Þjóðviljinn - 21.01.1986, Side 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 81663.
DJOÐVILJINN
Priðjudagur 21. janúar 1985 16. tölublað 51. örgangur.
rátt fyrir áskorun SHÍ á
Sverri Hermannsson mennta-
málaráðherra um að taka til
greina afsögn Ólafs Arnarsonar
úr stjórn LIN og hlíta tilnefningu
ráðsins um Guðmund Auðunsson
úr Félagi vinstri manna, þráast
ráðherrann enn við og biður Ólaf
að sitja áfram. ítrekaði hann
þessa afstöðu sína í samtali við
formann Stúdentaráðs í gær-
kvöldi.
Ólafur hefur skipunarbréf ráð-
herra til tveggja ára og getur í
raun setið áfram í blóra við vilja
námsmanna, sem hann er fulltrúi
fyrir. Eins og kunnugt er eiga
störf hans í stjórn LÍN stóran þátt
í því að stjórn Vöku og Félags
umbótasinna var felld í síðustu
viku. Sverrir sýnist hins vegar líta
á Ólaf sem pólitískan fulltrúa
sinn og neitar að verða við óskuni
námsmanna. Honum voru afhent
tilmæli þeirra í gærmorgun, en
síðdegis sama dag var formanni
SHÍ tilkynnt að hann myndi ekki
verða við þeim.
Ekki er ljóst hvernig náms-
menn munu bregðast við svari
ráðherrans en Björk Vilhelms-
dóttir sagði í samtali við Pjóðvilj-
ann í gær að námsmenn myndu
mæta því af hörku ef ráðherrann
fengist ekki til að verða við þess-
ari beiðni. - gg
BSRB
Viðræður
að hefjast
Á fundi samninganefnda BSRB
og ríkisins í gær voru skipaðir
tveir starfshópar sem annars veg-
ar eiga að Qalla um kaupmáttar-
liði í samningum og hins vegar um
samningsréttarmál BSRB.
Kristján Thorlacius formaður
BSRB sagði í gær að lögð hafi
verið áhersla á að viðræðum yrði
hraðað, vegna stöðugrar rýrnun-
ar launa. BSRB hefur enn ekki
útfært kröfur sínar um kaupmátt-
araukningu og tryggingu
kaupmáttar og engar tölur hafa
verið nefndar í því sambandi.
Starfshóparnir hefja störf á
morgun, en ekki er ljóst hvenær
næsti sáttafundur verður boðað-
ur. - gg
LÍN
Sverrir þráast við
Sverrir Hermannsson neitar að taka afsögn Ólafs Arnarsonar
úr stjórn LÍN til greina. ítrekaði afstöðu sína ígœrkvöldi.
Námsmenn bregðast við af hörku
Björk Vilhelmsdóttir formaður Stúdentaráðs Háskóla íslands: Við munum standa gegn niðurskurðarhugmyndum ráðherrans- Ljósm. E.OI.
Námsmenn
Úr
öskunni
í eldinn
Sverrir Hermannsson
býðst til að dragafryst-
inguna til baka gegn því
að ennfrekar verði
skorið niður. Byggtá
hugmyndum formanns
stjórnar LÍN. Björk Vil-
helmsdóttir formaður
SHÍ: Námsmenn munu
berjast gegn öllum niður-
skurðaráformum
Ef hugmyndir um hertar end-
urgreiðslur námslána, vexti ofan
á verðtryggingu og lántökugjald
ná fram að ganga hlýtur það að
verða næsta skrefið hjá
stjórnvöldum að leggja LIN nið-
ur, því með þessu mun sjóðurinn
tapa tilgangi sínum, og hreinlcga
verða hluti af bankakcrfinu með
öllum þess annmörkum. Náms-
menn munu leggjast gegn þessum
! hugmyndum ráðherrans af full-
um þunga, sagði Björk Vilhelms-
dóttir í samtali við Þjóðviljann í
gær, cn hún var kosin formaður
stúdentaráðs á sunnudaginn þeg-
ar ný stjórn tók við.
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra boðaði nú um hel'g-
ina nýjar hugmyndir varðandi
Lánasjóð námsmanna, sem fela
m.a. í sér að vextir verði reiknað-
ir af lánum, innheimt verði 1%
lántökugjald og að endur-
greiðslur verði hertar til muna.
Ráðherrann hefur ennfremur
boðist til að draga reglugerðar-
breytinguna frá 3. janúar til baka
gegn því að þessar hugmyndir
verði samþykktar í ríkisstjórn-
inni, en sú reglugerð hefur þegar
sagt til sín með verulegum niður-
skurði lána. Þá er gert ráð fyrir
því í hugmyndum Sverris að
„efnilegir námsmenn sem hyggja
á þjóðhagslega hagkvæmt nám“
verði styrktir sérstaklega. Það er
athyglisvrt að þessar hugmyndir
eru nær samhljóða hugleiðingum
Árdísar Þórðardóttur formanns
stjórnar LÍN, sem jafnframt á
sæti í nefnd sem endurskoða á lög
og starfsemi LlN. Ráðherrann
virðist hafa tekið þessar hug-
myndir hráar upp úr Árdísi og
gert að sínum.
„Þetta væri að fara úr öskunni í
eldinn og lágkúrulegt hjá ráð-
herranum. Hver á til að mynda
að meta hvað er þjóðhagslega
hagkvæmt og hver á að hljóta
slíka styrki? Með þessu myndi
skapast forréttindastétt meðal
námsmanna,“ sagði Björk í gær.
Stofnuð hefur verið samstarfs-
nefnd námsmannahreyfinga sem
á næstu vikum mun standa fyrir
ýmsum aðgerðum til varnar hags-
munum námsmanna. M.a. er
áformað að leita eftir stuðningi
verkalýðshreyfingarinnar og
þingmanna við málstað náms-
manna. Auk þess verða skipu-
lagðir fundir í skólum og fjölda-
fundir allra námsmannahrey-
finga.
Sœtabrauðsskatturinn
Iðnrekendur vísuðu veginn
Réttár liðið síðan Félag íslenskra iðnrekendabenti ríkisstjórn á að
vörugjald afkökum og brauðum gœti gefið um 200 miljónir í ríkissjóð.
Bakarar með undirskriftalista gegn skattheimtu Þorsteins
Kí
Fundir um
allt land
Kcnnarasamband Islands
gengst nú þessa daga fyrir vinn-
ustaðafundum í skólum um allt
land til að ræða hugsanlegar að-
gerðir vegna þeirrar ákvörðunar
Þorsteins Pálssonar að svíkja lof-
orð forvera síns um launajöfnuð
mMli félaga í HÍK og KÍ, sem nú
nemur allt að 5%
Að sögn Rögnu Ólafsdóttur
kynningarfulltrúa KÍ verður
reynt að ná til allra félaga og
standa fundirnir út þessa viku.
Fljótlega upp úr því verður vænt-
anlega ljóst hvort kennarar grípa
til aðgerða og þá hvernig þeim
verður hagað. _ gg
Bakarameistarar hafa sctt af
stað undirskriftasöfnun í
bakaríum þar sem viðskiptavinir
þeirra geta lýst andstöðu sinni við
ákvörðun Þorsteins Pálssonar
fjármálaráðherra um sérstakt
30% vörugjald á sætabrauð.
Þessi skattur átti upphaflega að
taka gildi um sl. áramót en
ráðherrann hefur nú í tvígang
frestað gildistökunni, síðast til 1.
febrúar n.k.
Bakarar hafa mótmælt þessari
skattheimtu harðlega og segja
Þorstein hafa svikið fyrri loforð
um að ekki yrði af þessari skatt-
heimtu. Hitt hefur ekki komið
fram í umræðunni ennþá, að upp-
hafsmenn að þessum hugmynd-
um um vörugjald á brauð og
kökur voru forráðamenn Félags
íslenska iðnrekenda. Þeir Víg-
lundur Þorsteinsson formaður
félagsins og Ólafur Davíðsson
framkvæmdastjóri boðuðu fyrir
réttu ári til blaðamannafundar
þar sem þeir lýstu furðu sinni á
því að bakarar slyppu við að
greiða vörugjald af framleiðslu
sinni á sama tíma og sælgætis-
framleiðendur yrðu að borga fullt
vörugjald af samsvarandi fram-
leiðslu. Ef þessum skatti yrði
komið á gæfi hann ríkissjóði um
150 - 200 miljónir á ári, eða álíka
og Þorsteinn Pálsson áætlar að
tekjurnar af sætabrauðsskattin-
um verði í ár.
-■g