Þjóðviljinn - 21.01.1986, Page 2
FRÉTTIR
Æskulýðsfylkingin
Ofsóknir gegn æskunni
Aðför að Lánasjóði íslenskra námsmanna harðlega mótmœlt á fundiÆskulýðs-
fylkingarinnar. Nýjum meirihluta í SHÍ fagnað
Æskulýðsfylking Alþýðu-
bandalagsins hélt stjórnar-
fund á Akureyri um liðna helgi og
var þar m.a. ályktað um aðför
menntamálaráðherra að Lána-
sjóði íslenskra námsmanna.
Einnig var fagnað hugmyndum
sovéskra yfirvalda um eyðingu
kjarnorkuvopna á næstu 15 árum
og hvetur ÆFAB ríkisstjórn Is-
lands til að gangast fyrir við-
ræðum meðal bandamanna sinna
um þessi mál. Alyktun ÆFAB
varðandi námsmenn er á þessa
leið:
„Stjórn ÆFAB mótmælir
þeirri stórfeildu skerðingu náms-
lána, sem Sverrir Hermannsson
stefnir að á næsta ári. Stjórnin
minnir á að með þessu er stórlega
verið að gera atlögu að jöfnum
rétti til náms, sem getur aldrei
annað en bitnaö verst á þeint sem
efnaminnstir eru. Fað hlýtur að
vera markmið menntamálaráð-
ÆFAB
Félagsmála-
námskeið
í kvöld
í kvöld hefst félagsmálanám-
skeið á vegum Æskulýðsfylkingar
Alþýðubandalagsins og mun það
standa næstu þrjár vikur.
Prír kunnir félagar í flokknum
munu leiðbeina ungliðunum og
má búast við að þar feti
stjórnmálamenn framtíðar sín
fyrstu skref. Kristín Ágústa Ól-
afsdóttir mun leiðbeina um fram-
sögn, Ólafur Ragnar Grímsson
um ræðumennsku og Tryggvi Þór
Aðalsteinsson um fundarsköp og
félagastjórn.
Námskeiðið er að Hverfisgötu
105 og hefst það kl. 19.30.
herra að standa vörð um þennan
hornstein íslensks þjóðfélags,
þ.e. menntunina. Hlutverk
Lánasjóðs íslenskra námsmanna
er að fólk geti stundað nám óháð
efnahag og undir því nafni verður
LÍN að standa.
Stjórn ÆFAB krefst þess að
menntamálaráðherra láti nú þeg-
ar af ofsóknum sínum gegn æsku
landsins og snúi í þessu máli sem
og fleirum frá villu síns vegar,
með stórauknu átaki í
menntunarmálum.
Ennfremur fagnar stjórnin nýj-
um meirihluta í stúdentaráði Há-
skóla íslands."
- v.
Sátum yfir þessu um jolin
lf ið sátum yfir þessu fjölskyldan um jólin og
V hjálpuðumst að við að leysa myndagátuna,“
sagði Sigríður Vilhjálmsdóttir er hún leit við á
ritstjórn Þjóðviljans ásamt syni sínum Halldóri
Úlfssyni til að veita móttöku 5000 kr. verð-
Ílaunum fyrir rétta lausn á áramótamyndagátu
Þjóðviljans.
■ - Nei, ég hef aldrei áður sent frá mér lausn á
svona gátum, en núna ákvað ég að senda inn
lausnina og það dugði. Það er alveg öruggt að ég
sendi inn lausn á næstu getraun.
Sigríður sagðist hafa gaman af myndagátum
en henni fyndist Hjartargáturnar í Sunnudags-
blaðinu nokkuð erfiðar. „Við hjálpumst samt oft
að um helgar að leysa þær gátur. Eg held að það
mæfti gjarnan birta oftar myndagátur í blaðinu.
Fók hefur örugglega gaman af þessu,“ sagði
Sigríður Vilhjálmsdóttir. -Ig.
Er ekki orðið tímabært að
senda Albert út í sjoppu?
Icy-Vodka
Uppselt
í Ríkinu
GustafNíelsson skrif-
stofustjóriÁTVR: Verð-
um að feta okkur varlega
með nýjar tegundir
Mikil sala hefur verið af hinni
nýju íslensku vodkategund, Icy-
Vodka, og hefur hún verið ófáan-
leg í verslunum ÁTVR frá því
fyrir áramót.
„Það kemur lítið og þetta selst
vel,“ sagði einn afgreiðslumanna
Ríkisins í samtali í gær. Vínið er
átappað og framleitt í Skotlandi
og hafa tvær sendingar kornið til
landsins og báðar selst fljótlega
upp.
„Það er rétt við höfum flutt
lítið inn af þessari nýju tegund,
en það er ný sending á leiðinni og
ætti að vera komin í útsölurnar nú
í vikunni. Við verðum að feta
okkur varlega áfram þegar við
tökum upp nýjar tegundir," sagði
Gústaf Níelsson skrifstofustjóri
hjá ÁTVR í samtali við Þjóðvilj-
ann. Hann sagði ekkert hæft í
þeim sögusögnum að Ríkið tak-
markaði innflutning á þessu víni.
„Það sem skiptir mestu hjá okkur
er að halda birgðum í lágmarki og
því förum við rólega af stað.“
-'g-
Námslán
Skipt á frystingu og lagabreytingum
Tillögur menntamálaráðherra um breytingar á lögum um LÍN komnarfrá formanni stjórnar LÍN.
Óljóst h vað þessar breytingar muniþýða. Hringlandaháttur Sverris að verða til vandrœða í LÍN
Tilboð Sverris Hermannssonar
menntamálaráðherra um að
draga frystingu námslána í
krónutölu til baka verði gengið að
tillögum hans um breytingar á
lögum um Lánasjóð íslenskra
námsmanna hafa valdið mönnum
nokkrum heilabrotum og fáum er
með öllu Ijóst hvað tillögur hans
um lagabreytingar muni í raun
þýða fyrir námsmenn.
Það er rétt að rifja upp atburði
síðustu vikna og aðgerðir Sverris
til að uppræta þá óráðsíu sem að
hans sögn einkennir þennan lána-
sjóð. Daginn sem hann rak Sigur-
jón Valdimarsson úr starfi fram-
kvæmdastjóra sjóðsins gaf hann
út reglugerðarbreytingu sem fól
það í sér að námsíán voru fryst í
þeirri krónutölu sem gilti við út-
hlutun námslána í nóvember.
Frystingin hefur það í för með sér
að námslán skerðast allt að 35%,
en það er mjög mismunandi eftir
námslöndum.
Þessi ákvörðun Sverris kom
mjög flatt upp á þáverandi stjórn
stúdentaráðs, sem skipuð var
fulltrúum Vöku, félags íhalds-
manna í HÍ, og Félags umbóta-
sinna. Stjórnin sá ekki ástæðu til
að bregðast mjög harkalega við
þessum niðurskurði og varð að-
gerðarleysi hennar til þess að hún
var felld. Nú á sunnudaginn var
kosin ný stjórn vinstri manna og
umbótasinna. En sama dag til-
kynnti Sverrir um stórfelldar
breytingar á lögum um lánasjóð-
inn og býðst í ríkisstjórninni. Þar
með er málið orðið all flókið og
ekki séð fyrir endann á því næstu
vikur.
Uppruni hugmynda
Sverris
En hvaðan koma Sverri allar
þessar hugmyndir? Hér í Þjóð-
viljanum hefur áður verið skýrt
frá því að starfandi er nefnd sem
hefur það hlutverk að gera til-
lögur um breytingar á lögum og
starfsemi LÍN. I nefndinni situr
stjórn LÍN á ásamt tveimur full-
trúum menntamálaráðherra.
Formaður stjórnar LÍN Árdís
Þórðardóttir itefur samkvæmt
heimildum Þjóðviljans reifað
hugmyndir í þessari nefnd sem
eru mjög í sama dúr og Sverrir
hefur nú verið að boða sem
sínar. Heimildir Þjóðviljans
herma að Árdís hafi lagt til í
nefndinni að innheimtir verði 4-
6% vextir af námslánum og kjör-
in þannig samræmd kjörum á
öðrum lánum sem í boði eru í
GARÐAR
GUÐJÓNSSON
FRÉTTASKÝRING
þjóðfélaginu. Meðþvímunieftir-
spurn eftir Iánum úr sjóðnum
minnka, enda telur hún að eftir-
spurnin sé of mikil, vegna hag-
stæðra kjara á námslánum.
Tillaga um 1% lántökugjald af
lánum til námsmanna er einnig
runnin undan rifjum Árdísar og
sömu sögu er að segja um styrki
til námsmanna. Árdísi hefur ver-
ið tíðrætt um aðgreiningu milli
styrkja og lána og telur að styrkir
til námsmanna, sumra náms-
manna, yrði þjóðarhag mjög til
hagsbóta.
Þessar tillögur hefur Sverrir
semsé gert að sínum, án þess að
útfæra þær nánar eða útskýra
fyrir námsmönnum hvaða afleið-
ingar þetta muni hafa fyrir þá.
Hringlanda-
háttur Sverris
Sverrir hefur gjarna komið
mönnum á óvart og nú vill hann
skipta á þessum hugmyndum
stjórnarformanns LÍN og fryst-
ingu námslána. Hann hefur getið
sér fræðgarorð fyrir að vilja
hreinsa til í þessum umdeilda
sjóði, lánasjóði námsmanna.
Hann hefur haft stór orð um ó-
hóflega yfirvinnu hjá starfsmönn-
um og hvers kyns sukk þar innan
húss. En öll þessi orð skjóta mjög
skökku við það sem síðan hefur
orðið reyndin. Honum er nú að
takast að hrekja frá stofnuninni
reynda starfsmenn með mikla
þekkingu á málefnum sjóðsins.
Og með hringlandahætti sínurn
með úthlutunarreglur virðist
hann ætla að stuðla að stór-
aukinni yfirvinnu starfsmanna,
þeirra sem eftir verða.
Viðbrögð
námsmanna
Nú þegar vinstri menn og um-
bótasinnar hafa gengið til sam-
starfs í stúdentaráði og tekist hef-
ur að koma á samstöðu náms-
mannahreyfinga í hagsmunabar-
áttu námsmanna má búast við
harðari viðbrögðum en oft áður,
ef gengið verður á rétt náms-
manna. Staðreyndin er hins veg-
ar sú að tilkynning Sverris um
breytingar á lögurn er svo ný af
nálinni að afstaða námsmanna til
þeirra hefur vart verið mótuð.
Þetta hlýtur þó að skýrast á næstu
dögum og framhaldið verður að
ráðast af því.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 21. janúar 1986