hana. Kona mín var Jóhanna Eyjólfsdóttir, fædd í Vestmannaeyjum 3. okt. 1915. Viðgiftum okkur8. okt. 1946. Ég missti hana eftir 38 ára hjóna- band 9. des. 1984. Börn okkar eru 3: Valdimar, stundar bílavið- gerðir og bflasprutun. Kona hans er Þorgerður Einarsdóttir og eiga þau 3 börn. Eyjólfur, verkfræð- ingur hjá Sjónvarpinu, kvæntur Hönnu Unnsteinsdóttur og eru börn þeirra 2. Helga Guðmunda, stúdent. Hennar maður er Óskar Alfreðsson, heildsali og eiga þau tvö börn. - Mér finnst fara vel á því að sjómaður búi við Bárugötu. Hef- uðu búið lengi í þessu húsi? - Já, alla mína búskapartíð að heita má. Það vildi svo til að þeg- ar ég kynntist konu minni þá hafði ég herbergi hérna á Báru- götu 19 hjá Kirstinu Briem, dótt- ur sr. Þorsteins, og Helga Þórar- inssyni manni hennar. Á efri hæðinni bjó tengdamóðir Kir- stinar, Kristín Ölafsdóttir frá Sumarliðabæ, systir Boga Ólafs- sonar menntaskólakennara og þeirra systkina og kona mín leigði hjá henni en stundaði annars sauma. Eftir að ég gifti mig hafði ég í hyggju að byggja. Var, til bráða- birgða, búinn að taka á leigu stofu og aðgang að eldhúsi hjá kunningja mínum uppi í Hlíðum. Við skruppum svo upp á Akranes að heimsækja fólkið mitt og vor- um þar í vikutíma. Þegar við komum til baka segir Kristín frá Sumarliðabæ við mig: Það er gott að þú ert kominn. Ég ætlaði að fara að hringja í þig. - Það er búið að auglýsa hérna hús til sölu, og bendir mér á það út um eldhús- gluggann. Ég þurfti ekki annað en setjast upp á eldhúsborðið og virða húsið fyrir mér. Það varð úr að ég keypti þetta hús, Bárugötu 16, og við fluttum héryfir götuna 1. okt. 1946. Hús- ið er byggt 1926 og ég keypti það af Bjarna Sighvatssyni þegar hann flutti til Vestmannaeyja sem bankastjóri. Síðan hef ég búið hér. Kona mín skapaði mér hér yndislegt heimili og veitti mér ávallt ómetanlegan styrk í starfi mínu, sem háð var miklum fjar- vistum öll árin. Ég verð þeirri mætu konu, Kristínu, ævinlega þakklátur fyrir þessa ábendingu hennar. breyttist allt til batnaðar með skuttogurunum. Nú er allur fisk- ur unninn á færiböndum undir þiljum, áður á opnu dekki. Öllum tækjabúnaði hefur stór- fleygt fram. Og þegar hætt er veiðum og búist til heimferðar eða þegar mæta þarf veðrum þá er fljótlegt að gera allt sjóklárt. En skuttogararnir velta mikið. Það er ekki lítil orkueyðsla og veiðarfæratjón sem fylgir því, að sóknin hefur færst dýpra og dýpra, frá 300 í 500 faðma dýpi, sem engum síðutogara var fært að toga á. Á þetta álag á skip og áhöfn er aldrei minnst þegar tal- að er um kostnaðinn. Ýmiss kon- ar slys koma auðvitað ennþá fyrir og reynslan hefur sýnt að aðgæsla og sjómannshæfileikar eru ekki síður mikilsverðir þættir nú en áður. Ég er svo lánsamur að hafa Auglýsið í i Þegar þú kemur meö bílinn í smurningu til okkar, færðu að sjálfsögðu fyrsta flokks alhliða smurningu. En það eru tvö atriði sem viðskiptavinum okkar hafa líkað sérstaklega vel og við viljum vekja athygli þína á. Þessi tvö atriði framkvæmum við án sérstaks aukaaialds á öllum bílum, sem við smyrjum. í fyrsta lagi smyrjum við allar hurðalamir og læsingar á bílnum. Þetta tryggir að allar hurðir og læsingar verða liðugar og auð- opnaðar, jafnvel í mestu frostum. alltaf venð með afbragðs sjó- mönnum og verið hjá fyrirtækj- um, sem hafa verið örugg með greiðslur. Fyrir það er ég þakk- látur. Jú, ég er ennþá á sjónum og verð það á meðan þeir vilja hafa mig. Þetta er mér ekki bara starf til þess að hafa ofan af fyrir mér, það er eitthvað heillandi við sjómennskuna, eitthvað, sem ég treysti mér ekki til að koma orð- um að svo aðrir skilji en þeir, sem sjálfir hafa reynt. Nei, ég hef eng- ar áætlanir hvorki til né frá, þær vilja hvort sem er oftast fara út um þúfur. -mhg Laugarneshverfi Eftirfarandi námsflokkar eru í boði í Laugalækjarskóla á vorönn 1986. Vélritun 1.fl. mánud. kl. 1925-2050 Bókfærsla 2.fl. mánud. kl. 1925-2050 Bókfærsla 1.fl. mánud. kl. 2100-2220 Enska 3,fl. mánud. kl. 2100-2220 Enska 1.fl. miðv.d. kl. 1840-2005 Þýska 1.fl. þriðjud. kl. 2100-2220 Þýska 2,fl. þriðjud. kl. 1925-2050 Sænska 1.fl. þriðjud. kl. 1925-2050 Sænska 2,fl. þriðjud. kl. 2100-2220 Sænska 3.fl. mánud. kl. 1925-2050 Kennsla hefst mánud. 20, jan. Námsflokkar Reykjavíkur símar 12992 - 14106 Miðbæjarskólanum í öðru lagi tjöruhreinsum við framrúðuna, framljósin og þurrku- blöðin. Þetta lengir endingu þurrkublaðanna og eykur útsýni og öryggi í vetrarumferðinni. Engar áœtlanir - Jæja, Valdimar. Þú byrjaðir sjómennskuna á gamla Surprice 1940 og nú ert þú á einum afnýrri togurunum Hjörleifi. Hefur ekki geysimikil breyting orðið á þess- um skipum og vinnuaðstaða og aðbúnaður með allt öðrum og betri hœtti en áður? - Já, það má kannski segja að ég sé búinn að fara í gegnum alla þessa þróunarsögu. Þetta Tryggðu þér fyrsta flokks smurningu með því að panta tíma í síma 21246 eða renna við á smurstöð Heklu hf. Laugavegi 172. Sunnudagur 19. janúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.