Þjóðviljinn - 25.01.1986, Síða 2

Þjóðviljinn - 25.01.1986, Síða 2
FRETT1R Dagsbrún áttatíu ára - Kveðja frá Alþýðubandalaginu fíóttæk bamtta og raunsæ leiðsögn Á áttatíu árum Dagsbrúnar hefur orðið hraðari breyting á ís- lenska þjóðfélaginu en á nokkr- um öðrum áttatíu árum. Dags- brún á stærri hlut í þessum þjóð- lífsbreytingum en nokkur maður getur gert sér grein fy rir í dag - og sumir vilja ekki gera sér grein fyrir því. Áhrif Dagsbrúnar stafa , af því að forysta hennar hefur í senn verið róttæk og raunsæ og því hafa Dagsbrúnarmenn verið í fremstu forytstusveit íslenskrar verkalýðshreyfingar. Áratugum saman reyndi afturhaldið að klekkja á forystu sósíalista í Dagsbrún; þeir hafa nú vanið sig af því um sinn. Alþýðubandalagið og Sósíal- istaflokkurinn hafa átt nána sam- leið með Dagsbrún um áratuga- skeið. Allt frá 1942 hefur formað- ur Dagsbrúnar skipað eitt af þingsætum sósíalista í Reykjavík. Það er einsdæmi að flokkur og verkalýðsfélag hafi staðið svo þétt saman jafnlengi og þarna kemur fram. Þess vegna sendir Alþýðubandalagið sérstakar bar- áttukveðj ur á afmælinu og þakkir fyrir samstarf og forystu í verka- lýðsmálum og þátttöku í póli- tískri baráttu. Meðan Dagsbrún- Magnús Óafsson starfsmaður ráðgjafarnefndar framtíðarkönnunar afhendir Arna Bergmann ritstjóra ráðstefnugögn i gær. Ljósm. Sig. ármenn vilja berjast gegn aftur- kynslóðar sem hefur tekið við því haldinu og afætunum er vonin þjóðfélagi í arf að þurfa að sjá með okkur; saman ætlum við svo þetta þjóðfélag, velferðarþjóðfé- að „byggja réttlátt þjóðfélag". lagið, brotið niður. Vonandi Nú er unnið að því markvisst af tekst sem fyrr með róttækri bar- íhaldinu að brjóta niður það áttu og raunsærri leiðsögn að þjóöfélag samhjálpar sem sækja fram á ný. Enn sjáum við Dagsbrúnarmenn byggðu upp fyrirheit um nýtt og betra þjóðfé- með löngum og ströngum verk- lag við dagsbrún. föllum fyrri áratuga. Vonandi Fyrir hönd Alþýðubandalagsins verður það ekki hlutskipti þeirrar Svavar Gestsson formaður Framtíðin Spáin er að fæðast Ráðgjafarnefnd framtíðarkönnunarinnar á rökstólum Framtíðarnefndin svokallaða, sem vinnur á vegum forsætis- ráðherra við að gera spá um framtíðarþróun hér innanlands fram til ársins 2020 mun að öllum líkindum skila hugmyndum sín- um og tillögum í næsta mánuði að sögn Magnúsar Olafssonar starfs- manns nefndarinnar. Starfsemi nefndarinnar hefur verið mjög umfangsmikil og spannar velflesta þætti þjóðfé- lagsins. Fjöldi sérfræðinga og annarra sérfróðra manna á hin- um ýmsu sviðum starfa í sérstakri ráðgjafarnefnd framtíðarkönn- unarinnar en þessi nefnd kom saman til sérstakra ráðstefnu í Reykjavík í gær. Þar m.a. gerð grein fyrir niðurstöðum hinna ýmsu starfshópa nefndarinnar og síðan tekin sérstaklega fyrir um- ræða um fólksfjöldaþróun, heilbrigðismál skóla og menn- ingu, auðlindir sjávar, landkosti og orkubúskap auk þess sem rætt var utanríkis-, efnahagsmál og stjórnskipun. -|g. Leiðbeiningar við framtalsgerð Verkamannafélagið Dagsbrún gefur félags- mönnum sínum kost á leiðbeiningum við gerð skattframtala með sama hætti og und- anfarin ár. Þeir sem hug hafa á þjónustu þessari eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Dagsbrúnar og láta skrá sig til við- tals eigi síðar en 31. janúar nk. Ekki er unnt að taka á móti viðtalsbeiðnum eftir þann tíma. Verkamannafélagið Dagsbrún Rafmagnsverkfræðingar Rafmagnstæknifræðingar Okkur vantar starfsmenn til að annast eftirlit með háspenntum raforkuvirkjum um land allt, svo sem raforkuverum, flutnings-, tengi-, spenna-, véla- og þéttavirkjum og riðilstöðv- um. Umsækjendur þurfa að hafa A-löggildingu Rafmagnseftirlitsins eða uppfylla skilyrði fyrir veitingu hennar. Nánari upplýsingar verða veittar hjá Raf- magnseftirliti ríkisins, Síðumúla 13, 108 Reykjavík. RER RAFMAGNSEFTIRLIT RÍKISINS LIN Engar upplýsingar veittar Fundur starfsmanna LINmeð þingmönnum pirrar fulltrúa Sverris Hermannssonar ístjórn LÍN. Krefstþess að starfsmenn borgi kostnað. Starfsmennflýja sjóðinn Fundur þriggja starfsmanna Lánasjóðs námsmanna með þingmönnum fyrir viku síðan hef- ur valdið talsverðu fjarðafoki í stjórn sjóðsins og á fundi hennar nú í vikunni lagði Auðunn Svavar Sigurðsson fulltrúi Sverris Her- mannssonar fram bókun þar sem hann krefst þess að starfsmenn- irnir þrír greiði allan kostnað af þessum fundi. Auðunn telur að þremenning- arnir hafi látið þingmönnum í té upplýsingar um sjóðinn í heimild- arleysi, og þeir þar með farið langt út fyrir sitt starfssvið. í reglugerð um námslán og námsstyrki segir hins vegar um upplýsingaskyldu lánasjóðsins að almennar upplýsingar skuli vera öllum opnar. Nú er ekki vitað hver þessi kostnaður var eða hvort starfs- mennirnir þrír verða sektaðir fyrir að láta þingmönnum í té al- mennar upplýsingar um lána- sjóðinn, en tillaga Auðuns um að eftirleiðis skuli engar nýjar upp- lýsingar veittar um starfsemi sjóðsins nema með samþykki stjórnar og eða framkvæmda- stjóra var samþykkt einróma á áðurnefndum stjórnarfundi. Samband starfsmanna við meirihluta stjórnar LÍN hefur lítið sem ekkert verið síðan Sigur- jón Valdimarsson var rekinn frá sjóðnum og heimildir blaðsins herma að mikill titringur sé í meirihlutanum vegna þess. Tveir reyndir starfsmenn hafi þegar sagt upp störfum sínum og vitað er að fleiri eru að hugsa það sama. _gg. Hollustuvernd Loftmengun í Reykjavík könnuð Hollustuvernd ríkisins er að hleypa af stokkunum rann- sókn á loftmengun í Reykjavík og er ráðgert að hún standi yfir í u.þ.b. eitt ár. Að sögn Ólafs Pét- urssonar hjá Hollustuvernd ríkis- ins er þetta umfangsmesta rann- sókn sem gerð er á loftmengun í Reykjavík. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur sótti um 350 þúsund á fjárhagsá- ætlun borgarinnar til að standa að könnun á loftmengun í samvinnu við Hollustuvernd, en meirihlut- inn í borgarstjórn sá ekki ástæðu til að verða við því og ver alls 0 krónum til rannsóknarinnar. Þá felldi sami meirihluti tillögu sem Adda Bára Sigfúsdóttir mælti fyrir um að Heilbrigðiseftirlitið fengi þá upphæð sem farið var fram á. „J>að er mjög þýðingamikið að fá einhverjar niðurstöður um loftmengun í Reykjavík, einkum til að fá samanburð við það sem síðar verður,“ sagði Ólafur Pét- ursson í gær. Greind verða ýmis efni í svokölluðu svifryki annars vegar og í fallryki hins vegar. Talið er brýn þörf á að enn um- fangsmeiri rannsóknir fari fram á mengun í andrúmsloftinu, en sem fyrr segir er meirihlutinn í borg- arstjórn Reykjavíkur á öðru máli en þeir sem til þekkja. -gg. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 25. janúar 1986 Skákþingið Hannes og Þröstur effstir Áttunda umferð á Skákþingi Reykjavíkur var tefld slv miðvik- udagskvöld. Staðan eftir þá um- ferð í opna flokknum er sú, að í efsta sæti er Hannes Hlífar Stef- ánsson með 7 vinninga. f 2.-4. sæti eru Bjarni Hjartarson, Þrá- inn Vigfússon og Þröstur Árna- son með 6V2 vinning. í 5.-9. sæti eru fimm keppendur með 6 vinn- inga: Andri Áss Grétarsson, Gunnar Björnsson, Héðinn Steingrímsson, Magnús Alex- andersson og Sigurjón Haralds- son. Níunda umferð var tefld í gærkvöldi (föstudaginn 24.1.86) og tíunda og næst síðasta umferð verður tefld á morgun (sunnudag 26.1.) og hefst kl. 2 að Grensás- vegi 44. I unglingaflokki er 6 umferð- um lokið og er Þröstur Árnason efstur með 6 vinninga. Síðustu 3 umferðirnar verða tefldar í dag (laugardag 25.1) kl. 2. ~v-

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.