Þjóðviljinn - 19.01.1986, Síða 17

Þjóðviljinn - 19.01.1986, Síða 17
 d >> M k , Mii -mhg rceðir viðValdimar Guðmundsson, sem stundað hefursjóinn síðan 1928 og sigldi m.a. út öll stríðsórin Valdimar Guðmundsson við hús sitt, Bárugötu 16. Mynd. E.Ó. Sjómennskan byrjar - Fórstu svo fljótlega að stunda sjóinn eftir ferminguna? - Já, sá ferill byrjaði eiginlega með því að ég réði mig á vélbát 1928. Við vorum á handfæra- veiðum. Árið 1929 gerðist pabbi formaður á trillu frá Bíldudal. Hafði okkur þrjá stráka sína með sér. Við rerum frá Hlaðbót, sem er við miðjan sunnanverðan Arn- arfjörð. Þetta fór allt í sjálft sig. Um haustið vantaði Guðmund Sigurðsson, vélsmið á Þingeyri, mann til að keyra ljósavélina. Það var 36 hestafla Tuxhamvél og lýsti hún upp næstu hús. Varð úr að ég tók að mér vélgæsluna og gegndi henni um veturinn og sumarið eftir. Mér féll starfið frekar vel og kannski hefði ég átt að læra það til hlítar en sjórinn seiddi. Og þá lá leiðin til Flateyrar þar sem ég var hjá Magnúsi föður- bróður mínum á 13 tonna vélbáti næstu 2 ár. Sá bátur hafði verið seldur frá Akranesi ásamt Sigur- fara því þeir þóttu of litlir fyrir þann mikla afla, sem þar barst þá á land. Þar dugðu ekki minna en 30 tonna bátar og komu með full- fermi. Þetta var ansi lokkandi svo ég flutti til Akraness og réðist þar á línuveiðarann Andey. Kristinn Guðmundsson, frændi minn, átti mestan þátt í þessari ráðabreytni. Þetta félag, sem átti Andey, keypti svo til viðbótar línuveiða- rann Golu frá Noregi. Við fisk- uðum vel en lönduðum í Hafnar- firði því engin bryggja var á Akranesi. Um sumarið var ég svo á síldveiðum. Þótt mér vegnaði vel á Akra- nesi varð það samt úr að ég hvarf aftur til Þingeyrar um haustið. Þá voru komnir þangað línuveiðar- arnir Fróði, Fjölnir og Venus. Ég fór á Fjölni og var þar síldarsum- arið 1934. Guðmundur Einarsson, skip- stjóri á Þingeyri, gekkst fyrir því að koma þar á fót sjómannaskóla haustið 1934. Veitti hann réttindi til að fara með 30 tonna báta. Ég ákvað að sækja þennan skóla og við urðum 12, sem útskrifuðumst á Þorláksmessu. Eftir að prófum lauk fór ég aft- ur til Akraness. Var þar land- maður fyrstu vertíðina. Síðan hef ég ekki dvalið náttlangt í Dýra- firði fyrr en í sumar. Á Akranesi átti ég svo heima í 8 ár og alltaf á sjónum. Foreldrar mínir og fjöl- skylda fluttu þangað 1940. Þá var skúrinn okkar, gamli og góði, seldur til niðurrifs. Ekkert stend- ur eftir nema hjallurinn við sjó- inn. Eina nána skyldmennið þarna er Soffía amma mín, sem grafin er í Þingeyrarkirkjugarði. Þegar við hættum síldveiðum fyrir Norðurlandi sumarið 1935 snerum við okkur að veiðum á suðurlandssfldinni. Svo mikið var þá sótt í hana að öll net voru upp- gengin syðra. Við fengum því net að norðan en þau voru of stór- riðin. Auk þess voru þau það ónýt að þau slitnuðu niður eftir hálfan mánuð og þar með sigldu þau sinn sjó. Þar með var búið með sfldveiðarnar í það sinn. Fyrir borð Við fórum nú upp á Akranes og útbjuggum bátinn í skyndingu til lúðuveiða. Lönduðum lúðunni í Reykjavík hjá Steingrími fisk- sala, sem allir kannast við. Hann sendi svo lúðuna ísaða í kössum til Danmerkur. Áður en við fórum á lúðu- Valdimar Guðmundsson og kona hans, Jóhanna Eyjólfsdóttir. veiðarnar unnum við að því að gera bátinn kláran fram til kl. 12 kvöldið áður en fara átti út. Er öllu átti að vera lokið fór ég í eftirlitsferð um bátinn. Nem staðar sem snöggvast aftur við messann og athuga niðurhala- rann. Hann var ekki trosnaður en augað á gaffalendanum orðið nokkuð rúmt. Mér líkaði þetta ekki, tók nýtt tóg, endurnýjaði niðurhaiarann og þrýsti upp á gaffalendann. Nú, nú, eitthvað þremur dögum seinna erum við að draga línuna undan vindi. Skipstjórinn kallar til mín og biður mig að fara að messanum. Ég fór hlémegin aftureftir en er gaffallinn er kom- inn niður að framan þurfti ég að hala hann niður að aftan á niður- halaranum. Skiptir þá engum togum að báturinn fer fyrir vind, ég fæ seglið á mig af fullum krafti, hrekk fyrir borð en hangi í niður- halaranum. Við þetta fellur gaff- allinn niður á hekkbogann, ca 10 gráður niður fyrir það að vera lá- réttur. Þarna hangi ég í bandinu og skrúfan í gangi fyrir neðan. Þorkell skipstjóri sér hvernig komið er og það var ósvikið handtak þegar hann kippti mér innfyrir. Hvað hefði nú skeð ef ég hefði ekki komið auga á þessa bilun í tæka tíð þarna um kvöld- ið? Sennilega hefði ég þá ekki setið hérna nú. Ónei, maður er ekki alltaf einn á ferð. En þrátt fyrir svona atvik finnst mér þó að ég þurfi þá fyrst að fara að líta í kringum mig þegar ég er kominn upp á bryggjuna. Frá því ég laúk náminu hjá Guðmundi mínum á Þingeyri var það alltaf öðru hvoru að brjótast í mér að fara í Stýrimannaskólann. Loks lét ég svo verða af því haust- ið 1938. Lauk þar svokölluðu meira fiskimannaprófi vorið 1940. Eftir skólann fór ég á Rafn frá Siglufirði með Kristófer Egg- ertssyni. Vorum á sfldveiðum um sumarið og gekk vel. Fer ó togara - Þegar þú útskrifast úr Stýri- mannaskólanum þá ert þú búinn að vera sjómaður á bátum að heita má samfellt í, ja, hvað, 10-12 ár. En nú ert þú togarasjómaður. Hvenœr byrjaðirðu þann feril? - Það var í september 1940, eftir að ég kom af sfldveiðunum. Þá réði ég mig á Surprice frá Hafnarfirði. Síðan hef ég alla tíð verið á togurum, stundum skip- stjóri en lengst af stýrimaður. Ég var hjá Einari Þorgilssyni útgerð- armanni í Hafnarfirði í 13 ár, þar af skipstjóri í tvö og hálft ár. - Þú hefur siglt út á stríðsárun- um? - Já, það má heita að ég hafi siglt stöðugt út öll stríðsárin. Frí- in voru ákaflega fá. - Voruð þið aldrei hœtt komn- ir? Framhald á bls. 19 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.