Þjóðviljinn - 19.01.1986, Síða 10
Fíkniefnasmyglarar
ERU YFIRVOLD AÐ TAPA STRIDINU?
- smyglarar keyra tekjur sínar í handvögnum og
leggja fé til höfuðs lögregluforingjum. 30 milljón
dollara mdnaðartekjur bófaforingja. Viðleitni
yfirvalda skilar litlum drangri
Bandaríska fíkniefnalögregl-
an, Drug Enforcement
Administration, stóö fyrir
skömmu mann aö því að nota
innkaupakerru til að aka inn-
leggi sínu í banka. í kerrunni
voru 4.5 milljónir dollara. Ann-
arfíkniefnasmyglari, Victorað
nafni, ersagðurhafa „mikið
magn peninga í skotti bíls
síns“. „Hannsagðimérað
taka það sem ég þyrfti," sagði
Louis Garcia, fyrrverandi
starfsmaður Victors.
Kólumbíski fíkniefnabaróninn
Gonzalo Rodríguez hefur um 20
milljónir dollara í mánaðartekj-
ur. Það er hægt að lifa á því. Og
það er einnig hægt að ráða sér
einkaher og drottna yfir borgum
og landssvæðum eins og barónar
fyrri tíma. Og það gera margir
hinna suður-amerísku fíkniefna-
baróna einmitt.
„Framtakið" eða „The Enter-
prise“ er nafn sem hópi lögreglu-
manna frá Miami hefur verið gef-
ið, en á síðustu sex mánuðum
hafa 11 lögreglumenn á Miami
verið kærðir fyrir bæði minni
háttar afbrot og glæpi af alvar-
legri toga. Nú nýverið voru þrír
lögreglumenn í viðbót ákærðir og
það fyrir þrefalt morð.
Þessir glæpir framtaksfélag-
anna tengjast mjög eiturlyfja-
smygli. Þeir þrír menn sem lög-
reglumennirnir myrtu voru allir
eiturlyfjasmyglarar og létust er
lögreglan greip þá með mikið
magn fíkniefna í bát sínum. f
þessari árás eins og nokkrum
áður, skiluðu lögreglumennirnir
ekki nema hluta þeirra eiturlyfja
sem þeir tóku, enda árásin gerð
til að ná í fíkniefnin til að selja
sjálfir.
Þá eru þessir lögreglumenn,
sem allir eru milli tvítugs og þrí-
tugs og unnu á sömu næturvakt-
inni, grunaðir um að hafa annast
fíkniefnasölu sjálfir og flutt efnin
milli staða í lögreglubílum.
Þrátt fyrir að yfirvöld í Miami
séu núna að hreinsa til í lögregl-
unni hjá sér, veit enginn hversu
mikil spilling er meðal löggæslu-
manna. Áætlað er að um 5-10
milljarðar dollara fari um Maimi
árlega vegna fíkniefnasmygls, og
það hlýtur að freista heiðarleg-
ustu lögreglumanna að fara yfir
strikið.
Nú er álitið að meiri peningar
séu í fíkniefnasmygli en nokkurri
annarri viðskiptagrein í heimin-
um og torveldar það mjög störf
Iögreglu. Smyglararnir hafa fjár-
magn til að nota fyrsta flokks tæki
og vélar við smyglið, ráða stóra
einkaheri til að gæta hagsmuna
sinna (einkaher Pablo Escobar
Gaviria telur yfir 2000 menn á
meðan fíkniefnalögreglan
Bandaríkjanna hefur 1800 starfs-
menn) og getað mútað með háum
peningaupphæðum þegar það
þarf.
Þá er gróði af eiturlyfjasmygli
og sölu svo mikill að þrátt fyrir að
einhverjir náist og sé komið bak
við lás og slá eru alltaf nægir til að
taka við.
Er stríðið
tapað?
En eru fíkniefnasmyglararnir
að vinna stríðið við löggæslu? Sú
er skoðun bandaríska blaða-
mannsins Laurence Gonzales,
sem ritar grein í desemberhefti
tímaritsins Playboy og segir þar
að nú sé meira af „hágæða“ fíkni-
efnum á markaðnum en nokkru
sinni fyrr.
John Bott, foringi í bandarísku
fíkniefnalögreglunni í Houston í
Texas, sagði Guðlaugi Berg-
mundssyni blaðamanni fyrir
skömmu að í baráttunni við ftkni-
efnasmyglarana ríkti nú þrátefli:
„Við erum að minnsta kosti ekki
að tapa henni".
En Gonzales segir í grein sinni
að sérfræðingar sem kannað hafa
fíkniefnamarkaðinn segi að allar
tilraunir til að stöðva smyglið séu
dæmdar til að mistakast; hinn of-
boðslegi gróði af smyglinu vegur
mun meira en löghlýðni eða ótti
við refsingu. Þá segir hann að
sérfræðingarnir telji ómögulegt
að stöðva ræktun eiturlyfjanna.
Gonzales dregur síðan þá á-
lyktun að sérfræðingarnir hafi að
öllum líkindum rétt fyrir sér því
að þrátt fyrir stórfelldar aðgerðir
yfirvalda sé nú meira magn af
fíkniefnum, selt á lægra verði en
áður, á markaðnum en nokkru
sinni fyrr. Og fyrir ári síðan lýsti
öldungardeildarþingmaðurinn
Dante B. Fascell, formaður utan-
ríkismálanefndarinnar, því yfir í
New York Times að þrátt fyrir
einhvern árangur, aðallega í Kol-
umbíu, „þá er stríðið tapað“.
Leiftursókn
Reagans
Þegar Reagan tók við embætti
lýsti hann yfir stríði á hendur
fíkniefnasölu og smygli, og í jan-
úar 1983 skipaði hann Bush var-
aforseta til að stýra baráttunni.
Reagan og Bush beita áætlun
sem upphaflega var samnin á veg-
um Nixon. Sú áætlun gerir ráð
fyrir tvíþættri baráttu: annars
vegar að komið sé í veg fyrir rækt-
un maríjúana, kóka-runnans og
ópíums og hins vegar að gera
fíkniefnin upptæk er reynt er að
smygla þeim inn í Bandaríkin.
Ef fyrst er litið á fyrri þátt áætl-
Kókaíneroftasttekiðínösogvirkarmjögfljótt. NotkunþesserorðinsvoalmenníBandaríkjun um að yfirvöld óttast að þau séu að tapa stríðinu við kókaínsmyglarana.
unarinnar, að stöðva ræktun
þessara jurta, þá verður að eyða
og uppræta þær og síðan að koma
með jurtir eða annað sem við-
komandi bændur geta ræktað í
staðinn.
Bandaríska utanríkisráðuneyt-
ið vinnur að þessu í samvinnu við
aðrar ríkistjórnir. Árið 1984
eyddu Bandaríkjamenn um 50
milljónum dollara til þessa verk-
efnis, en samanborið við gróða af
sölu eiturlyfja verður sú tala lítil-
fjörleg.
í Kolumbíu hefur verið reynt
að fá bændur til að rækta kart-
öflur í stað kóka-runnans, en
jafnvel harðsvíraðasti kartöflu-
bóndi getur ekki búist við 20
milljón dollara mánaðarlaunum.
Enda eykst í sífellu framleiðsla á
þessum efnum.
Og sömu sögu er að segja frá
Bandaríkjunum sjálfum. Þar var
á síðasta ári metuppskera á mari-
juana og var það næstverðmæt-
asta uppskera bandarísks land-
búnaðar (ef kalla má ræktun fíkn-
iefna landbúnað) næst á eftir
korni. (Heimaræktað marijuana
seldist fyrir tæpa 14 milljarða
dollara).
Eitt meginvandamál þess hluta
baráttunnar sem beinist gegn
ræktun eitursins, er að unnt er að
rækta plöntur á borð við kóka-
runnann um alla Suður og Mið-
Ameríku og auk þess víða annars
staðar í heiminum. Þannig að þó
að það tækist að útrýma honum í
Kolumbíu t.d. þá hefði það að
öllum líkindum lítil áhrif á
heildarframleiðslu í heiminum.
Önnur ræktunarsvæði eru t.d.
Burma, sem er nú helsti fram-
leiðandi ópíums, Morocco, Laos,
Nigeria, Thailand, Vietnam,
Nepal, Indland, Chad, Pakistan,
eyjar Karabíska hafsins og fleiri
lönd.
í flestum þessara landa eru að-
stæður, pólitískar og efnahags-
legar, þannig að erfitt er að ná
árangri í þessari baráttu. Mikil fá-
tækt veldur því að bændur
freistast til að rækta þessar jurtir
og spilling og óstjórn gerir vold-
ugum glæpahringjum auðvelt
fyrir. Þá er landslag oft þannig að
nærri ómögulegt er að stunda
nokkurt eftirlit og í mörgum
löndum hafa glæpahringirnir
hreinlega komið sér fyrir í af-
skekktum fjallahéruðum sem
þeir stjórna sem sjálfstæðum hér-
uðum.
Þá hafa þessir skipulögðu
glæpahringir sem annast ræktun,
vinnslu og smygl á fýkniefnunum
brugðist hart við aukinni lög-
gæslu. Morð og ofbeldisverk eru
nærri daglegt brauð í þessari við-
skiptagrein.
Snemma árs 1985 voru tveir
starfsmenn bandarísku fíkniefn-
alögreglunnar, þeir Enrique Sal-
azar og Alfredo Zavala, pyndaðir
og myrtir af kólumbískum glæpa-
mönnum. 1984 var dómsmála-
ráðherra Kólumbíu myrtur í bíl
sínum af fíkniefnasölunt og
skömmu síðar var reynt að
sprengja sendiráð Bandaríkj-
anna í Bogota upp með bíl-
sprengju sem banaði konu einni.
Þá hafa kolumbíuskir fíkniefna-
salar lagt 350.000 dollara til
höfuðs yfirmanni DEA (Drug
Enforcement Administration) og
300.000 dollara til höfuðs öðrum
starfsmönnum stofnunarinnar.
Þá hefur ofbeldisaldan náð til
Bandaríkjanna sjálfra. Á hátindi
kókaínstríðsins í Miami voru tæp
30% allra morða þar í borg fram-
in með vélbyssu, en litlar hand-
vélbyssur eru einkennisbyssur
fíkniefnasmyglaranna.
Barist í lofti
og á legi
Þá gengur baráttan við smygl-
aranna ekki mikið betur. Smygl-
arar sem nota báta til að koma
vöru sinni á markað í Bandaríkj-
unum eru oft vopnaðir og undir
það búnir að verjast bandarísku
strandgæslunni. Nú nýverið
þurfti strandgæslan að biðja um
aðstoð bandaríska flotans eftir
tveggja daga eltingarleik við stór-
an og öflugan smyglbát, sem var
bæði aflmeiri en bátar strand-
gæslunnar og betur vopnaður.
Loks tókst að stöðva smyglar-
ana og handtaka, en til þess þurfti
kjarnorkuknúinn tundurspilli og
tvær árásarflugvélar.
Þá eru efnin flutt flugleiðis
bæði í litlum vélum og stórum
þotum; í febrúar 1985 tóku
tollverðir rúmt tonn af kókaíni í
Boeing 747 vél kólumbíska flug-
félagsins Aviance (í vélum þess
félags hafa 34 sinnum á síðustu 5
árum fundist fíkniefni).
Þegar brugðist er við einni
innkomuleið smyglaranna þá
flytja þeir sig um set. Þannig voru
einu áhrif mikils radarkerfis sem
sett var upp í Florida, þau að
smyglið færðist til fylkjanna Ala-
bama, Louisiana og Texas.
Löggœsla
eða uppfrœðsla
Umræða í Bandaríkjunum
snýst um það hvernig hægt sé að
bregðast við þessu vandamáli.
Aukinni löggæslu fylgir mikill
kostnaður og afskipti lögreglu af
daglegu lífi fólks sem aftur er
ptikill þyrnir í augum allflestra
Bandaríkjamanna.
En enn eru óreyndar tvær að-
ferðir í þessari baráttu, segir
Gonzales, en það er aukin
fræðsla og áróður og síðan að
gera neyslu fíkniefna löglega.
Gonzales segir í grein sinni að
með uppfræðslu og endurhæf-
ingu sé ráðist gegn rót vanda-
málsins - ekki einkennum. Þá
segir hann að besta ráðið gegn
öðrum fíkni-sjúkdómum (s.s alk-
óhólisma) hafi reynst vera ein-
mitt fræðsla og endurhæfing en
ekki bönn og lagabókstafir.
20. aldar
sjúkdómurinn
í Bretlandi hefur orðið mikil
aukning á notkun heróíns. Þar er
reiknað með að nú þegar séu
120.000 manns sem neyta efnisins
daglega og hefur heróínsjúk-
lingum fjölgað um 400% á síð-
ustu 10 árum en þó aðallega síð-
ustu 5 ár. Flestir notendur eru á
aldrinum 18-35, hvítir og búa í
stóru iðnaðarborgunum.
Þá reikna Bretar með því að
þar séu allt að 200.000 notendur
amfetamíns og hundruð þúsunda
kannabisnotenda.
En hvernig skyldi ástandið
vera hér? Fyrir tveimur árum síð-
an gerði dagblaðið NT úttekt á
fíkniefnamarkaðnum hér á landi
og sögðu viðmælendur blaðsins
úr röðum fíkniefnaneytenda, sala
og smyglara, að aukin harka væri
að færast í þessi viðskipti og of-
beldi færi vaxandi.
Þá sagði Helgi Kristbjarnar-
son, læknir á geðdeild Lands-
spítalans, að neysla sterkari lyfja
færi vaxandi og að búast mætti
við dauðsföllum á næstu árunt
vegna þess.
Helgi sagði fyrir skömmu í
samtali við blaðamann að minna
hefði borið á sterku lyfjunum en
hann hefði búist við og lögreglan
sagði að hún sæi Iítið af heróíni og
kókaíni en því meira af amfetam-
íni.
Fíkniefnalögreglan hér á landi
skiptir smyglurum í þrjá hópa: í
fyrsta lagi sé um neytendur að
ræða sem fari reglubundið til
Amsterdam og kaupi þar efni til
eigin nota og í leiðinni til að selja
og fjármagna þannig eigin
neyslu, í öðru lagi sé um að ræða
neytendur, sem fara þegar þeir
hafa fjármagn en teljast ekki
reglubundnir innflytjendur og í
þriðja lagi sé hópur sem neytir
ekki lyfjanna sjálfur en flytur þau
inn reglulega til að auðgast.
Þannig virðist því vera að
myndast hópar óprúttinna glæpa-
manna hér á landi, sem eru til-
búnir að gera sér eymd og vesæld
þeirra sem verða fíkninni að bráð
sér að féþúfu, og ekki eru það
bara smyglararnir og eiturlyfja-
salarnir sem hagnast; að sögn lög-
reglunnar koma okurlánin svok-
ölluðu mjög við sögu í fíkniefna-
heiminum og er því líklegt að ein-
hverjir góðborgarar sem hugðust
hagnast á okurlánum hafi í raun
hagnast á eiturlyfjasölu.
S.Alb.
Féþúfa upprœtt
Árangur tveggja ára um-
fangsmikillar rannsóknar á
eiturlyfjasmygli til Bandaríkj-
anna leit dagsins Ijós í Houst-
on íTexas snemma í desemb-
erer Edwin Meese III, alríkis-
saksóknari ákærði 44 ein-
staklinga, einn banka og tvö
fyrirtæki fyrir að smygla 125
tonnum af maríjúana frá Mex-
íkó. Smyglhringurinn ereinnig
ákærðurfyrirað notafjöldann
allan af bönkum í T exas, Kal-
eforníu, Arisona, New Yorkog
á Cayman eyjum til að „þvo“
hagnað af eiturlyfjasölunni.
„Þetta er líklega einn mesti
eiturlyfjasmyglhringurinn sem
flett hefur verið ofan af hér í
Iandi,“ sagði Henry Ongken,
saksóknari í Houston, er ákær-
urnar voru gerðar opinberar 11.
desember sl.
Rannsóknin fékk dulnefnið
„Cash Crop“ sem þýða mætti á
íslensku sem „féþúfu“ og
reyndist það sannkallað rétt-
nefni. í kjölfar rannsóknarinnar
hafa yfirvöld lagt hald á 30
milljónir dollara í reiðufé, hús-
eignum, búgörðum, landar-
eignum, skartgripum, þotum
gullpeningum, farartækjum og fl.
f ákæruskjalinu segir að smygl-
ið hafi byrjað 1980 og að hinir
ákærðu hafi flutt inn maríjúana
og methaqualone pillur. Maríjú-
anað var flutt inn til Bandaríkj-
anna með flugvélum og tankbíl-
um. Það var síðan flutt til Houst-
on, þaðan sem því var dreift til
Dallas, Chicago og fleiri borga.
Foringjar smyglhringsins eru
sagðir vera tveir Mexíkanar frá
Gualajara, þeir Juan, Jose
Quintero-Payan og Emilio
Quintero-Payan. Þeir eru frænd-
ur hins alræmda eiturlyfjakóngs,
Rafael Caro Quintero, sem situr
nú í fangelsi í Mexíkó vegna
morðs á starfsmanni bandarísku
eiturlyfjalögreglunnar, Drug En-
forcement Administration,
snemma á árinu 1985.
Smyglhringurinn notaði um 40
banka um öll Bandaríkin þar af
15 í Houston til að „þvo“
milljónir dollara af illa fengnu fé.
Að minnsta kosti 17 milljónir
dollara voru lagðar inn á banka-
reikninga í Kaliforníu og Texas.
Sem dæmi um hversu gífurlega
fjármuni eiturlyfjasmyglararnir
höfðu undir höndum, kemur
fram í ákæruskjalinu að höfu-
ðpaurarnir áttu 60 milljónir doll-
ara í reiðufé.
Eitt meginvandamál smygla-
ranna er einmitt að losna við
gífurlegar fjárhæðir og Ongken
saksóknari sagðist ekki vera í
nokkrum vafa um að bankar í
Houston væru notaðir til að
„þvo“ stóran hluta þessa fjár.
Meðal aðferðanna sem notaðar
eru til að „þvo“ eiturlyfja-
gróðann má nefna þá að stofna
bankareikninga þar sem inn-
leggið er undir 10.000 dollurum
og þess vegna ekki skylt að til-
kynna til yfirvalda. Þá kaupa
sendisveinar smyglaranna sér-
stakar óútfylltar bankaávísanir,
hverja undir 10.000 dollurum. í
þessu tilviki voru bankastarfs-
menn í vitorði með glæpamönn-
unum og fölsuðu skýrslur um
peningafærslur.
„Skítugir peningar" af þessu
tagi eru orðnir snar þáttur í efna-
hagslífi Florída vegna þess að
miðstöð kókaínssmygls til
Bandaríkjanna hefur verið þar.
Yfirvöld í Houston vilja koma í
veg fyrir að svo verði einnig þar.
Bandarískir lögreglumenn hella niður kókaíni.
Þrótefli í stríðinu
Rœttvið foringja ÍDrug Enforcement Administration
„ Þetta er allt erfitt. Þaö er
sama hvaöa leið þú finnurtil
aö smygla eiturlyfjum inn í
landiö, þú getur verið viss um
að hún hefur veriö reynd
áöur.“
Þannig mælti John Bott, for-
ingi í bandarísku fíkniefnalög-
reglunni, Drug Enforcement
Administration í Houston. DEA
er alríkisstofnun sem berst gegn
innflutningi og dreifingu á fikni-
efnum en eltist ekki við háskól-
astúdenta sem „reykja maríjúana
á herbergjum sínum á stúdentag-
örðunum" eins og Bott orðaði
það.
John Bott hefur verið á
fimmtánda ár innan raða DEA,
þar af lengstum „á götunni“ í
Chicago. Og hann hefur gaman
af starfinu. Til Houston kom
hann sl. sumar. Hann gerir sér
engar grillur urn baráttuna við
fíkniefnasmyglarana og segir að
þar ríki eins konar þrátefli. Við
erum að minnsta kosti ekki að
tapa henni. Við gerum okkar
besta en við vildum geta gert bet-
ur.“
Drug Enforcement deildin í
Houston berst gegn fíkniefna-
smyglurum í þremur fylkjum,
Texas, Lousiana og Missisippi.
Ekki vildi Bott upplýsa hversu
margir menn störfuðu innan
deildarinnar þar sem það væri
leyndarmál. Hann viðurkenndi
þó að þeir væru undirmannaðir.
Ástandið færi þó skánandi þar
sem Reagan forseti hafði lýst bar-
áttuna gegn eiturlyfjum sem eitt
af höfuðbaráttumálum sínum.
„Þetta er sívaxandi vandamál"
sagði Bott.
Engin leið er að segja til um
hversu miklu magni fíkniefna er
smyglað inn til Bandaríkjanna á
ári hverju. Löggæslumenn áætla
þó að þeir leggi hald á um 15% af
heildarmagninu og verðmæti
þess skiptir milljörðum dollara.
Löggæslumenn lögðu hald á
346 kg af heróíni, 11742 kg af
kókaíni og 1399925 kg af marí-
júna á árinu 1984. Þá lögðu þeir
hald á 1377702 kg af hættulegum
lyfjum sem svo eru kölluð en það
eru pillur af ýmsum tegundum.
John Bott hafði ekki tölurnar frá
1983, en sagði að þær hefðu verið
lægri. Þá sagði hann að fram á
mitt árið 1985 hefði verið lagt
hald á meira magn þegar á
heildina væri Iitið, en á sama tíma
1984. Mest er aukningin í kóka-
íni.
John Bott sagði að löggæslu-
menn hefðu ýmsar aðferðir til að
berjast við fíkniefnasmyglarana.
Hann nefndi samstarf við löndin
þar sem efnin eru framleidd. Og
samkvæmt blaðafréttum að und-
anförnu hefur samstarf við ríki
Rómönsku Ameríku borið þó
nokkurn árangur.
Önnur aðferðin er að grípa
eiturlyfin áður en þau koma á
markaðinn. Þriðja aðferðin er að
hafa gætur á skipulagðri dreif-
ingu Iyfjanna eftir að yfir landa-
mærin kemur. Loks nefndi hann
samvinnu við löglega fram-
leiðendur lyfja eins og amfetam-
íns og barbitúrssýrulyfja sem not-
uð eru á ólöglegan hátt.
„Þegar öllu er á botninn hvolft,
þá er þetta bara góð og ströng
löggæsla þar sem við notum
hvaða aðferðir sem tiltækar eru.
Þar á meðal er eftirlit af ýmsu tagi
eins og t.d. löglegar símhleran-
ir,“ sagði Bott.
Aðspurður sagði hann að ekki
yrði vart við árstíðabundnar
sveiflur að því er varðar ólöglega
neyslu hverrar fíkniefnategundar
fyrir sig. Smyglararnir hefðu
nægar birgðir í framleiðslu-
landinu til að duga.
Strandlengja Florida hefur um
langa hríð verið einn helsti land-
göngustaður eiturlyfjasmyglara
frá Rómönsku Ameríku, sem
koma með kókaín og maríúana
þaðan. Allt eftirlit hefur verið
hert til muna, einkum á undan-
förnum tveimur til þremur árum.
„Við erum famir að finna fyrir
aðgerðunum í Forída. Houston
og Texas yfirhöfuð er að verða æ
mikilvægari dreifingarstöð fyrir
fíkniefni. Þetta er eðlilegur val-
kostur og kemur þar til að þetta
er hafnarborg svo og nálægðin
við Mexíkó. Aukningin hefur þó
ekki orðið eins mikil og við hefði
mátt búast."
En í eiturlyfjastríðinu eru fylk-
ingarnar ekki bara tvær, smyglar-
ar og lögregla. Þriðja fylkingin er
neytendur.
„Eftirspurn eftir fíkniefnum
skiptirmiklu máli. Löggæslan ein
mun ekki uppræta þetta vanda-
mál heldur þarf að koma til
fræðsla meðal ungs fólks. Við
þurfum að fá það til að gera
eitthvað annað en að taka eitur-
iyf-“
Fræðslan er greinilega ofarlega
í huga John Bott, því þegar hann
var spurður hvort hann hefði ein-
hver heillaráð handa landi eins og
íslandi, þar sem neysla sterkra
lyfja væri ekki orðin sama vanda-
mál og á meðal flestra annarra
landa í Vestur-Evrópu, nefndi
hann fræðsluna fyrst. Löggæsla
og tollgæsla þurfa einnig að vera
öflugar til að hindra að eiturlyfin
komist á markaðinn.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 19. janúar 1986
Sunnudagur 19. janúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 11'