Þjóðviljinn - 21.01.1986, Qupperneq 1
MANNLÍF
ÍÞRÓniR
HEIMURINN
Allt hvítt í Blafjöllum
Það var löng biðröðin við stól-
alyftuna í Bláfjöllum um helgina.
Einar 20 til 30 mínútur. Slíkur var
mannfjöldinn, enda veður með
afbrigðum gott á sunnudaginn,
sólskin og logn. Og nægur var
snjórinn.
Fólk tók að flykkjast í Bláfjöll-
in og aðra nálæga skíðastaði strax
um tíuleytið á lagardagsmorgni.
Fyrri part laugardags var hins
vegar heldur leiðinlegt veður,
hríð og þoka. Enda varð slys á
laugardaginn. Ung stúlka tapaði
áttum og renndi sér inn unt
glugga á Ármannsskálanum sem
liggur undir einni brekkunni.
Brekkan er brött og hefur stúlkan
því verið á miklum hraða þegar
hún hafnaði á rúðunni. Stúlkan
mun þó ekki hafa slasast alvar-
lega þar sem hún fékk að fara
heim af slysavarðstofunni síðdeg-
is á laugardaginn. IH
Lánasjóður
Gmfarmustin
reyndistgabb
Calauan — Lögreglan á Fil-
ippseyjum hefur afhjupað
svindlara sem gabbað hafa fé
út úr hjátrúarfullu fólki með að-
stoð svonefndrar „grafar-
raustar" sem hét fólkinu skíra-
gulli í skiptum fyrir reiðufé.
Gullið reyndist við nánari at-
hugun vera koparmoli.
„Grafarraust" þessi hefur ver-
ið starfrækt í hartnær áratug og er
ein af mörgum á eyjunum.
Ástæðan fyrir því að upp komst
um svindlið var sú að prísinn á
gullinu var hækkaður mjög
skyndilega, eða úr 1.000 krónurn
í 20.000 krónur á tveimur dögunt.
Tveir svindlaranna voru hand-
teknir. —ÞH/reuter
Sjálfstœðisflokkurinn
að
Atlaga
Albert
Geir og Þorsteinn hafa augastað á Birgi Isleifi ístól iðnaðarráðherra.
Fáheyrð orðaskipti milli ráðherra flokksins. Móðgun, landráðabrigsl.
Albert Guðmundsson: „Þetta ermál rökþrota mannsu
Eg átta mig ekki á því hvaða
ósköp ganga á, þetta eru fánýt
slagorð sem ég tek ekki mark á.
Þetta er mál rökþrota manns sem
eru ekki svaraverð, segir Albert
Guðmundsson iðnaðarráðherra
um yfírlýsingar Geirs Hallgríms-
sonar utanríkisráðherra sem
segir Albert brigsla sér um
landráð og móðga sig, en iðnað-
aráðherra hefur lýst sig algerlega
andvígan lögfræðilega álitinu í
kjötmálinu sem segir kjötinn-
flutninginn á Keflavíkurflugvöll
löglegan. „Það er auðvitað fyrst
og fremst Alþingis að ákveða
hvaða lög eru hér í gildi. Eg tel að
Alþingi eigi að taka þessi mál til
umræðu því hér er um sjálfstæði
landsins að ræða,“ sagði Albert í
samtali við Þjóðviljann í gær.
„Ég á ekki von á því,“ sagði
Albert aðspurður, hvort verið
væri að bola honum út úr stjórn-
inni. „Ég þekki ekki Þorstein
nema af góðu, en Geir er að
kveðja og hvort hann vill taka
mig með sér, það veit ég ekki“.
Um hvort Birgir ísleifur Gunn-
arsson væri hugsanlegur arftaki
hans í iðnaðarráðuneyti sagði Al-
bert að samband sitt við Birgi
hefði allatíðverið mjöggott. „Eg
trúi því ekki að hann taki þátt í
slíku baktjaldamakki. Ég veit
ekki hvað býr að baki þessum yf-
irlýsingum Geirs, þetta hlýtur að
vera einhver tímabundinn
skjálfti,“ sagði Albert.
Þjóðviljinn hefur það eftir á-
hrifamönnum í Sjálfstæðis-
flokknum að nú ætli flokksforyst-
an með Þorstein Pálsson og Geir
Hallgrímsson í fararbroddi að
gera lokaatlögu að Albert Guðm-
undssyni og koma honum úr
stjórninni. Sú ákvörðun skýri þær
ofsalegu yfirlýsingar sem utan-
ríkisráðherra viðhafði í Morgun-
blaðinu á laugardag í garð Ai-
berts. Þá sé þegar ákveðið að
Birgir ísleifur Gunnarsson setjist
í stól Alberts, en Birgir hefur ver-
ið í þjálfun og nú síðast leiddi
hann samningaviðræðurnar við
Rio Zink í London.
Hulduher Alberts Guðmunds-
sonar kom saman til fundar í gær
vegna þessa ntáls og ljóst er af
yíirlýsingum Alberts að hann ætl-
ar hvergi að gefa eftir, heldur
taka umræðuna um kanakjötið
upp í þinginu þegar það kemur
saman.
-lg-
Sjá á bls 4
Jón Helgason
er latinn
Starfsmenn hrekjast brott
Hringlandaháttur Sverris Hermannssonar með málefni LIN og aðför
hans að sjóðnum veldur uppsögnum starfsmanna. Tveir hafaþegar sagt upp
Jón Helgason skáld og fræði-
maður lést á sunnudag í Kaup-
mannahöfn, 86 ára að aldri.
Er þá fallinn frá einn merkasti
fræðimaður aldarinnar um ís-
lenska tungu og bókmenntir, og
að auki sjá íslendingar á bak ljóð-
skáldi án margra jafningja í kveð-
skaparsögu.
Þjóðviljinn vottar aðstandend-
um Jóns Helgasonar samúð sína.
Sjá síðu 5
Starfsmenn Lánasjóðs íslcnskra
námsmanna íhuga nú margir
uppsögn hjá sjóðnum vegna að-
farar Sverris Hcrmannssonar að
honum undanfarnar vikur og
Þjóðviljanum er kunnugt um að
þegar hafí tveir starfsmcnn til-
kynnt um uppsögn sína.
Þetta eru þeir Pétur Þórarins-
son umsjónarmaður töivukerfis
sjóðsins og Valdimar Valdimars-
son deildarstjóri. Mikil óánægja
ríkir meðal fjölda annarra starfs-
manna og eru þeir að sögn þegar
farnir að líta í kringum sig eftir
öðrum störfum.
Sverri Hermannssyni hefur
orðið tíðrætt uni óeðlilega mikla
yfirvinnu starfsmanna sjóðsins,
sem að vísu hefur verið marg-
hrakið ofan í ráðherrann í fjöl-
miðlum, en það er vert að benda
á að dragi hann þá ákvörðun sína
til baka að frysta námslán í
krónutölu mun yfirvinna starfs-
manna óhjákvæmlega aukast til
muna þar sem endurskoða verð-
ur útreikninga námslána til þús-
unda námsmanna samkvæmt enn
nýrri reglu. Hringlandaháttur
ráðherrans með úthlutunarregl-
urnar hefur vakið furðu og reiði
starfsmanna.
_________________________^g-
Sjá bls 2 og 20.