Þjóðviljinn - 19.01.1986, Qupperneq 8
KANNSKI
SKEMMTILEG
ÚRKYNJUN
Óvænt og næstum óþyrmi-
lega í sviðsljósi: Matthías
ViðarSæmundsson nýsettur
lektor í íslenskum bók-
menntum við heimspekideild
Háskóla íslands. Hann á þá
stöðu sína að þakka umdeild-
um menntamálaráðherra,
Sverri Hermannssyni, sem
tók Matthías frammyfir þann
umsækjanda sem dómnefnd
og deildarráð höfðu talið best
til fallinn, Helgu Kress.
Matthías er annars rúmlega
þrítugur, laukcand-mag-þrófi
í íslensku við HÍ árið 1980,
hefur síðan fengist við ritstörf,
rannsóknir og kennslu, í há-
skólanum, framhaldsskólum
og einn vetur í Rómaborg.
Eftir hann liggja auk ýmis-
legra ritgerða tvær bækur,
Mynd nútímamannsins, um
viðhorf í skáldskap Gunnars
Gunnarssonar, og Stríðog
söngur, samtalsbók við sex
rithöfunda. Og hefurMatthías
Viðar undanfarið verið bók-
menntaumfjallari á DV.
Von er á máli fyrir jafnréttis-
ráði vegna stöðuveitingarinnar,
urgur í háskólakennurum og
stúdentar í íslensku hafa mót-
mælt, - þessvegna er ekki úr vegi
að byrja samræðu við Matthías
með því að spyrja hvort ekki sé
nokkuð beiskt bragð í munni þeg-
ar störf hefjast með þessum
hætti.
- Ég hefði kosið að aðdragand-
inn væri annar. Hinsvegar er á
það að líta að þessi mótmæli
koma mér persónulega ekki við.
Það eina sem ég gerði var að
sækja um stöðu, á móti Helgu
Kress, - sem varla er goðgá. Að
auki veit ég að það eru skiptar
skoðanir um þessi mál öll meðal
stúdenta.
- Annars er eðlilegt að menn
hreyfi mótmælum og reyndar
óhjákvæmilegt. Ráðherra fór
þarna eftir eigin sannfæringu og
fylgdi ekki niðurstöðum dóm-
nefndar og deildarráðs einsog
venja er. Það hefur að vísu gerst
áður, og ráðherra hefur til þess
fullt vald, - að velja þann sem
honum líst svo fremi hann sé ekki
dæmdur óhæfur af dómnefnd. En
þetta er samt óvenjulegt. Og ég
álít að þetta fyrirkomulag sé ekki
gott. Háskólinn á að vera
fullkomlega sjálfstæður um innri
málefni sín, - sú staða getur kom-
ið upp að stjórnmálamenn beiti
valdi sínu skólanum til skaða. En
eina leiðin til að tryggja skóla-
num þetta sjálfstæði er að breyta
lögum um hann, - upphlaup og
írafár í fjölmiðlum útaf einstök-
um stöðuveitingum breyta engu.
Né heldur tilfinningasamar yfir-
lýsingar um kvenfjandskap og
vanvirðu sýnda heimspekideild.
Fyrrverandi?
Umdeildar stöðuveitingar ráð-
herra eru oftast umdeildar af pól-
itískum ástœðum. Er ekki heldur
einkennilegt fyrir fyrrverandi ma-
óista að vera í almenningsáliti tal-
inn skjólstœðingur íhaldsmanns-
ins Sverris Hermannssonar?
- Fyrrverandi? Hvað veist þú
MatthíasViðar
Sœmundsson
um háskóla-
stöður, kynja-
bókmenntir,
aðferðafrœði,
ástog útlegð
um það? Ég held reyndar að
menntamálaráðherra horfi ekki á
þetta mál gegnum pólitísk gler-
augu. Þær skýru pólitísku and-
stæður sem uppi voru í bók-
menntaheiminum fyrir fáum ára-
tugum, milli hægri og vinstri,
andstæður sem til dæmis krist-
ölluðust í stofnun Máls og menn-
ingar og Almenna bókafélagsins,
- þessar andstæður eru ekki
lengur fyrir hendi í neinum mæli.
Menn meta ekki lengur bók-
menntir á pólitískum trúboðsfor-
sendum.
/ þessu stöðumáli hafa komið
upp spurningar um jafnrétti kynj-
anna, og því hefur verið haldið
fram að ákvörðun ráðherra hafi
mótast af kvenfjandskap...
- Mér hefur fundist vera ein-
hverskonar trúarofsi í þeirri um-
ræðu sem um þetta hefur spunn-
ist. Er það nú alveg víst að ráð-
herra fyrirlíti konur almennt þótt
hann veiti ekki einni þeirri stöðu?
Þarf alltaf að ætla mönnum ann-
arlegar hvatir? Ég minni á að
svipaðar aðstæður hafa marg-
sinnis skapast milli karla. Sverrir
hefur skýrt ákvörðun sína um
þessa stöðuveitingu í fjölmiðlum
og ég sé enga ástæðu til að draga
þá skýringu í efa, - honum fannst
óeðlilegt að ráða í starfið um-
sækjanda sem var fyrir með
ágæta stöðu við skólann, og valdi
þessvegna þann sem dómnefnd
setti í annað sæti. Þetta er auðvit-
að umdeilanlegt, en það er engin
ástæða til að leggja í það stjarn-
fræðilegan skilning.
Helga Kress hefur litið á sig sem
fulltrúa kvennabókmennta og
rannsókna á þeim. Sé það ástœða
þess að henni var hafnað, - má þá
líta svo á að þú sértfulltrúi karla-
bókmennta og karllegra bók-
menntarannsókna?
- Ég dreg mjög í efa að þessi
skil séu jafn afdráttarlaus og
sumir vilja vera láta. Ég er á móti
öllu apartheid í bókmenntarann-
sóknum. List er ekki kyndbund-
in, - og athöfnin að skrifa speglar
mennska tjáningarþörf, sam-
eiginlega körlum og konum. Eðl-
isþættirnir eru hinir sömu í báð-
um tilvikum. Þess vegna finnst
mér rangt að skilja að kvenna- og
karlabókmenntir í kennslu.
Langhundar
Torfhildar
- Hinsvegar má án efa leggja
„Skáldskapurer
ekki aðeins strúkt-
úr, hann er líka
innblásinn ímynd-
unarafli og tilfinn-
ingu einstaklings."
(mynd EÓI).
meiri áherslu en gert hefur verið
á skáldskap eftir konur í rann-
sóknum og kennslu. Það er að
vísu dálítið erfitt hvað snertir
bókmenntir fyrri tíma. Úrvalið er
lítið. Og sjálfur hef ég þá reynslu
að hvorki strákar né stelpur eru
reiðubúin að leggjast í langhunda
Torfhildar Hólm, þótt hún sé enn
fárra kvenrithöfunda á nítjándu
öld, og merkileg þótt leiðinleg sé.
Á hinn bóginn hafa fjölmargir
kvenhöfundar skipað sér í frem-
stu röð á síðustu árum, og það er
kannski skemmtilegasti árangur
jafnréttisbaráttunnar að konur
hafa nú meira þrek og þor en
áður til að skrifa og gefa út.
- Fulltrúi karllegra sjónar-
miða? í gagnrýni hef ég reynt að
taka skáldskap eftir konur og
karla sömu tökum, - sem skáld-
skap. Gagnrýnendur hér áður
gerðu sig seka um visst vanmat á
bókmenntum eftir konur, af kyn-
ferðislegum ástæðum, - en ég
held að slíkt sé liðin tíð, meðal
annars vegna framlags fræði-
manna einsog Helgu Kress.
Hafa kvenleg frœði um bók-
menntir verið vanrækt í háskólan-
um?
- Ég fæ ekki séð að femínískri
bókmenntagagnrýni hafi verið
gert lágt undir höfði í háskólan-
um. Hún er viðamikill þáttur
kennslu í almennum bók-
menntum og í vetur hefur verið
sérstakt námskeið um kvenna-
bókmenntir í íslenskudeildinni,
námskeið sem sjálfsagt er að hafa
sem oftast meðan áhugi er á.
Þessi femíníska gagnrýni hefur
um margt aukið skilning okkar á
8 SÍÐA - ÞJOÐVILJINN Sunnudagur 19. janúar 1986