Þjóðviljinn - 21.01.1986, Page 3
FRETTIR
Mannréttindi
Mjög glaður
Thor Vilhjálmssonformaður Tarkofskí-
nefndarinnar: Fylltistbjartsýniþegar égfrétti
að œttingjar sovéska kvikmyndaleikstjórans
vœru komnir til Vesturlanda. Tarkofskí-
nefndin vann mikið að lausn málsins
Ég er afskaplega glaður, maður
fyllist bjartsýni þegar hægt er að
þoka réttlætismálum eins og
þessu áleiðis, sagði Thor Vil-
hjálmsson formaður Tarkofskí-
nefndarinnar þegar Þjóðviljinn
bar undir hann þá frétt að skvld-
menni sovéskra kvikmyndastjór-
ans Andrei Tarkofskís væru kom-
in til Vesturlanda eftir langa bar-
áttu við sovésk yfirvöld til að fá
þau laus.
„Það er komið rúmlega ár síð-
an ég heyrði fréttir af þessu máli
Tarkofskís í útvarpinu. Ég tók þá
strax upp símtólið og hringdi í
nokkra menn til að fá þá til að
leggja þessu baráttumáli lið. Við
stofnuðum Tarkofskí-nefndina
og stóðum fyrir ýmsum aðgerð-
um til að veklja athygli á máli
hans. Þar bar vitaskuld hæst
Tarkofskí-hátíðina þar sem við
sýndum allar kvikmyndir hans og
buðum honum og konu hans í
heimsókn. Sú hátíð vakti athygli
erlendis og sýndi að það er ekki
endilega mannfjöldinn sem kem-
ur málum áleiðis heldur einurð
og vilji.
Við gerðum ýmislegt fleira.
Við gengum á fund sovéska send-
iherrans í Reykjavík og báðum
hann að koma til skila bréfi sem
Halldór Laxness hafði skrifað
Gorbatsjof leiðtoga Sovétríkj-
anna um málefni Tarkofskís.
Sendiherrann sagði að bréfið
fengi venjulega afgreiðslu en við
tókum það fram að við teldum
það móðgun við íslensku þjóðina
ef Gorbatsjof fengi ekki bréf
Laxness. Reyndar væri það líka
móðgun við Gorbatsjof ef hann
fengi ekki að lesa bréf sem Lax-
ness skrifaði til hans.
Við notuðum öll þau sambönd
sem við í nefndinni höfðum og
þau reyndust furðu mikil. Ég tók
málið upp við PEN-klúbbinn í
London og ræddi við ítali sem ég
þekki, áhrifamenn í ítölsku
menningarlífi. Einnig gekk ég á
fund allra forsætisráðherra Norð-
urlanda þegar þeir sátu hér fund
Norðurlandaráðs og þeir tóku vel
í að sinna málinu. Við áttum við-
ræður við íslensk stjórnvöld sem
brugðust vel við, bæði forsætis-
og utanríkisráðherra. Utanríkis-
ráðherra notaði hvert tækifæri
sem honum gafst til að ræða mál
Tarkofskís við sovéska ráða-
menn, nú síðast þegar Sévardna-
dse utanríkisráðherra kom hing-
að til lands í haust,“ sagði Thor.
Þegar Tarkofskí fór frá íslandi
varð kona hans, Larissa, eftir og
stofnaði hópur kvenna til undir-
skriftarsöfnunar meðal íslenskra
kvenna til stuðnings málstað fjöl-
skyldunnar. „Ég held að þessi
þrýstingur sem við reyndum að
beita hafi haft einhver áhrif,“
sagði Thor. „Yfir því gleðst ég og
vona að þessi ákvörðun sovéskra
stjórnvalda boði annað og meira.
Mér finnst þetta líka sýna að smá-
þjóð þarf ekki að vera smá ef hún
beitir sér og hugur fylgir máli,“
sagði Thor Vilhjálmsson rithöf-
undur.
—ÞH
Vertíð
Suðumesjabátar
róa flesdr vestur
Ótíð og lélegur afli við suðurströndina. Stóru bátarnir
sigla flestir undirJökul og í Breiðafjörð. Ýsa og
þorskur á línu en ufsi á netin
okkalcg aflabrögð hafa verið
hjá bátum sem gera út frá
Sandgerði nú í upphafi vertíðar,
Skákþingið
Hannes
efstur
Sjöunda umferð í opna flokki
Skákþings Reykjavíkur var tefld
sl. sunnudag. Staðan eftir þá um-
ferð er sú, að efstur er Hannes
Hlífar Stefánsson (13 ára) með 6
vinninga. í öðru sæti er Bjarni
Hjartarson með 5Vi vinning og
biðskák og í þriðja til fimmta sæti
með SVi vinning eru Davíð Ólafs-
son, Þráinn Vigfússon og Þröstur
Þórhallsson. Biðskákir geta
breytt þessari röð. Áttunda um-
ferð verður umferð verður tefld á
miðvikudagskvöld. Umfcrðir eru
alls cllefu.
í unglingaflokki var keppni
haldið áfram sl. laugardag. Voru
þá tefldar 3 umferðir. Að 6 um-
ferðum loknum er Þröstur Árna-
son efstur með 6 vinninga, hefur
hann unnið allar sínar skákir.
Átta keppendur eru með 5 vinn-
inga, þeirra á meðal er Hannes
Hlífar Stefánsson, sem er efstur í
opna flokknum. Síðustu þrjár
umferðirnar í unglingaflokki fara
fram næsta laugardag kl. 2.
en mun lélegri afli er hjá Grinda-
víkurbátum hinu megin við
Reykjanesið auk þess sem hörð
austanátt hefur hamlað mjög
veiðum minnstu bátanna.
Nær allir Sandgerðisbátar eru á
línu og hafa minni bátarnir verið
að koma með 4 tonn að landi úr
róðri að sögn Karls Einarssonar á
hafnarviktinni. Stærri bátarnir
róa flestir með tvöfalt vestur
undir Jökul og í Kolluál og hafa
þeir verið með allt upp undir 16
lestir í róðri sem tekur hálfan
annan sólarhring.
Vertíðarbátar í Grindavík hafa
lítið komist á sjó til þessa vegna
ótíðar, en í gær voru þeir afla-
hæstu með 5 tonn eftir róðurinn.
Stærri bátar róa einnig vestur
undir Jökul og í Kolluál og hafa
þeir verið með allt upp undir 16
lestir í róðri sem tekur hálfan
annan sólarhring.
Vertíðarbátar í Grindavík hafa
lítið komst á sjó til þessa vegna
ótíðar, en í gær voru þeir afla-
hæstu með 5 tonn eftir róðurinn.
Stærri bátar róa einnig vestur í
Breiðafjörð og hafa verið með
allt uppí 18 tonn í róðri að sögn
Rúnars Steingrímssonar á hafn-
arviktinni. Gæðafiskur fæst á lín-
una, ýsa og þorskur í bland. Tveir
bátar hafa verið á netum og feng-
ið um 6-7 tonn hvor, að mestu
Sovéski kvikmyndaleikstjórinn Andrei Tarkofskí hefur nú endurheimt ættingja
sína eftir langan aðskilnað. Islendingar beittusértalsvertíþvíaðfáþaulausúr
Sovétríkjunum. Myndin er tekin af Tarkofskí þegar hann var i heimsókn hér á
landi í mars i fyrra. Myno: -eiK.
Skipstjornarmenn
Undanþágum
fækkar
Fcerri undanþágubeiðnir
berast ogfœrrifá sam-
þykki hjá undanþágu-
nefnd. Mikilþátttaka í
réttindanámskeiðum
stýrimanna og vélstjóra
787 sjómenn fengu undanþágu
til skipstjórnarstarfa og vélstjóra
á sl. ári, langflcstir eða 262 sem
vélaverðir og 167 sem 1. stýri-
menn. Miðað við árið á undan
fækkaði þeim sem störfuðu á
undanþágum um nærri 30% á sl.
ári.
Það er svokölluð undanþágu-
nefnd sem veitir undanþágur til
skipstjórnarmanna og vélstjóra á
fiskiskipum. í nefndinni eiga sæti
siglingamálastjóri og fulltrúar út-
vegsmanna og farmanna og fiski-
mannasambandsins. Nefndinni
bárust í fyrra 1468 umsóknir um
undanþágur og samþykkti nefnd-
in að veita tímabundið 1048
undanþágur en 293 undanþágum
var hafnað. Árið 1984 voru
veittar alls 1720 undanþágur eða
um 40% fleiri en í fyrra.
Þessi fækkun undanþágu kcm-
ur til vegna hertra starfsreglna og
eins hafa verið sett af stað sérstök
réttindanámskeið fyrir vélstjóra
og stýrimenn sem starfað hafa um
árabil á undanþágum. Hafa þessi
námskeið verið vel sótt og er
reiknað með mun færri undan-
þágum á þessu ári vegna þessara
námskeiða. - lg.
HVAÐER
METBÓK?
■ Metbók er ný 18 mánaða sparibók
sem tekur við af 18 mánaða spari-
reikningum.
■ Metbók mætir óskum þeirra
sparifjáreigenda, sem vilja fylgjast
með stöðu sparifjár síns með innfærsl-
um í sparibók í stað skírteina,
kvittana og yfirlita á lausum blöðum.
■ Metbókin stendur svo sannarlega
undir nafni - því 18 mánaða spari-
reikningar gáfu 7,04% vexti umfram
verðtryggingu á
síðasta ári.
■ Enginn spari-
reikningur gaf
jafnháa ávöxtun
miðað við
binditíma.
BUNADARBANKIISLANDS
TRAUSTUR BANKI
ÞJÓfJVILJINN - SfÐA 3